Morgunblaðið - 03.04.2005, Side 34
34 SUNNUDAGUR 3. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
STUNDUM gleymast jákvæðar
hliðar á neikvæðum hlutum. Ef
heimurinn væri fullkominn væri lít-
ið til að gleðjast yfir.
Ég set fram þessa of-
notuðu klisju vegna
þess að mér líður al-
veg ágætlega þessa
dagana.
Þá má spyrja: hvað
er svo merkilegt við
það að líða vel og
njóta tilverunnar, að
það sé þess virði að
skrifa um það í pistli?
Hvernig tengist það
neikvæðum hlutum ef
manni líður vel? Ég
svara seinni spurning-
unni með því að skýra
út þá fyrri. Þunglyndi
er almennt talið neikvætt fyrirbæri,
en í dag lít ég á það sem jákvæðan
hlut að hafa „fengið“ að verða „pínu
geðveik“, nokkuð oft reyndar. Ég
efast stórlega um að ég myndi
njóta tilverunnar eins mikið ef ég
aldrei hefði veikst andlega – ef ég
þekkti ekki dimmu hornin í tilver-
unni þá nyti ég ekki hversdagsleik-
ans eins mikið og ég geri þegar ég
er í góðu jafnvægi. Ég þekki sjálfa
mig og minn innri styrk betur en
ella. Ég get verið stolt af sigri í
baráttu, stundum upp á líf og
dauða. Fyrir tilstilli þess að vera
öðruvísi en fólk er flest hef ég feng-
ið þekkingu sem er mér mjög dýr-
mæt. Ég hef fengið að
kynnast fólki sem ég
undir öðrum kring-
umstæðum hefði aldr-
ei kynnst, sem auðgar
líf mitt með nærveru
sinni.
Í haust var ég búin
að vera í bata í nokk-
ur ár en einhverra
hluta vegna pompaði
ég niður. Þessi geð-
lægð mín var að
mörgu leyti ein sú já-
kvæðasta sem ég hef
gengið í gegnum: Já-
kvæð geðlægð? Nú
má spyrja um hvað
konan sé að tala.
Til að svara því vil ég setja fram
nokkrar ástæður:
Þó svo að mér liði ekki betur en
áður þegar ég var veik, þá vissi ég
að ég réði við þetta og veikinda-
tímabilið tæki enda.
Ég var bara þrjá daga inni á
spítala, sem er enginn tími miðað
við vikur og jafnvel mánuði eins og
áður.
Ég óskaði sjálf eftir hjálp þegar
ég fann að þetta var mér ofviða að
kljást við líðanina ein.
Ég reyndi ekki að fyrirfara mér,
þó svo að mér hafi tekist á tímabili
að sannfæra sjálfa mig um að fólk í
kringum mig yrði bara fegið að
losna við mig.
Ég hef fundið kraftinn sem ég
þurfti til að viðurkenna að ég hef
verið og er veik.
Mér er að takast að vinna á eigin
fordómum.
Ég er farin að vinna markvisst
að því að uppræta fordóma hjá
fólki úti í samfélaginu.
Ég er farin að sætta mig við mín
veikindi sem er stærsta skrefið í
áttina að lifa sátt við sjálfa mig.
Ég veit að mín reynsla er nokk-
uð sem ég get nýtt mér í framtíð-
inni.
Að ná bata er ekkert sem gerist
á nokkrum vikum eða mánuðum.
Ég hef tekið nokkur ár í að byggja
upp grunn til þess að geta lifað
eðlilegu lífi. Því, sem ég hef gert til
að byggja þennan grunn, er hægt
að skipta niður í tvö ferli:
Fyrsta ferlið fólst t.d í eftirfar-
andi:
Ég opnaði leiðir til að mennta
mig. Varð stúdent.
Ég tamdi mér sjálfsaga til að
standa mig í vinnu.
Ég lærði að þrauka.
Ég sætti mig við sjálfa mig eins
og ég var.
Ég lærði að sjá hvað ég gæti
gert til að eiga betra líf
Ég lærði að ég yrði að sinna
mínum grunnþörfum næringarlega
og þess háttar atriðum.
