Morgunblaðið - 03.04.2005, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 3. APRÍL 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
TIL GREINA kemur að samningur
Læknafélags Íslands (LÍ) og Félags
íslenskra stórkaupmanna (FÍS) þar
sem settar eru fram leiðbeinandi
reglur um samskipti lækna og lyfja-
fyrirtækja, verði ekki endurnýjaður
heldur setji læknar sér einhliða siða-
reglur. Verður þetta efni eitt af höf-
uð viðfangsefnum formannafundar
Læknafélagsins í apríl. Samningur
FÍS og LÍ gildir til áramóta.
Í Morgunblaðinu í dag er fjallað
um endurmenntun lækna og aðkomu
lyfjafyrirtækja að henni. Kemur þar
m.a. fram að lyfjafyrirtækin taka
ekki vel í hugmyndir um sameigin-
legan fræðslusjóð lyfjafyrirtækja til
handa læknum, í stað stuðnings við
fræðsluferðir einstakra lækna.
Guðbjörg Alfreðsdóttir, fram-
kvæmdastjóri lyfjasviðs hjá Vistor,
segir það vera á valdi fyrirtækjanna
sjálfra í hvað fjármunum, sem nú
fari til fræðslu heilbrigðisstarfsfólks,
sé varið og að aðrir hafi ekki um-
ráðarétt yfir því. Segir hún þetta
vera markaðspeninga lyfjafyrirtækj-
anna sjálfra og þeirra að ráðstafa
þeim.
Hluti af markaðssetningu
Þyri E. Þorsteinsdóttir, markaðs-
stjóri IcePharma, segir fyrirtækið
líta svo á að ferðir lækna í boði lyfja-
fyrirtækja séu eðlilegur hluti af sam-
starfi þessara aðila. „Umræddar
ferðir eru hluti af markaðssetningu
lyfja, aðrar leiðir eru einnig mikið
notaðar en eru hægvirkari.“
Sigurður Guðmundsson landlækn-
ir sagði í grein í Læknablaðinu í
mars að í samskiptum lækna og
lyfjafyrirtækja endurspegluðust
tengsl og jafnframt átök milli öflugr-
ar fagstéttar og eins af stærstu við-
skiptaöflum veraldar.
Sem dæmi um þessi tengsl og átök
má nefna að þegar forystugrein for-
manns Læknafélagsins í Lækna-
blaðinu á síðasta ári hafði birst, þar
sem hann hvatti til aðhalds í sam-
skiptum lækna og lyfjafyrirtækja,
tilkynntu lyfjafyrirtæki að þau
myndu ekki auglýsa í næsta tölu-
blaði. Þau hurfu reyndar frá þeirri
ákvörðun á síðari stigum en sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
varð Læknablaðið af tekjum vegna
birtingar greinarinnar þar sem lyfja-
fyrirtæki hafa auglýst minna í kjöl-
far birtingar hennar.
Læknar setji sér
einhliða siðareglur
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
Eiga læknar/16–19
BOBBY Fischer upplýsir í samtali
við Morgunblaðið í dag að hann
hafi óskað eftir hæli sem pólitísk-
ur flóttamaður í nokkrum löndum
en alls staðar
verið hafnað, áð-
ur en hann
ákvað að reyna
að fá að koma til
Íslands.
Hann nefnir
Sviss og Venes-
úela en kýs að
tilgreina ekki fleiri lönd að svo
komnu máli. Hjólin hafi loks farið
að snúast eftir að hann hringdi í
Sæmund Pálsson vin sinn úr jap-
anska fangelsinu, og íslensk
stjórnvöld farið að beita sér í
framhaldi af því.
Enn er óráðið hvar Fischer sest
að, en hann segist alveg eins geta
hugsað sér að búa annars staðar
en á Reykjavíkursvæðinu ef hann
kýs að búa á Íslandi. En hann
kveðst óhræddur að ferðast til
annarra landa; hann óttist ekki
framsal til Bandaríkjanna. Fisch-
er finnst Reykjavík ekki eins
notaleg og hún var 1972; þá
fannst honum borgin „vinalegt
þorp“ en þykir hún hafa breyst til
hins verra við fyrstu sýn. „Annars
hef ég verið að átta mig á því,
eftir samtöl við Sæma, að ég man
ákaflega lítið eftir Reykjavík eða
því umhverfi sem ég var í [meðan
á einvíginu stóð 1972]. Skákin var
það eina sem komst að. Ég var
svo einbeittur.“
Fischer lýsir í blaðinu yfir mik-
illi óánægju með virkjanafram-
kvæmdir á hálendinu fyrir austan
og hvetur til þess að þær verði
stöðvaðar, það sé ekki of seint.
Óskaði eftir hæli
í nokkrum löndum
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Ekkert annað land/10
STOFNAÐ hefur verið nýtt mjólkur-
samlag, Mjólka ehf., sem mun sér-
hæfa sig í framleiðslu og sölu á ostum
fyrir innanlandsmarkað. Mjólka
starfar utan greiðslumarkskerfis
landbúnaðarins og nýtur því ekki
framleiðslustyrkja frá ríkinu. Sótt
hefur verið um leyfi til heilbrigðisyf-
irvalda til starfrækslu mjólkurstöðv-
ar Mjólku.
