Morgunblaðið - 17.04.2005, Side 40
40 SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞEGAR Íhaldsflokkurinn og
Frjálslyndi flokkurinn voru samein-
aðir á vordögum 1929 var annað af
tveimur grundvallarat-
riðum í stefnu hins nýja
flokks, Sjálfstæðis-
flokksins, „að vinna í
innanlandsmálum að
víðsýnni og þjóðlegri
umbótastefnu á grund-
velli einstaklingsfrelsis
og atvinnufrelsis með
hagsmuni allra stétta
fyrir augum“.
Undirritaður er
þeirrar skoðunar, að
fylgjendum nústarf-
andi Sjálfstæðisflokks
væri hollt að rifja upp
þetta grundvallaratriði, og aðgæta
sérstaklega hvernig það hefir reynzt
í framkvæmd hin síðari árin undir
stjórn þeirra manna, sem nú ráða
för.
Lengst af fylgdi Sjálfstæðisflokk-
urinn þessum stefnumiðum af kost-
gæfni. Þar kom þó fyrir einum og
hálfum áratug, að sveigt var þvert af
leið og alveg ný stefna tekin. Stefna,
þar sem athafnafrelsi einstaklingsins
er stórlega skert eða heft með öllu.
Gleggstar eru þessar aðfarir í
sjávarútvegsmálum. Það er stað-
reynd, að undirstaða þeirra bylting-
arkenndu framfara, sem urðu á Ís-
landi frá stríðslokum og fram eftir
öldinni sem leið, var óheft frelsi ein-
staklinganna til athafna í sjávarút-
vegi um gjörvalla landsbyggð. Önnur
uppbygging átti svo rót sína að rekja
til þeirrar framfarasóknar.
Nú hinsvegar er allri sjósókn mið-
stýrt. Stjórnvöld hafa tekið ráns-
hendi auðlind fiskimiðanna og afhent
hana fáum útvöldum að gjöf. Og
hagsmuna þeirra gætt með lögreglu-
valdi lénsskipulagsins.
Miskunnarlausum áróðri og
ósannindum er beitt til varðgæzlu
þessa gjafafjár í höndum örfárra sæ-
greifa. M.a. með því að fullyrða að að-
ferðin ætti að bjarga fiskstofnum við
landið, þótt reynslan sýni ótvírætt að
því er öfugt farið. Árin 1950 til 1972
var meðalafli þorsks á Íslandsmiðum
438 þús. tonn. Um áratuga skeið hef-
ir jafnstöðuafli þorsks
ekki numið helmingi
þess magns. Að vísu
skal þess getið, að
kunnugir menn telja að
brottkast afla nemi
uppundir því sama og
berst að landi.
Þarna hafa menn þá
fyrir augum fram-
kvæmd víðsýnnar um-
bótastefnu hins nýja
Sjálfstæðisflokks „á
grundvelli einstaklings-
frelsis og atvinnufrelsis
með hagsmuni allra
stétta fyrir augum“. Kjörorðið „Stétt
með stétt“ er orðið að halakleppi í
rófu hins nýja íhaldsflokks, þar sem
frelsi einstaklingsins til orða og at-
hafna er fyrir borð borið.
Í stað lýðræðis hefir ofbeldiskennt
flokksræði fest rætur, sem nálgast
einræði. Þingræðið er fótum troðið
og þinglið ráðstjórnarmanna barið til
bókar með þeim hætti, að hvorki þor-
ir að æmta né skræmta – utan einn
einasti maður. Dómsvaldinu er ætlað
að standa vörð um hagsmuni aðalsins
og lög sett ef æðstaráði mislíka dóm-
ar.
Á síðasta ári hófu ráðstjórnar-
menn sókn á hendur fjórða valdinu,
fjölmiðlum, en urðu frá að hverfa um
sinn.
