Morgunblaðið - 17.04.2005, Page 36
36 SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐANLóð - 101 Reykjavík
Til sölu byggingarréttur fyrir fjölbýlishús.
Byggingarmagn allt að 1.400 fm auk
bílageymslu.
Upplýsingar í síma 863 9360, Ólafur.
SUÐURLANDSBRAUT 16 • 108 REYKJAVÍK
SÍMI 585 9999 • FAX 585 9998
FÉLAG FASTEIGNASALA
OPIÐ HÚS KL. 15:00 TIL 17:00
ENGJASEL 70 - UNNUR TEKUR Á MÓTI ÞÉR!
WWW.EIGNAVAL.ISSigurður Óskarsson, lögg. fasteignasali
Rúmgóð og björt 109,2 fm 4ra
herbergja íbúð í góðu fjölbýlishúsi,
ásamt 30,7 fm stæði í bílskýli.
Rúmgóð stofa/borðstofa, gott opið
eldhús, gegnheilt eikarparket. bað-
herbergi með sturtu flísalagt, þrjú
svefnherbergi, möguleiki á fjórum,
þvottahús í íbúðinni. Hjólag. og sér-
geymsla í kjallara. V. 19,6 (4272)
Laugavegi 170, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 8-17.
Sími 552 1400 ● Fax 552 1405
www.fold.is ● fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er 694 1401.
Hagamelur 45 - 107 Reykjavík
Opið hús í dag milli kl. 14-16
Kelduhvammur 3 - Hafnarfirði
Opið hús í dag milli kl. 14-16
Viðar Böðvarsson, viðskiptafr. og lögg. fasteignasali.
Glæsilega 3ja herb íbúð. Tvö góð svefnherb., stór stofa og hol, allt
með nýlegu hvíttuðu eikarparketi. Aukaherbergi í risi. Stutt í Mela-
skóla og leikskóla, sundlaug í næsta húsi. Glæsileg eign með ótrú-
legu útsýni. Verð 18,4 millj. 6888
Ásdís og Ingimar sýna á sunnudag milli kl. 14-16.
Símar þeirra 694 3391 og 899 5099.
3ja herb. rúmlega 100 fm jarð-
hæð. Vorum að fá í sölu á þessu
vinsæla svæði í Hafnarfirði 3ja
herbergja neðri sérhæð í þessu
fallega húsi. Lokaður garður. Ný-
leg eldhúsinnrétting, góð her-
bergi og verönd.
Getur verið laus fljótlega.
NÁNARI UPPL. veitir Sigurður í síma 616 8880, Fold
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9-17:30.
Sími 588 4477
Um er að ræða glæsilega ca
95 fm 3ja herbergja endaíbúð
með sérinngangi á fyrstu
hæð. Sér suðurgarður.
Þvottahús í íbúð. Parket og
flísar á öllum gólfum.
Laus fljótlega. V. 20,5
Ingibjörg og Valtýr sýna.
Breiðavík 8
Opið hús í dag kl. frá 14-16
ÁLFASKEIÐ - 4RA HF.
Nýkomin í einkasölu mjög góð 111,1
fm fjögurra herbergja íbúð á annarri
hæð í góðu fjölb., auk bílskúrs 23,7 fm,
samtals 134,8 fm, vel staðsett við Álfa-
skeið í Hafnarfirði. Lýsing eignar: Góður
inngangur. Forstofa með góðum skáp.
Hol. Stórt og gott eldhús, falleg inn-
rétting og góður borðkrókur. Stór stofa
og borðstofa, útgangur á góðar suðursvalir. Svefnherbergisgangur. Þar er baðher-
bergi flísalagt með baðkari sem í er sturta, falleg innrétting. Tvö góð barnaher-
bergi. Hjónaherbergi með góðum skápum. Gólfefni er parket og flísar. Góð sér-
geymsla í kjallara. Gott sameiginlegt þvottahús í kjallara ásamt hjóla- og vagna-
geymslu. Góður bílskúr með rafmagni og rennandi vatni. Eignin er laus í síðasta
lagi 01.06. 2005. Verð 19,5 millj.
