Morgunblaðið - 17.04.2005, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 17.04.2005, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn STUNDUM er þægileg tilfinning að finna að maður er hluti af ein- hverju stóru. Þessi tilfinning hellist gjarnan yfir mann þegar maður ferðast um heiminn. Maður upplifir veröld sína í stærra samhengi og líður eins og maður sé hluti af ein- hverju risastóru og merkilegu. Heimurinn sam- anstendur af ólíkum menningarheimum, kynþáttum og trúar- brögðum. Í æðum okkar allra rennur þó sama heita rauða blóðið og öll erum við full af tilfinningum og draumum. Annað virðumst við líka eiga sameiginlegt, það er hatur og grimmd. Oft er talað um að raunveruleikinn sé skáldskapnum ótrú- legri. Það á vægast sagt við í hinni marg- verðlaunuðu kvik- mynd Terry George Hotel Rwanda sem frumsýnd var á dög- unum á kvikmyndahá- tíðinni Iceland Int- ernational Film Festival og er nú í sýningu í Regnbog- anum. Fyrir utan að vera frábær kvik- myndagerð í alla staði er hún heimild um atburði sem áttu sér stað í Afríku fyrir aðeins 11 ár- um síðan. Kvikmyndin lýsir þjóð- armorðum í Rwanda þar sem um 1 milljón barna, kvenna og karla var slátrað með grimmdarlegum og til- efnislausum hætti á aðeins 100 dög- um. Það sem gerir þessa atburði enn merkilegri er að umheimurinn sýndi þessum þjóðarmorðum lítinn sem engan áhuga og takmarkað var fjallað um þau í fjölmiðlum hins vestræna heims. Þetta afskiptaleysi umheimsins hefur síðan verið harð- lega gagnrýnt. Meðal þeirra sem gagnrýnt hafa þetta harðast er hershöfðinginn Romeo Dallaire sem sendur var með lítinn frið- argæsluliðahóp til Rwanda og reyndi hvað hann gat að fá liðsauka sendan til að geta spornað við fjöldamorðunum án þess að fá nokkurn hljómgrunn frá Banda- ríkjastjórn Clintons og yfirmönnum Sameinuðu þjóðanna. Heim- ildamynd um Romeo Dallaire og þessa atburði er einnig sýnd á kvik- myndahátíðinni og heitir hún Shake Hands with the Devil. Það virðist stundum vera afstaða íbúa hins vestræna heims að líta á vandamál þriðja heimsins sem okkur óviðkomandi. Við reyn- um frekar að rækta okkar eigin garð og fría okkur allri ábyrgð. Við hugsum „æ voða- lega er þetta sorglegt“ og höldum svo áfram að horfa á Idolið. Stað- reyndin er hins vegar sú að slíkt afskiptaleysi getur orðið til þess að hlutirnir fara algerlega úr böndunum eins og í tilfelli Rwanda þjóð- armorðanna. Hotel Rwanda vekur mann sannarlega til umhugsunar eins og öll góð kvikmyndagerð. Hún fyllir mann van- mætti og skömm sem við verðum að horfast í augu við. Því öll erum við að vissu leyti með- sek um slíka atburði ef við tökum þátt í því að láta eins og ekkert sé. Og ef við kunnum að skammast okkar núna er kannski örlítið meiri von um að við látum svona atburði ekki óskipta í framtíðinni. Þótt óra- fjarlægð og menningaráherslur að- skilji okkur íbúunum í Rwanda þá erum við öll hluti af þessum stóra og merkilega heimi. Öll erum við manneskjur sem látum okkur dreyma. Ég vil nota tækifærið og þakka aðstandendum kvik- myndahátíðarinnar Iceland Int- ernational Film Festival fyrir stór- kostlega kvikmyndaveislu og hvetja sem flesta til að kíkja í bíó til að heillast, hlæja, gráta og skammast sín. Að skammast sín Unnur Ösp Stefánsdóttir fjallar um athyglisverða kvikmynd Unnur Ösp Stefánsdóttir ’Það virðiststundum vera afstaða íbúa hins vestræna heims að líta á vandamál þriðja heimsins sem okkur óviðkom- andi.