Morgunblaðið - 17.04.2005, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 49
MINNINGAR
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og
útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
ARA B. EINARSSONAR
kaupmanns,
Haðalandi 9,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Kristín Aradóttir,
Guðrún Aradóttir,
Ragnheiður Aradóttir, Jón S. Þórðarson,
afabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför
SVERRIS P. JÓNASSONAR
vélstjóra,
Hátúni 4,
Reykjavík.
Sérstaklega þökkum við Sigurði Böðvarssyni
lækni og heimahlynningu Karítas fyrir einstaka umönnun og hlýhug.
Sigrún Magnúsdóttir,
Reynir Sverrisson, Vilborg Jóhannsdóttir,
Símon Björnsson,
Helgi Sverrisson, Björg Guðmundsdóttir,
og barnabörnin.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför elskulegs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
SIGGEIRS JÓHANNSSONAR
bónda,
Núpum Ölfusi,
Sóltúni 5, Selfossi.
Guð blessi ykkur öll.
Vilný Reynkvist Bjarnadóttir
Ragnhildur Birna Siggeirsdóttir,
Guðni Hermann Bjarnhéðinsson, Elsa Kristín Vilbergsdóttir,
Ásdís Erla Bjarnhéðinsdóttir, Guðlaugur Már Valgeirsson,
Sævar Bjarnhéðinsson, Sigríður Jónsdóttir
og barnabörn.
Móðir okkar og tengdamóðir,
HRÓÐNÝ PÁLSDÓTTIR,
áður til heimilis
á Skólabraut 5,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju þriðju-
daginn 19. apríl kl. 15.00.
Steinunn Steinarsdóttir, Guðni Sigurjónsson,
Garðar Steinarsson, Ásta Sveinbjarnardóttir,
Sigurður Steinarsson, Ingibjörg Eysteinsdóttir
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
SIGURÐAR SIGURÐSSONAR
verslunarmanns,
Hverfisgötu 55,
Reykjavík.
Brynja Helga Kristjánsdóttir.
Kristján Sigurðsson, Sigrún Ósk Ingadóttir,
Brynjólfur Sigurðsson, Bella Hrönn Pétursdóttir,
Halldóra Sigurðardóttir, Viðar Gunnarsson,
Sigurður Þór Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför elskulegs föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
SVERRIRS OLSEN
útfararstjóra,
Furugrund 48,
Kópavogi.
Guð blessi ykkur öll.
Stefanía Vallý Sverrisdóttir, Geirmundur Kristinsson,
Ólöf María Olsen, Sigurður Erlendsson,
Sigríður Olsen, Einar Gíslason,
Sverrir Örn Olsen,
Rúnar Þór Sverrisson, Margrét Ingibergsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON
fyrrv. símamaður,
Norðurbrún 1,
Reykjavík,
andaðist aðfaranótt fimmtudagsins 7. apríl.
Útförin fer fram í Fríkirkjunni í Reykjavík, þriðju-
daginn 19. apríl kl. 13:00.
Egill B. Sigurðsson, Gerður H. Jóhannsdóttir,
Bryndís H. Sigurðardóttir,
Þuríður G. Sigurðardóttir, Bergur Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulega systir.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Ekki átti ég von á því að það
yrði síðasta kveðjan okkar þegar
við mæðgurnar heimsóttum þig í
mars. Þá varstu svo hress og glöð
og ákveðin í að lifa lengi enn. En
svona er lífið, það skiptir fljótt um
svið og sem betur fer veit maður
ekki hvað framundan er.
