Morgunblaðið - 03.04.2005, Page 16
16 SUNNUDAGUR 3. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
F
yrir ári birtist í
Læknablaðinu for-
ystugrein eftir Sig-
urbjörn Sveinsson,
formann Lækna-
félags Íslands (LÍ),
þar sem hann hvatti
til aðhalds í sam-
skiptum lækna við fulltrúa lyfja-
fyrirtækja undir yfirskriftinni
„Mál að linni“. Í kjölfarið hefur
vaxandi umræða átt sér stað meðal
lækna um eðli þessara samskipta
og reglur sem þegar um þau gilda.
Svar heilbrigðisráðherra við fyr-
irspurn Ástu R. Jóhannesdóttur
alþingismanns um fjölda utan-
landsferða lækna á vegum lyfja-
fyrirtækja, sýnir að umræðan hef-
ur einnig náð langt út fyrir raðir
lækna. Í svarinu kom fram að
lyfjafyrirtæki buðu íslenskum
læknum í að minnsta kosti 469
ferðir á síðasta ári, þar af voru 289
ferðir fyrir lækna LSH, 51 ferð
fyrir lækna á öðrum sjúkrahúsum,
85 ferðir fyrir lækna á heilsu-
gæslustöðvum og 44 ferðir fyrir
sérfræðilækna á öðrum stöðum.
Flestir læknar á LSH nýta sér
samningsbundin réttindi sín og
fara í námsferðir til útlanda ár-
lega. Í kjarasamningnum er kveðið
á um námsferð til útlanda í fimm-
tán daga á ári og greiðir vinnuveit-
andi fargjald að ákveðnu hámarki,
dagpeninga og þátttökugjald.
Hugsanlega mætti hafa heimild til
nýtingar peninganna sveigjanlegri
að sögn eins viðmælenda blaðsins.
Ákvæðinu mætti t.d. breyta á þann
veg að hægt væri að fara í náms-
ferð innanlands. Þetta sé hins veg-
ar kjaramál og einstakt ákvæði í
íslenskum kjarasamningi. Önnur
stéttarfélög, sem eiga háskóla-
menntaða félagsmenn innan
sjúkrahúsa, hafa litið ákvæðið
hýru auga. En samninganefnd
fjármálaráðuneytisins hefur ekki
tekið undir slíkar óskir. M.a. af
þeirri ástæðu hefur forysta lækna
ekki þorað að hreyfa mikið við
ákvæðinu í sínum samningum að
sögn viðmælandans. Annar við-
mælandi bendir á að með því fyr-
irkomulagi sem nú sé við lýði megi
í raun segja að það sé hagur
sjúkrahúsa að sem fæstir læknar
nýti sér réttindi sín til símennt-
unar erlendis. Því græði sjúkra-
húsin í raun á tengslum lækna og
lyfjaiðnaðarins því fái læknar laun
eða styrk frá öðrum til fararinnar,
t.d. lyfjafyrirtækjum, komi það til
frádráttar greiðslum vinnuveit-
anda.
Leiðbeinandi reglur frá 1987
En umræðan um tengsl lyfjafyr-
irtækja og heilbrigðisstarfsfólks
og þá fyrst og fremst lækna, þar
sem þeir eru margir hverjir í að-
stöðu til að velja lyf fyrir sjúk-
linga, er ekki ný af nálinni. Hún
hefur hins vegar náð nýjum hæð-
um og eyrum almennings í meira
mæli en áður.
Lyfjafyrirtæki hafa í gegnum
tíðina, hér sem annars staðar,
komið að endurmenntun lækna
með einum eða öðrum hætti. Einn-
ig hafa fyrirtækin komið að
fræðslu annarra starfsmanna í
heilbrigðisstétt, t.d. hjúkrunar-
fræðinga sem og læknanema. Hér
verður þó höfuðáhersla lögð á
samskipti fyrirtækjanna við lækna.
Leiðbeinandi reglur um sam-
skipti lækna og lyfjafyrirtækja
hafa verið settar, t.d. af Félagi ís-
lenskra heimilislækna, strax árið
1987, LÍ árið 1993, með samningi
LÍ og Samtaka verslunarinnar (nú
Félag íslenskra stórkaupmanna,
FÍS), fyrir hönd lyfjafyrirtækja,
árið 2000 og LSH á síðasta ári. Þá
hafa aðrar heilbrigðisstofnanir
einnig sett sér leiðbeiningar hvað
þetta varðar. Jafnframt hefur
lyfjafyrirtækið GlaxoSmithKline
ehf. gefið út sérstakar reglur um
samskipti lyfjakynna og lækna.
