Morgunblaðið - 03.04.2005, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 3. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Afslöppun er lykilorð dagsins og hrút-
urinn vill öllum vel. Myrkar tilfinningar
liðinna daga eru horfnar. Maður gerir
bara sitt besta, meira er ekki hægt að
biðja um.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þetta er annar dagurinn sem nautið
finnur sig alls ekki knúið til þess að
vinna. Engar áhyggjur, himnarnir eru
ekki að hrynja. Þú þarft bara að hvíla
þig!
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn finnur til óvenjumikils hug-
rekkis núna og kemur sjálfum sér hugs-
anlega á óvart í hópverkefni. Hann er
tilbúinn til þess að gera hluti sem hann
hefur ekki gert áður.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbinn er svo öruggur með sig í dag
að hann virðist hrokafullur. Hroki er að
halda að maður geti gert eitthvað vel
sem maður getur ekki. Sjálfstraust er
annar handleggur.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ekki reyna að þröngva skoðunum þínum
upp á aðra. Ljónið er í stuði til þess að
stíga upp á ölkassa og predika yfir
náunganum. Fólk er jafnmismunandi og
það er margt.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjan er sjálfstraustið uppmálað í
verkefnum sem tengjast sameiginlegum
eignum. Gættu þess samt sem áður að
fara varlega með fé annarra.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Gættu þess hvernig þú tjáir þig í dag.
Kannski finnst fólki að þú þykist vita
allt. Það er ekki í eðli þínu, kenndu af-
stöðu himintunglanna um.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ekki ofreyna þig í vinnunni í dag og
gættu þess að lofa ekki meiru en þú færð
ráðið við. Þessa dagana hættir þér til
þess að lofa upp í ermina á þér.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Loforð sem gefin eru smáfólkinu þarf að
efna. Sköpunargleði og auðugt ímynd-
unarafl eru vissulega af hinu góða, en hið
sama gildir um áreiðanleika og stað-
festu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú vilt frekar forðast yfirmanninn í dag
en þurfa að segja sannleikann. Ef þér er
þröngvað til þess skaltu forðast ýkjur og
lygar. Best væri að stinga bara af.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Systkini og skyldfólk lætur hugsanlega
út úr sér eitthvað í dag, sem kemur
vatnsberanum í uppnám. Hugsaðu þig
vel um áður en þú bregst við.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ekki steypa þér í kortaskuldir í dag.
Dómgreind þín í peningamálum er svo
sannarlega ekki upp á sitt besta. Fram-
tíðin virðist bjartari en hún er.
Stjörnuspá
Frances Drake
Hrútur
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert oft í hringiðu hlutanna, hvort sem
þú ætlar þér það eða ekki. Það kemur þér
á óvart, enda ertu látlaus, afslappaður og
velviljaður í eðli þínu.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 frumkvöðull, 8
skips, 9 látna, 10 þreyta,
11 vagga í gangi, 13 lengj-
an, 15 þref, 18 tala, 21
hrós, 22 æðarfugl, 23 kær-
leikshót, 24 vanhugsuð at-
höfn.
Lóðrétt | 2 gera skarð í, 3
tyggja, 4 styrkir, 5 Gyð-
ingum, 6 saklaus, 7 sigr-
aði, 12 mergð, 14 kyn, 15
grastorfa, 16 fiskar, 17
kátínu, 18 þungbær
reynsla, 19 lítils báts, 20
ferskt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 stuld, 4 hollt, 7 öngul, 8 ólykt, 9 dós, 11 görn, 13
átta, 14 æruna, 15 skær, 17 rófa, 20 odd, 22 falds, 23 uggur,
24 marrs, 25 synir.
Lórétt | 1 stöng, 2 ungur, 3 duld, 4 hrós, 5 leyst, 6 totta, 10
ólund, 12 nær, 13 áar, 15 sófum, 16 ætlar, 18 ólgan, 19 akr-
ar, 20 osts, 21 dugs.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
LÚÐRASVEIT Tónlistarskóla Ísafjarðar og
Skólalúðrasveit Tónlistarskólans halda
tónleika í Ísafjarðarkirkju í dag, sunnudag,
kl. 17.