Það er svo margs að minnast
þegar þú og Assi komuð í sveitina
til okkar og hlupuð undir bagga
þegar mikið var að gera. Mikið var
þá gott að fá ykkur. Ég á örugg-
lega eftir að sakna sumarferðanna
þinna til mín, flest sumur sem ég
man. Þá var nú spjallað og spaug-
að og spilað af hjartans lyst. Þú
varst búin að reyna margt á lífs-
leiðinni, bæði veikindi og erfiðleika
en alltaf reistu upp aftur og hristir
af þér mótlætið. Þú varst alltaf
hress og glöð og deildir því af ör-
læti til samferðafólksins og man ég
vel hvað herbergisfélagarnir á
Grund dáðu þig og elskuðu.
Margs er að minnast frá æsku-
dögunum okkar í Langadal. Og
gott var og glatt á hjalla þegar við
sungum saman í eldhúsinu í gamla
bænum okkar, og minningarnar
kalla, – manstu – manstu. Og öll
ljóðin þín og sögurnar sem lágu
þér svo létt á tungu. Langidal-
urinn átti stórt rúm í hjarta þínu
eins og kemur fram í ljóðinu þínu
„Langidalur“. Ég læt hér fylgja
eitt erindi sem sýnir vel hugarþel-
ið til hans.
Ég veit einn dal þar sem lyngið logar
um leitirnar sérhvert haust.
Og gullna strengi úr bláþræði bregður
Blanda og kveður við raust.
Þegar lagðsíðar hjarðir að húsi renna
og húmbylgjan sígur nær.
Þá lýsir smalanum ljósið heima
er ljóma á þilin slær.
Já, Gunna mín, þér var svo
sannarlega margt vel gefið og gott
er að muna það. Og börnunum
mínum varstu alltaf jafngóð og
elskuleg frænka, þó þau með
ærslum sínum og uppátækjum
gerðu þér lífið leitt. Alltaf var þó
stutt í sættir og vilja þau færa þér
innilegar þakkir fyrir allt og óska
þér góðrar ferðar yfir á landið
austan tungls og sunnan sólar.
Að síðustu þetta, elsku Gunna
mín: Því minningin ljúf – svo ljós
og hlý hún lifir og örugg nýtur.
Vissuna um að þú vaknir á ný
inn í vorið sem aldrei þrýtur.
Þótt nóttin sé löng, hún líður skjótt
þá lýsir um byggðir allar.
GUÐRÚN
ÁRNADÓTTIR
✝ Guðrún Árna-dóttir fæddist á
Miðgili í Langadal í
A-Húnavatnssýslu
10. ágúst 1921. Hún
lést 7. apríl síðastlið-
inn. Guðrún var dótt-
ir hjónanna Vilborg-
ar Guðmundsdóttur,
f. 29.9. 1885, d. 14.3.
1968, og Árna Ás-
gríms Guðmunds-
sonar, f. 11.7. 1888,
d. 25.9. 1963, bónda á
Miðgili í Engihlíðar-
hreppi. Systur Guð-
rúnar eru þrjár,
Ingibjörg, Elísabet og Anna.
Sambýlismaður Guðrúnar,
Björgvin Th. Jónsson, lést fyrir
mörgum árum. Fóstursonur
þeirra er Örn Berg, kvæntur
Ragnhildi Gröndal Ragnarsdótt-
ur. Þau eignuðust þrjá syni og
barnabörnin eru fimm.
Útför Guðrúnar fór fram í kyrr-
þey.
Sofðu nú vinkona, sofðu rótt
sofðu uns Drottinn kallar.
(Kr. Hj.)
Þín Bebbý systir,
Elísabet.
Hún Gunna systir
hefur verið til moldar
borin eftir langan og
erfiðan vinnudag. Við
ólumst upp saman í
glaðværum systrahópi
og var þá Gunna oft-
ast sú sem skemmti
okkur mest og best.
Hún var vel greind og hagmælt vel
og sagði okkur sögur bæði í
bundnu og óbundnu máli. Og
ennþá man ég sendibréfin hennar
þegar hún var farin að vinna í
Reykjavík en ég var bara stelpu-
korn í sveitinni. Þau voru þannig
að maður hló sig máttlausan, því
alltaf fann hún skoplegar hliðar
allra hluta.