Þegar ég hafði lokið þessu ferli
gat ég hafið það næsta sem ég er
enn að vinna að:
Ég sinni ekki bara grunnþörfum
heldur er ég búin að skipta um lífs-
stíl, ég get sett þær kröfur á sjálfa
Anna Sigríður Pálsdóttir
fjallar um geðheilbrigðismál ’Fyrir tilstilli þess aðvera öðruvísi en fólk er
flest hef ég fengið þekk-
ingu sem er mér mjög
dýrmæt.‘
Anna Sigríður
Pálsdóttir
Góðir hlutir gerast hægt
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali
Verslunarhúsnæði óskast
Mér hefur verið falið að finna ca 500 fm verslunarhús-
næði fyrir eigendur mjög þekktrar húsgagnaverslunar.
Til viðbótar verslunarplássinu mætti vera viðbótarrými
undir lager, þó ekki skilyrði. Svæði sem koma til greina
eru t.d. Múlarnir í Reykjavík og ný verslunarhverfi
Kópavogs. Fleiri svæði koma þó til greina.
Upplýsingar veitir Ólafur B. Blöndal á skrifstofu fast-
eign.is eða í 690 0811.
Ólafur B. Blöndal,
löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali.
Símar 5-900-800 og 690 0811.
olafur@fasteign.is
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Laufásvegur - Þingholtin
Vorum að fá í einkasölu
vandað og virðulegt 324 fm
einbýlishús með bílskúr við
Laufásveg í Þingholtunum.
Húsið er teiknað af Gunn-
laugi Halldórssyni. Húsið,
sem er á tveimur hæðum auk
kjallara, skiptist m.a. í þrjár stofur og fjögur herbergi. Auk þess er 2ja
herb. íbúð með sérinngangi í kjallara (einnig innangengt). Húsið hefur
verið standsett að miklu leyti. Mjög falleg stór lóð til suðurs. Úr borð-
stofu er gengið út á mjög rúmgóða verönd til suðurs. Glæsileg eign á
eftirsóttum stað. Verð 75,0 millj.
Þórhildur Sandholt
lögfr. og lögg. fastsali.
Gsm 898 8545
Gísli Sigurbjörnsson
sölumaður
FAX 568 3231
Einbýlishús úr timbri, 180 fm að
stærð, hæð og ris ásamt 32 fm bíl-
skúr. Á hæðinni er forstofa með
gestasnyrtingu, eitt herbergi, eldhús,
þvottahús og stór stofa með útgangi
á verönd í garði. Stigi og lyfta milli
hæða. Í risi er rúmgott fjölskylduher-
bergi, 4 svefnherbergi og baðher-
bergi. Útgangur á svalir frá hjónaher-
bergi. Bílskúrinn stendur sér með
rafmagni og hita. Góður garður um-
hverfis húsið.
MARBAKKABRAUT - KÓPAVOGI
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Sími 588 4477
Í einkasölu fallegt nýtt raðhús á
einni hæð m. innbyggðum bíl-
skúr og ca 20 fm í risi, samtals
um 155 fm.
Húsið er með mikilli lofthæð.
Frágengið bílaplan og stéttar
með hitalögn. Vandað eldhús.
Fallegt útsýni á Álftanes. Húsið
verður til sýnis í dag, sunnudag,
milli kl. 14 og 17. Verð 32,8 m.
Klettás 5 - Garðabæ
Opið hús í dag kl. 14-17
www.hofdi.is
Runólfur Gunnlaugsson, viðskiptafr. og löggiltur fasteigna- og skipasali.
Suðurlandsbraut 20
Sími 533 6050
Bæjarhrauni 22
Sími 565 8000
Opið hús í dag á milli kl. 14 og 16
Stóragerði 28 - 2. hæð með bílskúr
Í dag býðst þér og þínum að skoða
þessa fallegu og vel skipulögðu 4ra
herbergja 101,2 fm íbúð á 2. hæð t.h.,
ásamt 19,1 fm bílskúr, á þessum
vinsæla stað. Þrjú svefnherbergi, stofa
og forstofa með parketi, eldhús með
fallegri eldri innréttingu og borðkrókur.
Baðherbergi með kork á gólfi og
baðkari. Bílskúr. Húsið var nýlega tekið í
gegn. Verð 20,5 millj. Hér er stutt í alla
þjónustu, verslanir og skóla.
Hanna tekur á móti gestum.
Allir velkomnir.
skráð eign er seld eign
Kristín Pétursdóttir löggiltur fasteignasali
smáauglýsingar
mbl.is
mbl.isFRÉTTIR
VOR 2005
Sölustaðir: sjá www.bergis.is
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið