Morgunblaðið - 17.04.2005, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 17.04.2005, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Sími 551 3485 • Fax 551 3645 Áratuga reynsla í umsjón útfara Önnumst alla þætti Davíð Osvaldsson útfararstjóri Sími 896 8284 Eyþór Eðvarðsson útfararstjóri Sími 892 5057 Vaktsími allan sólarhringinn Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Sími 551 7080 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. Ólafur Örn útfararstjóri, s. 896 6544 Inger Rós útfararþj, s. 691 0919 Vönduð og persónuleg þjónusta Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Flatahrauni 5A, sími 565 5892 Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Komum heim til aðstandenda ef óskað er Sverrir Einarsson Bryndís Valbjarnardóttir Oddur Bragason Guðmundur Þór Gíslason ✝ Geir Björgvins-son bifreiðastjóri fæddist í Reykjavík 7. september 1932. Hann lést á líknar- deild Landspítalans í Kópavogi 6. apríl síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Ingigerð- ur Marteinsdóttir húsmóðir, f. á Hólum í Norðfjarðarsveit 14. maí 1906 og Björgvin Björnsson sjómaður, f. í Mjóa- fjarðarsókn 25. maí 1904. Geir kvæntist 11. október 1967 Helgu Ásmundsdóttur ljósmóður frá Eyrarbakka, f. 30. janúar 1942. Foreldrar hennar voru Ás- mundur Eiríkson bóndi, f. í Þórð- arkoti í Árnessýslu 11. október 1897 og Guðlín Katrín Guðjóns- dóttir húsmóðir, f. á Gamla Hrauni í Flóa í Stokkseyrarsókn 3. febrúar 1905. Geir og Helga eiga fjórar dætur: Katrín Inga hjúkr- unarfræðingur, f. 9. desember 1969, í sambúð með Magn- úsi Arngrímssyni, börn þeirra eru Geir, f. 1992, Arn- grímur, f. 1999 og Kolfinna, f. 2001. Björg Helga leik- skólakennari, f. 1. maí 1971, gift Brynj- ari Jónssyni, börn þeirra eru Orri, f. 1992, Ísak, f. 1999 og Helga, f. 2001. Sóley Ósk sjúkraliðanemi, f. 1. febrúar 1976, gift Kristjáni Erni Kristjánssyni, dóttir þeirra Erna, f. 1996. Sonja Iðunn skrif- stofunemi, f. 2. mars 1977, sonur hennar og Haraldar Sveinssonar er Gauti Snær, f. 2000. Útför Geirs fór fram frá Foss- vogskirkju mánudaginn 11. apríl, í kyrrþey að ósk hins látna. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Héðan skal halda heimili sitt kveður heimilisprýðin í hinsta sinn. Síðasta sinni sárt er að skilja, en heimvon góð í himininn. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja í friðarskaut. (Vald. Briem.) Hvíl þú í friði, pabbi minn, þín Katrín Inga. Elskulegur pabbi minn, Geir Björgvinsson, lést á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi hinn 6. apríl síð- astliðinn, eftir löng og ströng veikindi. Pabbi var duglegastur allra manna sem ég þekki. Þrátt fyrir fötlun sína og veikindi var hann alltaf kátur, ósérhlífinn, bjartsýnn og góður um- fram allt. Það var ekkert sem að hann treysti sér ekki til þess að gera eða takast á við í lífinu. Pabbi hafði þann hæfileika að sjá alltaf jákvæðar hliðar á öllum málum og styrk til þess að framkvæma, t.a.m. er hann réðst í það verkefni að safna styrkjum, hingað og þangað, í fyrirtækjum, til þess að hægt væri að reisa Íþróttahús fatl- aðra. Einnig fylgdu honum pabba miklir persónutöfrar, hann laðaði að sér flest allt það fólk sem á vegi hans varð og allir urðu vinir hans, enda voru allir ávallt velkomnir inn á heimili hans og mömmu hvort sem það voru vinir okkar systranna eða ókunnugir. Pabbi talaði mjög oft um það hvað hann hafði átt góða og viðburðaríka ævi, hve lánsamur hann var að kynn- ast henni mömmu og að eignast okkur allar fjórar stelpurnar sínar, sem að hann var svo óendanlega stoltur af. Það var alveg sama hvað lítið við syst- urnar gerðum, alltaf var hann yfir sig montinn og hrósaði okkur og verð- launaði. Svo þegar barnabörnin 8 fæddust, eitt af öðru, stækkaði hjarta hans ennþá meira og stoltið líka. Fyrir okkur öll, fjölskylduna hans pabba, systurnar, tengdasyni og barnabörn er sorgin þung og erfið, því farinn