Morgunblaðið - 17.04.2005, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.04.2005, Blaðsíða 10
Í nýútkominni ævisögu sinni segir Jane Fonda að þegar hún íhugaði að gera stutt æviágrip á myndbandi í til- efni sextugsafmælis síns hafi dóttir hennar, Vanessa, stungið upp á því að hún yrði sér einfaldlega úti um kam- elljón og léti það skríða yfir skjáinn. Í bókinni, sem ber titilinn My Life So Far, birtist sannarlega mynd af margslung- inni persónu, sem hefur náð að grípa og per- sónugera tíðarandann, ekki bara einu sinni heldur ítrekað. Á sjöunda áratugnum skartaði hún „stóru“ hári og varð eitt helsta kyntákn sinnar kynslóðar í hlutverki Barbarellu í sam- nefndri kvikmynd. Þegar nær dregur 1970 vaknar hún til samfélagslegrar meðvitundar og verður að táknmynd fyrir baráttuna gegn Víet- nam-stríðinu, svo mjög að andstæðingar demó- kratans Johns Kerrys drógu upp gamlar ljós- myndir af honum á friðarsinnafundum með Fonda í því skyni að spilla fyrir baráttu hans við síðustu forsetakosningar. Í kringum 1980 kom Fonda síðan fram á sjónarsviðið sem holdgerv- ingur líkamsræktar og sjálfseflingar kvenna. Með geysivinsælum líkamsræktarmynd- böndum sínum má jafnvel segja að hún hafi átt þátt í að renna stoðum undir útbreiðslu mynd- bandstækja, sem þá voru ný af nálinni. Hamingjusnauð æska Ævisagan hefur fengið góðar viðtökur og Fonda þykir skrifa af einlægni og hreinskilni. Í fyrsta hluta bókarinnar segir hún frá hamingju- snauðri æsku, sem dóttir eins dáðasta leikara sinnar tíðar, Henry Fonda, og vansællar móður sem framdi sjálfsmorð. Hún lýsir föður sínum sem tilfinningalega lokuðum manni, sem sýndi fjölskyldunni lítinn áhuga. Móðirin, Frances, brotnaði niður þegar Henry sagði skilið við hana. Hún var lögð inn á geðsjúkrahús og svipti sig þar lífi með því að skera sig á háls árið 1950. Jane var þá á þrettánda ári. Henni var sagt að móðir hennar hefði látist af völdum hjartaáfalls, en komst nokkru síðar að sannleikanum við lestur slúðurblaðs. Um þetta leyti fór Fonda að upplifa óánægju með eigin líkama og tók að glíma við átröskunarvandamál. Hún segir að skortur á ástúð og hlýju í æsku hafi valdið henni langvinnum erfiðleikum við að tengjast öðrum tilfinningaböndum. Þess hafi séð stað í öllum samböndum hennar síðar á ævinni. Fonda hætti námi við Vassar-háskóla og hélt undir tvítugt til Parísar að læra myndlist, sneri síðan aftur til Bandaríkjanna og byrjaði að sækja tíma í leiklist hjá Lee Strasberg. Hún lék í fyrstu kvikmyndinni 22 ára gömul árið 1959, Tall Story, sem var aðlögun á vinsælu Broad- way-leikriti. Átröskunin háði Fonda og hún seg- ir frá því að á þessum tíma hafi hún hámað í sig mat og síðan kastað upp allt að átta sinnum á dag. Í klóm kvennabósa Fonda fór árið 1963 til Parísar til að leika í kvikmynd og þar komst hún í kynni við leik- stjórann og kvennabósann Roger Vadim, sem hafði áður verið í tygjum við Brigitte Bardot og Catherine Deneuve. Vadim var fyrsta stóra ást- in í lífi Fonda og hún lýsir því hvernig hann náði tökum á henni og fékk hana meðal annars til að taka þátt í hópkynlífi, þótt innst inni hafi henni mislíkað það. „Ég var orðin svo vön því að bæla niður mínar sönnu