Morgunblaðið - 17.04.2005, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 17.04.2005, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 21 Í framhaldi af viðtali sem birtist íMorgunblaðinu við Maríu, dóttur Tryggva Gunnarssonar alþingis- manns og bankastjóra fyrir skömmu, hefur fólk víst margt hvert velt nokkuð fyrir sér fjárhag Tryggva um það leyti sem hann lést 1917. Dætur hans fengu ekki arf eftir hann samkvæmt upplýsingum Mar- íu dóttur hans - var það af því að hann væri eignalaus eða gekk hann framhjá dætrum sínum sem erfingjum? Að athuguðu máli kom í ljós að Tryggvi gerði arfleiðsluskrá sem blaðið Ísafold segir frá á forsíðu 3. nóvember 1917. Arfleiðsluskrá opnuð „Arfleiðsluskrá Tryggva heit. Gunnarssonar var opnuð í fyrradag. Er þar svo fyrir mælt, að allar eigur hans, þegar undan eru skildir ein- stakir munir, sem hann hefir ánafnað nánustu vandamönnum, skuli renna til Dýraverndunarfélags- ins, í sérstakan sjóð, er heita skal Tryggva-sjóður og Dýraverndunar- félagið geri nánari ákvarðanir um, hvernig sjóðinn skuli nota. Þenna veg hefur dýravinurinn Tr. G. reist sér fagran minnisvarða.“ Tryggvi átti Þrastarskóg Meðal eigna Tryggva var talsvert land í Þrastarskógi í Grímsnesi, sem Tryggvi gaf Ungmennafélagi Ís- lands snemma á 20. öld samkvæmt upplýsingum Alfræðiorðabókarinn- ar. Fróðlegt væri að vita hve mikið fé hafi upphaflega verið í Tryggva- sjóði, hvað gert hafi verið við fjár- muni úr sjóðnum meðan hann enn var við lýði og loks hvort hann sé kannski enn til í einhverju formi inn- an vébanda Sambands dýraverndun- arfélaga á Íslandi. Samband dýraverndunarfélaga á Íslandi varð nefnilega 1958 arftaki Dýraverndunarfélags Íslands sem stofnað var 1915 úr Dýraverndunar- félagi Reykjavíkur sem Tryggvi Gunnarsson hafði frumkvæði að stofnun að árið 1914. Það ár var elsta dóttir hans og Helgu Jónasdóttur tveggja ára. Tryggvagata og hnípin fjallkona Tryggvi var augljóslega mikils metinn af ýmsum samtíðarmönnum sínum t.d. hjá Ísafold og bæjarstjórn Reykjavíkur. Í fréttinni á forsíðu Ísafoldar er þess einnig getið að bæj- arstjórn Reykjavíkur hafi heiðrað minningu hans með því að ákveða á bæjarstjórnarfundi, þeim síðasta fyrir 3. nóv. 1917, að hin nýja aðal- gata, (eins og hún er nefnd), niður við höfninni skuli nefnd Tryggva- gata. Á forsíðu Ísafoldar, þar sem frétt- irnar um arfleiðsluskrána og Tryggvagötu er að finna, er líka minningarkvæði um Tryggva Gunn- arsson bankastjóra. Kvæðið er sjö erindi og skulu hér tilfærð tvö þeirra. Fjallkonan hljóð og hnípin sat þá heldimmu næturstund, hún leit nú einn kærsta soninn sinn siginn í dauðablund. Genginn er Tryggvi Gunnarsson, göfugmennið, á braut, hraustmennið glaða með höfðingslund hylur nú foldarskaut. ÞJÓÐLÍFSÞANKAR/Hvað fengu dýrin í sinn hlut? Arfleiðsluskrá Tryggva Gunnarssonar eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050 VOR 2005 Sölustaðir: sjá www.bergis.is Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Helgarferð - 4 nætur Búdapest 28. apríl frá kr. 39.990 Heimsferðir bjóða helgarferð í beinu flugi til þessarar stórkostlegu borgar þann 28. apríl. Búdapest er einn aðal áfangastaður Íslendinga, enda býður hún einstakt mannlíf, menningu og skemmtun að ógleymdri gestrisni Ungverja. Góð 3 og 4 stjörnu hótel í hjarta Búdapest og spennandi kynnisferðir með fararstjórum Heimsferða. Verð kr. 39.990 Flug, gisting, skattar og íslensk fararstjórn. M.v. 2 í herbergi í 4 nætur á Hótel Tulip Inn með morgunmat. Netverð á mann. SUMARFAGNAÐUR AUGNABLIKS MYNDASÝNING OG DANSLEIKUR http://this.is/augnablik Landið sem má ekki hverfa kynnist göngusvæði norðan Vatnajökuls kl. 20:00 - 21:00, aðgangur ókeypis Dansleikur Magga Stína og Hringir spila fyrir dansi kl. 21:30, aðgangur kr. 2000 IÐNÓ föstudaginn 22. apríl allir velkomnir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.