Einnig er kveðið á um samskiptin í
lyfjalögum og reglugerð heilbrigð-
isráðuneytisins um lyfjaauglýsing-
ar frá árinu 1995.
Ýmislegt fleira hefur gerst og
annað er í pípunum er snertir
þetta mál að minna eða meira
leyti. Almennur fundur læknaráðs
LSH ályktaði um málið í febrúar
og formaður Læknafélagsins er í
umboði stjórnar félagsins að vinna
að endurskoðun samnings milli LÍ
og FÍS en hann gildir til næstu
áramóta. Þá skrifaði Sigurður
Guðmundsson landlæknir grein í
Læknablaðið nú í mars þar sem
m.a. kom fram að í samskiptum
lækna og lyfjafyrirtækja endur-
spegluðust tengsl og jafnframt
átök milli öflugrar og fjölmennrar
fagstéttar og eins af stærstu við-
skiptaöflum veraldar, eins og hann
orðar það.
Sem dæmi um þessi tengsl og
átök má nefna að þegar áðurnefnd
forystugrein formanns Lækna-
félagsins í Læknablaðinu á síðasta
ári hafði birst, þar sem m.a. sagði
að því hefði verið haldið fram að
fræðsla sem læknar njóta hjá
lyfjafyrirtækjum kunni að leiða til
ótraustari ákvarðana um lyfjaávís-
anir, tilkynntu lyfjafyrirtæki að
þau myndu ekki auglýsa í næsta
tölublaði. Þau hurfu reyndar frá
þeirri ákvörðun á síðari stigum en
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins varð Læknablaðið af
tekjum vegna birtingar greinar-
innar þar sem lyfjafyrirtæki hafa
auglýst minna í kjölfar birtingar
hennar.
Verulegir hagsmunaárekstrar
Allir geta verið sammála um að
símenntun lækna er mjög mikil-
væg. Hún sé hugsuð til að bæta
þekkingu og þar með þjónustu við
sjúklinga. Hún er að eflast innan-
Eiga lyfjafyrirtæki að koma
Nauðsynlegt er að sam-
skipti lækna og lyfjafyr-
irtækja séu gegnsæ og
tengsl risnu og fræðslu séu
rofin, segir í ályktun al-
menns fundar læknaráðs
Landspítalans. Sunna Ósk
Logadóttir komst að því að
læknar sjúkrahússins nýta
flestir samningsbundin rétt-
indi sín til símenntunar er-
lendis en margir þiggja
einnig ferðir lyfjafyrirtækja.
Sett hefur verið fram sú
hugmynd að lyfjafyrirtækin
setji fé í sameiginlegan
fræðslusjóð lækna í stað
þess að greiða fyrir ferðir
einstakra lækna. Aðrir vilja
að hagsmunaaðilar komi
hvergi að endurmennt-
uninni, en þá þurfi eitthvað
að koma í staðinn.
Morgunblaðið/Þorkell
Lyfjafyrirtæki hafa til langs tíma komið að endurmenntun lækna en þær raddir verða sífellt háværari að aðeins atvinnu-
veitendur, og læknarnar sjálfir, eigi að fjármagna fræðslu lækna um lyf.
Guðbjörg Alfreðsdóttir
Ekki óeðlilegt að fram-
leiðendur lyfja geti veitt
bestu upplýsingarnar
um þau.
Niels Chr. Nielsen
Hagur okkar skjólstæð-
inga að læknar haldi
menntun sinni við.
Sigurður Guðmundsson
Í samskiptum lækna og
lyfjafyrirtækja endurspegl-
ast átök milli öflugrar fag-
stéttar og eins af stærstu
viðskiptaöflum veraldar.
Sigurbjörn Sveinsson
Opinber starfsmaður hefur
ekki leyfi til að gera hvað
sem er í frítíma sínum ef
það misbýður almenningi.
Einar Magnússon
Heilbrigðisráðuneytið vill
færa samskipti lyfjafyr-
irtækja og lækna sem allra
mest upp á yfirborðið.
á morgun
Helgin öll …