tilfinningar og búa til hólf í huganum að á endanum hafði ég sannfært sjálfa mig um að ég nyti þess,“ segir hún. Vadim hafði megnustu andúð á „borgaralegum“ gildum eins og einkvæni og sparnaði, og sóaði stórum hluta af móðurarfi Fonda í spilavítum. Hún segir hann að vissu leyti hafa verið ábyrgðarlausan, tillitslausan og fullan af karlrembu, en jafn- framt heillandi, listrænan og ljúfan. Vadim leikstýrði Fonda í ævintýramyndinni Barbarella, sem nú hefur öðlast hálfgerðan „költstatus“ í kvikmyndasögunni. Þar barðist hún lítt klædd við óþokka á fjarlægri plánetu og varð fyrir vikið umtöluð sem einhver mesta kyn- bomba sinnar kynslóðar. Það var hins vegar ímynd sem hún kærði sig ekki mikið lengur um að uppfylla. Fonda kveðst líta á árið 1968 sem þáttaskil í lífi sínu, en þá varð hún þunguð af dóttur sinni og Vadims, Vanessu. Í París komst hún í kynni við andstæðinga stríðsins í Víetnam og varð smám saman sannfærðari um að hernaður Bandaríkjamanna væri óréttmætur og grimmi- legur. Á sama tíma raknaði upp úr hjónaband- inu. Hún fluttist til Kaliforníu og lék í kvik- myndinni They Shoot Horses, Don’t They?, sem var hennar dramatískasta hlutverk til þessa. Fonda kastaði ímynd kyntáknsins og klippti ljósu, liðuðu lokkana. Árið 1971 fór hún með hlutverk vændiskonu í kvikmyndinni Klute og hlaut Óskarsverðlaun fyrir. Hún segist á þess- um árum hafa vaknað til samfélagslegrar vit- undar og fundið þörf fyrir að taka virkan þátt sem samfélagsþegn. Hún hellti sér út í barátt- una gegn Víetnam-stríðinu og kynntist í gegn- um hana öðrum eiginmanni sínum, róttækl- ingnum Tom Hayden. Sem gagnrýnandi stríðsrekstursins í Víet- nam öðlaðist Fonda virðingu og aðdáun rót- tæklinga og friðarsinna en jafnframt djúpstæða andúð og jafnvel hatur af hálfu repúblikana og annarra stuðningsmanna stríðsins. Ferð hennar til Hanoi árið 1972, í höfuðvígi andstæðinganna, vakti gríðarlega reiði og gagnrýnendur hennar uppnefndu hana Hanoi Jane. Rætt var um það af fullri alvöru að sækja hana til saka fyrir land- ráð. Í ævisögunni viðurkennir Fonda að ferðin hafi að sumu leyti verið vanhugsuð, en kveðst þó ekki iðrast þess að hafa komið fram í útvarpinu í Hanoi og reynt að leiða bandarískum hermönn- um fyrir sjónir að þeir væru að fremja grimmd- arverk gegn víetnömsku þjóðinni. „Rík- isstjórnin laug að okkur og menn voru að tapa lífi sökum þess. Mér fannst að ég þyrfti að gera allt sem mér væri unnt til að afhjúpa blekking- arnar og hjálpa til við að binda endi á stríðið,“ sagði hún í viðtali á CBS í tilefni af útkomu bók- arinnar. Hún segir það hins vegar hafa verið óafsakanlegan dómgreindarbrest, og raunar stærstu mistök lífs síns, að hafa látið taka fræg- Jane Fonda í ýmsum myndum Reuters Ævisögu Jane Fonda hefur verið vel tekið af gagnrýnendum. Leikkonan Jane Fonda á sér margar hliðar sem hún varpar ljósi á í nýútkominni ævisögu. Aðalheiður Inga Þorsteinsdóttir fjallar um kyntáknið sem birtist í Barbarellu, femínistann og róttæklinginn sem barðist gegn Víetnam-stríðinu og líkamsræktardrottninguna sem seldi milljónir æfingamyndbanda um allan heim. 2 1 10 SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ Að fá tölvurnar er frábært og breytirmiklu fyrir okkur. Við hefðum aldr-ei haft efni á nýjum tölvum,“ segirKenýabúinn Charles Okomo ogbrosir breitt. „Við erum ákaflega þakklát fyrir stuðninginn frá Íslandi. Hann skiptir miklu máli.