Morgunblaðið - 17.04.2005, Page 30
30 SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
N afn H. C. Andersenser kirfilega skorðað íhuga minnar kyn-slóðar, skáldið varhluti uppeldisins, allir
krakkar höfðu aðgang að ævintýr-
um hans, marglásu þau og kunnu
sum utanbókar. Voru iðulega
skemmtilega myndlýst sem gerðu
þau til muna forvitnilegri og örv-
uðu hugarflugið. Fátt heilbrigðara
ungu fólki en þessar undursamlegu
sögur, jafnt af prinsessunni á
bauninni og litlu fátæku stúlkunni
með eldspýturnar, engin miðstýrð
þjóðfélagsleg einstefna þar á ferð
heldur rík samkennd og ást á
mannlífinu. Um leið voru þær
skrifaðar á gagnsæju og læsilegu
máli sem var ungum góð og heil-
brigð heimanfylgja til frambúðar.
Betri og hollari námsgrunn á lífið
var trauðla hægt að fá og þó var
skáldið ekki með próf í uppeldis-
og sálfræði, frekar að hann hafi
verið holdgervingur uppeldis- og
sálfræðinnar. Lítt að furða þótt
Danir berji á bumbur og haldi með
pompi og prakt upp á að 200 ára
fæðingarafmæli hans, jafnstóran
þátt og hann á í mótun hinna
mjúku gilda í þjóðarsálinni sem
gert hefur þá alveg sérstaka í
heiminum. Afmælishátíðin stendur
út árið og ég mun halda áfram að
koma að ýmsum þáttum ævi hans
og persónu, en vík í þessum pistli
að helstu sýningarviðburðum í
Kaupmannahöfn, að slepptum þeim
sem varða ævintýraskáldið.
Vart hafði ég lagt frá mér tösk-
urnar, kominn til gestgjafa minna
úti á Ámakri, en að ég rauk burt.
Tók metróna frá Lergravesparken
að Kóngsins nýjatorgi á vit nýopn-
aðrar vorsýningar á Charlotten-
borg.
Unga kynslóðin sem einkum
virðist eiga erindi á þá árvissu
framkvæmd er í góðu samræmi við
nafngiftina og árstíðina, og ekki
vantar framboðið þrátt fyrir um-
deilda myndskoðun hverju sinni.
Af liðlega 4000 innsendum verkum
náðu að mig minnir einungis 167
gegnum nálaraugað svo eftir
drjúgum sóma er jafnaðarlega að
sækjast þótt sú hætta sé margföld
að viðkomandi blandist í þann
stóra hóp sem verður að bíta í hið
súra epli að vera hafnað. Þetta er
auðvitað hlutskipti allra þeirra er
leggja út á listabrautina, þó sem
jafnan áhöld um úr hvorum hópn-
um afburðafólkið kemur, telst þó
alla vega upphefð og mikilvægur
liður markaðssetningar að vera í
hópi hinna útvöldu. Að þessu sinni
virtust gagnrýnendur dagblaðanna
sammála um að betur hafi tekist til
um valið en á næstliðnum árum og
fær sýningin yfirleitt þrjú prik af
fimm mögulegum. En í ljósi þess
sem við blasti hefur naumast verið
öfundsvert að sitja í dómnefnd,
hafi hitt almennt verið lakara, en
um það er enginn dómbær, kallar á
þörf til að setja upp sýningu hinna
útskúfuðu eins og stundum hefur
verið gert með miklum hávaða og
brambolti, einkum sunnar í álfunni.
Kenndi hér margra grasa og fjöl-
breytnin ein verðskuldar fimm prik
en hins vegar bar sjálf sýningin
fullmikinn keim af staðlaðri fram-
leiðslu úr listaskólum, með nokkr-
um undantekningum þó. Að mínu
mati er hún orðin að réttum og
sléttum stóriðnaði vestan hafs sem
austan, með hugmyndafræðilegan
rétttrúnað listamarkaðsins á odd-
inum. Langlundargeðið líka þrotið
hjá mörgu ungu fólki sem stendur
jafnvel uppi með meistaragráðu í
myndlist, en kann hvorki að teikna
né veit skil á innri lífæðum lita og
forma, finnur sig svífa í lausu lofti
hafi skólunum ekki þeim mun bet-
ur tekist að heilaþvo viðkomandi.
Hins vegar er þesslags mynd-
skoðun á mikilsháttar fram-
kvæmdir mikilvæg, einkum nú á
dögum þegar allt virðist gjald-
gengt, sé hugmyndafræði rétttrún-
aðarins að baki. Miðað við meint
vægi og umfang sýningarinnar þó
sýnu lakast hve sýningarskráin var
fátækleg, einungis nafnaupptaln-
ing.
Þennan páskalaugardag varsól hátt á lofti og fallegtum að litast fráCharlottenborg yfir Ný-
höfnina hvar múgur og margmenni
var á sveimi, allir útiveitingastaðir
þéttsetnir þótt kul væri í lofti og
ískaldur næðingur blési af hafi.
Dvaldist drjúga stund á sýningunni
og reyndi að átta mig á hlutunum,
en satt að segja voru það kærkom-
in viðbrigði að koma út í sólina aft-
ur. Stefna tekin á Listiðn-
aðarsafnið á Bredgade hvar í
fyrsta skipti er húsuð alíslensk
sýning að ég best veit. Á ferð syst-
urnar Sigrún og Ólöf Einarsdætur
ásamt Søren Larsen, látins eig-
inmanns þeirrar fyrrnefndu. Kom
við í Galleríi Asbæk, og skoðaði
sýningu Malin Lindgreen, mundi
þá eftir að Listiðnaðarsafnið lokar
klukkutíma fyrr en önnur söfn og
tíminn naumur, var þá ekki um
annað að ræða en að sveigja til
hægri við Frederiksgade og ljúka
röltinu með því að virða fyrir sér
Óperuhúsið nýja á Hólminum sem
einnig var ætlunin. Þegar ég nálg-
aðist hafnarbakkann og hin mikla
og umdeilda framhlið blasti við,
skynjaði ég og skildi á núinu hve
líkingin við risavaxna brauðrist er
nærtæk. Einnig að hér hafi verið
slegið á það snilldarlega samspil
við umhverfið sem arkitektinn
hafði í huga, framhliðin fyrir vikið
til muna staðari. En þetta er rosa-
leg og vel hönnuð bygging sem
fljótlega kom stórum betur í ljós er
ég tók stefnuna suður eftir hafn-
arbakkanum í átt að Nýhöfninni og
umfang hennar kom enn frekar í
ljós. Hið innra mun hún öll hin
Í borg kaupmannanna
Fernand Léger á vinnustofu sinni á 80 West, 40th Street í New York á árum
seinni heimsstyrjaldarinnar.
Fernand Léger: Kona með vasa, olía á léreft, 1950. Norðurjóska listasafnið í
Álaborg.
Gerhard Richter á vinnustofu sinni í Köln 1989.Gerhard Richter: Lesandi, 1994, litljósmynd.
SJÓNSPEGILL
BRAGI ÁSGEIRSSON
Sími 585 4000
Innrásin í England & viðburðir ársins 1066
Vegna mikillar aðsóknar höfum við bætt við þriðju söguferðinni með Magnúsi Jónssyni á
slóðir BAYEUX refilsins og Heimskringlu í Normandí og Suður-Englandi.
13. maí - 22. maí • nokkur sæti laus.
22. júní - 1. júlí • uppselt.
8. júlí - 17. júlí • 4 sæti laus.
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa gulli betri