Morgunblaðið - 03.04.2005, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. APRÍL 2005 17
út í heim
www.icelandair.is/serferdir
Fjölbreytt dagskrá
Njótið lífsins í Florida
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
27
83
2
03
/2
00
5
Í ferðunum verður margvíslegt í boði til skemmtunar
og hressingar, morgunhreyfing, gönguferðir, skoðunar-
ferðir, danskennsla í haustferðum, félagsvist, bingó og
kvöldskemmtanir og ferðafélögum gefst kostur á að
fara saman út að borða.
Sólskinsríkið Florida er paradís eldri borgara
Hafið samband við hópadeild s. 50 50 406 eða
groups@icelandair.is
Ferðir fyrir eldri borgara til
St. Petersburg Beach í Florida
í vor og haust – Íslenskur fararstjóri
8. - 18. maí - Fararstjóri: Þráinn Þorleifsson.
30. sept. - 11. okt. - Fararstjóri: Gunnar Þorláksson.
8. - 19. nóv. - Fararstjóri: Gunnar Þorláksson.
Verð frá 89.900 kr.*
á mann í tvíbýli á Alden Beach Resort
Alden Beach Resort
* Innifalið í verði: Flug, flugvallarskattar, akstur til og frá flugvelli erlendis,
gisting í 10 nætur (9 nætur 8. maí) á Alden Beach Resort á St. Petersburg
Beach og 1 nótt á Florida Mall-hótelinu á leiðinni heim, íslensk fararstjórn
og þjónustugjald.
Gunnar Þorláksson Þráinn Þorleifsson
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
Icelandair tekur við
MasterCard ferðaávísun
í allt flug, þ.m.t. netflug
lands en að mati sumra er áhersl-
an á útlönd enn mikil. Spurningin
er hins vegar sú hvort hagsmuna-
aðilar, eins og lyfjafyrirtækin, eigi
að koma að henni. „Ekki opið, ekki
augljóst, ekki gagnsætt“ voru orð
sem látin voru falla um samskipti
lyfjafyrirtækja og lækna á fundi
um símenntun sem læknaráð stóð
fyrir í febrúar.
Gagnrýnt hefur verið að sam-
skipti lækna og lyfjafyrirtækja séu
ekki alfarið uppi á borðum, t.d. að
ekki séu til nákvæmar tölur á þeim
stofnunum sem læknar starfa, um
ferðir þeirra á ráðstefnur og þing í
útlöndum í boði lyfjafyrirtækja. Þá
hafa engar rannsóknir verið gerð-
ar á því hér á landi hvers konar
risnu læknar njóti í tengslum við
þá fræðslu sem lyfjafyrirtæki
greiða fyrir. Þykir mörgum sjálf-
sagt að lyfjafyrirtæki komi ekki
nálægt endurmenntun lækna á
nokkurn hátt en aðrir benda á að
lyfjakynningar séu í mörgum til-
vikum æskilegar og geti leitt til
umbóta í meðferð sjúklinga.
Guðbjörg Alfreðsdóttir, fram-
kvæmdastjóri lyfjasviðs hjá fyrir-
tækinu Vistor, bendir á að hjá
framleiðanda frumlyfs liggi öll
þekking um lyfið, því sé alls ekk-
ert óeðlilegt við það að framleið-
endur séu þeir sem geti veitt best-
ar upplýsingar um það. „Lyf leiða í
langflestum tilfellum gott af sér og
eru meðferðarúrræði sem stundum
getur verið það eina fyrir sjúk-
linga. Það skiptir mestu máli,“
segir Guðbjörg. „Því miður er um-
ræðan um lyf og lyfjafyrirtæki allt
of oft neikvæð en ætti þvert á móti
að vera jákvæð. Það eru líka fram-
leiðendur sjálfir sem ákveða að
taka lyf af markaði ef þurfa þykir
og axla þeir einnig þannig ábyrgð-
ina sem framleiðendur.“
Í grein landlæknis í Lækna-
blaðinu nú í mars segir m.a. að
samskipti lækna og lyfjafyrirtækja
bjóði upp á „verulega hagsmuna-
árekstra, svo mikla að þau þola illa
dagsins ljós, og það sem kannski
skiptir mestu máli, sjúklingar okk-
ar gætu ekki sætt sig við þá“.
Bendir hann á að fjöldi erlendra
rannsókna sýni að samskipti lækna
og lyfjafyrirtækja hefðu mælanleg
áhrif á lyfjanotkun lækna. Segir
hann engar skráðar upplýsingar til
um þessi áhrif hér á landi, „en
ólíklegt er að greindarvísitala og
siðferðisstyrkur okkar íslenskra
lækna sé frábrugðinn því sem
gengur og gerist meðal kollega
okkar í nálægum löndum“.