Í Alþingistíðindum 1940 má lesa
eftirfarandi eftir Vilmund Jónsson,
landlækni, þar sem hann ræðir um
afskiptasemi framsóknarmennsk-
unnar, og telur, að þeir séu ófáir,
„sem hafa orðið varir við og fengið á
að kenna hinu hálf- og alnazistíska
ófrelsi, íhlutunarsemi, slettireku-
skap, snuðri og jafnvel hótunum, sem
virðast vera að leggjast eins og pe-
starfarg yfir allt andlegt líf í þessu
landi“.
Vilmundur Jónsson var stuðnings-
maður framsóknar-kratastjórnar við
myndun hennar 1934. En hann var
einarður maður, sem aldrei fór í
launkofa með skoðanir sínar.
Sagan endurtekur sig. Þeim fer
fjölgandi, sem sjá og skilja, að orð
Vilmundar eiga mætavel við þá ógn-
arstjórn, sem nú situr við völd á Ís-
landi, og er þar sízt ofmælt.
Pestarfarg
Sverrir Hermannsson
fjallar um stjórnmál ’Á síðasta ári hófu ráð-stjórnarmenn sókn á
hendur fjórða valdinu,
fjölmiðlum, en urðu frá
að hverfa um sinn.‘
Sverrir Hermannsson
Höfundur er fv. form.
Frjálslynda flokksins.
Skipholti 29a,
105 Reykjavík
fax 530 6505
heimili@heimili. is
Einar Guðmundsson, lögg. fast.
Finnbogi Hilmarsson, lögg. fast.
Bogi Pétursson, lögg. fast.
sími 530 6500
Skólavörðustíg 13
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
Reynir Björnsson
lögg. fasteignasali
Karlagata 15
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
Mjög glæsileg og mikið endurnýjuð 2ja herbergja 52 fm hæð á 1. hæð (aðalhæð) í þrí-
býlishúsi. Komið er inn í hol. Björt stofa með parketi á gólfi og fallegum hornglugga.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og nýlegum skáp. Endurnýjað baðherbergi með fal-
legum náttúruflísum á gólfi, flísum á veggjum, baðkari, hita í gólfi og glugga. Glæsi-
legt eldhús með parketi á gólfi, nýlegri maghóní innréttingu, flísalagðri borðplötu og
borðkrók með flísalögðu borði sem fylgir. Í sameign er sameiginlegt þvottahús og sér
geymsla. Íbúðin getur verið laus strax. Verð 13,9 millj.
Reynir býður gesti velkomna í dag frá kl. 14-16. Teikningar á staðnum.
Geitland 6
Frábærlega staðsett, björt og rúmgóð 3ja herbergja 96,4 fm íbúð á 1. hæð í góðu fjöl-
býlishúsi við Fossvoginn í Reykjavík. Íbúðin er mjög vel skipulögð með tveimur stór-
um svefnherbergjum, stóru eldhúsi og rúmgóðri stofu með útgangi á suðursvalir.
Baðherbergi er endurnýjað að hluta með flísum í hólf og gólf, baðkari og glugga. Á
gólfum er parket og dúkur. Á hæðinni er sameiginegt þvottahús og sérgeymsla. Eign-
inni fylgir sérgarður fyrir framan íbúðina. Mjög stutt er í frábært útivistarsvæði í Foss-
vogsdal, skóla, leikskóla, verslanir o.fl. Íbúðin er laus 1. júní eða fyrr. Verð 19,9 millj.
Anna Linda býður gesti velkomna í dag frá kl. 14-16. Teikningar á staðnum.
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
OPIÐ Í DAG MILLI KL. 12 OG 14
ÁLFASKEIÐ - HAFNARFIRÐI - 4RA-5 HERB.
125 fm björt og rúmgóð 4ra-5 her-
bergja endaíbúð á 2. hæð í góðri
blokk, ásamt 24 fm bílskúr. Hol með
skáp, eldhús með borðkrók og ný-
legri innréttingu, þar innaf þvottahús
og búr, stór stofa með útgengi á
suðvestursvalir, þrjú góð svefnher-
bergi og baðherbergi. Hægt að
bæta við fjórða herberginu úr stofu.
