Morgunblaðið - 03.04.2005, Blaðsíða 29
viðgerð. Eitt sinn kom til okkar mað-
ur með góm af þeirri gerð og bað um
að gert væri við hann. Allar tennurn-
ar í efri gómnum voru dottnar úr
nema tveir jaxlar. Þessi maður átti
líka plastgóm sem hann notaði spari,
gamla gúmmímassagóminn notaði
hann til að tyggja. Við smíðuðum nýj-
an góm og hann var alsæll þegar
hann fór að tyggja með honum. Síðari
árin heyrði til viðburða þegar ungt
fólk þurfti að fá falska góma en áður
var töngin mun meira notuð en bor-
inn.
Stundum týndi fólk tanngörðum
sínum. Kona ein sat við drykkju um
helgi og týndi bæði efri og neðri gómi.
Hún hafði samband við okkur ör-
væntingarfull á mánudeginum. Sama
dag var hringt í okkur og sagt efri
gómur hefði fundist í húsi austur í
bæ. Nokkru seinna hringdi lögreglan
í okkur og spurði hvort við könnuð-
umst eitthvað við góm sem þeir hefðu
fundið vestur í bæ. Og merkilegt
nokk var þar kominn neðri gómur
konunnar. Hún gladdist mjög við
endurheimt góma sinna.
Ekki hef ég hugmynd um hvað ég
smíðaði upp í marga en það var mikill
fjöldi, ég hætti ekki alveg tannsmíð-
inni fyrr en fyrir tíu árum og enn í
dag er ég að hitta fólk sem brosir til
mín með tönnum sem ég smíðaði fyrir
það á sínum tíma.
Prjónaði og fór í gönguferðir þegar
tími gafst til fyrir tannsmíðinni
Þegar ég var ekki að smíða tennur
prjónaði ég. Ef mig vantaði kjól þá
bara settist ég niður og prjónaði
hann. Ég prjónaði auðvitað allar
peysur á manninn minn og synina og
allt mögulegt annað. Ég saumaði líka
upp úr gömlu eins og þá tíðkaðist.
Okkur Gunnari búnaðist vel, ég fór
ábyggilega vel með enda alin upp við
slíkt. Ekki það að við veittum okkur
ekki ýmislegt, við fórum oft til út-
landa, einkum seinni árin. En ég
reyndi lengstum að leggja fyrir það
sem ég gat og það veitti mér örygg-
iskennd sem ég bý að enn í dag.
Mér fannst ágætt að hætta að
vinna, þá gat ég gert það sem mig
langaði til. Ég hef löngum verið mikill
göngugarpur, á morgnana gekk ég út
í Skerjafjörð og svo fór ég gjarnan í
sund og líka leikfimi. En seinni árin
hef ég lítið getað gengið vegna fót-
armeina. Ég er þó dugleg að fara út á
meðal fólks og sonur minn kemur til
mín á hverju kvöldi og við borðum
saman. Allir mínir eru mér mjög góð-
ir.
Annars held ég alltaf að ég hljóti að
fara að sofna út af, ég er orðin það
gömul, og finnst það bara góð tilhugs-
un. Ég trúi á annað líf og hlakka til
þess að hitta fólkið mitt hinum megin,
ekki síst pabba minn sem ég aldrei sá,
það verður mjög fróðlegt.
Á Brúsastöðum. F.h. Páll Ísólfsson, kona hans, Kristín Norðmann, systur henn-
ar, Ásta og Katrín, og vinkona þeirra. María Tryggvadóttir, Jórunn Viðar og Drífa
Viðar í hvíta kjólnum.
María og Gunnar nýgift 1946 á heimili foreldra hans, þar sem athöfnin fór fram.
gudrung@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. APRÍL 2005 29
Föstudaginn 8. apríl 2005
í ráðstefnusal Gullhamra í Reykjavík kl. 09:00 – 15:30
MEÐAL FYRIRLESTRA ERU:
Stofnsetningaréttur
Dr. Poiares Maduro, lögmaður Evrópudómstólsins
EES-samningurinn og útrás Bakkavör Group hf.
Hildur Árnadóttir, fjármálastjóri Bakkavör Group hf
EES-samningurinn og eftirlit með fjármálastarfsemi
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins
Fjármagnsflæði fjárfestinga
Titus Van Stiphout, yfirlögfræðingur EFTA skrifstofunnar
Hlutverk EB– og EFTA dómstólsins í að tryggja frjálst flæði fjármagns
Dr. Carl Baudenbacher, forseti EFTA dómstólsins
Skráðu þig strax
Vinsamlega skráið þátttöku á vefslóðinni www.bifrost.is/radstefna eða með
tölvupósti radstefna@bifrost.is
Verð með hádegisverði og öðrum veitingum er kr. 12.900,-
Ráðstefna um áhrif
EES-samningsins á útrás
íslenskra fyrirtækja innan
Evrópu
Nánari upplýsingar áwww.bifrost.is
EVRÓPUNEFND
Á VEGUM
FORSÆTISRÁÐUNEYTIS
GROUP