Morgunblaðið - 03.04.2005, Page 36
36 SUNNUDAGUR 3. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FYRIR Evrópuþinginu í Stras-
bourg liggja drög að heildarlöggjöf
um þjónustu á innri markaði ESB,
sem Íslendingar munu
fá senda einhvern tím-
ann á þessu ári eftir að
hún hefur verið sam-
þykkt á þinginu að und-
angengnum þremur
umræðum og hlotið
blessun ráðherraráðs
ESB að auki. Íslending-
ar verða að taka þessa
þjónustutilskipun upp,
eins og allar aðrar til-
skipanir sem ESB læt-
ur frá sér fara, vegna
aðildar okkar að samn-
ingnum um Evrópska
efnahagssvæðið (EES) frá árinu
1993, en þessi er víðtækust þeirra
allra og nær til allt að 70% þjóðar-
framleiðslunnar.
BSRB hefur sent utanríkisráðu-
neytinu umsögn um þessa þjónustu-
tilskipun og hefur ýmsar alvarlegar
athugasemdir fram að færa við plagg-
ið. Athugasemdir BSRB eru í meg-
inatriðum þær sömu og flest verka-
lýðssambönd ESB-ríkjanna 25, þ.m.t.
öll systurfélög BSRB, hafa sett fram
á þessa þjónustutilskipun. BSRB álít-
ur hana vera árás á verkalýðshreyf-
inguna og velferðarkerfið í landinu,
telur að laun lækki og réttarstaða
launafólks veikist og að réttindi sem
náðst hafa í aldalangri baráttu glatist
og að hún opni á markaðsvæðingu á
þeim sviðum sem hið opinbera hefur
séð um til þessa. Þá er þar að finna
svokallaða upprunalandsreglu, sem
gengur út á það að þjónustuaðilar
þurfa eingöngu að hlíta þeim lögum
og reglum sem gilda í því landi, sem
þeir eiga uppruna sinn í eða hafa höf-
uðstöðvar sínar í. Hvað þýðir þetta?
Að fyrirtæki frá hvaða ríki sem vera
skal innan ESB getur
komið til Íslands og haf-
ið hér starfsemi og þarf
þá eingöngu að fara að
þeim leikreglum sem
gilda í heimalandi þess.
Þá er komin upp sú
staða að starfandi eru á
íslenskum vinnumark-
aði erlend fyrirtæki,
sem um gilda allt aðrar
reglur en um íslensk
fyrirtæki, greiða lægri
laun, þurfa ekki að
sinna vinnuvernd í sama
mæli, heilbrigðismálum
o.s.frv. Ef þessi þjónustutilskipun
verður að veruleika þá hefur íslensk
verkalýðshreyfing litla sem enga
möguleika á að fara fram á það yf-
irleitt að íslenskir kjarasamningar
gildi fyrir starfsfólk þessara fyrir-
tækja, eins og þó ennþá er hægt t.d.
við Kárahnjúka. Afleiðingarnar verða
mjög róttækar eins og allir geta
ímyndað sér, geta orðið þær að ís-
lensk fyrirtæki standi allt í einu í sam-
keppni við erlend, sem þurfa ekki að
borga nema kannski þriðjung launa á
við þau og þurfa heldur ekki að fram-
fylgja neinum reglum að heitið geti.
Hvaða svar hafa þau annað en að skrá
sig í svipuðu landi? Þeim verður
heimilt að gera það og hefja síðan
rekstur sinn þaðan. Íslenskir kjara-
samningar gilda væntanlega áfram
milli íslenskra aðila, en minkurinn
verður inni í hænsnakofanum. Upp
kemur ný staða sem mjög erfitt verð-
ur fyrir verkalýðshreyfinguna að ráða
við. Og það er meira blóð í kúnni. Í
þjónustutilskipuninni er fjallað um
svonefndar viðskiptahindranir. Ríkj-
um er gert að leggja ekki meiri álögur
og kvaðir á fyrirtæki en það minnsta
sem komast á af með.