Lúðrasveitarstarf á Ísafirði þykir hafa
blómstrað síðustu misserin undir stjórn
eistneska tónlistarkennarans og tromp-
etleikarans Madis Mäekalle. Tvær sveitir
starfa nú við skólann auk ýmissa minni
blásarahópa. „Stóra“ lúðrasveitin er skip-
uð 24 hljóðfæraleikurum á ýmsum aldri
og eru sumir þeirra þaulreyndir tónlist-
armenn. Í Skólalúðrasveitinni eru nokkru
færri eða um 18 hljóðfæraleikarar, flestir á
grunnskólaaldri, en þeir njóta einnig að-
stoðar nokkurra þeirra eldri.
Á efnisskrá tónleikanna verða um 18
lög, allt frá 19. aldar rómantík til laga Deep
Purple.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.
Lúðrar í Ísafjarðarkirkju
Tónlist
Akureyrarkirkja | Kvennakór Akureyrar
heldur tónleika kl. 16. Einsöngvari með
kórnum verður Sigrún Arna Arngríms-
dóttir. Stjórnandi er Þórhildur Örv-
arsdóttir og undirleikarar Eyþór Ingi
Jónsson á píanó og Snorri Guðvarðarson
á gítar.
Salurinn | Tíbrá: Svítur Bachs fyrir ein-
leiksselló kl. 20. Seinni hluti. Gunnar
Kvaran. Einleikssvítur Bachs nr. 2, nr. 6
og nr. 4.
Tónlistarskóli Akureyrar | Tónleikar
sunnudag kl. 16 undir yfirskriftinni Ferða-
lög. Flytjendur: Marta Hrafnsdóttir, alt-
söngkona, Daníel Þorsteinsson, píanó-
leikari og Sigurður Halldórsson,
sellóleikari.
Þorlákskirkja | Kammersveit Reykjavík-
ur heldur tónleika kl. 17.00. Á tónleik-
unum flytur Kammersveitin strengja-
kvintett eftir Schubert í C-dúr op. 163.
Þessi strengjakvintett hefur oft verið
nefndur Drottning kammerverkanna
vegna þess hve fallegur hann er.
Myndlist
Energia | Málverkasýning aprílmánaðar á
Energia í Smáralind. Ólöf Björg er út-
skrifuð úr Listaháskóla Íslands ásamt því
að hafa stundað nám bæði í Kóreu og á
Spáni.
Gallerí Skuggi | Anna Jóa og Ólöf Odd-
geirsdóttir – Mæramerking II.
Gallerí Sævars Karls | Regína sýnir olíu-
málverk máluð á striga.
Gerðuberg | María Jónsdóttir – Gull-
þræðir. Klippimyndir, verk úr muldu
grjóti, olíumálverk og fleira í Boganum.
Gerðuberg | Ljósberahópurinn – Hratt og
hömlulaust.
Grensáskirkja | Guðbjörg Hákonardóttir
(Gugga) sýnir málverk í forsal.
Hafnarborg | Jónína Guðnadóttir – lág-
myndir og innsetningar í aðalsal. Bar-
bara Westmann – Adam og Eva og Minn-
ismyndir frá Vestmannaeyjum.
Hallgrímskirkja | Vignir Jóhannsson –
Sólstafir.
Hrafnista, Hafnarfirði | Gerða Kristín
Hammer sýnir akrýlmyndir og fleiri list-
muni í Menningarsal á fyrstu hæð.
Kunstraum Wohnraum | 3. apríl kl. 11–13
verður Baldvin Ringsted til viðtals á sýn-
ingu sinni í Kunstraum Wohnraum, Ása-
byggð 2, Akureyri. Á sýningunni gefst
gestum kostur á að spegla sig í klippi-
hljóðverki þar sem notast er m.a. við
textabrot úr ævintýrum og fegurð-
arsamkeppnum. Allir velkomnir.
Listasafn ASÍ | Kristín Sigfríður Garð-
arsdóttir – Handleikur. Sigrid Valtingojer
– Hörund Jarðar.
Listasafn Reykjanesbæjar | Erlingur
Jónsson og samtímamenn.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Nían
– Myndasögumessa. Brynhildur Þorgeirs-
dóttir – Myndheimur/Visual World.