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-16
BÓLSTAÐARHLÍÐ 7 - SÉRHÆÐ - RVÍK
Nýkomin í einkasölu glæsileg
112 fm sérhæð á 2. hæð, auk
23 fm bílskúrs, í virðulegu fjór-
býli í Hlíðunum. Stofa, borð-
stofa, 3 svefnherbergi o.fl. Suð-
ursvalir. Laus í sept. 2005.
Svanhvít og Garðar
bjóða ykkur velkomin!
Í MORGUNBLAÐINU 18. mars
sl. er fjallað um í forystugrein viðtal
við Grím Hergeirsson hjá sveitarfé-
laginu Árborg. Þar er fjallað um
mikilvægi þess að setja saman sam-
fellda stundaskrá fyrir yngstu börn-
in til að dagskrá þeirra
sé lokið á sama tíma og
vinnudegi foreldra,
þannig að fjölskyldan
geti átt sameiginlegan
frítíma. Fullyrt var að
þessi markmið hefðu
hvergi orðið að veru-
leika og gæslan eftir
skóla væri eingöngu
gæsla en ekki nýtt í
uppbyggilegt starf.
Þetta er ekki rétt full-
yrðing hvað varðar
Reykjavíkurborg. Ég
sem starfsmaður
Íþróttabandalags
Reykjavíkur ætla eingöngu að tjá
mig hér um það sem snýr að íþrótt-
um í Reykjavík.
Það rétta er að íþróttafélögin í
Reykjavík starfrækja íþróttaskóla
fyrir sex ára börn sem byggist á
samvinnu íþróttafélaga, grunnskóla
og frístundaheimila. ÍTR sér um
rekstur frístundaheimila eftir að
stundaskrá grunnskólans lýkur.
Íþróttafélögin í Reykjavík reka
íþróttaskóla fyrir sex ára börn innan
ramma frístundaheimila.
Börnin fá íþróttatíma tvisvar sinn-
um í viku í beinu framhaldi af
stundaskrá grunnskólans þar sem
því er viðkomið og tímarnir eru á
flestum stöðum í íþróttasal skólans.
Það er aftur á móti rétt hjá Grími
að samvinna margra stofnana og
breyting á skipulagi er ekki einföld í
framkvæmd. Þó hafa sveitarfélög og
einstaklingar leitast við að koma á
nýju skipulagi, samanber Reykja-
nesbær, Kópavogur og Hafn-
arfjörður.
Vert er að minna á framlag
Reykjavíkurborgar.
Reykjavíkurborg
býður öllum sex ára
börnum endurgjalds-
laust í íþróttaskóla
tvisvar sinnum í viku
frá september út maí.
Það eru íþróttafélögin
Fram, Fylkir, Fjölnir,
KR, ÍR, Valur, Vík-
ingur og Þróttur/
Ármann sem sjá um
íþróttaskólann.
Félögin eru í sam-
vinnu við skólastjóra
grunnskóla og for-
stöðumenn frístunda-
heimila og vinna samkvæmt sameig-
inlegu skipulagi frá
Íþróttabandalagi Reykjavíkur.
Þetta er mikið og gott samstarf
sem hefur stuðlað að því að íþrótta-
félögin geta starfrækt íþróttaskól-
ann í beinu framhaldi af stundaskrá
grunnskóla innan ramma frístunda-
heimila ÍTR.
Íþróttaskólinn gengur vel og í vet-
ur eru um 75% sex ára barna í
íþróttaskólum í Reykjavík. Það þýð-
ir að þessi börn fá samtals fimm
íþróttatíma á viku (þrjá samkvæmt
námskrá grunnskólans plús tvo í
íþróttaskóla) eða einn hvern virkan
dag.
Þetta brautryðjandastarf er mik-
ilvæg reynsla sem hægt er að nýta
fyrir fleiri aldurshópa og æskilegt
væri að starfrækja einnig íþrótta-
skóla fyrir sjö og átta ára börn innan
tímaramma grunnskóla og frí-
stundaheimila.
Samstarf með þessum hætti verð-
ur ekki til með tilskipunum eða í ein-
stefnu. Fyrir utan aðalatriði með
peningamál þurfa í upphafi að vera
skýr markmið um leiðir og hlut-
verkaskipan auk trausts allra sam-
starfsaðila. Það þarf aðstöðu í
íþróttahúsi, íþróttakennara, samnýt-
ingu á ýmsu starfsfólki, skipulag frá
íþróttafélagi o.fl. Grunnskólinn,
íþróttahreyfingin og borgaryfirvöld
eru ólíkar stofnanir í sjálfu sér en
með það sameiginlegt að vilja þjón-
usta börn og þess vegna hefur sam-
starfið gengið. En eins og í öllu
starfi með börnum skiptir aðalmáli
að fólkið sem velst til starfa sé fag-
menntað og hafi gaman af að vinna
með börnum.
Íþróttaskólinn er kjörinn byrj-
unarreitur fyrir börn í íþróttum.
Meginmarkmið íþróttaskólans er
að kynna ýmsar íþróttagreinar í
leikrænu formi með það í huga að
sem flestir fái áhuga á að vera þátt-
takendur. Þar er lögð áhersla á
skemmtilega og jákvæða upplifun án
áherslu á keppni eða frammistöðu.
Það er mikilvægt fyrir börn að hafa
aðgang að fjölbreyttri hreyfiþjálfun.
Það er mikið talað um það þessa
dagana að íslensk börn séu of feit og
þau hreyfi sig ekki nóg. Lýð-
heilsustöð er að fara af stað með
verkefni á landsvísu þar sem sveit-
arfélög eru hvött til að mynda sér
stefnu og aðgerðaráætlun fyrir börn
varðandi hreyfingu og næringu.
Lýðheilsustöð segir að leggja skuli
áherslu á fleiri stundir í hreyfingu á
skólatíma. Þetta eru orð í tíma töluð
og nú er ekki eingöngu mikilvægt að
auglýsa lausnir heldur þurfa stjórn-
völd líka að setja fjármagn í verk-
efnið.
Ekki má gleyma foreldrum. Þeir
geta stutt við börnin sín og hvatt þau
til að vera þátttakendur í íþróttum
eða verið fyrirmyndir þeirra í raun.
Það er hægt að fara út að ganga og
hjóla, synda og leika sér. Það er eins
með börn og okkur fullorðna að okk-
ur þykir skemmtilegt að gera það
sem við erum góð í. Við verðum að
hafa það að leiðarljósi að reyna að
gera hreyfingu að skemmtilegum
viðburði. Áherslan í barnaíþróttum á
alls ekki að vera á árangur og færni
eða sigur og ættu foreldrar að var-
ast að gera slíkar kröfur til barna
sinna.
Rannsóknir sýna fram á að börn
vilja iðka íþróttir af þeirri einföldu
ástæðu að það er skemmtilegt og að
þeim finnst gaman að leika sér með
öðrum börnum.
Í ljósi þess samstarfs sem íþrótta-
félögin í Reykjavík, ÍBR, Grunn-
skólar Reykjavíkur og ÍTR fyrir
hönd Reykjavíkurborgar hafa átt við
framkvæmd íþróttaskóla fyrir sex
ára börn liggur fyrir að samstarfs-
grundvöllur er fyrir hendi og stærri
verkefni bíða úrlausnar.
Samstarf grunnskóla,
frístundaheimila og
íþróttafélaga í Reykjavík
Svava Oddný Ásgeirsdóttir
fjallar um íþróttaskóla fyrir
reykvísk börn ’Rannsóknir sýnafram á að börn vilja
iðka íþróttir af þeirri
einföldu ástæðu að það
er skemmtilegt og að
þeim finnst gaman að
leika sér með öðrum
börnum. ‘
Svava Oddný
Ásgeirsdóttir
Höfundur er starfsmaður Íþrótta-
bandalags Reykjavíkur og hefur
umsjón með íþróttaskóla.