Stofnendur Mjólku eru fjölskyldan
á Eyjum II í Kjós og aðilar henni
tengdir. Að sögn Ólafs M. Magnús-
sonar, framkvæmdastjóra Mjólku,
mun framleiðsla á mjólk vegna osta-
gerðarinnar fara fram að Eyjum II en
ostagerðin í verksmiðjuhúsnæði sem
nú er verið að inn-
rétta á Ártúns-
holti í Reykjavík.
Mjólkurfram-
leiðsla er þegar
hafin en keyptar
hafa verið 50
mjólkurkýr í búið
og er stefnt að því að fjölga þeim í eitt
hundrað.
Eins og fyrr segir er framleiðslan
utan við styrkjakerfi landbúnaðarins.
Aðspurður hvernig Mjólka geti boðið
osta á samkeppnishæfu verði segir
Ólafur að svo virðist sem núverandi
kaupgengi á framleiðslurétti á mjólk
sé á bilinu 400–465 krónur fyrir lítr-
ann. Með því að kaupa framleiðslurétt
á slíku verði séu mjólkurframleiðend-
ur í raun að afsala sér beingreiðslum
frá ríkinu í 12–15 ár og sé þá ekki tek-
ið tillit til vaxta og kostnaðar. Að-
standendur Mjólku meti það svo að
það sé ekkert hægt að spá fyrir um að
aðstæður á markaði verði með svip-
uðum hætti eftir 15 ár og þær eru nú
og telji ennfremur að þeir geti fram-
leitt osta á samkeppnishæfu verði.
Ólafur gerir ráð fyrir að ostafram-
leiðslan hefjist nú í vor og að fyrstu
vörurnar komi á markað í byrjun
sumars. Í fyrstunni er gert ráð fyrir
að framleiðslan geti numið um 40
tonnum af osti árlega. Fyrst um sinn
mun fyrirtækið einbeita sér að fram-
leiðslu einnar ostategundar en stefnt
er að auknu vöruúrvali á næsta ári.
Framleiðslustuðningur
um 47% af kostnaði
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra segist óska samlaginu velfarn-
aðar og vonast til að Mjólka auðgi og
efli íslenskan landbúnað. Aðspurður
segist hann ekki sjá að það hafi áhrif á
landbúnaðarkerfið þó að rekstur sam-
lagsins gangi samkvæmt áætlun.
Hann telur þó að reksturinn gæti orð-
ið erfiður þar sem framleiðslustuðn-
ingur nemi nú um 47% af framleiðslu-
kostnaði.
Framleiða osta utan kerfis
ÁFORMAÐ er að halda tveggja
daga tónlistarveislu í Egilshöll í
sumar.
Ein allra vinsælasta hljómsveit 9.
áratugar síðustu aldar, Duran Dur-
an, leikur fimmtudaginn 30. júní og
fimm dögum síðar, þriðjudaginn 5.
júlí, leika tvær af stærstu rokk-
sveitum í heiminum í dag, Queens of
the Stone Age og Foo Fighters.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum Morgunblaðsins mun hug-
mynd tónleikahaldara vera sú að
hér sé á ferð vísir að árvissri veg-
legri tónlistarhátíð.
Foo Fighters lék fyrir troðfullu
húsi í Laugardalshöll í desember
2003 og hlaut lof fyrir frammistöðu
sína en mikið hefur verið reynt að fá
Queens of the Stone Age til landsins
en sveitin hefur notið vinsælda hér á
landi síðustu ár og ný plata sveit-
arinnar Lullabies to Paralize fór
beint í 7. sæti Tónlistans í vikunni.
Queens of the
Stone Age,
Foo Fighters
og Duran Dur-
an í EgilshöllUNNIÐ er að endurbótum á gatnakerfinu við Hlemm í Reykjavík vegnanýs leiðakerfis hjá strætó, en að þeim loknum verður Hverfisgötu lokað við
Hlemm fyrir almennri umferð. Framkvæmdirnar eru í fullum gangi en af
þeim sökum hefur Laugavegi verið lokað milli Rauðarárstígs og Höfðatúns
og Hverfisgötu milli Snorrabrautar og Rauðarárstígs. Gert er ráð fyrir að
göturnar verði lokaðar til 13. apríl nk.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Endurbætur á gatnakerfinu
SÍF hefur nú aðeins starfsemi í fjór-
um löndum að Íslandi meðtöldu eftir
söluna á Iceland Seafood Corp. í
Bandaríkjunum og Iceland Seafood
International. Þannig hefur SÍF selt
frá sér starfsemi í 11 löndum á þessu
ári og veltan minnkar um 30 millj-
arða króna.
Svo kann að fara að næstu land-
vinningar SÍF tengist ekki sjávar-
fangi, eins og hingað til hefur verið.
Fyrirtækið hefur markað sér skýran
vettvang í sölu tilbúinna matvæla í
Evrópu en hætt starfsemi sinni í
Norður-Ameríku og frumvinnslu og
sölu lítt unninna afurða. Sala ann-
arra matvæla en sjávarfangs getur
því fallið vel að núverandi starfsemi
SÍF, sem er nær öll í Frakklandi og
Bretlandi.
SÍF starfar
í 4 löndum
30 milljarða/6
♦♦♦