Morgunblaðið - 17.04.2005, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.04.2005, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ Skerjafjörður gengur inn úr Faxaflóa.Fjörðurinn dregur nafn af skerjumsem liggja út eftir honum. Skerin eruleifar af eldstöð sem gaus fyrir löngu,sjórinn hefir mulið stöðina niður og er nú sáralítið dýpi fyrir innan skerin. Milli skerj- anna og Álftaness er áll þar sem hægt er að sigla djúpristum skipum í öruggt var innst á firðinum. Hlutafélagið Höfn áformaði hafnargerð við Nauthólsvík, það keypti hluta jarðarinnar Skildinganess og ætlaði að byggja borgina Port Reykjavík. Ábúendur Nauthóls voru afgreiddir með því, að bær þeirra var brenndur, vegna taugaveiki sem var nú bara orðrómur. Vorið 1913 var byrjað að leggja járnbraut úr Öskjuhlíð og niður að höfn í Reykjavík, vestur- sporið var lagt um þar sem nú er afgreiðsla Flugfélagsins, vestur þar sem seinna varð Þjórsárgata og til norðurs neðst í Skildinga- nesshólum. Óskar Halldórsson (Íslands-Bersi) setti upp lifrarbræðslu þar sem nú teldist Þjórs- árgata 13 og var í beinu járnbrautarsambandi við Reykjavíkurhöfn árið 1921. Um svipað leyti stofnuðu Jón Þorláksson, Thor Jensen o.fl. sam- eignarfélagið BAUG, ætluðu þeir að setja upp stálskipasmíðastöð við Skerjafjörð. Þessi ráða- gerð náði ekki lengra en leggja veg að stöðvar- lóðinni. Var það Baugsvegur, nú Bauganes. Einhver þeirra Baugsmanna fékk þá hugmynd að skipuleggja þéttbýli og selja stórar lóðir. Lóðirnar voru óspart notaðar til matjurtarækt- unar, sumir voru með hænsni og ein fjölskylda var með auk hænsnanna, kú í bílskúrnum fram undir 1960. Hálfnaður að skjóta naut Bóndi á Reynistað var Georg Jónsson. Hann seldi grönnum sínum mjólk, mykju, egg og rauðmaga. Georg var enn að aka út brúsamjólk á hestvagni fimmtán árum eftir setningu af- urðasölulaga. Georg bóndi var ráðagóður mað- ur, einu sinni þurfti hann að fella naut, batt hann það við snúrustaur og skaut það í hausinn. Skotið var ekki nógu kraftmikið svo kúlan dró ekki gegnum hauskúpuna. Tuddinn hristi bara hausinn yfir þessum mislukkaða slátrara, út undan sér sá Georg strætó koma eftir Baugs- veginum, hann setti aukalykkju á staurinn og stökk upp í strætó þarna á stoppistöðinni. Þeg- ar vagninn var kominn kom niður á torg, bað Georg Pétur vagnstjóra að fara ekki á undan sér, hann þyrfti að skreppa upp í Sportvöruhús. Þegar þangað kom bað hann afgreiðslumanninn að skrifa hjá sér fimm Remington extra-long skot, „ég er nefnilega hálfnaður að skjóta naut“, bætti hann við. Svo tók hann strætó til baka og kláraði slátrunina. Á þessum árum voru margir málaflokkar á hendi sveitarfélaga og útsvör því tiltölulega há. Þeir Baugsmenn stofnuðu hluta- félag um veitukerfin og húsin voru öll tryggð beint erlendis án milligöngu innlendra trygg- ingafélaga. Með þessu var orðin til eins konar skattaparadís, sem var í göngufæri við höfuð- staðinn. Þarna reisti fjármálaráðherrann sér sumarbústað og fór á hesti í vinnuna. Fyrrver- andi foringi í þýska flotanum og leynilegur er- indreki sama flota, á Íslandi, reisti þarna litla höll með loftvarnabyrgi í kjallaranum. Nýja þéttbýlið fékk nafnið Skildinganes- kauptún, í daglegu tali Skerjafjörður. Aðal- gatan hét auðvitað Reykjavíkurvegur, þar var pósthús og nýlenduvöruverslun. Þvert á Reykjavíkurveg var svo Þvervegur og í fram- haldi af honum Shellvegur sem endaði við birgðastöð H.F. Shell sem reist var árið 1927. Barnaskóli var í húsi við Baugsveg. Sjóklæða- gerð Íslands byggði hús við Reykjavíkurveg þar sem saumaðir voru sjóstakkar. Við Hörpugötu var bakarí sérhæft í tvíbökum og kringlum og var framleiðslan seld um land allt. Bakarinn hét Árni Strandberg og hafði hann verið í Ameríku. Setti hann ekki fyrir sig smámuni og kunni að brugga öl. Einu sinni á kreppuárunum var kona Árna að baka kleinur, það kviknaði í feitinni og húsið brann. Bakarinn byggði upp aftur en lenti í skuld við J. Þorláksson & Norðmann, þeir gengu að Árna og hann varð gjaldþrota. „Já, þær geta orðið dýrar þessar kleinur,“ sagði hann þá. Árni byggði sér lítinn skúr á auðri lóð aftan við bak- aríið og fór að vinna hjá bakara niðri í bæ. Smátt og smátt varð þetta að skúraborg með torgi í miðjunni. Þegar byggingafulltrúinn fann að þessum framkvæmdum, sagði Árni bara: „Hann Claessen heitinn sagði að þetta mætti vera svona.