Morgunblaðið - 17.04.2005, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Í gegnum árþúsundir hafa Kínverjar þróað fullkomnar
aðferðir til eflingar líkama og heilsu.
• Sjálfsvörn fyrir alla
• Hugræn teygjuleikfimi
• Tai Chi
• Kung Fu - fyrir börn, unglinga
og fullorðna
Sérhæfð heilsumeðferð.
Dekur að kínverskum hætti.
Skeifan 3 ◆ Sími 553 8282 ◆ www.heilsudrekinn.is
Hóptímar
Einkatímar
Opið hús 18.-23. apríl - Fríir prufutímar - mörg tilboð í gangi
HÁHRAÐI UM LAND ALLT
Allir landsmenn eiga að geta
tengst háhraðaneti árið 2007, sam-
kvæmt fjarskiptaáætlun 2005– 2010
sem ríkisstjórnin hefur samþykkt.
Einnig verður aðgengi að farsíma-
þjónustu aukið á þjóðvegum og
helstu ferðamannastöðum. Þá er
stefnt að því að allir landsmenn hafi
aðgengi að gagnvirku stafrænu sjón-
varpi og að farið verði að útvarpa
starfrænt um landið og miðin.
Æfing í Hvalfjarðargöngum
Hvalfjarðargöngin voru lokuð um
tíma í gær vegna almannavarnaæf-
ingar þar sem viðbrögð voru sam-
hæfð vegna hópslyss sem sett var á
svið í miðjum göngunum. Um 200
manns tóku þátt í æfingunni sem var
sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.
Vel undir lágmarkskjörum
Allar líkur eru á að höfðað verði
dómsmál vegna launamála smiðs frá
Portúgal sem kom til starfa á síðasta
ári við Kárahnjúkavirkjun í gegnum
portúgölsku starfsmannaleiguna
Select. Eftir þriggja mánaða vinnu
var maðurinn milljón krónum undir
lágmarkskjörum.
Unnur Birna fegurst fljóða
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, tví-
tug Reykjavíkurmær, var kosin
ungfrú Reykjavík á föstudagskvöld.
Umbreytist eða deyið
Condoleezza Rice, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði í
fyrradag, að yrði ekki gripið til mik-
illa umbóta innan Sameinuðu þjóð-
anna, ættu þær ekkert erindi lengur
í alþjóðamálum. Lét hún þessi orð
falla á fundi með bandarískum rit-
stjórum er hún varði þá ákvörðun
stjórnar sinnar að útnefna John
Bolton sem næsta sendiherra henn-
ar hjá samtökunum. Mary Robinson,
fyrrverandi forseti Írlands, tekur
undir það, að umbóta sé þörf innan
SÞ en leggur áherslu á, að SÞ eigi
mikilvægt og óhjákvæmilegt erindi á
alþjóðavettvangi. Samtökin verði
hins vegar að herða baráttuna gegn
fátækt og mannréttindabrotum.
Sjítar reknir
Sjítar í bænum Al-Madain, fyrir
sunnan Bagdad, flúðu þaðan í gær
en þá hafði fjöldi vopnaðra súnníta
tekið um 80 manns, konur og börn, í
gíslingu og hótaði að drepa þá nema
trúbræður þeirra kæmu sér burt.
Flýðu jafnt hermenn sem lög-
reglumenn og skýldu sér á flóttanum
með því að klæðast borgaralegum
fatnaði. Fóru flestir til borgarinnar
Kut nokkru sunnar. Haft var eftir
sjítum, að Al-Madain-bær væri um-
kringdur að vel vopnuðum súnnítum.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Dagbók 54
Veiði 28 Víkverji 54
Forystugrein 34 Velvakandi 55
Umræðan 36/45 Staður og stund 56
Bréf 40 Menning 57/65
Minningar 46/49 Ljósvakamiðlar 50
Hugvekja 50 Veður 51
Auðlesið 51 Staksteinar 54
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ÓLAFUR Kvaran, formaður safna-
ráðs, segir umræðuna vera mjög
þarfa og brýna sem forstöðumenn
safna hafi brydd-
að upp á í grein í
Morgunblaðinu í
gær. Hann segist
ekki vilja svara
efnislega þeirri
gagnrýni sem
safnstjórarnir
setja fram heldur
vísa á ítarlega
greinargerð safn-
aráðs á heima-
síðu þess, www.safnarad.is. Þar sé
gerð grein fyrir úthlutun ráðsins.
„Kjarni þessa vanda er fjárveit-
ingar til safnastarfs í landinu og
það kemur mjög skýrt fram í loka-
orðum safnstjóranna,“ segir Ólafur
og tekur undir áskoranir þeirra til
menntamálaráðherra og alþingis-
manna um að leggja meira fé í
Safnasjóð.
Í grein safnstjóranna, sem eru 15
af öllu landinu, er úthlutun safna-
ráðs gagnrýnd harðlega og sú
ákvörðun að hafa lækkað rekstr-
arstyrki til safnanna og hækkað
verkefnastyrki. Á sama tíma hafi
safnaráð hækkað eigin rekstrar-
styrk um 50%. „Nemur sá „eldur“
sem ráðið skarar þannig að eigin
köku nálægt 10 millj. af þeim 64
millj. kr. sem eru til úthlutunar úr
Safnasjóði!“ segir m.a. í grein safn-
stjóranna í blaðinu í gær.
Formaður safnaráðs
„Kjarni
vandans er
fjárveiting-
ar til safna“
Ólafur Kvaran
Meira á mbl.is/ítarefni
ALLT innanlandsflug lá niðri í gær-
morgun vegna hvassviðris í háloft-
unum. Veðurstofan varaði við stormi
á Suðurlandi, við Faxaflóa og
Breiðafjörð og vestast á miðhálend-
inu. Þótt hressilega blési um íbúa
suðvesturlands var mun hvassara á
fjöllum og heiðum. Á Skálafelli
mældist t.d. 36 m/s vindur kl. 9 í gær-
morgun.