Safn | Ingólfur Arnarsson – Teikningar.
Samsýning listamanna frá Pierogi Gallerí
í New York.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn – hús skáldsins er opið frá kl. 10 –
17. Skemmtileg og fræðandi hljóð-
leiðsögn um húsið, margmiðlunarsýning
um ævi skáldsins og fallegt umhverfi.
Sími 586 8066 netfang: gljufrasteinn-
@gljufrasteinn.is.
Þjóðmenningarhúsið | Hallgrímur Pét-
ursson (1614–1674) er skáld mánaðarins í
Þjóðmenningarhúsinu.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning
Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til–
menning og samfélag í 1200 ár. Ómur
–Landið og þjóðin í íslenskri hönnun.
Ljósmyndasýningarnar Í vesturheimi
1955, ljósmyndir Guðna Þórðarsonar, og
Íslendingar í Riccione, ljósmyndir úr fór-
um Manfroni-bræðra. Opið kl. 11–17.
Fréttir
Tungumálamiðstöð HÍ | Föstudaginn 13.
maí heldur Háskóli Íslands alþjóðleg próf
í spænsku. Prófin eru haldin á vegum
Menningarmálastofnunar Spánar (Instit-
uto Cervantes). Innritun fer fram í
Tungumálamiðstöð HÍ: 525 4593, sab-
ine@hi.is. Frestur til innritunar rennur út
8. apríl.
Fundir
AA-samtökin | Uppkomin börn, aðstand-
endur og alkóhólistar halda 12 spora
fundi öll mánudagskvöld frá kl. 20–21.30
að Tjarnargötu 20, Rvík. Verið velkomin.
Aglow | Aglow Reykjavík heldur fund 4.
apríl kl. 20 að Skipholti 70b, efri hæð.
Ræðukona verður Edda Swan, formaður
Evrópustjórnar Aglow International.
Birna og Bernhard Wiencke sjá um lof-
gjörðina. Boðið upp á veitingar. Þátttöku-
gjald er 700 kr. og eru allar konur vel-
komnar.
Breiðfirðingabúð | Félag breiðfirska
kvenna heldur fund mánudaginn 4. april
kl. 20. Gestur fundarinns verður Guðrún
Ásmundsdóttir leikkona.
Eineltissamtökin | Fundir eru á hverjum
þriðjudegi kl. 20, í húsi Geðhjálpar, Tún-
götu 7.
Garðaholt samkomuhús | Kvenfélag
Garðabæjar heldur félagsfund þriðjudag-
inn 5. apríl kl. 20 að Garðaholti.
ITC Fífa | Í tilefni af 50 ára afmæli
Kópavogs mun ITC-deildin Fífa tileinka
Kópavogsbæ fundinn 6. apríl kl. 20.15, í
félagsmiðstöðinni Gjábakka, Fannborg 8.
Gestur fundar er Hansína Björgvinsdóttir
bæjarstjóri. Allir velkomnir á meðan hús-
rúm leyfir. Uppl. gefur Guðrún í síma
698 0144 gudrunsv@simnet.is.
Kvenfélagið Heimaey | Fundur í Þrast-
arlundi mánudaginn 4. apríl kl. 19. Allar
konur er tengjast Vestmannaeyjum vel-
komnar á fundinn. Rútuferð frá Mjódd-
inni kl. 18.15. Þátttaka tilkynnist í síma
586 2175 (Gyða), 587 8575 (Ágústa),
552 1153 (Sigríður).
Kynning
Ferðatorgið 2005 | Ferðamálasamtök
Íslands opnuðu markaðstorg ferðaþjón-
ustunnar í Vetrargarði Smáralindar 1.
apríl. Fulltrúar ferðaþjónustunnar kynna
hina fjölbreyttu ferðamöguleika og af-
þreyingu sem er í boði á Íslandi. Opið er
eins og í Smáralindinni alla helgina.
Námskeið
Kópavogsdeild RKÍ | Námskeið í al-
mennri skyndihjálp miðvikudaginn 6. apr-
íl kl. 18–22 í Hamraborg 11, 2. hæð. Nám-
skeiðsgjald er 4.900 kr. Skráning í síma
554 6626 eða á kopavogur@redcross.is
eigi síðar en 4. apríl.