Og spurningin um hvað muni kallað
viðskiptahindrun er opin og hætt er
við að jafnvel íslenskir kjarasamning-
ar verði kallaðir viðskiptahindranir og
umhverfisstaðlar af ýmsu tagi verði
líka kallaðir viðskiptahindranir og
þeir verði þá að víkja og ýmis lög og
reglur, sem hið opinbera hefur sett,
verði að stroka út. Allt ber að sama
brunni, fyrirtækin þetta, fyrirtækin
hitt, fyrirtækin ofar öllu. Þarf engum
að koma á óvart ef litið er til uppruna
og eðlis ESB. Það verður Evrópu-
þingið sem ákveður örlög þjónustutil-
skipunarinnar. Til þess var fyrst kosið
árið 1979. Framan af var það svo sem
ekki valdamikið en þegar Efnahags-
bandalagið varð að ESB með gildis-
töku Maastrichtsamningsins árið
1992 hefur vægi þess orðið meira,
þannig að nú þarf bæði Evrópuþingið
og ráðherraráð ESB að samþykkja
þær tilskipanir sem frá ESB fara, en
áður dugði samþykki ráðherraráðsins
eitt.
Í Strasbourg og Brussel sitja auðs-
ins menn og dæma launafólk ESB að
sínum sið, t.d. 12,5% vinnufærra Þjóð-
verja og 7% Portúgala til atvinnuleys-
is um þessar mundir. Handbendi auð-
hringanna í Evrópu eru allsráðandi í
æðstu stofnunum ESB, ásamt með
helstu styrktaraðilum sínum, hægri
krötum allra ríkjanna, sem ávallt leita
athvarfs í kapítalismans opnu skauti,
hvenær sem kallið kemur. Fulltrúar
vinstri flokka af ýmsum toga á Evr-
ópuþinginu munu að sjálfsögðu freista
þess að sníða ýmsa agnúa af þessari
þjónustutilskipun og þá væntanlega í
bandalagi við þá krata, sem einhver
tengsl hafa við launþegasamtök í
heimalöndum sínum. Slíkt hið sama
gildir um öll þau samtök launafólks,
sem undir nafni standa í upphafi þess-
arar greinar. En víst er að óhugnan-
lega miklar líkur eru á að sú viðleitni
verði unnin fyrir gýg, svo afgerandi
mikill er hægri meirihlutinn á Evr-
ópuþinginu. En hvað um ASÍ? Já,
hvað um hina staðföstu og viljugu
ASÍ-forustu, sem studdi aðild Íslands
að Evrópska efnahagssvæðinu á sín-
um tíma og talað hefur nánast einum
rómi fyrir inngöngu Íslands í ESB.
Já, hvað um mennina, sem voru í stöð-
ugum ferðalögum til Brussel til að
sækja þangað réttarbætur til handa
umbjóðendum sínum,
réttarbætur sem í öllum tilfellum
hefði verið hægt að ná fram með skel-
eggri baráttu á heimavelli. Já, hvað
um mennina, sem þegið hafa svo mörg
boð til Brussel að aðeins pillulæknar
af fínustu sort komast í hálfkvisti við
þá flugpunktasöfnun. Það er eins og
það sé komið annað hljóð í strokkinn.
Komið örlítið bit í deiga járnið. Þeir
völdu þó auðveldustu leiðina. Fengu
senda umsögn sænsku alþýðusamtak-
anna um þjónustutilskipunina og
Þjónustutilskipun
Evrópusambandsins
Ólafur Þ. Jónsson fjallar
um Ísland og Evrópu
’Þær spurningar hljótalíka að vakna hvernig
nokkur félagi í laun-
þegasamtökunum getur
bundið trúss sitt við
stjórnmálaflokk sem
stefnir að því leynt og
ljóst að Íslendingar
gangi í ESB…‘
Ólafur Þ. Jónsson
Þórhildur Sandholt
lögfr. og lögg. fastsali.
Gsm 898 8545
Gísli Sigurbjörnsson
sölumaður
FAX 568 3231
Nýtt og vandað sumarhús/heilsárs-
hús, alls 71,5 fm, þar af er 7 fm
geymsla á 4.200 fm leigulóð. Húsið
er byggt úr timbureiningum á steyp-
an sökkul og steyptir staurar eru
undir palli og geymslu. Heitt og kalt
vatn og rafmagn. Húsið skiptist í
stofu og eldhús með bráðabirgðainn-
réttingu, 3 svefnherbergi, baðher-
bergi með innréttingu og sturtuklefa.
