Morgunblaðið - 03.04.2005, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 03.04.2005, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. APRÍL 2005 51 MENNING Sigrún Stella Einarsdóttir lögg. fasteignasali GSM 824 0610 *Skv. lögum nr. 99/2004. Úr 1. mgr. 1. gr. Þeim einum er heimilt að hafa milligöngu um kaup, sölu eða skipti á fasteignum eða skráningarskyldum skipum fyrir aðra sem hafa til þess löggildingu dómsmálaráðherra.“ Kaup og sala fasteigna Ráðgjöf á sviði fasteignaviðskipta Gerðu kröfu um þjónustu löggilts fasteignasala frá upphafi til enda þinna viðskipta.* Sigrún Stella Einarsdóttir, löggiltur fasteignasali, veitir þér ráðgjöf og þjónustu við alla þætti fasteignaviðskipta. Hún fylgir þínum málum eftir frá upphafi til enda. ● Hún skoðar eignina og verðmetur ● Hún aflar allra gagna varðandi eignina ● Hún tekur niður tilboð í eignina ● Hún aðstoðar kaupanda eignarinnar og veitir honum alla þá ráðgjöf sem hann þarf ● Hún sér sjálf um kaupsamning og afsal vegna sölunnar ● Hún er sjálf til aðstoðar ef vanefndir eða gallamál koma upp Hafðu þín fasteignaviðskipti á einni hendi. Það er öruggara. Sími 588 5530 Berg fasteignasala, Háaleitisbraut 58 Sími 588 5530 - Fax 588 5540 Netfang: berg@berg.is Heimasíða: www.berg.is Opið virka daga frá kl. 9-18 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 29.990 M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára. Flug, gisting, skattar og íslensk fararstjórn. 11. apríl í 6 nætur. Netverð. Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800. Munið Mastercard ferðaávísunina Stökktu til Costa del Sol 11. apríl frá kr. 29.990 Verð kr. 39.990 M.v. 2 í stúdíó/íbúð. Flug, gisting, skattar og íslensk fararstjórn. 11. apríl í 6 nætur. Netverð. Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800. Síðustu sætin Ótrúlegt tilboð til Costa del Sol þann 11. apríl. Nú getur þú notið vorsins í 6 nætur á þessum vinsælasta áfangastað Íslendinga í sólinni og búið við frábæran aðbúnað. Þú bókar núna og tryggir þér flug og gistingu og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú býrð. Að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. HVERNIG skyldi fjórum sextán ára piltum úr Kópavogi farnast þegar þeir stíga á svið í Saln- um í Kópavogi, þar sem margir af fremstu tón- listarmönnum þjóðarinnar koma reglulega fram, og syngja fjórraddað við píanóundirleik? Bara vel, í það minnsta ef um er að ræða þá Eystein Hjálmarsson, Ríkharð Þór Brands- son, Þorkel Helga Sigfússon og Örn Ými Ara- son. Saman skipa þeir söngkvartettinn Vall- argerðisbræður, sem heldur sína fyrstu tónleika í fullri lengd hér á landi næstkomandi þriðjudagskvöld kl. 20 í Salnum. Góðir vinir Nafnið segir kannski sitt um tilurð þessa sérstaka sönghóps, en það er dregið af götunni sem Kársnesskóli í Kópavogi stendur við. Því þar liggja einmitt rætur vináttu og samsöngs hinna fjögurra pilta; í kór skólans – Kársnes- kórnum. „Það voru múturnar,“ segja þeir þegar blaðamaður spyr þá hvernig til hafi komið að þeir ákváðu að stofna kvartettinn. „Nei, við vorum allir í kórnum hjá Tótu þangað til mút- urnar komu. Ef mútur skyldi kalla – raddirnar okkar dýpkuðu bara og við sungum okkur í gegnum það þangað til við gátum ekki lengur sungið þriðju rödd í Kársneskórnum. Þá ákváðum við að stofna kvartettinn. Þetta var fyrir svona tveimur árum.