er góður og mikill maður, en þó aldrei eins sár og þung og fyrir mömmu, sem staðið hefur við hliðina á pabba í gegnum súrt og sætt allt líf- ið og hlúð að honum eins og henni einni er lagið síðustu árin, hennar missir er mikill. Þrátt fyrir þann undirbúning og að- draganda sem við fengum þá er mað- ur aldrei undir það búinn að missa foreldri sitt, maður er aldrei tilbúin að missa þá skilyrðislausu ást, vernd og umhyggju sem hann pabbi gaf okkur. Fjölskyldan vill þakka þeim sem hlúðu að honum í veikindum hans og þá sérstaklega heimahlynningu krabbameinssjúkra og líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Með stolti í hjarta yfir því að vera dóttir hans pabba kveð ég hann í hinsta sinn. Sóley Ósk Nú er hann elsku pabbi minn látinn eftir mikla baráttu við krabbamein. Pabbi á svo sérstakan stað í mínu hjarta og á ég því mjög erfitt með að sætta mig við að hann sé farinn frá okkur. Ég er yngst fjögurra systra og þar sem mikið var að gera hjá mömmu á þessum tíma að hugsa um okkur allar sagði pabbi alltaf að hann ætti mig bara einn, og þótti mér og þykir mjög vænt um þessi orð. Pabbi var mikill bílakall og snérist hans ævi meira og minna um rútur og bíla, og hann gat sagt manni ótrúleg- ar sögur af hinum og þessum ævin- týrum sem hann hafði lent í. Hann var vel þekktur fyrir bílana sem hann átti, ævinlega voru þeir stíf- bónaðir og tandurhreinir, hann átti einnig oft til að vera fyrstur til að panta nýja bíla eða rútur frá útlönd- um og það sem framtíð var í. Ég kveð hann pabba minn með miklum söknuði og á svo ótal yndis- legar minningar um þennan mikla og sterka mann sem ylja mér í þeirri sorg sem ég er að ganga í gegnum. Hann var eitt stórt hjarta og laðaði alla að sér með góðmennsku, örlæti og jákvæðni. Við systurnar vorum honum allt, þó svo hann hafi nú alltaf langað til að eignast strák til að hafa með sér í bíl- skúrnum. Við vorum stolt hans og yndi og alltaf sagðist hann vera rík- astur allra manna og enn meira stolt kom þegar barnabörnin hrönnuðust niður og er nú átta samtals. En hann gaf manni ótrúlega ást og umhyggju sem hefur með árunum gert mig að betri manneskju, alltaf var maður umvafinn hlýju og væntumþykju, bæði með snertingu og umhyggju, það sparaði hann alls ekki. Og nú í seinni tíð er maður að heyra ýmsar skemmtilegar sögur um hann og hans dugnað frá fyrstu tíð, bæði í vinnu og öðru, hann lét fötlun sína aldrei draga sig aftur í vinnu eða öðru, og þá varð ég alltaf voða montin af pabba mínum. Hann og mamma voru miklir vinir og hugsaði hún ótrúlega vel um hann í hans miklu veikindum og mat hann það mikils að fá að vera heima nánast fram á síðasta dag. Elsku pabbi minn, þú varst svo yndislegur og öfunduðu vinkonur mínar mig oft og sögðu að ég ætti besta pabba í heiminum, sem var svo sannarlega rétt. Það var alveg sama hvað mann vantaði eða bað um, hann reyndi eftir bestu getu að gera það fyrir mann. Ég kveð þig nú í hinsta sinn og geymi mínar yndislegu minningar um þig, elsku pabbi minn, megi guð geyma þig um alla tíð. Augu mín legg ég til svefns, hjarta mitt til guðs. Drottinn minn frelsari, syngdu mig sofandi, varðveittu mig vakandi. Unn mér að sofa í friði, vakna hjá góðum guði, það sé og verði í Jesú nafni. Amen. (Höf. óþekktur.) Þín dóttir Sonja. Geir var ekki til stórræðanna ný- fæddur, aðeins fimm merkur og fyrsta barn á Íslandi sem sett var í ljósakassa. En það rættist úr strák og hann varð bæði stór og sterkur, sem gekk á sínum tveim þó að hann næði ekki göngulaginu fyrr en á unglings- árum. Uppeldið hvíldi mest á Ingu móður hans, sem vakin og sofin hugs- aði um velferð hans. Björgvin faðir hans var sjómaður og lést þegar Geir var níu ára. Mér er það í fersku minni þegar Geir kom á vorin austur á Norðfjörð í sumardvöl til afa og ömmu. Hann kom alltaf með stóran poka af sælgæti og var ekki nískur á það. Hann var nefnilega sérlegur vin- ur Magnúsar, eiganda