Parket og flísar á gólfum. V. 20,4 m. 4182
SUÐURHÓLAR - ALLT SÉR
Rúmgóð og vel skipulögð 3ja her-
bergja endaíbúð á 1. hæð í litlu fjöl-
býli með sérsuðurgarði. Sérinn-
gangur, forstofa, hol, stofa með út-
gengi í afgirtan 50 fm suðurgarð,
eldhús með ágætum innréttingum
og borðkrók. Gangur frá holi, en þar
er hjónaherbergi með skápum og
gott baðherbergi með tengt fyrir þvottavél og þurrkara. Gott barnaherbergi
frá holi. Sérgeymsla við inngang í íbúðina og almenn sameign á jarðhæð.
Mjög þægileg íbúð í litlu fjölbýli, þar sem allt er nánast sér, lítil sameign.
Húsið er í góðu ástandi og búið er að klæða gafla. Möguleiki á sólskála.
V. 17,4 m. 4500
RAUÐARÁRSTÍGUR - LAUS
Góð 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í
litlu fjölbýli. Íbúðin er á götuhæð
Skarphéðinsgötu-megin. Nýtt park-
et á gólfum. Þvottahús í sameign
við hlið íbúðar. Gott gler og gluggar.
Hús í góðu ástandi. Laus strax.
V. 10,4 m. 4129
HOFTEIGUR - 3JA HERB. ÍBÚÐ
Rúmgóð 81 fm 3ja herbergja íbúð í
kjallara í góðu tvíbýlishúsi. Fremri
forstofa, hol, eldhús með nýlegri
innréttingu, stofa með gluggum á
þrjá vegu, baðherbergi, tvö góð
svefnherbergi. Á gólfum er parket,
flísar, korkflísar og dúkur. Íbúðin er
töluvert endurbætt, m.a. ný útihurð,
gler og gluggar að hluta, raflagnir
og fleira. Húsið er næst innsta hús
við Hofteig og er „uppí lóð“ Hof-
teigsmegin og einnig frá Reykjavegi. V. 15,9 m. 4453
STARFSMÖNNUM Morgunblaðs-
ins hefur löngum verið annt um ís-
lenskt mál. Blaðið er að jafnaði vel
skrifað og prófarkavinna til fyr-
irmyndar. Stundum ber á fornri
stafsetningu eins og notkun set-
unnar sem aflögð var með lögum
frá Alþingi fyrir meira en 30 ár-
um. Ritháttur af því tagi er
skemmtileg sérviska og veldur
engum usla í skólakerfi landsins.
Með tölvutækninni hefur opnast
ný boðskiptaleið sem kennd hefur
verið við netið og Morgunblaðið
hefur fært sér í nyt með ágætum
árangri. Um leið hefur blaðið tekið
upp stefnu sem virðist ganga gegn
íslenskri stafsetningu og skrifar
netið ætíð með stóru N-i. Í enskri
tungu er notkun stórs stafs mun
algengari en í íslensku og hugs-
anlega er Morgunblaðið að taka
upp þá hefð. Netið er þó ekki ætíð
skrifað með stórum staf á því mál-
svæði. Ef Morgunblaðið álítur
notkun stóra stafsins viðeigandi
yfir netið er ekki úr vegi að benda
blaðinu á að skrifa jafnframt sjón-
varp, útvarp, dagblöð, tímarit með
stórum staf – en miðlar af þessu
tagi komu til sögunnar á undan
netinu. Ef blaðinu finnst það ekki
við hæfi ætti blaðið að endurskoða
notkun stóra stafsins yfir netið
stóra og stórkostlega.
HELGI GUNNLAUGSSON
prófessor,
Otrateigur 42, Reykjavík.
Netið eða netið
Frá Helga Gunnlaugssyni:
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111