Morgunblaðið - 17.04.2005, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 17.04.2005, Qupperneq 26
26 SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ Íra. Þótti henni gaman að því að bera þá vitneskju saman við sína reynslu af þeim málum. Carolina ræddi frjálslega við okkur og sýndi mikinn áhuga fyrir öllu, sem fyrir augu bar. Við Gullfoss var áð um stund, þótti gestum mikið til fossins koma. Við stóð- um þar stutt við og héldum það- an að Geysi. Var Grace með kvikmyndavél og tók myndir af ýmsum hveraaugum. Strokkur gaus nokkrum sinnum öllum til mikillar ánægju. Furstafrúin gekk upp að Geysi, en hverinn var tregur til að gjósa, enda þótt í hann hefði verið sett sápa. Nú hafði verið gert ráð fyrir, að við værum við hverina í hálf- tíma, en fólki dvaldist og var klukkan orðin 15:30 þegar haldið var þaðan áleiðis til Reykjavík- ur. Var nú ekið greitt heim á leið í hálfgerðu súldarveðri. Lög- reglan hélt þá öllum götuljósum grænum á okkar leið, þegar þeir vissu, að við vorum að verða of sein að skipinu. Var komið að Sundahöfn um klukkan 18:10. Þegar að skipinu kom, voru gjaf- ir gefnar. Íslenskir snyrtifræð- ingar gáfu Grace bók um Ísland. Einnig gáfum við Sigrún furstahjón- unum Íslandsbók Samivels, L’or de l’Island. Þau gáfu okkur bók Alberts I, La Carriere d’un Navigateur, en Albert var afi Rainiers III. Einnig gáfu þau okkur safn af Mónakó- frímerkjum og minnispening með mynd af furstahjónunum. Þá gaf Grace Sigrúnu silkislæðu með mynd af hallargarðinum í Mónakó. Furstinn var mjög ánægður með ferðalagið. Hann reykti sína bognu, svörtu pípu, sem hann hélt sig hafa skilið eftir í bílnum, en pípan fannst síðan í föggum furstans. Við kvöddum svo þessa ágætu gesti á skipsfjöl og héldum þaðan heim. Skipið hélt svo úr höfn klukkan 19:00, hafði því seinkað nokkuð, þar sem beðið var eftir flugvél frá Græn- landi, sem farið hafði þangað með far- þega af skipinu, en varð heldur sein fyrir. Klukkutíma seinkun skipsins var því ekki okkar sök. Um heimskautanefndina og prófessor Louis Rey Í Mónakó er Vísindastöð, og var Rainier fursti verndari hennar. Á vegum stöðvarinnar eru skipulögð verkefni á ýmsum sviðum lækna- og náttúruvísinda. Sérstaklega hafa haf- rannsóknir verið hefðbundið við- fangsefni í fjölda ára. Í Mónakó er til dæmis víðfrægt sædýrasafn og sjó- minjasafn. Hafa furstarnir af Mónakó mann fram af manni verið áhuga- samir um allt sem viðvíkur sjáv- arrannsóknum. Var Albert I, afi Rai- niers, meðal brautryðjanda í hafrannsóknum og leiðöngrum til fjarlægra hafsvæða. Þess má einnig geta, að í Mónakó er höfuðsetur Al- þjóða sjómælinga, International Hydrographic Bureau. Er það mið- stöð, sem samræmir t.d. mælingar á Atlantshafinu. Við Vísindastöðina eru ýmsar nefndir. Heimskautanefndin er ein þeirra. Var hún stofnuð um 1980. Verksvið nefndarinnar er að sam- ræma og skipuleggja rannsóknir á norðurslóðum og stuðla að aukinni þekkingu og samvinnu manna á ýms- um sviðum vísinda, tækni og fræða. Formaður nefndarinnar var á þessum tíma dr. Louis Rey. Hann er fjölfróður vísindamaður og rithöf- undur. Er hann doktor í lífefnafræði frá París. Var hann prófessor þar og einnig í Vísindaráði Frakka. Hann hefur verið í mörgum vísindalegum sendinefndum og lengi verið vísinda- legur ráðgjafi í Nestle-fyrirtækinu í Sviss, en þar í landi er nú heimili hans. Hann er meðlimur í Royal Geographical Society og Explorers Club, enda mikill ferðalangur. Aðal- áhugamál hans eru tengd heim- skautasvæðinu, og er hann vel kunn- ugur mörgum könnuðum heimskautasvæða og þekkir gjörla sögu þeirra. Um heimskautaferðir skrifaði hann bókina Grænland Krist- alsheimur. Kom hún fyrst út í París árið 1974, og hlaut þá verðlaun frönsku vísindaakademíunnar. Er þetta mjög merkileg bók, þar sem rakin er saga leiðangra til Grænlands, og greint frá því hvernig Grænland byggðist á ýmsum tímum af eskimóum, Ís- lendingum og öðrum norrænum mönnum. Í bók þessari vitnar hann í bréf, sem farið hafa milli biskupanna í Görðum og á Ís- landi og Páfans í Róm, svo efnið er áhugavert fyrir okkur Íslend- inga. Kona mín Sigrún Laxdal þýddi þessa bók úr frönsku á ís- lensku og nefndi Grænland Kristalsheimur. Almenna bóka- félagið gaf bókina út árið 1986. Heimskautanefndin, sem er alþjóðleg og ópólitísk, hefur meðal annars á stefnuskrá sinni, að skipuleggja fundarhöld um ýmis málefni, sem við koma norðurslóðum. Auk formanns nefndarinnar og varaformanns er stjórnin skipuð 12 ráðgjöfum. Átti ég sæti í ráðgjafanefndinni. Merkur fundur um hafrann- sóknir var haldinn í London á vegum nefndarinnar 1980. Tók Jón Jónsson, forstöðumaður Hafrannsóknastofnunarinnar, þátt í þeim fundi og flutti þar erindi. Í októ- ber 1981 var síðan mikil ráðstefna haldin í Róm um sögu kortlagninga og leiðangra um norðurslóðir. Á þeirri ráðstefnu var Haraldur Sig- urðsson bókavörður með erindi um kortasögu Íslands. Haustið 1982 í september var ráðstefna í Noregi um orkulindir heimskautanna. Fundur var haldinn um hafrannsóknir á heimskautaslóðum í Fairbanks í Alaska. Þar vorum við Unnsteinn Stefánsson, og flutti Unnsteinn þar erindi um hafstrauma við Ísland, en ég tók þar þátt í pallborðsumræðum. Í september 1986 var síðan haldin ráðstefna í Reykjavík um land- græðslu og þróun gróðurs á heim- skautaslóðum. Margir íslenskir fræðimenn sátu þennan fund og fluttu þar erindi. Erindi, sem flutt hafa verið á þessum ráðstefnum, hafa ýmist verið gefin út í sérstökum bók- um eða í heftum þekktra tímarita. Ýmsir stjórnarfundir voru haldnir hér á landi, á öðrum norðlægum slóð- um eða í Mónakó. Var Rainier fursti eins og áður segir verndari Heim- skautanefndarinnar, en einnig allra funda, ráðstefna og ferðalaga, sem nefndarmenn fóru í til heimskauta- svæða. Var áhugavert að sitja þessa fundi í félagsskap virtra vísinda- manna og njóta gestrisni furstans á hans heimaslóðum í Mónakó. Höfundur er náttúrufræðingur. Sigrún Laxdal, Rainier og Grace Kelly við tjald á Laugardalsvöllum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.