Innanlands-
flug lá niðri
vegna veðurs
AÐALSTEINN Þorsteinsson, for-
stjóri Byggðastofnunar, segir nauð-
synlegt að styrkja efnahag Byggða-
stofnunar svo að stofnunin geti
staðið við þá lagaskyldu að viðhalda
eigin fé sínu. Á síðasta ári greiddu
viðskiptavinir Byggðastofnunar upp
lán fyrir um tvo milljarða króna. Að-
alsteinn segir að þetta hafi leitt til
þess að útlánasafn stofnunarinnar sé
orðið brothættara því að margir af
traustustu viðskiptavinum hennar
hafi snúið sér til bankakerfisins.
„Þeir sem fóru eru þeir sem áttu
greiðastan aðgang inn í bankakerfið
og höfðu öruggustu tryggingarnar
fyrir sínum lánum og sterkasta efna-
haginn. Við erum að tala t.d. um út-
gerðir með varanlegar veiðiheimildir
og félög sem eru með sterkan efna-
hag. Þetta eru félög sem komu veik
til stofnunarinnar og fara þaðan
sterk,“ sagði Aðalsteinn.
Uppgreiðslur tveir
milljarðar í fyrra
Aðalsteinn sagði að uppgreiðslur
lána hefðu numið um tveimur millj-
örðum króna á síðasta ári. Dregið
hefði verulega úr þessum upp-
greiðslum að undanförnu. Hann
sagði að við þetta minnkaði efnahag-
ur Byggðastofnunarinnar. Stofnunin
greiddi upp lán og hún hefði m.a.
notað tækifærið og greitt upp lífeyr-
isskuldbindingar.
„Uppgreiðslurnar geta haft þau
áhrif að útlánasafnið verði brothætt-
ara á eftir. Það er hætt við að van-
skil, sem hlutfall af heildarútlánum,
vaxi ef þeir sterkustu eru farnir út.
Síðan hefur þetta þau áhrif að tekjur
stofnunarinnar minnka og geta
hennar til að mæta áföllum minnk-
ar.“
Á síðasta ári nam tap á rekstri
Byggðastofnunar 385 milljónum
króna. Aðalsteinn sagði ljóst að þörf
væri á að styrkja efnahag stofnunar-
innar. Það yrði ekki gert nema ríkið
legði til hennar meira fé eða létt yrði
af henni einhverjum skuldum.
„Byggðastofnun þarf að vera í stakk
búin til að þola þau áföll sem óhjá-
kvæmileg eru í svona rekstri. Stofn-
uninni hefur verið ætlað að taka
áhættu umfram það sem gerist og þá
þarf hún að hafa sæmilega sterkan
efnahag,“ sagði Aðalsteinn.
Styrkja þarf Byggðastofnun
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
Meira á mbl.is/ítarefni
AÐSTANDENDUR félagsins Al-
menningur ehf., sem stofna á form-
lega eftir helgina til að taka þátt í
kaupum á Símanum, komu saman til
fundar á Hótel Holti í gærmorgun til
að ráða ráðum sínum. Alls hafa nú á
sjöunda þúsund tilkynningar borist
frá almenningi um þátttöku í tilboði í
Símann. Að sögn Orra Vigfússonar
liggja fjárhæðir þessara loforða ekki
endanlega fyrir en skjóta megi á töl-
una 12 milljarða króna.
„Margir hafa boðist til að koma til
okkar og gefa góð ráð,“ sagði Orri,
sem reiknaði með að fleiri álíka
fundir og í gær yrðu haldnir, en þá
mætti vel á annan tug manna. Orri
sagði þessa fundi snúast um að ræða
framtíðarsýn hópsins og aðkomu
hans að sölu Símans. Mestu skipti að
auðvelda aðkomu almennings að
henni.
Hópurinn hefur óskað eftir því við
einkavæðingarnefnd að lengri frest-
ur verði gefinn til að skila inn til-
boðum.
Á sjöunda þúsund
tilkynningar komnar
Morgunblaðið/Eyþór
Orri Vigfússon og Agnes Bragadóttir á fundi á Hótel Holti í gær ásamt
fleiri áhugasömum kaupendum á Landssímanum.
Félagið Almenn-
ingur ehf. stofnað
eftir helgi um kaup
á Símanum
FEÐGARNIR Haraldur Benedikts-
son (t.v.) og Sigurður Haraldsson
voru að greiða úr grásleppunetum
og gera trossur klárar um borð í
Straumi HF í Hafnarfjarðarhöfn á
föstudag. Sigurður rær á Straumi
HF í aukavinnu og hóf útgerðina í
fyrra eftir að hann keypti bátinn
með grásleppuleyfi og öðru tilheyr-
andi. Hann er oft einn um borð, en
faðir hans hefur stundum hjálpað
honum enda þaulvanur til sjós.
Sigurður sagðist ekki vera með
stórt úthald og leggja netin í ná-
grenni Hafnarfjarðar. Enn hefur
lítið reynt á aflabrögð því grá-
sleppuvertíðin í Faxaflóa hófst síð-
astliðinn mánudag. Sigurður saltar
ekki hrognin sjálfur, heldur selur
þau upp úr sjó. Þegar grásleppu-
vertíðinni lýkur í vor er hugmyndin
að fara á handfæri og stunda þau í
sumar líkt og Sigurður gerði í
fyrrasumar.
Morgunblaðið/ÞÖK
Gert klárt fyrir grásleppuna
♦♦♦