Krabbameinsfélagið | Reykbindind-
isnámskeið Krabbameinsfélags Reykja-
víkur hefst miðvikudaginn 6. apríl. Fjallað
verður m.a. um fíkn, nikótínlyf, langvar-
andi afleiðingar tóbaksneyslu, og mat-
aræði. Þátttakendur hittast sex sinnum
á fimm vikna tímabili, að námskeiði
loknu er þátttakendum fylgt eftir í eitt
ár. Leiðbeinandi er Halla Grétarsdóttir,
hjúkrunarfræðingur og fræðslufulltúi hjá
Krabbameinsfélagi Reykjavíkur. Skráning
á hallag@krabb.is eða í síma 5401900.
www.ljosmyndari.is | 3ja daga námskeið
(12 klst.) fyrir stafrænar myndavélar. 4.,
6. og 7. apríl kl. 18–22 og 11., 13. og 14.
apríl kl. 18–22. Verð kr. 14.900. Nám-
skeið fyrir stafrænar myndavélar
2.–3.apríl, kl. 13–17 og 16.–17.apríl kl.13–17.
Einnig er boðið upp á fjarnám. Skráning
og nánari upplýsingar á www.ljosmynd-
ari.is eða síma 898–3911.
Íþróttir
Hellisheimilið | Hraðkvöld Hellis fer fram
mánudaginn 4. apríl og kl. 20, í Hellis-
heimilinu, Álfabakka 14a, þriðju hæð.
Tefldar eru 7 umferðir með 7 mínútna
umhugsunartíma. Nánar á www.hell-
ir.com.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Á mánudögum kl.
18 er farið frá Toppstöðinni við Elliðaár
og farinn hringur í Elliðaárdalnum. Allir
velkomnir, ekkert þátttökugjald.
Hlutavelta | Katla Marín Stef-
ánsdóttir og Jónína Rebekka Alfreðs-
dóttir héldu tombólu og söfnuðu 6.186
krónum til styrktar Rauða krossi Ís-
lands.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Íslandsmótið.
Norður
♠ÁK1072
♥7 N/AV
♦Á
♣ÁK10982
Vestur Austur
♠G543 ♠D96
♥96 ♥10842
♦DG1084 ♦K9
♣D7 ♣G643
Suður
♠8
♥ÁKDG53
♦76532
♣5
Sigfús Örn Árnason, liðsmaður Garða
og véla, horfði með nokkru stolti á spilin
sín í norður og vakti á sterku laufi –
svört slemma lá í loftinu.
Makker hans í suður, Friðjón Þór-
hallsson, var líka hrifinn af sínum spil-
um, þéttum sexlit í hjarta á móti sterku
laufi – rauð slemma var greinilega í
kortunum.
Bræðurnir, Anton og Sigurbjörn
Haraldssynir í sveit Skeljungs, sátu
með hundana í andstöðunni og fylgdust
með þessari undarlegu þróun sagna:
Vestur Norður Austur Suður
Anton Sigfús Sigurbjörn Friðjón
– 1 lauf * Pass 1 tígull *
Pass 1 spaði Pass 2 hjörtu
Pass 6 lauf Pass 6 hjörtu
Pass 6 spaðar Pass 7 hjörtu
Pass Pass Dobl Allir pass
Svarið á einum tígli er afmelding (!)
en annað er á eðlilegu nótunum, svo
langt sem það nær.
Sigfús Örn hefur vafalítið ekki búist
við því að makker gæti unnið alslemmu í
hjarta eftir upphaflega afmeldingu, en
annað kom á daginn. Tíguldrottningin
kom út og Friðjón tók strax tromp varn-
arinnar, svo ÁK í laufi og trompsvínaði
fyrir gosann. Þegar það gekk, voru 13
slagir í húsi: 1770 og 15 IMPar til Garða
og véla, því á hinu borðinu spiluðu NS
aðeins fjögur hjörtu.
Tók Friðjón vitlausan miða úr sagn-
boxinu í sinni fyrstu sögn? Ekki vildi
hann meina það – þvert á móti fannst
honum tími til kominn að spila svolítinn
póker við strákana úr Engihjallanum.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is