Morgunblaðið - 17.04.2005, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 17.04.2005, Blaðsíða 47
frænda og geta ornað sér við þær hvenær sem er. Elsku Halli og Sigga, við Albert vottum ykkur innilega samúð, Guð gefi ykkur styrk í sorginni. Ragna Valdimarsdóttir. Dagur var afburðagreindur og hæfileikaríkur drengur sem lifði alltof stutt. Alltaf var jafn gott að koma til Halla, Siggu og Dagsa. Þegar við vorum börn nutum við þess öll að ærslast og leika okkur saman. Aldr- ei missti Dagur þennan eiginleika því hann hafði alltaf mikla ánægju af því að leika við börn, líka á fullorð- insárum. Það var alveg einstakur hæfileiki hjá honum hvað hann náði vel til barna og hvað þau nutu þess að vera í návist hans. Þessi áhugi hans og gleði var svo einlæg og hélst alla tíð. Upp úr menntaskólaárunum tók Dagur að draga sig til hlés. Hann var þó alltaf sami frændinn, en erfiðara varð að nálgast hann. Við systkininin höfum öll verið í góðu sambandi við Dagsa. Alla bjó t.d. hjá Halla, Siggu og Dagsa í nokkra mánuði fyrir um tíu árum síðan. Þar var virkilega gott að vera. Fyrir utan góða matinn hennar Siggu. Þá hafði Dagur góðan húmor og gat verið svo skemmtilega glett- inn. Dagsi gerði einu sinni heiðar- lega tilraun til að kenna Tobbu að keyra, en gafst fljótt upp á því eftir náin kynni við trjábol. Eitthvað gekk honum þó betur að kenna Valda og var ávallt gott og sérstakt samband þeirra á milli. Svenni er svo sér kapítuli út af fyrir sig. Þeir Dagsi voru góðir vinir og þá sér- staklega í æsku. Einu sinni lamdi Svenni Dagsa t.d. í hausinn með hamri og voru varla liðnar nema fimm eða tíu mínútur þegar þeir voru aftur farnir að leika sér. Þetta er til marks um hve náinn vinskap- urinn var. Hann hélst alla tíð. Þarna voru þeir litlir guttar sem dáðu hvor annan, oft kallaðir jólasveinn og jóladagur. Þó var það þannig að þeg- ar hann og Svenni voru að prakk- arast þá dró Dagur frekar úr, þegar komið var gott, því hann var svo góður drengur. Það var fastur punktur á sumrin að fara í bústað, og það vantaði mik- ið ef Dagur kom ekki. Þar var margt brallað. Boltaleikir, hellaskoðun, fjallgöngur, bátsferðir, gufubaðið og svo grillveislurnar góðu. Á kvöldin sameinaði spilamennskan svo allan hópinn með Valda afa í broddi fylk- ingar. Það eru þessar stundir þegar við öll vorum saman, sem eru svo dýr- mætar. Þær gleymast aldrei. Dagur gleymist aldrei. Kæri frændi, hvíl í friði. Aðalbjörg, Sveinn Þrándur, Þorbjörg og Valdimar. Dagur. Takk fyrir þær stundir sem við fengum að njóta samveru þinnar. Þú varst mikils metinn á meðal okkar. Við munum minnast þín sem hjálpsams og góðs félaga og kveðjum þig með mikilli sorg. Hvíld er hverjum heitin hvað sem yfir dynur. Guð og góðir englar gæti þín, elsku vinur. Meinabætur margar minningarnar geyma. Til eru ljós, sem lýsa langt inn í æðri heima. (Davíð Stef.) Við vottum foreldrum og öðrum nákomnum einlæga samúð okkar. Sjúkraþjálfunarnemar á fyrsta ári. um þau, hvar, hvers vegna og til hvers þau voru til. Ég sé fallegan dreng með glettni í augum, gott hjartalag og húmorinn í lagi. Dagur óx úr grasi umvafinn ást og umhyggju foreldra sinna. Hann var bráðgreindur og vel af Guði gerður í alla staði. Heilbrigð áhugamál tengd útivist áttu hug hans allan. Var mik- ið í fjallaferðum og fjalla- og kletta- klifur varð hans aðaláhugamál u.þ.b. er hann var í efstu bekkjum mennta- skóla. Það var oft gaman að ræða við hann um þessa útivistarástríðu og áhuginn á efninu leyndi sér ekki þegar fundum bar saman, t.d. í sum- arlok. „Sæl frænka, hvernig var á Hornströndum?