“ Auk þess sem Þjóðarbókhlaðan, Fræðslumið- stöðin og BT tölvur lögðu fram tölvur og tölvu- skjái, gáfu Samskip flutninga frá Reykjavík til Rotterdam. Í gáminn fóru einnig notuð föt, sem og nýir skór sem viðtakendur í Kenýa hyggjast selja. Ágóðinn verður notaður til hjálparstarfs. Húmanistar á Íslandi Samtökin Vinir Afríku standa á bak við send- inguna. Vinir Afríku tengjast heimamönnum í Kenýa í gegnum Húmanistahreyfinguna. Með- limir hreyfingarinnar, sem vinna með íslenskum húmanistum, eru hátt á annað þúsund talsins. Húmanistar starfa í litlum hópum sem tengj- ast innbyrðis eftir ákveðnu neti. Hóparnir í Ken- ýa hafa síðustu daga unnið hörðum höndum við að safna fé fyrir flutningskostnaðinum frá Rot- terdam. Þótt kostnaðurinn sé ekki mikill á ís- lenskan mælikvarða er hann töluverður í landi þar sem algeng mánaðarlaun eru 3.000 íslenskar krónur. Margir meðlimir hreyfingarinnar hafa enn lægri laun en sem þessu nemur. Almenningi kennt á tölvur Tölvukaup eru utan seilingar almennings í Kenýa og fáir kunna að nota þær. Í heimi þar sem tölvur gegna sífellt stærra hlutverki verða þeir sem lítið hafa milli handanna auðveldlega út undan. Þessu hyggjast kenýsku húmanistarnir breyta. „Margir hafa enga reynslu af tölvum. Nú höf- um við tækifæri til að kenna fólki á þær. Það getur komið til okkar, fengið að prófa sig áfram og læra hvað af öðru,“ segir lykilmaður í starf- inu, Ken Amittou. Hann bendir á að auk þess sem tölvurnar auki tölvukunnáttu almennings, muni þær breyta miklu varðandi hópastarf húmanistanna. Að- gangur að tölvu skipti miklu máli fyrir alla skipulagsvinnu og samskipti hópa og landa á milli. Íslendingar styðja börn í Kenýa Í dag eru á fjórða tug kenýskra barna studd mánaðarlega í gegnum Vini Afríku. Stuðnings- aðilar á Íslandi fá reglulegar fréttir af börnun- um. Tölvurnar munu auðvelda alla slíka vinnu. Útbreiðsla alnæmis í Kenýa hefur leitt til þess að mörg börn eru í dag foreldralaus. Flestir sem láta lífið af völdum alnæmis eru á bilinu 20–40 ára. Húmanistarnir í landinu hafa tekið fjölmörg barnanna upp á sína arma. Fyrir þann sem sjálf- ur hefur lítið milli handanna getur hins vegar verið hægara sagt en gert að sjá um heilu barna- hópana. Það var upp úr þessu sem sú hugmynd kviknaði að hvetja Íslendinga til að styðja mán- aðarlega við tiltekin börn undir verndarvæng Kenýabúanna. Enn eru mörg börn sem þyrftu aðstoð. Heimamenn biðja blaðamann að færa Íslend- ingum bestu kveðjur, með von um að einhver sjái sér fært að hjálpa þeim við að hjálpa börn- unum. Notaðar tölvur til Kenýa Notaðar tölvur frá Íslandi munu í framtíðinni öðlast nýtt hlutverk í Kenýa. 63 tölvur frá Þjóðarbókhlöðunni og Fræðslu- miðstöð Reykjavíkur eru nú á leið með skipi frá Evrópu til Afríku. Í sendingunni eru auk þess notaðir tölvuskjáir frá BT tölvum. Sigríður Víðis Jónsdóttir ræddi við heimamenn í Kenýa sem hlakka til að taka á móti sendingunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.