Morgunblaðið - 03.04.2005, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. APRÍL 2005 41
MINNINGAR
✝ Katrín Björns-dóttir fæddist í
Reykjavík 20. nóv-
ember 1920. Hún
lést á skírdag, 24.
mars síðastliðinn.
Foreldrar Katrínar
voru þau Ólafía Guð-
rún Lárusdóttir, f.
11. september 1879 í
Selárdal í Arnar-
firði, d. 26. ágúst
1954, og Magnús
Björn Magnússon, f.
12. ágúst 1876 á
Gilsstöðum í Vatns-
dal, d. 25. október
1949. Þau Ólafía og Björn skildu
um 1930. Systkini Katrínar eru:
Arndís, f. 1903, d. 1964; Guðrún,
f. 1905, d. 1932;
Ólafía Sigríður, f.
1906, d. 1977; Magn-
ús, f. 1908, d. 1982;
Bergljót, f. 1911, d.
1996; Lára Inga, f.
1912, d. 1984; Ás-
laug, f. 1914, d.
1929, og Lárus
Benedikt, f. 1923.
Maki Katrínar var
Ragnar Gísli Kjart-
ansson, f. 1930, d.
1988. Þau Katrín og
Ragnar skildu. Dótt-
ir Katrínar og
Ragnars er Ólafía
Guðrún, f. 20. maí 1958.
Útför Katrínar var gerð frá
Dómkirkjunni 1. apríl.
Ég vil með fáum orðum minnast
móðursystur minnar, Katrínar
Björnsdóttur, eða Katí eins og hún
var jafnan kölluð af ættingjum sín-
um. Katí var næstyngst níu barna
ömmu minnar og afa en þau skildu
að skiptum þegar Katí var um tíu
ára gömul og ólst hún eftir það upp
hjá móður sinni í stórum systkina-
hópi. Tvær eldri systur hennar dóu
langt um aldur fram og af þessum
systkinahópi lifir nú einungis Lárus
sem var þeirra yngstur. Fyrstu
minningar mínar um Katí frænku
eru frá þeim tíma þegar hún bjó
með ömmu og tveimur systkinum
sínum, fyrst á Sólvallagötu 5a og
síðan á Marargötu 2. Mér er einkum
minnisstætt að þarna var afar gest-
kvæmt, mikið talað og sífellt verið
að hella upp á kaffikönnuna. Ég
held að amma Ólafía hafi á þessum
árum notið mikillar og góðrar
umönnunar barna sinna sem var
áreiðanlega mikið í mun að endur-
gjalda henni uppeldið sem áreiðan-
lega hefur verið erfitt fyrir einstæða
móður með stóran barnahóp á öðr-
um og þriðja áratug síðustu aldar.
Eftir lát ömmu 1954 bjó Katí lengst
af með Sigríði systur sinni og eftir
lát Sigríðar með Ólafíu dóttur sinni
til dauðadags. Þær mæðgur Katí og
Ólafía voru afar samrýndar og áttu
góðar stundir saman og studdu hvor
aðra með ráðum og dáð í blíðu og
stríðu.
Katí átti farsæla starfsævi hjá
hinu opinbera, fyrst man ég eftir
henni sem fulltrúa í félagsmálaráðu-
neytinu og síðar lá leiðin í Húsnæð-
ismálastofnun og var gott að leita
ráða hjá henni á þeim vettvangi.
Katí hélt alla tíð traustu og nánu
sambandi við foreldra mína og var
tíður gestur á heimili okkar. Einnig
er ljúft að minnast þess hversu ötul
hún var að heimsækja Bergljótu
systur sína þegar sú síðarnefnda
hafði flutt á öldrunarheimili. Í þeim
efnum naut Katí góðs stuðnings
Ólafíu dóttur sinnar og verður þeim
mæðgum seint þökkuð sú ræktar-
semi.
Við Áslaug systir mín og fjöl-
skyldur okkar þökkum áratuga sam-
fylgd við Katí frænku og þá vináttu
og hlýhug sem hún sýndi okkur öll-
um. Við biðjum góðan Guð að blessa
minningu Katrínar Björnsdóttur.
Þórður.
KATRÍN
BJÖRNSDÓTTIR
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj,
s. 691 0919
Vönduð og persónuleg þjónusta
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Sverrir
Einarsson
Sverrir
Olsen
Bryndís
Valbjarnardóttir
Oddur
Bragason
Guðmundur
Þór Gíslason
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Fjarðarás 25, 110 Reykjavík • utfarir@utfarir.is
Sími 567 9110 • 893 8638 • Fax 567 2754 • www.utfarir.is
Útfararþjónustan
Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson
Helluhrauni 10, 220 Hfj.
Sími 565 2566
www.englasteinar.is
Fallegir legsteinar
á góðu verði
Englasteinar
Eiginkona mín og systir,
MARGRÉT UNNUR SVEINSDÓTTIR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
sem lést föstudaginn 25. mars síðastliðinn,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
þriðjudaginn 5. apríl kl. 13.00.
Sigurður J. Pétursson,
Sveinfríður H. Sveinsdóttir.
Innilegar þakkir til allra sem sýnt hafa okkur
samúð, vináttu og hlýhug við andlát ástkærrar
eiginkonu minnar, móður, dóttur, systur og
tengdadóttur,
HELGU BJARGAR SVANSDÓTTUR
musíkþerapista,
Malarási 15.
Stofnaður hefur verið minningarsjóður Helgu
Bjargar Svansdóttur.
Hlutverk sjóðsins er tvíþætt:
Veita styrki til náms í musíkþerapiu.
Veita styrki til fagaðila vegna verkefna þar sem musikþerapia er notuð,
eða kynnt sem meðferðarúrræði. Nafn og reikningsnúmer er eftirfarandi:
Db. Helga Björg Svansdóttir, kt. 200868-3589, banki 111-05-274300.
Samnemendur Helgu í Kvennaskólanum hafa tekið að sér að veita
sjóðnum forstöðu.
Nánari uppl. eru á http://www.blog.central.is/musik
Árni Stefánsson,
Heiðar Már Árnason,
Una Svava Árnadóttir
Svanur Ingvason, Rán Einarsdóttir,
Harpa Rut Svansdóttir,
Stefán Tyrfingsson, María Erla Friðsteinsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, bróður okkar og tengdasonar,
SIGURÐAR Ó. GUÐMUNDSSONAR
frá Siglufirði,
Breiðvangi 16,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfélaga hjá Kassagerð
Reykjavíkur.
Þórhalla Guðmundsdóttir,
Leifur Hreggviðsson,
Ragnar Guðmundsson,
Sólborg Guðmundsdóttir,
Kjartan Guðmundsson,
Sævar Guðmundsson,
Freyja Guðmundsdóttir,
Sigrún Guðmundsdóttir,
Heiðrún Guðmundsdóttir,
Þorsteinn Guðmundsson,
Einar Ásgrímur Sigurðsson,
Guðmundur Pálsson
og fjölskyldur.
Eiginmaður minn,
SIGURÐUR SIGURÐSSON
verslunarmaður,
Hverfisgötu 55,
Reykjavík,
sem lést föstudaginn 25. mars, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn
4. apríl kl. 13.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Brynja Helga Kristjánsdóttir.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG ADOLFSDÓTTIR,
Austurbrún 4,
verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju
þriðjudaginn 5. apríl kl. 11.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en
þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á MS-
félagið.
Friðrik Eiríksson, Halldóra Sigurjónsdóttir,
Sandra og Arnar.