“ Og maður spurði á móti, en hvernig var á Hvannadals- hnúki? Dagur lauk þriðja stigi í Vélskóla Íslands, en sneri við blaðinu og dreif sig í sjúkraþjálfaranám í haust eftir að hafa staðist inntökuprófið í sumar með sóma. Það var tilhlökkunarefni að fylgjast með honum í náminu, áhuginn leyndi sér ekki. „Sæl frænka, nú er ég að læra um heilann og taugakerfið, hvernig líst þér á það?“ Við ræðum það sem er auð- skilið og annað sem er flóknara í taugakerfi líkamans. Dagur þurfti alltaf að skilja allt til fullnustu, hon- um var ekki nóg að ná prófunum, hann þurfti að hafa þekkinguna á hreinu. Það er sagt að vegir Drottins séu órannsakanlegir, sumt er okkur ekki ætlað að skilja, eða eins og fram kemur í eftirfarandi ljóðlínum: Vér vitum svo margt sem vísindin hafa kannað og að sumu leyti sannað. En á lífi og dauða fást ei skýringar neinar nema tilgátur einar. (Gréta Sigfúsdóttir.) Ég grátbið tímann að bakka en ekkert gerist, sólin heldur líka áfram að koma upp. Óskiljanlegt. Hlekkur úr keðjunni er farinn en keðjan slitnar ekki, hinir hlekkirnir bogna en þeir verða að halda áfram að mynda keðjuna, þannig er það. Óskiljanlegt. Það fást ei skýringar neinar, nema tilgátur einar. Það er erfitt að skilja hvers vegna forlögin haga því þannig að jafn hæfileikaríkur og yndislegur dreng- ur eins og Dagur er hrifinn á brott í blóma lífs síns. En eins og segir í ljóðinu, á lífi og dauða fást ei skýr- ingar neinar. Dagur er horfinn frá okkur en við sem þekktum hann er- um ríkari eftir kynni við hann. Þrátt fyrir ungan aldur setti hann mark sitt á okkur flest. Ljósið í myrkrinu er að eiga minningar um ljúfan ✝ Dagur Halldórs-son fæddist í Reykjavík 11. októ- ber 1973. Hann lést á heimili sínu 1. apríl síðastliðinn. Foreldr- ar hans eru : Sigríður Sigurgeirsdóttir, f. 17. apríl 1950 í Reykjavík, og Hall- dór Valdemarsson, f. 21. febrúar 1951 í Kópavogi. Dagur ólst upp í Reykjavík og bjó þar alla ævi að tveimur árum undanskildum, sem hann bjó í Svíþjóð ásamt for- eldrum sínum. Ungur að árum gerðist hann félagi í Flugbjörgun- arsveitinni og tók fullan þátt í þeirri starfsemi sam- hliða menntaskóla- og háskólanámi. Fjallamennska og útivist átti hug hans allan. Að loknu stúdents- prófi hóf hann nám við Háskóla Íslands, en hætti þar og söðl- aði um og hóf nám við Vélskóla Íslands. Að loknu námi þar starfaði Dagur hjá Björgun h.f. í u.þ.b. fimm ár. Haustið 2004 hóf hann aftur nám við Háskóla Íslands í sjúkra- þjálfun. Útför Dags fór fram í kyrrþey hinn 11. apríl. Elsku Dagur, ástkæri sonur. Við munum minnast þín í hjarta okkar alla tíð með þessum ljóðlínum Dav- íðs Stefánssonar: Ég man þig enn og mun þér aldrei gleyma. Minning þín opnar gamla töfraheima. Blessað sé nafn þitt bæði á himni og jörðu. Brosin þín mig að betri manni gjörðu. Brjóst þitt mér hlýju og hvíldar ennþá veldur. Þú varst mitt blóm, mín borg, mín harpa og eldur. Megi hið skærasta ljós lýsa þér um alla eilífð. Hvíl í friði. Hinsta kveðja. Mamma og pabbi. Það er fallegur morgunn. Alla og Svenni vakna í fyrra fallinu, það er spenna í loftinu, eitthvað skemmti- legt er í vændum. Mamma, hann Dagur kemur í dag, er það ekki? Ég sé eftirvæntinguna í augum þeirra, þau vita svarið, en þurfa samt að heyra það. Jú, hann kemur og þar með er tryggingin fyrir skemmtileg- um degi í höfn. Ég heyri systkinin tala saman, þið látið sko dótið mitt í friði! segir Alla