Samningsbundin réttindi nýtt
Í ályktun frá almennum fundi
læknaráðs í lok febrúar eru dregn-
ir saman ýmsir þeir þættir í þessu
sambandi sem gagnrýndir hafa
verið. Í ályktuninni eru læknar
hvattir til að nýta vel samnings-
bundin réttindi sín til símenntunar
og talið eðlilegt að þau séu nýtt
áður en leitað er annarra leiða til
kostunar námsferða. Ákvæði í
kjarasamningi lækna um náms-
ferðir séu afar mikilvæg en reglur
þurfi að rýmka. Segir ennfremur
að lyfjafyrirtæki og önnur fyrir-
tæki hafi til langs tíma stutt vel
við ýmsa fræðslustarfsemi á veg-
um læknasamtaka en bent er á að
framlagi fyrirtækja til símenntun-
ar lækna væri best fyrir komið
með fræðslustyrkjum til Fræðslu-
stofnunar Læknafélags Íslands,
sérgreina lækninga á stofnunum,
til sérgreinafélaga eða annarra
samtaka lækna. „Nauðsynlegt er
að þessi samskipti séu gagnsæ og
að tengsl risnu og fræðslu séu rof-
in,“ segir í ályktuninni.
Landlæknir tekur í grein sinni
undir þau sjónarmið sem koma
fram í ályktun læknaráðsfundarins
þ.e. að framlagi fyrirtækja til sí-
menntunar lækna væri best fyrir
komið með fræðslustyrkjum til
Fræðslustofnunar LÍ og komi þar
með í staðinn fyrir að lyfjaiðnaður-
inn styðji einstaka lækna til ferða-
laga til útlanda. Telur landlæknir
að þessum samskiptum væri til
mikils framdráttar ef lyfjafyrir-
tækin tækju sjálf þá ákvörðun að
setja fjármunina í sameiginlegan
sjóð til símenntunar lækna.
Nokkrir viðmælendur Morgun-
blaðsins efast um að fyrirtæki séu
tilbúin til þess. Boðsferðir á þeirra
vegum séu viðskiptalegs eðlis.
Fyrirtæki bjóði lykilmönnum í
læknastétt sem hafi með útgjöld á
lyfjum í formi lyfjaávísana að gera
og séu t.d. í aðstöðu til að hafa
áhrif á lyfjalista sjúkrahúsanna.
Þeim læknum sem ávísa sjaldan
lyfjum sé ekki boðið. Læknar sem
hins vegar þurfa sérgreinar sinnar
vegna oft að ávísa dýrum lyfjum,
séu í uppáhaldi hjá lyfjafyrirtækj-
um hvað þetta varðar. Gríðarleg-
um fjármunum eða rúmlega 2,6
milljörðum, var varið til lyfjakaupa
á LSH á síðasta ári og er því eftir
miklu að slægjast fyrir lyfjafyr-
irtæki. Þau fyrirtæki sem Morg-
unblaðið hafði samband við vildu
ekki gefa upp hversu miklu fé væri
varið af þeirra hálfu til fræðslu til
lækna. Slíkt væri trúnaðarmál.
Guðbjörg Alfreðsdóttir hjá Vist-
or, sem er fulltrúi margra lyfjafyr-
irtækja, segir það á valdsviði
hvers og eins lyfjafyrirtækis í hvað
peningum er varið og aðrir hafi
ekki umráðarétt yfir því. Segir
hún þetta vera markaðspeninga
lyfjafyrirtækjanna sjálfra og
þeirra að ráðstafa þeim. „Það hlýt-
ur að vera á höndum framleiðenda
vöru að kynna hana,“ segir Guð-
björg, „eðlilegast er að framleið-
andi annist kynningu á vörunni.“
Lausnin ekki hjá fyrirtækjunum
Að mati Sigurbjörns Sveinsson-
ar, formanns Læknafélags Íslands,
þyrfti málum að vera þannig fyrir
komið að því fé sem læknar nýta
ekki til símenntunar erlendis, þ.e.
sem annars færi til að fullnýta
samningsbundin réttindi lækna, sé
safnað í sjóð til endurmenntunar
lækna til að minnka þrýstinginn á
lækna að þiggja boðsferðir frá
lyfjafyrirtækjunum. Með því fyr-
irkomulagi sem nú sé við lýði megi
í raun segja að það sé hagur
sjúkrahússins að sem fæstir
læknar nýti sér réttindi sín til sí-
menntunar erlendis. Því græði
sjúkrahúsið í raun á tengslum
lækna og lyfjaiðnaðarins að þessu
leyti.
„Ég held að lausnin sé ekki í
gegnum lyfjafyrirtækin,“ segir
að endurmenntun lækna?