Morgunblaðið - 03.04.2005, Side 4
4 SUNNUDAGUR 3. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fjórar leiðir til hamingju
Í tilefni af útkomu bókarinnar Fleiri
skyndibitar fyrir sálina eftir Barböru
Berger mun hún halda tvo
fyrirlestra þann 6. og 7. apríl í
Manni lifandi kl. 20–23.
Í fyrra komust færri að en vildu.
Báðar bækurnar, Skyndibitar fyrir sálina
og Fleiri skyndibitar fyrir sálina verða
á tilboði (1.290 kr. hvor) í öllum
MM og Pennabúðum til 8. apríl.
Upplýsingar og skráning í
síma 552 1122 og á
audur@salkaforlag.is
www.salkaforlag.is
EIGENDUR kaffihússins Sega-
fredo við Lækjartorg auglýstu fyrir
nokkru að kaffihúsið yrði reyklaust
frá og með 1. apríl. Segja þau við-
skiptavini hafa tekið afar vel í það,
bæði reykingamenn og þá sem ekki
reyktu.
„Þetta er náttúrlega það sem
koma skal,“ segir Oliver Pálmason,
sem á og rekur Segafredo ásamt
konu sinni, Nönnu Guðbergsdóttur.
„Ítalirnir byrjuðu á þessu um ára-
mótin. Það má segja að þar hafi eitt
síðasta vígið fallið. Það hefur til-
heyrt þessari ítölsku espressó-
baramenningu að fá sér að reykja
með espressóinu. Það fór allt á ann-
an endann þegar þeir byrjuðu með
þetta þar, en þetta hefur gengið
mjög vel síðan. Þá hafa reykingar
verið bannaðar í Noregi, Írlandi og
Kúbu, en allar reykingar á veit-
ingastöðum voru bannaðar þar fyrir
mánuði.“
Nanna segir fjölbreytni mjög mik-
ilvæga, að staðurinn bjóði upp á
fleira en kaffi. „Það er líka gaman að
fastagestirnir okkar geti komið
hingað á kvöldin og fengið sér vín-
glas án þess að vera í reyk. Það er
mjög mikil ánægja með þetta,“ segir
Nanna, sem segist ekki hafa orðið
vör við óánægju reykingamanna
með ákvörðunina.
„Auðvitað þurftum við að hugsa
um þetta fram og aftur, en við viss-
um að þetta er það sem fólk vill í
dag. Fólk vill geta komið og sest án
þess að reykurinn trufli. Reyk-
ingafólk hefur ekki tekið þessu illa
og situr bara úti með ullarteppi og
kemur svo inn.“
SAUTJÁN prósent fólks hafa á síð-
ustu tólf mánuðum greitt fyrir
verk eða þjónustu án þess að fá
nótu fyrir greiðslunni og hafa jafn-
framt haft grun um að skattsvik
ættu þar hlut að máli, að því er
fram kemur í þjóðarpúlsi Gallup.
Fram kemur að það eru mun oft-
ar karlmenn sem í hlut eiga en
konur. Þannig höfðu tæplega 22%
karla ekki fengið nótu og grunað
skattsvik samanborið við 13%
kvenna.
Þá kemur fram að tæplega 10%
aðspurðra segjast hafa látið vera
að telja einhverjar tekjur fram til
skatts á síðustu fimm árum. Mun
algengara er það í tilviki karla, en
16% þeirra segjast hafa sleppt að
telja fram einhverjar tekjur, en
einungis 4% kvenna segjast hafa
gert það sama. Þá er hlutfallið
hæst í aldurshópnum 25–34 ára
eða 18% og lægst í aldurshópnum
55–75 ára eða einungis 3%.
Könnunin var gerð frá 9.–22.
mars og náði til á þrettánda
hundrað manna. Svarhlutfall var
61%.
17% hafa átt
í nótulausum
viðskiptum
ÞEIM veitingamönnum fjölgar sí-
fellt sem ákveða að banna reykingar
á veitinga- og kaffihúsum sínum.
