Morgunblaðið - 03.04.2005, Blaðsíða 6
Starfsemin byrjar af
krafti á nýja hótelinu
NÝTT hótel, Hótel Reykjavík
Centrum, var opnað á föstudag við
hátíðlega athöfn. Hótelið er við Að-
alstræti 16, en elsti hluti hússins
var byggður árið 1764. Nýbygg-
ingar hússins eru gerðar eftir sögu-
frægum reykvískum húsum, Fjala-
kettinum og Uppsölum.
Á hótelinu eru 90 herbergi með
öllum nútímaþægindum svo sem
gervihnattarsjónvarpi, þráðlausu
neti, öryggishólfi og te- og kaffi-
setti. Á hótelinu eru tveir ráð-
stefnusalir sem rúma allt að 40
manns.
Sigurður Ómar Sigurðsson, hót-
elstjóri Hótel Reykjavík Centrum,
segir hótelið þegar hafa fengið
margar fyrirspurnir um gistingar
og fjöldi aðila hafi lýst yfir áhuga á
bókunum. „Horfurnar eru mjög
góðar og það lítur út fyrir að við
byrjum af miklum krafti,“ segir
Sigurður Ómar, en gestir opnunar-
innar voru upp til hópa afar hrifnir
af hönnun og útliti hússins. „Fólk
sem er búið að skoða hérna hjá
okkur er mjög ánægt. Þetta hótel
býður upp á allt sem fjögurra
stjörnu hótel gerir.“
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
borgarstjóri segir ánægjulegt að
sjá að Aðalstrætið, sem enginn
hafði trú á fyrir tíu til tólf árum,
hafi nú gengið í endurnýjun lífdaga.
„Fyrir sex árum gengu borgaryf-
irvöld á hvern fjárfestinn á fætur
öðrum og enginn hafði trú á þessu.
Þá voru allir með hugann við
Kringlu og Smára,“ segir Steinunn.
„Þetta hefur gerbreyst, það er mik-
il uppbygging á þessu svæði og ver-
ið að endurgera elsta hús Reykja-
víkur hér við hliðina, en það verður
punkturinn yfir i-ið. Þetta ber því
vitni að þetta langa uppbygging-
arstarf síðasta áratugar sé að skila
sér.“
Morgunblaðið/Golli
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Þórólfur Árnason og kona hans, Margrét
Baldursdóttir, óskuðu Sigurði Ómari Sigurðssyni hótelstjóra til hamingju.
6 SUNNUDAGUR 3. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Til leigu er mjög gott um 450 m2
skrifstofuhúsnæði við Stangarhyl.
Aðkoma er mjög góð og næg bílastæði.
Um er að ræða alla efri hæð hússins og hluta 1. hæðar.
Nánari lýsing: Góð móttaka, tvö opin vinnurými,
annað fyrir 8-10 starfsstöðvar en hitt fyrir ca 5,
tæknirými með geymsluaðstöðu, 5 rúmgóðar skrifstofur
og 2 mjög stórar skrifstofur, auk salerna og ræstikompu.
Á jarðhæð er kaffistofa og starfsmannaaðstaða.
Mikið og fallegt útsýni er af hæðinni til norðurs.
Eignin er laus 1. maí.
Nánari upplýsingar veitir Arnheiður
í síma 591 9000 eða arnheidur@terranova.is
Skrifstofuhúsnæði til leigu
V
elta SÍF minnkar um ná-
lægt 30 milljarða króna
við söluna á Iceland
Seafood International
og verður að öllum lík-
indum tæpir 50 milljarðar á ári.
Starfsemin verður mun einsleitari en
áður þar sem allri frumvinnslu og
sölu lítt unninna afurða verður hætt.
Starfsemin verður nú aðeins í fjórum
löndum í stað 11 áður, það liggur fyr-
ir að félagið hyggur á frekari land-
vinninga.
SÍF-samsteypan á sér langa sögu,
enda sameinuð úr mörgum fyr-
irtækjum. Sölusamband íslenzkra
fiskframleiðenda var stofnað 1932 til
að flytja út saltfisk. SÍF var eitt um
þá hitu í um fimm áratugi. Því var
breytt í hlutafélag 1993, en útrásin
hófst 1990 með kaupum SÍF á
franska fyrirtækinu Nord Morue,
sem var sérhæft í vinnslu og sölu á
saltfiski. 1998 er franska fyrirtækið
J.B. Delpierre keypt, en það var
mest í fullvinnslu á kældum afurðum.
