Morgunblaðið - 03.04.2005, Blaðsíða 52
52 SUNNUDAGUR 3. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054 897 4236
Bíldudalur Gísli Snær Smárason 456 2207 456 2158
Blönduós Björn Svanur Þórisson 452 4019 864 4820
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík Marenia Kristín Hrafnkelsd. 475 6662 8606849
Búðardalur Aron Snær Melsteð 434 1449
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Helgi Týr Tumason 478 8161 864 9207
Egilsstaðir Þurý Bára Birgisdóttir 471 2128 8620543
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna S. Eiríksdóttir 475 1260 475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Erla Ösp Ísaksdóttir 848 5361
Grenivík Hörður Hermannsson 463 3222 848 3397
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 4386858/8549758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur/Rif Aron Jóhannes Leví Kristjánss. 4366925
Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Elísabet Sigurðardóttir 894 0387 464 1987
Hvammstangi Harpa Vilbertsdóttir 451 2455 892 0644
Hveragerði Sveinn og Erna 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 4878172/8931711/853 1711
Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Hjörtur Freyr Snæland 486 8874
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 477 1124
Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2650 866 7958
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305 899 6904
Patreksfjörður Sigríður Valdís Karlsdóttir 456 1119 456 1349
Raufarhöfn Örvar Sigþórsson 456 1287
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488 892 0488
Reykholt Bisk. Oddur Bjarni Bjarnason 486 8900
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð v/Mýv. Þórunn Snæbjörnsdóttir 464 4464
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 854 7488
Selfoss Sigdór Vilhjálmsson 846 4338
Seyðisfjörður GB Bjartsýn ehf, Birna 472 1700 897 0909
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Kristín Björk Leifsdóttir 452 2703 849 5620
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 430 1414
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Anna Elísa Karsldóttir 456 4945
Tálknafjörður María Berg Hannesdóttir 456 2655
Vestmannaeyjar Guðrún Kristín Sigurgeirsd. 481 3293 699 3293
Vík í Mýrdal Æsa Gísladóttir 867 2389
Vogar Una Jóna Óafsdóttir 421 6910 663 0167
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 820 3463
Þingeyri Hildur Sólmundsdóttir 456 8439 867 9438
Þorlákshöfn Íris Valgeirsdóttir 483 3214 8486214
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249 468 1515
DREIFING MORGUNBLAÐSINS
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
Staður Nafn Símanúmer Staður Nafn Símanúmer
N Á M S A Ð S T O Ð
á lokasprettinum fyrir vorprófin
Innritun í síma 557 9233 frá kl. 17-19 virka daga
Nemendaþjónustan sf. Álfabakka 12, Mjódd
BILLY Corgan, söngvari og að-
aldriffjöður grugg/rokksveitarinnar
Smashing Pumpkins, hefur tilkynnt
að fyrsta ein-
herjaplata hans
sé fullgerð og
tilbúin til útgáfu.
Platan hefur
fengið heitið
TheFuture-
Embrace og
kemur út 21. júní
ef allt fer að ósk-
um. Warner
Bros. útgáfufyr-
irtækið gefur plötuna út, en á henni
er margt góðra gesta. Fremstur
meðal jafningja er þar Robert
Smith, söngvari The Cure, en hann
kemur fram sem gestasöngvari í út-
gáfu Corgans á gamla Bee Gees-
slagaranum „To Love Somebody“.
Jimmy Chamberlin, fyrrum tromm-
ari Smashing Pumpkins, ljær plöt-
unni einnig handverk sitt.
Hávær en ekki ágeng
Corgan hefur lítið látið að sér
kveða síðan hann hætti með hljóm-
sveitinni The Zwan, en hún sendi
frá sér plötuna Mary Star of the
Sea árið 2003. Þar á undan var
hann síðast í eldlínunni með Smash-
ing Pumpkins, en svanasöngur
þeirrar sögufrægu sveitar, MACH-
INA/The Machines of God, kom út
árið 2000. Corgan sagði nýlega í
viðtali við Rolling Stone, um nýju
plötuna: „Hún er gítarþrungin og
hávær, en ekki ágeng. Myndböndin,
tónlistin og tónleikaferðin verða
mjög nýstárleg og sérstök. Ég verð
ekki sakaður um að vera fastur í
fortíðinni.“
Tónlist | Fyrsta sólóplata Billy Corgan
Ekki fastur í fortíðinni
Billy Corgan
BIRD hafði búist við því að und-
irritaður myndi hringja í hann
klukkan ellefu að morgni, en
vegna misskilnings (að öllum lík-
indum örðugleika við útreikning á
tímamismun) hringdi síminn hjá
honum klukkan tíu. Misskilning-
urinn kom fljótt í ljós og blaða-
maður bauðst til að hringja
klukkustund síðar.
Sem hann og gerði. Bird hljóm-
aði svolítið þreytulega, enda á
miðju tónleikaferðalagi til kynn-
ingar á nýju plötunni. Hann er
ekki eins og popptónlistarfólk er
flest; lærði kornungur á fiðlu og er
klassískt menntaður tónlist-
armaður, enda heyrast þess
greinileg merki í tónlistinni.