Stór og góður pallur á tvær hliðar.
Mikið af trjágróðri hefur verið plantað á lóðina. Stutt er í alls konar þjónustu
svo sem sund, golf og veiði. Frábært útsýni.
Ekið er austur Grímsnesið og yfir Brúará. Þegar komið er yfir ána er 1. afleggj-
ari til vinstri af þjóðveginum inn í sumarhúsahverfið. Bústaðurinn er sá innsti á
hægri hönd og heitir „LAUT“.
Eigendur, þau Björg og Friðgeir, verða á staðnum og sýna eignina
SUMARHÚS Í LANDI SPÓASTAÐA Í BISKUPSTUNGUM
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 13 OG 17
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir,
hdl. og lögg. fasteignasali
Sjafnargata
Gullfalleg 110 fm, 5 herbergja
sérhæð í þríbýlishúsi á einum
eftirsóttasta stað í Reykjavík.
Eignin skiptist í þrjár stofur, tvö
svefnherbergi, baðherbergi og
eldhús. Fallegar svalir út frá
borðstofu. Stórir og bjartir
gluggar og hátt til lofts. Sér-
staklega falleg og sjarmerandi
íbúð.
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
La gavegur 182 • 105 Rvík • Fax 53 481 • i r idborg.is
Þorláksgeisli 78
Opið hús milli kl. 13 og 15
185,6 fm glæsilegt parhús á
tveimur hæðum með inn-
byggðum bílskúr. Húsið
skiptist í forstofu, snyrtingu,
stofu, eldhús, vinnuherbergi,
þvottahús, þrjú herbergi og
baðherbergi. Gegnheilt park-
et er á öllum gólfum nema
flísar eru á baðherbergi,
snyrtingu og forstofu. Mjög
góð staðsetning og glæsilegt
útsýni. Hiti í gólfum.
Sigurður sýnir, sími 866 9958
Mikil eftirspurn er um þessar mundir eftir öllum stærðum
og gerðum af atvinnuhúsnæði til kaups á höfuðborgar-
svæðinu. Höfum á skrá trausta kaupendur með sterkar
greiðslur í boði. Einnig höfum við á skrá fyrirtæki sem
leita að framtíðarhúsnæði til leigu.
Nánari
upplýsingar
veita Óskar R.
Harðarson, hdl.,
og Sverrir Krist-
insson, löggiltur
fasteignasali.
Óskar Rúnar Harðarson,
hdl.
Sverrir Kristinsson,
löggiltur fasteignasali
EIGENDUR ATVINNUHÚSNÆÐIS
ATHUGIÐ
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9-17:30.
Sími 588 4477
Valhöll kynnir vandaða, talsvert endurnýjaða neðri sérhæð í þessu
fallega og vel staðsetta húsi ásamt bílskúr. Íbúðin er skráð hjá
FMR 129,6 fm og bílskúrinn er 32,2 fm. Húsið er að sjá í góðu
standi. 2 baðherb., 3 svefnherb., rúmgóð stofa, rúmgott eldhús.
Íbúðin er laus við kaupsamning. Mjög gott verð eða aðeins 27,9
millj. Opið hús verður í dag, sunnudag, frá kl. 14:00 - 16:00.
Jón og Kristbjörg taka á móti áhugasömum.
Gnoðarvogur 48, 1. hæð - m. bílsk.
Opið hús í dag kl. 14 - 16
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
OPIÐ HÚS - Vífilsgata 7, 2. hæð
Björt og vel skipulögð 3ja herb. 55 fm
íbúð á 2. hæð í steinsteyptu þríbýlis-
húsi í Norðurmýrinni. Eignin skiptist í
hol, herbergi, tvær samliggjandi stof-
ur, eldhús og baðherbergi. Geymslu-
ris er yfir íbúðinni. Parket. Lögn fyrir
þvottavél á baði. V. 12,5 m. 4791
EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG
(SUNNUDAG) FRÁ KL. 13-16.