Morgunblaðið - 17.04.2005, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.04.2005, Blaðsíða 11
ar myndir af sér við loftvarnarbyssu Norður- Víetnama. Það hafi skiljanlega verið túlkað sem svik við þær tugþúsundir bandarískra her- manna sem létu lífið í Víetnam. Eftir heimkomuna lét bandaríska leyniþjón- ustan taka saman 20.000 síðna skýrslu um Fonda og gerð var húsleit hjá henni. Brúður í hennar mynd voru brenndar og í eitt skipti seg- ist hún hafa litið út um gluggann og séð mann með byssu í garðinum. „Hann sneri við og hljóp í burtu. Það kom fyrir að við værum elt. Við upplifðum okkur í hættu, já,“ segir hún í viðtali við The Guardian. Óskarsleikkona og líkamsræktardrottning Með Hayden átti Fonda soninn Troy. Af frá- sögn hennar má ráða að þau hafi að mörgu leyti átt góð ár saman, en með tímanum fjaraði und- an hjónabandinu. Hayden mun hafa neytt áfengis í óhófi og átt erfitt með að fella sig við að frægð og velgengni eiginkonunnar væri meiri en hans eigin, einkum eftir að hún hlaut Ósk- arsverðlaun í annað sinn fyrir kvikmyndina Coming Home árið 1979. Þakkarræðuna flutti hún þá reyndar á táknmáli, til að vekja athygli á hlutskipti heyrnarlausra. Fonda hóf í lok áttunda áratugarins að stunda skipulega líkamsrækt. „Það var algjör bylting. Þegar ég var að komast á fullorðinsár þótti það ekki sæmandi konum að stunda erfiða líkamsrækt. Við áttum ekki að svitna eða hnykla vöðvana.“ Hún leit á líkamsræktina sem leið fyrir konur til sjálfseflingar og afréð að setja saman myndband með æfingum sem unnt væri að gera heima í stofu. Fyrsta myndbandið, Jane Fonda’s Workout, var gefið út árið 1982 og seldist í 17 milljónum eintaka. Það er raunar mest selda myndbandið í heiminum til þessa dags. Líkamsræktin hjálpaði Fonda að sættast við eigin líkama og hún náði loks tökum á át- röskunarvandanum sem hafði háð henni síðan á unglingsárum. Hayden mun hins vegar hafa sýnt litla hrifn- ingu á líkamsræktarævintýrinu, en Fonda benti honum þá kurteislega á að það væru tekjurnar af sölu myndbandanna sem fjármögnuðu stjórnmálastarf hans að mestu. Fjölmiðlakóngurinn Tom Hayden tilkynnti Fonda eftir sextán ára hjónaband árið 1988 að hann væri ástfanginn af annarri konu. Hún brást við með því að henda eigum hans út um gluggann á íbúð þeirra í ruslapokum. „Það hjálpaði aðeins,“ segir hún. En ekki leið á löngu þar til annar maður kom inn í líf hennar. Daginn eftir að fréttir birtust af skilnaði Fonda og Hayden fékk hún hringingu frá Ted Turner, eiganda CNN fjölmiðlaveld- isins. Hann kynnti sig og spurði vafningalaust hvort hún væri á lausu. Fonda segist hafa orðið steinhissa, en sagt Turner að hún væri ekki beinlínis farin að huga að stefnumótum, en hann mætti prófa að hafa samband eftir þrjá mánuði. Sem hann gerði, nánast upp á dag, og ástir tók- ust með þessu heldur ólíkindalega pari. Margir undruðust að Fonda félli fyrir hinum óheflaða Suðurríkjamanni, sem síst var þekktur fyrir róttækni í stjórnmálaskoðunum eða femíníska vitund. En hún segist hafa heillast af líkams- burðum hans og hreinskilnu, strákslegu við- móti. „Málæði Turners var óendanlegt. Mín eðl- islæga feimni olli því að mér leið yfirleitt óþægilega í návist fólks sem ég þekkti lítið, ég vissi ekki hvernig ég ætti að fylla upp í þagn- irnar. En með Ted var þetta ekkert vandamál, því það voru engar þagnir. Stundum furðaði ég mig á því að hugur hans tæmdist einfaldlega ekki.