Bird er rúmlega þrítugur að
aldri og hefur sent frá sér fimm
plötur. Fyrstu tvær plöturnar,
Thrills og Oh! the Grandeur, voru
fjölbreyttar að stíl og á þeim
reyndi hann sig við hinar ýmsu
tónlistarstefnur. Þar naut hann að-
stoðar hljómsveitarinnar The Bowl
of Fire, en á The Swimming Hour,
sem kom út árið 2001, sneri hann
sér hins vegar óvænt að popp-
tónlist og sagði skilið við sveitina.
Næsta plata, Weather Systems
sem kom út 2003, hlaut mikla at-
hygli og sýndi fram á hæfileika og
sérstöðu Birds sem lagasmiðs.
Lögin voru tilfinningarík, lág-
stemmd og óvenjuleg að uppbygg-
ingu; ólík flestu sem undirritaður
hafði heyrt, einskonar hjónaband
indítónlistar og klassískrar.
Í ár kom svo The Mysterious
Production of Eggs, sem hlotið
hefur afar góða dóma gagnrýn-
enda og fær m.a. 83 af 100 mögu-
legum hjá metacritic.com. Sem
fyrr segir var Bird að spila á tón-
leikum í tilefni af útgáfu plötunnar
kvöldið áður en blaðamaður
hringdi.
Ég biðst innilega velvirðingar á
að hafa vakið þig áðan.
„Það var allt í lagi. Ég hefði átt
að vera kominn á fætur.“
Þetta var leiður misskilningur.
„Nei, þetta var ekkert mál.“
Þú hefur haft mikið að gera að
undanförnu, ekki satt?
„Já, ég er á tónleikaferð núna,
þótt ég sé staddur í íbúð minni í
Chicago þessa stundina.“
Þú hefur væntanlega veitt mörg
viðtöl í tengslum við nýju plötuna.
„Já, platan kom út á svipuðum
tíma í Bandaríkjunum og Evrópu,
þannig að þetta er örlítið meiri
skammtur en venjulega.“
Hefurðu gaman af því að veita
viðtöl? Er gaman að segja það
sama aftur og aftur?
„Nei, ég hef ekki gaman af því
að endurtaka mig. Þetta fer auð-
vitað eftir spurningunum sem ég
fæ, en plagar mig ekkert of mik-
ið.“
Þetta fylgir því að vera tónlist-
armaður.
„Já, ætli það ekki.“
Segðu mér aðeins frá nýju plöt-
unni. Hún hlýtur að hafa útheimt
mikla vinnu.
„Já, alveg ótrúlega mikla vinnu.
Vinnslan tók næstum því þrjú ár.
Mig minnir að fyrstu demóin hafi
verið tilbúin um haustið 2001 og
ég gerði þrjár tilraunir til að taka
plötuna upp. Ég fleygði tveimur
fullgerðum plötum, þangað til ég
sætti mig við þriðju útgáfuna. Hún
er næst því sem ég stefndi að.
Fyrstu útgáfuna tók ég upp í
hljóðverinu sem ég kom mér upp í
gamalli hlöðu heima hjá mér. Þær
upptökur voru í raun nokkuð góð-
ar, en pössuðu bara einhvern veg-
inn ekki. Ég fékk til liðs við mig
marga tónlistarmenn frá Chicago-
borg, hingað í róna og kyrrðina í
sveitinni. Það held ég að hafi ekki
verið góð hugmynd. Þetta voru
snilldar tónlistarmenn, en þeir
spiluðu lögin mín ekki eins og ég
vildi hafa þau. Þeir blönduðu sam-
an áhrifum frá hinum og þessum
uppáhaldstónlistarmönnum sínum,
sem var þvert á það sem ég vildi.
Þegar ég flutti svo hingað upp í
sveit, stuttu seinna, fór ég að gera
tilraunir og færa lögin nær því
sem einkennir tónlistarsköpun
mína. Ég gerði til dæmis tilraunir
með lykkjur og mínar eigin bassa-
línur og komst að þeirri niðurstöðu
að ég kæmist nær „því furðulega“
en hin hefðbundna rokksveit.“
Er ekki skemmtilegast þegar
maður nær að koma sjálfum sér á
óvart í tónlistarsköpun?
„Jú, það er nákvæmlega málið
og það reyni ég að gera á tón-
leikum. Landamærin milli tón-
leikaspilamennsku og lagasmíða
eru orðin mjög óljós hjá mér.
Þetta er orðið að einu ferli og mér
hentar ekki sá háttur sumra tón-
listarmanna að senda frá sér plötu,
fylgja henni eftir og hverfa svo í
einhverja mánuði til að gera þá
næstu.“
Þannig að þú spilar mikið af
nýju efni á tónleikum.
„Já, eða breyti gömlu lögunum
mínum. Ég held að áhorfendur
skynji að maður taki áhættu á
sviðinu, en fljóti ekki bara áfram í
einhverju meðvitundarleysi og rút-
ínu.“
Hefur einhvern tímann komið
fyrir að allt hafi farið í handaskol-
Tónlist | Andrew Bird var að senda frá sér nýja plötu
Beint úr hausnum á
mér til áhorfendanna
„Algjörlega dáleiðandi og segulmögnuð
plata … sameinar það besta frá Jeff Buckley,
Devendra Banhart og Rufus Wainwright …
nær hámarki aftur og aftur,“ eru setningar í
dómum um nýjustu plötu Andrews Birds, The
Mysterious Production of Eggs. Ívar Páll
Jónsson vakti hann morguninn eftir tónleika.