Morgunblaðið - 17.04.2005, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 17.04.2005, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 49 MINNINGAR Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ARA B. EINARSSONAR kaupmanns, Haðalandi 9, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Kristín Aradóttir, Guðrún Aradóttir, Ragnheiður Aradóttir, Jón S. Þórðarson, afabörn og langafabörn. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför SVERRIS P. JÓNASSONAR vélstjóra, Hátúni 4, Reykjavík. Sérstaklega þökkum við Sigurði Böðvarssyni lækni og heimahlynningu Karítas fyrir einstaka umönnun og hlýhug. Sigrún Magnúsdóttir, Reynir Sverrisson, Vilborg Jóhannsdóttir, Símon Björnsson, Helgi Sverrisson, Björg Guðmundsdóttir, og barnabörnin. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SIGGEIRS JÓHANNSSONAR bónda, Núpum Ölfusi, Sóltúni 5, Selfossi. Guð blessi ykkur öll. Vilný Reynkvist Bjarnadóttir Ragnhildur Birna Siggeirsdóttir, Guðni Hermann Bjarnhéðinsson, Elsa Kristín Vilbergsdóttir, Ásdís Erla Bjarnhéðinsdóttir, Guðlaugur Már Valgeirsson, Sævar Bjarnhéðinsson, Sigríður Jónsdóttir og barnabörn. Móðir okkar og tengdamóðir, HRÓÐNÝ PÁLSDÓTTIR, áður til heimilis á Skólabraut 5, Seltjarnarnesi, verður jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju þriðju- daginn 19. apríl kl. 15.00. Steinunn Steinarsdóttir, Guðni Sigurjónsson, Garðar Steinarsson, Ásta Sveinbjarnardóttir, Sigurður Steinarsson, Ingibjörg Eysteinsdóttir og fjölskyldur. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR SIGURÐSSONAR verslunarmanns, Hverfisgötu 55, Reykjavík. Brynja Helga Kristjánsdóttir. Kristján Sigurðsson, Sigrún Ósk Ingadóttir, Brynjólfur Sigurðsson, Bella Hrönn Pétursdóttir, Halldóra Sigurðardóttir, Viðar Gunnarsson, Sigurður Þór Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, SVERRIRS OLSEN útfararstjóra, Furugrund 48, Kópavogi. Guð blessi ykkur öll. Stefanía Vallý Sverrisdóttir, Geirmundur Kristinsson, Ólöf María Olsen, Sigurður Erlendsson, Sigríður Olsen, Einar Gíslason, Sverrir Örn Olsen, Rúnar Þór Sverrisson, Margrét Ingibergsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang- afi, SIGURÐUR GUÐMUNDSSON fyrrv. símamaður, Norðurbrún 1, Reykjavík, andaðist aðfaranótt fimmtudagsins 7. apríl. Útförin fer fram í Fríkirkjunni í Reykjavík, þriðju- daginn 19. apríl kl. 13:00. Egill B. Sigurðsson, Gerður H. Jóhannsdóttir, Bryndís H. Sigurðardóttir, Þuríður G. Sigurðardóttir, Bergur Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulega systir. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Ekki átti ég von á því að það yrði síðasta kveðjan okkar þegar við mæðgurnar heimsóttum þig í mars. Þá varstu svo hress og glöð og ákveðin í að lifa lengi enn. En svona er lífið, það skiptir fljótt um svið og sem betur fer veit maður ekki hvað framundan er. Það er svo margs að minnast þegar þú og Assi komuð í sveitina til okkar og hlupuð undir bagga þegar mikið var að gera. Mikið var þá gott að fá ykkur. Ég á örugg- lega eftir að sakna sumarferðanna þinna til mín, flest sumur sem ég man. Þá var nú spjallað og spaug- að og spilað af hjartans lyst. Þú varst búin að reyna margt á lífs- leiðinni, bæði veikindi og erfiðleika en alltaf reistu upp aftur og hristir af þér mótlætið. Þú varst alltaf hress og glöð og deildir því af ör- læti til samferðafólksins og man ég vel hvað herbergisfélagarnir á Grund dáðu þig og elskuðu. Margs er að minnast frá æsku- dögunum okkar í Langadal. Og gott var og glatt á hjalla þegar við sungum saman í eldhúsinu í gamla bænum okkar, og minningarnar kalla, – manstu – manstu. Og öll ljóðin þín og sögurnar sem lágu þér svo létt á tungu. Langidal- urinn átti stórt rúm í hjarta þínu eins og kemur fram í ljóðinu þínu „Langidalur“. Ég læt hér fylgja eitt erindi sem sýnir vel hugarþel- ið til hans. Ég veit einn dal þar sem lyngið logar um leitirnar sérhvert haust. Og gullna strengi úr bláþræði bregður Blanda og kveður við raust. Þegar lagðsíðar hjarðir að húsi renna og húmbylgjan sígur nær. Þá lýsir smalanum ljósið heima er ljóma á þilin slær. Já, Gunna mín, þér var svo sannarlega margt vel gefið og gott er að muna það. Og börnunum mínum varstu alltaf jafngóð og elskuleg frænka, þó þau með ærslum sínum og uppátækjum gerðu þér lífið leitt. Alltaf var þó stutt í sættir og vilja þau færa þér innilegar þakkir fyrir allt og óska þér góðrar ferðar yfir á landið austan tungls og sunnan sólar. Að síðustu þetta, elsku Gunna mín: Því minningin ljúf – svo ljós og hlý hún lifir og örugg nýtur. Vissuna um að þú vaknir á ný inn í vorið sem aldrei þrýtur. Þótt nóttin sé löng, hún líður skjótt þá lýsir um byggðir allar. GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR ✝ Guðrún Árna-dóttir fæddist á Miðgili í Langadal í A-Húnavatnssýslu 10. ágúst 1921. Hún lést 7. apríl síðastlið- inn. Guðrún var dótt- ir hjónanna Vilborg- ar Guðmundsdóttur, f. 29.9. 