Jakobína H. Árnadóttir verkefnis-
stjóri tóbaksvarna hjá Lýðheilsustöð
segir tilfinningu sína staðfesta þetta.
Hún sagði að á föstudag hefðu
tveir staðir bæst í hópinn, Café Niel-
sen á Egilsstöðum, og Café Sega-
fredo við Lækjartorg.
„Ég frétti líka af því að Drauga-
setrið á Stokkseyri væri reyklaust.
Nýverið varð líka meðal annars
Múlakaffi reyklaust, en sá veitinga-
staður er með
viðskipta-
mannahóp sem
samkvæmt
könnunum er
með einna
hæsta tíðni
reykinga,“ segir
Jakobína.
„Það er að
sjálfsögðu fagn-
aðarefni að
reyklausum kaffihúsum og veitinga-
stöðum fer fjölgandi og vonandi að
sem flestir taki sér þetta til fyrir-
myndar og geri staðina reyklausa
með heilsu og hag starfsfólksins fyr-
ir brjósti.“
Samkvæmt lista sem Lýðheilsu-
stöð hefur tekið saman er fjöldi
reyklausra kaffihúsa og veitinga-
stöðum nú í kringum áttatíu og gæti
fjöldi þeirra verið þó nokkuð hærri,
því að sögn Jakobínu berast Lýð-
heilsustöð nú reglulega tilkynningar
frá veitingamönnum um annaðhvort
stofnun reyklausra veitingastaða eða
breytingu yfir í reykleysi.
Jakobína H.
Árnadóttir
Reyklaus kaffihús og veitingastaðir eru nú um áttatíu talsins og stöðugt fjölgar í hópnum
Tveir bættust við um helgina
sagði hún. Samkvæmt þjóðskrá heit-
ir hún einfaldlega Þuríður Jóhanns-
dóttir en hún er þó aldrei kölluð ann-
að en Blær.
Að sögn Blævar var beðið með
skírnina þar sem ekki fékkst leyfi til
að skrá nafnið hjá mannanafnanefnd
og raunar var hún ekki skírð fyrr en
í fyrra, skömmu áður en hún fermd-
ist. Var hún þá skírð Þuríður Blær,
þrátt fyrir að enn hefði ekkert leyfi
fengist hjá mannanafnanefnd.
Erfitt að beygja
„Ég er alltaf kölluð Blær nema
kannski af nýjum kennurum í skól-
anum, þeir kalla mig stundum Þur-
íði, en annars kalla mig allir bara
Blævi,“ sagði Blær og kvaðst afar
ánægð með nafnið. Flestum fyndist
nafnið mjög fallegt. Sumum sem
ættu t.d. lítinn frænda sem héti Blær
fyndist það þó kannski skrítið til að
byrja með að stúlka gæti líka heitið
Blær en þetti vendist þó fljótlega.
Aðspurð sagði hún að einu erfiðleik-
arnir sem tengdust nafninu væru að
það vefðist fyrir mörgum að beygja
það rétt.
En hvað finnst henni um að ekki
mega skíra stúlkur Blævi? „Mér
finnst það mjög asnalegt og mér
finnst að allar sem bera nafnið Blær
ættu að koma saman og þvinga
mannanafnanefnd til þess að leyfa
það.“ Það væri þó óvíst hvort það
gengi þar sem enn sem komið væri
bæru frekar fáar stúlkur þetta nafn.
ÞÓ að mannanafnanefnd hafni því
að stúlkum sé gefið nafnið Blær og
engin nema Blær Guðmundsdóttir
sé skráð með því eiginnafni í þjóð-
skrá bera nokkrar stúlkur hér á
landi nafnið Blær.
Ein þessara stúlkna er Þuríður
Blær Jóhannsdóttir, 14 ára nemandi
í Austurbæjarskóla. Í kjölfar um-
fjöllunar Morgunblaðsins um „Blæv-
armálið“ fyrr í vikunni hringdi hún í
blaðamann til að koma sjónarmiðum
sínum á framfæri.