‘ Höfundur er leikkona. L á g m ú l a 7 , s í m i 5 5 1 2 3 4 5 Arnar Sölvason, sölumaður Jón G. Sandholt, sölumaður Gunnar Jóh. Birgisson hrl. löggiltur fasteignasali Sigurbjörn Magnússon hrl. löggiltur fasteignasali Sérhæfð fast- eignasala fyrir atvinnu- og skrif- stofuhúsnæði Atvinnuhúsnæði til sölu/leigu Völuteigur 6, Mosfellsbæ Vorum að fá í einkasölu 1432 fm iðnaðar- og/eða skrifstofuhúsnæði á góðum stað í Mosfelsbæ, sem hýsir í dag skrifstofur Atlanta flugfélagsins. Upplýsingar hjá Stóreign ehf. Fasteignasalan Stóreign er sérhæfð fasteignasala á atvinnu- og skrifstofuhúsnæði. Bíldshöfði 12 Verslunarhúsnæði til sölu á mjög góðum stað á höfðanum UM ER AÐ RÆÐA HÚSNÆÐI SEM NÚ HÝSIR BÍLANAUST OG ER UM 550 FM AÐ STÆRÐ. LOFTHÆÐ ER SAMKVÆMT EIG- ANDA UM 3,5 M OG GRÍÐARLEGA GÓÐ SPENNIVÍDD Í HÚSINU SEM ÞÝÐIR AÐ LANGT SÉ Á MILLI SÚLNA. NÝTIST ÞVÍ GÓLF- PLÁSS VEL. BILIÐ ER Á JARÐHÆÐ MEÐ INNKEYRSLUHURÐ. NÁNAST ENGIN SAMEIGN ER AÐ FRÁTÖLDUM UM 4 FM SEM FARA Í LYFTUOPIÐ. BILIÐ SEM UM RÆÐIR ER L-LAGA OG ER ÚTBÚIÐ SKRIFSTOFU OG KAFFISTOFU MEÐ GÓÐRI INN- RÉTTINGU. GÓLF ER STÍFMÁLAÐ. BÍLASTÆÐI FYRIR UTAN PLÁSSIÐ ER SAMEIGINLEGT OG ÓSKIPT MEÐ HEILDAREIGN- INNI, EN EIGNIN HEFUR MIKIÐ AUGLÝSINGAGILDI OG ER STAÐSETT Í EINNI AF ÞESSUM GÖTUM SEM ALLIR ÞEKKJA. SPENNANDI KOSTUR FYRIR FJÁRFESTA OG ENN MEIRA SPENNANDI FYRIR ÞÁ, SEM VILJA NÁ SÉR Í GOTT HÚSNÆÐI UNDIR FYRIRTÆKJAREKSTUR. HAFIÐ SAMBAND VIÐ SKRIFSTOFU Á OPNUNARTÍMA Í SÍMA 534 5400 EÐA SÖLUMENN OKKAR: Hákon 821 5402, Svavar 821 5401, Sigurður 821 5400, Valþór 896 6606, EFTIR KL. 18.00 Á DAGINN. KELDUHVAMMUR - SÉRHÆÐ - HF. Nýkomin í sölu falleg 100,5 fermetra sérbýli, jarðhæð í þriíbýli, vel staðsett við Kelduhvamm í Hafnarfirði. Góð aðkoma að húsinu og sérinngangur á hlið hússins. Lýsing eignar: Góð for- stofa. Geymsla inn af forstofu. Stór gangur. Gott hjónaherbergi með góð- um skápum. Baðherbergi er flísalagt og þar er baðkar og sturta. Eldhús með snyrtilegri hvítri innréttingu og góðum borðkrók. Stórt barnaher- bergi. Björt og góð stofa. Frá gangi er gengið inn í sameinlegt þvottahús. Gólfefni að mestu parket og flísar. Sameiginlegur garður. Góð afgirt lóð með verönd. Eign á rólegum og barnvænum stað. Verð 17,9 millj. SÍMI 5 900 800 Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali Laufengi 3 4ra herb. íbúð á 2. hæð með opnu bílskýli Miðtún 90 3ja herb. íbúð í kjallara í góðu þríbýli Vorum að fá í sölu góða 112 fm íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýli. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, útg. á suðaustursvalir úr einu herb. Stór og rúmgóð og björt stofa með útg. á suðvestur- svalir. Fallegar innréttingar. Stæði í opnu bílskýli fylgir. Stutt í alla þjónustu. Íbúðin get- ur losnað fljótlega. V. 19,9 millj. Ívar og Anna Valdís sýnaeignina í dag, sunnudag, frá kl. 14.30–16.30. Björt og rúmgóð 80 fm 3ja herb. íbúð í kjallara í þríbýli. Tvö stór herbergi og stór stofa. Baðher- bergi nýl. endurnýjað. Góðar eldri innréttingar. Parket, flísar og dúkur á gólfum. Fallegur garður í rækt. Hús og sameign í góðu standi. Góð staðsetning. Verð 15,6 millj. Þórdís sýnir eignina í dag, sunnudag, frá kl. 14.00–16.00. OPIN HÚS Í DAG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.