1885, d. 14.3. 1968, og Árna Ás- gríms Guðmunds- sonar, f. 11.7. 1888, d. 25.9. 1963, bónda á Miðgili í Engihlíðar- hreppi. Systur Guð- rúnar eru þrjár, Ingibjörg, Elísabet og Anna. Sambýlismaður Guðrúnar, Björgvin Th. Jónsson, lést fyrir mörgum árum. Fóstursonur þeirra er Örn Berg, kvæntur Ragnhildi Gröndal Ragnarsdótt- ur. Þau eignuðust þrjá syni og barnabörnin eru fimm. Útför Guðrúnar fór fram í kyrr- þey. Sofðu nú vinkona, sofðu rótt sofðu uns Drottinn kallar. (Kr. Hj.) Þín Bebbý systir, Elísabet. Hún Gunna systir hefur verið til moldar borin eftir langan og erfiðan vinnudag. Við ólumst upp saman í glaðværum systrahópi og var þá Gunna oft- ast sú sem skemmti okkur mest og best. Hún var vel greind og hagmælt vel og sagði okkur sögur bæði í bundnu og óbundnu máli. Og ennþá man ég sendibréfin hennar þegar hún var farin að vinna í Reykjavík en ég var bara stelpu- korn í sveitinni. Þau voru þannig að maður hló sig máttlausan, því alltaf fann hún skoplegar hliðar allra hluta. Svona man ég hana, síkáta og skemmtilega, og svona leið bernska okkar og æska við glens og gleði. Og þá man ég hana ekki síður eftir að hún fór að búa með sínum góða manni, Björgvini Jóns- syni, sem mér fannst alltaf vera fyrsti bróðirinn sem ég eignaðist enda reyndist hann mér sem slík- ur. Þau ólu upp mannvænlegan dreng, Örn Berg, sem ég kynntist aðeins á hans bernskudögum. En það man ég vel hvað góður hann var við elstu dóttur mína sem þá var smábarn. Hvað hann gat enda- laust leikið við hana og látið hana hlæja, þá aðeins smápatti. En lengi býr að fyrstu gerð og hann sýndi strax hvern mann hann hafði að geyma enda reyndist hann Gunnu vel alla tíð. En ský dró fyr- ir sólu. Hún missti heilsuna og fékk vissulega að reyna þá erf- iðleika sem því fylgja. Nú seinni árin hefur hún verið undir góðri handleiðslu Grundarheimilisins, fyrst í Ási í Hveragerði og síðan á Grund, og því góða heimili ber að þakka góða og trausta umönnun. Verði sál þín ávallt Guði falin elsku Gunna mín. Anna systir. Margar eru minningarnar sem leita á hugann er við kveðjum kæra móðursystur okkar, Gunnu frænku, eins og hún var ætíð köll- uð í fjölskyldum okkar. Margs er að minnast og þakka fyrir. Hún var kát og glettin og engin logn- molla þar sem hún var. Gunna var með eindæmum frændrækin og var henni mjög hugleikið að fylgj- ast vel með fjölgun í fjölskyldum systra sinna. Hún lagði einnig mikla alúð við að senda öllum eitt- hvað fallegt um jólin. Allt árið vann hún að handavinnu til að eiga í pakkana og voru þeir orðnir ansi margir jólapakkarnir sem hún sendi um hver jól. Afar bókhneigð var hún og átti sjálf gott með að yrkja. Á yngri árum samdi hún fjölda ljóða og vísna. Að leiðarlokum viljum við og fjölskyldur okkar þakka henni samfylgdina og alla ræktarsemina. Hennar verður saknað í árlegri grillhátíð fjölskyldunnar á þessu vori, en þar var hún ætíð með okk- ur. Við sendum Erni fóstursyni hennar og fjölskyldu hans okkar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Gunnu frænku. Vilborg, Jarþrúður, Margrét og Sonja. Elsku Gunna mín. Fáein þakkarorð til þín fyrir ein- staka tryggð og vináttu í yfir hálfa öld. Fyrstu minningar mínar eru tengdar þér, þegar ég sem smá- barn var að hlaupa yfir til þín í litlu Höfðabrekku. Þú ert eina konan sem ég hef þekkt, sem bak- aðir kökur handa okkur með máls- háttum innan í. Líf þitt var ekki dans á rósum, en ekkert rauf þína ómældu tryggð og vináttu. Eins og öruggt var að jólin kæmu þá komu jóla- kortin frá þér, með þinni fallegu og sterklegu rithönd. Þau kölluðu alltaf fram góðar minningar um þig. Ég kveð þig Gunna mín með er- indi úr ljóði Davíðs Stefánssonar, Eftirmæli, og bið góðan guð að umvefja þig ljósi sínu og kærleika. Og þótt þú hvíldist sjálfur undir súð, var seint og snemma vel að öllu hlúð, og aldrei skyggði ský né hríðarél á skyldur þínar, tryggð og bróðurþel. Þín Guðrún Þórbjarnardóttir frá Flankastöðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.