“ Við Þjórsárgötu setti Jónas Halldórsson upp netaverkstæði. Á stríðsárunum var netaverk- stæðinu breytt í sápugerð og varð þar til hið magnaða Mjallarbón. Meðeigendur Jónasar í sápugerðinni voru Runólfur Pétursson, fyrrver- andi formaður Iðju, og Einar Sæmundsson sem seinna varð formaður KR en Einar átti heima við Reykjavíkurveg þarna í miðju Þróttarhverf- inu. Sonur Einars er dr. Ásbjörn sem skrifaði doktorsritgerð um efnarafala, aldarfjórðungi áður en byrjað var að tala um slíkt hér á landi. Sápugerðin átti þriggja hæða geymsluhús, sem leigt var ritfangaversluninni Pennanum. Sendi- bílstjóri Pennans var kallaður Óli. Þegar hann brunaði inn í hverfið heyrðist kallað, „Óli í Pennanum, Óli í Pennanum“. Krakkarnir þutu á staðinn til þess að hjálpa Óla að bera vörurnar, því þarna í húsinu voru ýmsir vöruafgangar sem Óli notaði sem gjaldmiðil til þess að greiða sín- um verkamönnum kaup. Með samningi við Seltjarnarneshrepp var kauptúnið lagt undir Reykjavíkurbæ um ára- mótin 1931–32. Með lagningu Reykjavíkur- flugvallar klofnaði kauptúnið í tvennt, þau hús sem hægt var að flytja var farið með í Laug- arneshverfi. Verkfræðistofa Sigurðar Thorodd- sens sá um þessa flutninga og var húsunum rúll- að eftir olíutunnum á næturnar. Eitt þessara húsa er víðförlasta hús Reykjavíkur, gamla pósthúsið. Fyrst stóð það við Pósthússtræti svo við Reykjavíkurveg og endaði við Brúnaveg á Laugarási. Hverfið sunnan flugbrautarinar var kallað stóri Skerjafjörður og norðan brautar litli Skerjafjörður. Sjóklæðagerðin brann árið 1941, hitinn var svo mikill að pottablóm í gluggum handan göt- unar þornuðu upp og drápust. Ef flugvall- arslökkviliðið hefði ekki komið til aðstoðar hefðu þrjú hús til viðbótar brunnið. „Gerið allt sem frúin biður um“ Innan hverfisins voru reist þrjú herskála- hverfi, Selkirk Camp við Fossagötu, Whitley Camp milli Baugsvegar og Þvervegar, Camp Edgewater var við Shellveg. Af því að flugvöll- urinn skipti hverfinu í tvennt, urðu íbúar norð- urhlutans að sækja verslun á Grímsstaðaholt, um Reykjavíkurveg, sem lá gegnum Camp Stonehenge, þar sem voru mannaðar loftvarna- byssur. Af Þjórsárgötu að austan var hlið inn á flugvöllinn, við hliðið var sett upp sjoppa sem sumarið 1952 var flutt í Trípolícamp og varð gamla húsið í sögu Einars Kárasonar. Vorið 1942 brotlenti Hudson sprengjuflugvél á Þjórsárgötu, brak úr henni kastaðist á húsið nr. 5 og kveikti í því. Eigandi hússins, Margrét Halldórsdóttir, vildi fá húsið bætt af trygg- ingum en þeir sögðu að þetta væri stríðsskaði sem væri ekki á þeirra vegum, bærinn (Borgin) gat ekkert, enginn vildi bæta þetta tjón. Mar- grét strunsaði þá upp í Trípolícamp, spurði eftir flugmarskálknum og las honum pistilinn á góðri Skildinganeskauptún Aðrir byggja minna: Húsið á Fossagötu 2 var reist um 1930. Húsin við Þjórsárgötu 1 og 3. Rauða húsið stendur innar í lóðinni vegna þess að þegar það var reist lágu þarna járnbrautarteinar. Skerjafjörðurinn hefur alltaf verið dálítið sér á parti í borgarsam- félaginu og á sér merkilega sögu. Hana þekkja fáir betur en Gestur Gunnarsson, sem hefur safnað saman sögum og fróðleiks- molum um Skildinganeskauptún og Skerjafjörð. Morgunblaðið/RAX Gestur Gunnarsson við miðunarskúrinn í apríl 2005. Hjallarnir eru löngu horfnir, en skúrinn stendur þó enn, tæplega hálfri öld síðar. Sumir byggja stórt: Júlíus Schopka átti húsið á Shellvegi 6. Höfundur við miðunarskúrinn í fjörunni fyrir neðan vesturenda austur/vestur-flugbraut- arinnar á Reykjavíkurflugvelli árið 1956. Landamerkjasteinninn frá 1839. Á hann er letrað „Landamerki“ og ártalið 1839 og markar hann landamerki milli Skildinganess og Reykjavíkur. Ljósmynd/Gunnar Gestsson Ljósmynd/Gestur Gunnarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.