1999 sameinast SÍF og Íslandssíld,
áður Síldarútvegsnefnd. Sama ár
sameinast SÍF og Íslenzkar sjáv-
arafurðir, sem áttu sér langa sögu
undir nöfnunum Útflutningsdeild
Sambandsins og Sjávarafurðadeild
SÍS.
ÍS rak þá nýja fiskréttaverksmiðju
í Bandaríkjunum og hafði árið 1997
keypt franska fyrirtækið Gelmer,
sem var meðal annars í framleiðslu á
frystum afurðum og átti nýja fisk-
réttaverksmiðju. Við sameininguna
var SÍF með starfsemi í Frakklandi,
á Spáni, í Kanada, á Ítalíu, í Noregi,
Grikklandi og Brasilíu og átti hlut-
deild í fyrirtækjum í Bretlandi og
Frakklandi. Starfsemi ÍS var í
Bandaríkjunum, Frakklandi, Bret-
landi, á Spáni, í Þýzkalandi og Japan
og átti hlut í namibísku fiskvinnslu-
og útgerðarfyrirtæki.
Raunverulegur samruni fyrirtækj-
anna verður árið 2000, árið 2003 er
brezka fyrirtækið Lyons Seafood
keypt og árið eftir hið franska Lab-
eyrie Group, en bæði eru þau sér-
hæfð í ferskum og kældum afurðum.
Árið 2004 var Iceland Seafood Int-
ernational stofnað um hefðbundið
sölu- og markaðsstarf og sala á lítt
unnum sjávarafurðum skilin frá full-
vinnslustarfsemi.
Mikið selt
Á þessu ári var starfsemi SÍF í
Bandaríkjunum seld og sömuleiðis
Iceland Seafood International og
Tros hf. Í sölunni á Iceland Seafood
fylgdu starfstöðvar á Íslandi, í Bret-
landi, Frakklandi, Þýzkalandi, á Ítal-
íu, Spáni, í Litháen, Póllandi, Grikk-
landi og Kanada. SÍF er því nú
aðeins með starfsemi í fjórum lönd-
um, Íslandi, Frakklandi, Bretlandi
og Noregi. Starfsmenn eru lang-
flestir í Frakklandi eða 3.360, en
fæstir í Noregi, fjórir, en á Íslandi
eftir nýjustu breytingar, aðeins sex
eða 17 séu starfsmenn Saltkaupa
taldir með.
Mest í Frakklandi
Umsvifin verða nú mest í Frakk-
landi í SIF France og Labeyrie
Group. Hið fyrrnefnda var stofnað
1999 og eru starfssviðin þrjú. Fryst-
isvið í Boulogne S.M., kælisvið á
sama stað og í borgunum Wisches og
Fécamp, saltfisksvið í Jonzac. Starfs-
menn eru 960.
Labeyrie Group var stofnað 1946
og bættist við SÍF-samstæðuna í
fyrra. Fyrirtækið starfrækir sex
verksmiðjur, þrjár í Frakklandi,
tvær á Spáni og eina í Skotlandi. 55%
framleiðslunnar eru sjávarafurðir,
aðallega reyktur lax, 35% franskir
réttir, anda- og gæsalifur og 10%
hveitipönnukökur og smurréttir.
Umfangsmiklir í rækju
Starfsemin í Bretlandi er einnig
mikil. SÍF keypti Lyons Seafood árið
2003, en fyrirtækið var stofnað 1958.
Fyrirtækið rekur tvær fiskrétta-
verksmiðjur og eru starfsmenn 260.
Lyons vinnur og selur fyrst og
fremst rækju í neytendaumbúðir og
fyrir svokölluð stóreldhús, mötuneyti
og veitingahús, og er árleg fram-
leiðslugeta um 15.000 tonn. Miðað við
síðasta ár var skiptingin milli rækju-
tegunda sú, að 6.000 tonn voru heit-
sjávarrækja en 2.500 kaldsjáv-
arrækja eins og veiðist hér við land.
Lyons kaupir hráefni til vinnslu um
allan heim og er með eigin inn-
kaupaskrifstofur í Pakistan og á Ind-
landi. 50% framleiðslunnar fara í
smásölu í Bretlandi, 35% í stórveit-
ingahúsin og 15% eru flutt utan.
Áhugaverðara fyrirtæki?