“ Fonda og Turner gengu í hjónaband haustið 1991. Einum mánuði síðar segist hún hafa kom- ist að því að hann hefði verið henni ótrúr. Hún flutti út og hugðist sækja um skilnað, en honum tókst að telja hana af því, lofandi bót og betrun. Fonda tók við stjórn Turner-sjóðsins og vann á næstu árum ötullega að ýmsum góðgerð- armálum, beitti sér ekki síst fyrir því að ung- lingar ættu aðgang að kynfræðslu og getn- aðarvörnum. Í sextugsafmælisgjöf gaf Turner henni góðgerðarsjóð í eigin nafni, sem hafði sem höfuðstól 10 milljónir dollara. En brestir komu í hjónabandið, sem fyrr. Turner tók til við fyrri iðju og þau skildu að skiptum árið 2000. Þegar Turner flaug með hana í einkaþotu sinni til heimaborgar þeirra, Atlanta, í síðasta skipti segir hún að nýja konan í lífi hans hafi beðið í flugskýlinu eftir að fara um borð. „Sæti mitt [í flugvélinni] var enn þá heitt.“ Sálarró á sjötugsaldri Jane Fonda er nú á 68. ári og segist loks á sjö- tugsaldri hafa fundið sálarró og jafnvægi í lífinu. Á síðustu árunum með Ted Turner sneri hún sér að kristinni trú og frelsaðist. Hún kveður Turner hafa álitið sig vera að missa vitið, en segir þvert á móti að þarna hafi hún loksins ver- ið að finna sig. „Lærdómurinn sem við eigum að draga af lífinu er yfir og allt um kring,“ segir hún í viðtali við Washington Post. „En það tek- ur tíma fyrir hann að síast inn.“ adalheidur@mbl.is 1. Lögreglumynd af Jane Fonda er hún var tekin höndum fyr- ir mótmæli í nóv- ember 1970. 2. Myndin alræmda af Jane Fonda við loft- varnarbyssur Norður- Víetnama árið 1972. Fyrir heimsóknina til Hanoi uppskar hún gagnrýni og hatur heima fyrir. 3. Jane Fonda í hlut- verki Barbarellu. Hlutverkið gerði hana að helsta kyntákni sinnar kynslóðar. 4. Fyrsta líkams- ræktarmyndbandið seldist í sautján millj- ónum eintaka og er mest selda mynd- band allra tíma. 5. Jane Fonda og Ted Turner. 4 3 5 Ummæli vikunnar ’Mér var ofarlega í huga að auka sjálfs-traust Íslendinga og sjálfstraust fæst að- eins með því að eiga sterka rödd og vera sterk þjóð.‘Vigdís Finnbogadóttir á 75 ára afmæli sínu 15. apríl í viðtali Guðrúnar Guðlaugsdóttur í Morgunblaðinu. ’Líf þitt hefur verið litríkt ævintýri ogmikil forréttindi að hafa fengið að taka þátt í því með þér.‘Ólafur Ragnar Grímsson forseti við setningu ráð- stefnunnar Samræður um menningarheima, sem hald- in var í tilefni af 75 ára afmæli Vigdísar Finn- bogadóttur, fyrrverandi forseta. ’Það er nefnilega ýmislegt, sem ekki áskilið neitt umburðarlyndi.‘Margrét Danadrottning segir í nýrri bók um hana að alltof lengi hafi Danir reynt að leiða hjá sér vandamál, sem tengist íslamstrú, og kennir um bæði umburð- arlyndi og leti. ’Ég held því reyndar fram að fyr-irkomulagið hér sé þrælahald og fara mætti með málið fyrir Mannréttinda- dómstól Evrópu; það er þrælahald þegar ein stétt er gefin annarri stétt til að ráðskast með og hafa af henni tekjur.‘Kristín Hafsteinsdóttir , formaður Meinatæknafélags Íslands, segir lög um stéttina gölluð og þeir séu í raun þrælar lækna ’Ef þessi vírus smitaði þó ekki værinema eina manneskju þá myndi hann breiðast út mjög fljótt.‘Dr. Klaus Stohr, fulltrúi Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnunarinnar, eftir að bandarísk meinastofa sendi óvart út mörg þúsund sýni af stórhættulegri flensuveiru, sem olli dauða fjögurra til fimm milljóna manna á árunum 1957 og 1958. ’Hvernig litist ykkur á að við, almenn-ingur á Íslandi, stofnuðum félag, félag kjölfestufjárfestis, og gerðum í samein- ingu tilboð í 45% Símans?