sælgætisgerð- arinnar Freyju, sem framleiddi svo- nefndar „haltu kjafti“-karamellur, sem voru með eindæmum eftirsókn- arverðar. Vegna veikleika fóta Geirs reyndi mikið á hendurnar, það gerði hann svo handsterkan að sextán ára dró hann í kefli eða felldi í sjómann hvaða fullorðinn karlmann sem var. Hugur hans snerist fljótt um bíla og sautján ára eignaðist hann fyrsta bílinn, gamlan „Dodge Weapon“. Þessi bíll var öðrum gömlum bílum líkur, hann bilaði oft. Geir sá við því, hann lærði að gera við sjálfur, og ef hann fékk ekki varahluti sem til þurftu fann hann einhver önnur ráð til að komast sína leið. Mér er minnisstætt þegar afturdrif þessa umrædda bíls bilaði austur á Norðfirði og af þeim sökum dreif bíllinn ekki upp brekkur nema í aftur á bak. Á sama tíma þurfti Geir að fara til Reykjavíkur. Mjög brattur fjallvegur liggur upp úr Norðfirði og margar brekkur þurfti að komast yfir á leiðinni um Norðurland. Ekki var þá búið að opna þjóðveginn um Suður- land. Hann lét þetta ekki stoppa sig, hann fór suður og bakkaði bara upp allar brekkurnar á leiðinni. Geir var fljótur að rétta öðrum hjálparhönd ef gera þurfti við bilaðan bíl, hann var snöggur að átta sig á hvað var að og oft var eins og hann heyrði það á hljóðinu. Ákafinn var svo mikill að iðulega var hann lagstur undir bílinn og byrjaður að gera við áður en hann áttaði sig á því að hann var í sparibux- unum. Greiðvikni hans var annáluð, hann taldi ekki eftir sér að skutla manni bæjarleið eða hjálpa kunningj- um að austan að reka viðskipti í borg- inni. Rúmlega tvítugur starfaði Geir um tíma á Keflavíkurflugvelli og keyrði þar strætisvagn. Stuttu seinna eign- aðist hann sinn fyrsta nýja bíl, glans- andi nýjan Ford, og hóf leigubílaakst- ur í Keflavík og einnig á sumrin austur á Norðfirði. Ýmsum fannst hann aka of hratt og til er saga af því þegar ábyrgur bæjarbúi lét málið til sín taka. Sá hringdi í sýslumanninn á Eskifirði um leið og hann sá Geir leggja af stað yfir Oddsskarð frá Norðfirði og bað hann að taka Geir fyrir of hraðan akstur um leið og hann kæmi niður af skarðinu hinum megin, því að vegurinn lá framhjá sýslu- mannsbústaðnum. Þegar sýslumaður kom úr símanum var Geir farinn framhjá. Það skríkti í Geir þegar hann var minntur á þetta og hann full- yrti að enn væri ekki búið að slá hraðamet hans yfir Oddsskarð. En þrátt fyrir að hann æki greitt var hann afar öruggur bílstjóri og laus við óhöpp. Fyrir þrítugt byrjaði Geir í rútu- bílaútgerð með sérleyfi milli Egils- staða og Norðfjarðar. Það var eins og hann væri framsýnni en aðrir í bíla- kaupum þegar hann flutti inn 18 manna Benz, en kollegar hans hlógu að uppátækinu. Stuttu síðar fetuðu þeir í fótspor hans því að mikil við- skipti fengust út á þessa stærð bíla. Aftur varð hann brautryðjandi þegar hann flutti inn fyrstu rútuna með far- angursrými undir sætunum. Nú þekkist varla annað. Fyrirtækið gekk vel í nokkur ár, en erfitt var að reka sérleyfi í öðrum landsfjórðungi svo að hann hætti og seldi rúturnar. Þá kom líka ástin til sögunnar og hann giftist Helgu Ásmundsdóttur ljósmóður árið 1967. Hann sneri sér aftur að leigu- bílaakstrinum og þeim fæddust fjórar yndislegar dætur á fáum árum. Síðan fluttu þau í Garðabæ og ráku í nokkur ár bílaleigu, en þegar hún var seld var heilsu Geirs farið að hraka. Hann ein- beitti sér þó um hríð að uppbyggingu Íþróttahúss fatlaðra og keyrði þá um á rafmagnsbíl og vildi beita sér fyrir notkun slíkra bíla hérlendis. Um dag- ana eignaðist Geir um hundrað bíla, margur eignast ekki svo marga skó um ævina þó að í stykkjum sé talið. Ég kveð frænda minn með virðingu og þökk, af lífshlaupi hans stendur ljómi hins ljúfa góðviljaða manns. Ingibjörg Sigfúsdóttir. GEIR BJÖRGVINSSON Elsku afi minn, ég vildi að þú værir á lífi, en mér finnst samt gott að þú sért ekki lengur veikur. Þín afastelpa, Erna. HINSTA KVEÐJA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.