við Svenna. Svenni er ekki að hlusta. Við Dagur ætlum á leynistaðinn okkar í dag og þú mátt ekki koma með, segir hann. Mér er alveg sama, svarar hún, þið komið örugglega heim jafn skítugir og síð- ast og mamma verður alveg spól þegar forstofan verður öll útötuð í mold eftir ykkur. Dyrabjallan hring- ir, Alla er á undan til dyra, Svenni er svo þungur á sér. Ég sæki hann rúmlega fimm, segir Sigga, hún er að flýta sér í vinnuna. Daxi minn, vertu nú góður strákur hjá frænku. Hann er ekki að hlusta. Svenni sjáðu, pabbi gaf mér handjárn í sum- argjöf, segir hann. Þeir dást að handjárnunum og ræða saman um notagildi þeirra. Dagur segir: „Við skulum fara með handjárnin í sum- arbústaðinn um helgina.“ „Já, og við getum handjárnað Öllu og Guð- nýju,“ segir Svenni. Væntingar morgunsins voru orðnar að veru- leika, Dagur var kominn og það myndi eitthvað skemmtilegt gerast í dag. Þennan dag byrjaði það með plasthandjárnum sem líklega voru orðin ónýt að kvöldi, í önnur skipti var það eitthvað annað. Minninga- brotin sem flæða um hugann eru óteljandi þegar ég hugsa um bróð- urson minn, Dag Halldórsson, sem horfinn er frá okkur löngu fyrir ald- ur fram. Ég sé stígvélin hans í gang- inum, sem pabbi hans merkti og skrifaði á strigann með tússi, Daxi, sé fyrir mér alla litlu bílana, græna bílinn, gula bílinn, rauða bílinn, Dag- ur þekkti litina áður en hann var tal- andi. Ég sé dýrasafnið, sem hann raðaði í kringum sig, sjaldgæf dýr úr öllum heimshornum, hann vissi allt DAGUR HALLDÓRSSON MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 47 MINNINGAR Samúðarblóm Helluhrauni 10, 220 Hf., sími 565 2566, www.englasteinar.is Englasteinar Fallegir legsteinar á góðu verði Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HELGI VILHJÁLMSSON, Gullengi 9, Reykjavík, lést á Landspítala Fossvogi fimmtudaginn 7. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Lilja Ísfeld, Vilhjálmur S. Helgason, Teresíta E. Helgason, Kristín Helgadóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Ólöf Ólafsdóttir, Ari Freyr Hermannsson, Eva Ómarsdóttir, Helgi Sebastian Vilhjálmsson, Andreas Máni Helgason. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGFÚS PÁLMI JÓNASSON frá Pálmholti, lést á hjúkrunarhiemilinu Hlíð, Akureyri, mánu- daginn 11. apríl. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 19. apríl kl. 13.30. Snjólfur H. Pálmason, Hreiðar Pálmason, Eva Sigurðardóttir, Magnús Pálmason, Brynja M. Pálmadóttir, Kári Sigurðsson, Guðmundur L. Blöndal, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæra, GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR frá Miðgili, lést fimmtudaginn 7. apríl. Útförin hefur farið fram. Örn Berg, Ragnhildur Gröndal, systur hinnar látnu og aðrir aðstandendur. Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, ODDNÝ HANSÍNA RUNÓLFSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum fimmtu- daginn 14. apríl. Friðrik Jósepsson, Kristín Árdal, Oddný og María. Ástkær móðir mín, ERNA RAGNARSDÓTTIR fyrrv. bankastarfsmaður, er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir fá fjölskyldan Hofslundi 6, Garðabæ, og starfsfólk á 14-G, Landspít- alanum við Hringbraut. Ösp Viggósdóttir. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, amma og langamma, HALLDÓRA HALLDÓRSDÓTTIR, Kóngsbakka 14, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítala Fossvogi fimmtudaginn 14. apríl. Einar Þ. Jónsson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.