“ Það er líka sú sama Tóta – Þórunn Björns- dóttir kórstjóri – sem æfir kvartettinn og hef- ur gert frá upphafi. Þeir segjast ekki hafa get- að fengið sig til að hætta söngnum, í það minnsta á meðan herlegar veitingar á borð við ís og pítsur voru reglulega á boðstólum í tengslum við æfingar. En þeir segja líka að fé- lagsskapurinn af hópnum sé ekki síðri en mat- urinn. „Við erum bestu vinir,“ segja þeir. Verkin sem þeir Vallargerðisbræður eru að æfa og ætla að flytja á tónleikunum eru af fjöl- breytilegum toga; allt frá gömlum íslenskum ættjarðarlögum upp í fjörug dægurlög í anda hinnar hefðbundnu barbershop-tónlistar. „Okkur finnst það skemmtilegra. Það er frjáls- legra,“ segja þeir. Þórunn skýtur því inn að þegar breska tónskáldið og kórstjórinn Bob Chilcott var staddur hér á landi á dögunum hafi þeim áskotnast góður gripur – nótnabók fyrir þessa raddskipan, sem þau séu að æfa sig í gegnum um þessar mundir. Barbershop eða Blink 182 Strákarnir sjálfir segja að þótt þeir hafi gaman af tónlist af því tagi sem þeir eru að flytja hlusti þeir mest á samskonar tónlist og aðrir jafnaldrar þeirra – rokkið. „Maður hlust- ar af og til á svoleiðis tónlist sjálfur, en við er- um auðvitað meira bara að hlusta á rokk. Við heyrum svo mikið af barbershopi á æfingum að það er alveg nóg,“ segja þeir og nefna Blink 182, Red Hot Chili Peppers, Rammstein, Gen- esis, Britney Spears og ýmsa djassista sem dæmi um tónlistarmenn sem eru á fóninum hjá þeim. Mjög fjölbreyttur tónlistarsmekkur sum sé. Það er nóg við að vera hjá flestum sextán ára krökkum og Eysteinn, Ríkharður Þór, Þorkell Helgi og Örn Ýmir eru þar engin und- antekning. Tónlistin skipar greinilega stóran sess í lífi þeirra, því fyrir utan kvartettdæmið eru nokkrir í hljómsveitum, einn lærir á kontrabassa og annar á selló og þrír þeirra syngja með Kór Menntaskólans við Hamra- hlíð. Þá stunda þeir einnig íþróttir, þar á meðal sund og íshokkí. „Það getur því verið dálítið snúið að hittast á æfingum,“ bætir Þórunn við. X-gerðisbræður En nafnið Vallargerðisbræður skírskotar ekki bara til götunnar í Kópavogi, sérstaklega þegar um karlasöngkvartett er að ræða. Nafn- ið Álftagerðisbræður kemur ósjálfrátt upp í hugann og kannski ekki að ástæðulausu, því sá víðfrægi íslenski söngkvartett er einmitt ein helsta fyrirmyndin að Vallargerðisbræðr- unum, þótt ríflegur aldursmunur sé þar á. Hin- ir eldri gáfu hinum yngri einmitt sitt fyrsta tækifæri ef svo má segja, því Vallargerð- isbræður komu í fyrsta sinn fram á opinberum tónleikum sem leyninúmer hjá Álftagerð- isbræðrum á tónleikum þeirra í Salnum fyrir rúmu ári. „Þeir eru aðalkallarnir, svona hér á landi,“ segja strákarnir. Á þriðjudaginn verður síðan hin eiginlega frumraun: Heilir tónleikar. Þeir bræður segj- ast hvergi bangnir þrátt fyrir að augljóslega sé ábyrgðin mikil á hverjum og einum söngvara í hópnum. „Það er helst ef einhver fær kvef, sem gerist frekar oft hjá okkur, sem eitthvað fer úrskeiðis,“ segja þeir. Og er einhver kvef- aður núna? „Já, já, svona smá,“ segja þeir. „En við verðum fínir á þriðjudaginn.“ En hvað skyldi svo taka við að tónleikunum loknum? Meiri tónleikar? Plötur? Músíktil- raunir? „Aukatónleikar,“ svara þeir og hlæja. „Neinei, við höldum bara áfram að æfa og sjáum svo til. En síðan verður auðvitað pott- þétt einhver frá Smekkleysu eða Tólf tónum þarna á tónleikunum sem fellur fyrir þessu, eða hvað?“ Og eftir að hafa hlýtt á þá Vallargerð- isbræður syngja fyrir mig við undirleik Þór- unnar að loknu samtalinu er ég viss um að allir falla fyrir þeim. Fjórir sextán ára piltar skipa saman söngkvartettinn Vallargerðisbræður, kenndan við Vallargerði í Kópavogi þar sem þeir slitu barnsskónum, og halda tónleika í Salnum á þriðjudagskvöld. Inga María Leifsdóttir ræddi við þá og Þórunni Björnsdóttur, þjálfara þeirra, um barbershop og aðra tónlist. Morgunblaðið/Árni Torfason Raddirnar dýpkuðu og úr varð kvartett ingamaria@mbl.is Morgunblaðið/Árni Torfason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.