Með þessum gífurlegu breytingum
á rekstri SÍF er fyrirtækið fyrst og
fremst í framleiðslu og sölu á afurð-
um sem eru tilbúnar til neyzlu.
Reksturinn er einsleitari og tekju-
möguleikar meiri. Þrátt fyrir veru-
legan samdrátt í veltu er ekki gert
ráð fyrir að það hafi teljandi áhrif á
afkomu félagsins. Áhugi hlutabréfa-
markaðsins á SÍF hefur verið lítill,
en þessar breytingar kunna að hafa
jákvæð áhrif. Fyrir söluna á Iceland
Seafood var reksturinn mjög flókinn
og erfitt að gera sér grein fyrir hvaða
þættir hefðu mest áhrif á afkomu
þess. Jafnframt var hlutfall hagn-
aðar af veltu lágt vegna þess hve litlu
sala með lítt unnar afurðir skilar. Nú
má gera ráð fyrir að hlutfall hagn-
aðar af veltu aukist. Með sölu Iceland
Seafood í Bandaríkjunum og Iceland
Seafood International hefur rekstr-
arstaða félagsins einnig batnað mikið
frá því í fyrra.
Það er fleira matur en fiskur
Það er margt fleira sem kemur til,
en þessar aðgerðir eru í fullu sam-
ræmi við stefnumörkun félagsins,
fyrirtækið hefur markað sér skýran
vettvang í sölu matvæla í Evrópu.
Formaður stjórnar SÍF, Ólafur
Ólafsson, sagði á aðalfundi félagsins
fyrir skömmu að markmiðin væru að
selja frá sér starfsemi sem tengdist
frumvinnslu og sölu lítt unninna sjáv-
arafurða og jafnframt að fjárfesta
enn frekar í rekstri er fellur að
kjarnastarfsemi félagsins. Nú er
bara að sjá hvað verður næst. Tæki-
færin í matvælageiranum eru eflaust
víða og þau þurfa ekkert frekar að
tengjast sjávarfangi. Það er ýmislegt
fleira en fiskur sem gæti fallið vel að
núverandi starfsemi SÍF.
Fréttaskýring | Starfsemi SÍF hefur verið einfölduð mikið með sölu tveggja
stórra þátta starfseminnar. Starfsemin í fjórum löndum í stað ellefu áður.
30 milljarða minni velta
!"##
$%
&&$% '
&&$%% ## ( %
&$%% ##
&$%% ##
)*+ ,-'(
&&
. /0#
&!& !"
&+%'
&1 (
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
LANDLÆKNIR hefur gefið
út ráðleggingar til ferða-
manna vegna fuglainflúensu í
Asíu. Landlæknir telur ekki
ástæðu til að mæla gegn því
að fólk ferðist til neinna
svæða þar sem fuglainflúensa
geisar í fiðurfé í Asíu. Þó er
mælst til þess að ferðamenn
sem fara til svæðanna forðist
fuglamarkaði, búgarða og
snertingu við lifandi hænsn-
fugla og aðra fugla.
Einungis ætti að neyta
kjöts og eggja sem eru vel
soðin eða steikt. Einnig er
mælt með því að ferðamenn
þvoi sér reglulega um hendur
og hugi að hreinlæti.
Ráðleggingar til ferða-
manna vegna fuglainflúensu í
Asíu
Farsóttinni í fiðurfé í Asíu
veldur inflúensuveira af A-
stofni (H5N1). Faraldurinn
kom upp í Suður-Kóreu í des-
ember 2003 og breiddist síðan
út til Víetnam, Japans og Taí-
lands, en hans hefur orðið
vart í fleiri löndum í Suðaust-
ur-Asíu, m.a. í Kína og
Indónesíu og nú síðast í Norð-
ur-Kóreu.
Flestir sem hafa sýkst
eru frá Víetnam
Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunin tilkynnti 31. mars sl.
að 74 menn hefðu sýkst og 49
þeirra látist í Suðaustur-Asíu
síðan 28. janúar 2004. Flestir
sem hafa sýkst eru frá Víet-
nam en aðrir sem hafa veikst
eru frá Taílandi og Kambódíu.
Talið er að allir hinna sýktu
hafi haft tengsl við smitað fið-
urfé og ekki er vitað til þess
að smit hafi borist milli manna
með virkum hætti.
Ráðleggingar til
ferðamanna sem
fara til Asíu
Forðist
snertingu
við lifandi
fiðurfé