„Mamma var held ég að lesa
Brekkukotsannál þegar hún sá nafn-
ið og fékk bara hugljómum og vildi
skíra dóttur sína Blævi. Og síðan hef
ég heitið Blær. En af því að það
mátti ekki var ég líka skírð í höfuðið
á ömmu minni sem heitir Þuríður,“
Heitir Blær, bara
ekki í þjóðskrá
Allar með nafnið Blær sameinist og
þrýsti á mannanafnanefnd
Morgunblaðið/Golli
„Ég er alltaf kölluð Blær nema kannski af nýjum kennurum í skólanum,
þeir kalla mig stundum Þuríði,“ sagði Blær.
Ákvörðunin
mælist vel fyrir
Morgunblaðið/Golli
Oliver Pálmason, Nanna Guðbergsdóttir og Ása Jelena á Segafredo.
armanna og vélstjóra hófust sum-
arið 2004. Í lok síðasta árs var kynnt
niðurstaða mats á hagkvæmni sam-
einingar félaganna. Meginniðurstað-
an var sú að búast mætti við tölu-
verðum fjárhagslegum ávinningi og
er gert ráð fyrir að þjónusta við fé-
lagsmenn muni um leið eflast með
sterkara félagi.
Unnið hefur verið að útfærslu á
uppbyggingu og stjórnun sameinaðs
félags og fjölluðu stjórnir félaganna
um drög að slíku samkomulagi 22.
og 23. mars sl. Í þeim er gert ráð
STJÓRNIR Félags járniðnaðar-
manna og Vélstjórafélags Íslands
hafa samþykkt samkomulag sem
viðræðunefndir hafa gert um sam-
einingu félaganna. Eftir er að ljúka
viðræðum um ýmsa þætti, en miðað
er við að tillaga um sameiningu verði
lögð fyrir félagsmenn í lok ársins og
verði hún samþykkt muni félögin
sameinast formlega vorið 2006.
Fjárhagslegur ávinningur
Viðræður um hugsanlega samein-
ingu eða samstarf félaga járniðnað-
fyrir að kosið verði til fyrstu tveggja
starfsára með listakosningu þar sem
bæði félög eiga jafnan fjölda sæta og
mun hvort félag eiga formann og
varaformann í eitt ár. Auk þess mun
verða skipað fulltrúaráð sem verður
fjölskipað og endurspeglar alla hópa
innan sameinaðs félags. Einnig er
tekið á aðild að heildarsamtökum.
Stjórnir beggja félaga samþykktu
samkomulagið.
Viðræðunefnd félaganna mun á
næstunni halda áfram viðræðum um
ýmis mál sem ekki hefur verið tekin
afstaða til. Gert er ráð fyrir að kall-
aðir verði saman verkefnahópar,
m.a. til að gera tillögu að lögum
sameinaðs félags. Skilgreina þarf
starfsemi sameinaðs félags nánar
m.t.t. þjónustu og mönnunar skrif-
stofu, sjóða, félagsgjalda o.fl. Náist
einnig samkomulag um þessi mál er
gert ráð fyrir að tillögur um samein-
ingu félaganna verði lagðar fram til
samþykktar um næstu áramót.
Verði tillögurnar samþykktar getur
sameinað félag tekið til starfa vorið
2006.
Unnið að sameiningu félaga
járniðnaðarmanna og vélstjóra
Varautanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Robert B. Zoellick, á fund
með Davíð Oddssyni, utanrík-
isráðherra hér á landi á þriðjudag-
inn kemur 5. apríl.
Fundurinn hér er hluti af fund-
arhöldum varautanríkisráðherrans
með aðildarríkjum Norður-
Atlantshafsbandalagsins í kjölfar
þess að nýtt fólk hefur komið að
bandaríska utanríkisráðuneytinu
eftir forsetakosningarnar í vetur.
Er ráðherrann að ljúka yfirreið
sinni um lönd Norður-Atlantshafs-
bandalagsins og er á leið vestur um
haf.
Fundar með
fulltrúum
NATO-ríkja