Morgunblaðið - 09.02.2005, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 09.02.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2005 37 MENNING ÍSLANDSMÁLNING • Sími 517 1500 • Vöruhús / verslun Sætúni 4 ÍSLANDS MÁLNING STÆRSTA MÁLNINGARVERSLUN LANDSINS BIORA INNIMÁLNING FRÁ TEKNOS Ný tegund almattrar veggjamáln- ingar sem hefur mikla þvottheldni Þolir yfir 10000 burstastrokur skv. SFS 3755 staðlinum Gæðastöðluð vara á góðu verði Ábyrgð tekin á öllum vörum Bílar á föstudögum Sérblaðið Bílar fylgir blaðinu á föstudögum. Meðal efnis næsta föstudag: Dótakassinn - ýmsir smáhlutir í bílinn Nýr Skoda Octavia - reynsluakstur Vinsælustu jepparnir í Bandaríkjunum Saga bílsins - fyrsti akstur í kringum landið Væntanlegir bílar - Audi Allroad, Opel Vectra Sértilboð til áskrifenda á bílaauglýs- ingum 995 kr. með mynd - Mættu til okkar í Kringluna 1 og við tökum myndina frítt - Einfalt, ódýrt og þægilegt auglýsingar 569 1111 Auglýsingar: Sandra - 569 1140 og Ragnheiður -569 1275 Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali. Laugavegur 182 • 105 Rvík • Fax 533 481 • midborg@midborg.is 680 fm heil húseign í miðbæ Reykjavíkur. Húsið er á tveimur hæðum og skiptist þannig: Á jarðhæð eru þrjú veitingahús með sérinngangi. Efri hæð er innréttuð sem skrifstofuhúsnæði. Eignin er öll í traustri útleigu. Verð 95,0 millj. HAFNARSTRÆTI Á LOKATÓNLEIKUM Myrkra músíkdaga, sem haldnir voru í Lista- safni Íslands, bauð Caput-hópurinn upp á fjölbreytta dagskrá. Frum- flutningur á Sextett II eftir Kjartan Ólafsson var ágætlega heppnaður; verkið var haganlega samsett þar sem rödd hvers hljóðfæris fékk að njóta sín. Að vísu skapaðist ekki mikil stemning, en tónlistin var a.m.k. hnitmiðuð og virkaði ekki of löng. Talsvert seiðmagnaðri var In- stallation Around A Heart eftir Þur- íði Jónsdóttur, sem hér var frum- flutt, en tónsmíðin bar undirtitilinn Hljóðrými með harmóníku og kammersveit. Þar kom norski harm- óníkusnillingurinn Geir Draugsvoll til sögunnar og einkenndist verkið af markvissri þrástefjun þar sem tón- listin leitaði alltaf í sama grunninn aftur og aftur. Hnitmiðuð stígandin varð þó æ meira hrollvekjandi, ísmeygilegur tónavefurinn varð stöðugt þykkari, hryssingsleg rödd harmóníkunnar forneskjulegri og var útkoman sérlega áhrifarík. Gaman hefði verið að lesa eitthvað um verkið í tónleikaskránni, sem var heildardagskrá Myrkra músíkdaga og hefði almennt talað mátt vera vandaðri og með ítarlegri upplýs- ingum um ýmsar hliðar hátíð- arinnar. Líkt og tónsmíð Þuríðar var sú eftir Atla Heimi Sveinsson, Im- pressionen op. 1, ákaflega skemmti- leg, sérstaklega hávær en margbrot- inn þriðji kaflinn og hljóðlátur, dulúðugur fjórði þátturinn. Sömu- leiðis var Ymni fyrir mezzósópran og sjö hljóðfæraleikara eftir Áskel Másson, hér frumfluttur, heillandi skáldlegur. Úrvinnsla grunnstefsins var þægilega afslöppuð og einsöngur Ásgerðar Júníusdóttur var kröftug- ur, tilfinningaþrunginn og glæsi- legur. Lokaatriði tónleikanna var frum- flutningur á konsert eftir stað- artónskáld dönsku Fílharmóníu- hljómsveitarinnar, Jesper Koch. Fyrrnefndur Draugsvoll var ekki búinn að syngja sitt síðasta er hér var komið sögu, því harmóníkan var í aðalhlutverki í konsertinum. Það lá þó við að hljóðfærið gæfi upp öndina strax í byrjun, því undarleg óhljóð tóku að heyrast úr því. Stöðva varð flutninginn og Draugsvoll skaust með gripinn baksviðs til að gera við hann, en á meðan teygðu tónleika- gestir úr sér. Sem betur fór varð hléið ekki langt; Draugsvoll sneri aftur með hljóðfærið í toppstandi og gat konsert Kochs þá hljómað í öllu sínu veldi. Skemmst er frá því að segja að þetta er litríkt verk þar sem ólíkar tónlistarstefnur skjóta upp kollinum án þess að heildarmyndin bjagist og var útkoman áheyrileg og oft spennandi. Draugsvoll spilaði með stór- fenglegum tilþrifum; hröðustu hlaup voru hárnákvæm og viðkvæmari augnablik tónlistarflutningsins voru einlæg og gædd ríkulegum blæ- brigðum. Í stuttu máli voru þetta prýðilegir tónleikar; Caput-hópurinn spilaði fagmannlega undir öruggri stjórn Guðna Franzsonar og var þetta ágætur endir athyglisverðrar tón- listarhátíðar. Hrollvekjandi tónlist TÓNLIST Listasafn Íslands Caput-hópurinn flutti undir stjórn Guðna Franzsonar tónsmíðar eftir Kjartan Ólafs- son, Atla Heimi Sveinsson, Þuríði Jóns- dóttur, Áskel Másson og Jesper Koch. Einsöngvari: Ásgerður Júníusdóttir. Ein- leikari: Geir Draugsvoll. Sunnudagur 6. febrúar. Myrkir músíkdagar Guðni Franzson Ásgerður Júníusdóttir Jónas Sen FERÐAFÉLAG Íslands stendur fyrir myndakvöldi kl. 20 í kvöld, en þar mun Jóhann Ísberg sýna glæsi- legar myndir sem nýttar eru við merkingar á örnefnum víða um land. Margar myndanna eru teknar úr flugvél í björtu og góðu veðri og ná yfir allstór landsvæði og lands- lagsheildir þar sem fjöll, dalir og firðir njóta sín til fulls í samspili sólarljóss og skugga. Þá segir Svav- ar Sigmundsson, forstöðumaður Örnefnastofnunar, frá verkefninu þar sem ljósmyndirnar eru notaðar og helstu áherslum í söfnun ör- nefna um þessar mundir. Á myndakvöldinu sýnir Jóhann einnig einstæða kvikmynd af norð- urljósunum yfir Íslandi. Myndakvöldið hefst kl. 20 í sal Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6. Kaffiveitingar í hléi. Aðgangur er 600 kr. Norðurljós og örnefni Ljósmynd/Jóhann Ísberg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.