‘Agnes Bragadóttir , fréttastjóri og umsjónarmaður viðskiptaumfjöllunar Morgunblaðsins, setti þessa spurningu fram í Viðhorfsdálki blaðsins. Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Nokkur þúsund manns hafa sagst ætla að leggja fram fé til að bjóða í Símann og Agnes hefur tekið sér frí frá störfum til að leiða átak- ið. ’Hærri stýrivextir verka hvetjandi á er-lent fjármagn til fjárfestingar í íslensku krónunni og byggja þar með enn frekar undir hana. Í þessu ljósi má einnig horfa á viðskiptahallann og velta því fyrir sér hvort að útflutningsgreinarnar, sem nú berjast í bökkum, séu að greiða niður am- eríska pallbíla.‘Katrín Pétursdóttir , framkvæmdastjóri Lýsis, um rekstrarskilyrði útflutningsfyrirtækja í Við- skiptablaði Mbl. ’Ég get ekki hugsað það til enda að égverði kærður, hvað þá sakfelldur fyrir að sýna þessa mynd.‘Ísleifur Þórhallsson , framkvæmdastjóri Int- ernational Icelandic Film Festival, um hina umdeildu kvikmynd 9 Songs eftir Michael Winterbottom. ’Ég hef alltaf verið veikur fyrir muff-ins!‘Ólafur Ragnar Grímsson forseti í heimsókn sinni í Kexsmiðjunni á Akureyri. ’Það voru ekki síst krakkarnir í Reykja-vík sem hvöttu til þess að Söngkeppnin færi fram á Akureyri, vegna þess að þá kæmu örugglega fleiri. Það tekur 10 til 12 tíma að keyra til Reykjavíkur frá Egils- stöðum og Neskaupstað, hvora leið, en Akureyri er miðsvæðis fyrir alla.‘Valdís Anna Jónsdóttir um það hvers vegna Söng- keppni framhaldsskólanna er haldin á Akureyri í ár. ’Áður gerði ég það til að gleðja börnin ábænum, en síðan þau stækkuðu, til að gleðja hrútana.‘Sauðburður er hafinn hjá Hálfdáni Helgasyni , bónda á Háhóli í Borgarbyggð. Hálfdán segist í samtali við blaðið Skessuhorn hafa hleypt til nokkurra kinda með fyrra fallinu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vigdís Finnbogadóttir Netkaffi og apótek Einn hópanna sem starfandi eru í Kenýa safnaði fé fyrir sendingarkostnaði tíu tölva. Það tók á að safna tilskilinni upphæð en hafðist að lokum. Meðlimir hyggjast setja upp netkaffi í borginni Kisumu. „Við sáum þarna kjörið tækifæri til að afla fjár til góðra verka. Það er ekki nóg af hafa góð- ar hugmyndir, það verður líka að hafa fjármagn. Ef allt gengur að óskum ættum við að geta haft reglulegar tekjur af netkaffinu – tekjur sem við getum notað til að fjármagna þau verkefni sem okkur dreymir um. Við viljum styðja hópa til að skapa sér eigin atvinnutækifæri og koma sér þar með upp úr fá- tæktargryfjunni. Við viljum líka koma upp lyfja- verslun þar sem þeir sem lítið hafa geta fengið lyf á niðurgreiddu verði,“ segir Charles Okomo. Á svæðinu í kringum Kisumu er malaría afar út- breidd. „Fólkið í kringum okkur sem deyr af völdum malaríu lætur ekki lífið vegna þess að það veit ekki hvað er að því eða hvað það á að gera. Það deyr vegna þess að það hefur ekki efni á lyfjum. Þessu getum við breytt og þessu mun sendingin frá Íslandi vonandi breyta í framtíðinni.“ Nánari upplýsingar um starf húmanista, Vini Afríku og stuðning við kenýsk börn, má finna á heimasíðunni www.vinirafriku.is. Ljósmynd/Sigríður Víðis Jónsdóttir Kvennahópur húmanista í Kenýa selur strámottur, leirpotta og fléttaðar körfur. Ágóðinn fer til mun- aðarlausra barna og fátækra. Íslendingar styðja nokkur þeirra barna sem hópurinn hefur í sinni umsjá. Húmanistar í Kenýa munu á næstu dögum taka á móti notuðum tölvum frá Íslandi. sigridurvidis@yahoo.com MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.