Svona man ég hana, síkáta og
skemmtilega, og svona leið
bernska okkar og æska við glens
og gleði. Og þá man ég hana ekki
síður eftir að hún fór að búa með
sínum góða manni, Björgvini Jóns-
syni, sem mér fannst alltaf vera
fyrsti bróðirinn sem ég eignaðist
enda reyndist hann mér sem slík-
ur. Þau ólu upp mannvænlegan
dreng, Örn Berg, sem ég kynntist
aðeins á hans bernskudögum. En
það man ég vel hvað góður hann
var við elstu dóttur mína sem þá
var smábarn. Hvað hann gat enda-
laust leikið við hana og látið hana
hlæja, þá aðeins smápatti. En
lengi býr að fyrstu gerð og hann
sýndi strax hvern mann hann hafði
að geyma enda reyndist hann
Gunnu vel alla tíð. En ský dró fyr-
ir sólu. Hún missti heilsuna og
fékk vissulega að reyna þá erf-
iðleika sem því fylgja. Nú seinni
árin hefur hún verið undir góðri
handleiðslu Grundarheimilisins,
fyrst í Ási í Hveragerði og síðan á
Grund, og því góða heimili ber að
þakka góða og trausta umönnun.
Verði sál þín ávallt Guði falin
elsku Gunna mín.
Anna systir.
Margar eru minningarnar sem
leita á hugann er við kveðjum
kæra móðursystur okkar, Gunnu
frænku, eins og hún var ætíð köll-
uð í fjölskyldum okkar. Margs er
að minnast og þakka fyrir. Hún
var kát og glettin og engin logn-
molla þar sem hún var. Gunna var
með eindæmum frændrækin og
var henni mjög hugleikið að fylgj-
ast vel með fjölgun í fjölskyldum
systra sinna. Hún lagði einnig
mikla alúð við að senda öllum eitt-
hvað fallegt um jólin. Allt árið
vann hún að handavinnu til að eiga
í pakkana og voru þeir orðnir ansi
margir jólapakkarnir sem hún
sendi um hver jól. Afar bókhneigð
var hún og átti sjálf gott með að
yrkja. Á yngri árum samdi hún
fjölda ljóða og vísna.
Að leiðarlokum viljum við og
fjölskyldur okkar þakka henni
samfylgdina og alla ræktarsemina.
Hennar verður saknað í árlegri
grillhátíð fjölskyldunnar á þessu
vori, en þar var hún ætíð með okk-
ur. Við sendum Erni fóstursyni
hennar og fjölskyldu hans okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Gunnu frænku.
Vilborg, Jarþrúður,
Margrét og Sonja.
Elsku Gunna mín.
Fáein þakkarorð til þín fyrir ein-
staka tryggð og vináttu í yfir hálfa
öld. Fyrstu minningar mínar eru
tengdar þér, þegar ég sem smá-
barn var að hlaupa yfir til þín í
litlu Höfðabrekku. Þú ert eina
konan sem ég hef þekkt, sem bak-
aðir kökur handa okkur með máls-
háttum innan í.
Líf þitt var ekki dans á rósum,
en ekkert rauf þína ómældu
tryggð og vináttu. Eins og öruggt
var að jólin kæmu þá komu jóla-
kortin frá þér, með þinni fallegu
og sterklegu rithönd. Þau kölluðu
alltaf fram góðar minningar um
þig.
Ég kveð þig Gunna mín með er-
indi úr ljóði Davíðs Stefánssonar,
Eftirmæli, og bið góðan guð að
umvefja þig ljósi sínu og kærleika.
Og þótt þú hvíldist sjálfur undir súð,
var seint og snemma vel að öllu hlúð,
og aldrei skyggði ský né hríðarél
á skyldur þínar, tryggð og bróðurþel.
Þín
Guðrún Þórbjarnardóttir
frá Flankastöðum.