Morgunblaðið - 17.04.2005, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 41
UMRÆÐAN
Stórglæsilegt glænýtt
sumar- /heilsárshús
á einstökum útsýnisstað í
suðurhlíðum Skarðsheiðar
Hrísabrekka 22 í landi Eyrar (Svínadal)
ca 60 km frá Reykjavík
Nánari upplýsingar veitir Ingólfur sölum.
gsm 896 5222.
Söluaðili:
● Verð aðeins 11,9 millj.
● Ýmsir lánamöguleikar í boði, leitið uppl. hjá Ingólfi sölum. Valhallar 896 5222.
Sími 5 88 44 77 Ingólfur G. Gissurarson Löggildur fasteignasali
Um er að ræða nýtt glæsilegt fullbúið 62 fm heilsárshús á einni hæð, fullbúið, til afhendingar strax með öllum
nútímaþægindum, í fögru, stórbrotnu og rólegu umhverfi í u.þ.b. 40 mín. akstursfjarlægð frá Rvík. Glæsilegt útsýni yfir
Svínadal og sveitina sunnan Skarðsheiðar. Húsið, sem er byggt á staðnum, er klætt utan með vönduðum
bjálkapanil, litað bárustál á þaki, er með mahóní-gluggum + hurðum og með fullkomnu einangrunargleri. Allur
frágangur að innan fyrsta flokks. Tvö rúmgóð svefnherbergi, forstofa með stórum skápum. Baðherbergi með
gufusturtuklefa sem er með nuddstútum, útvarpi og mögul. á cd. Glæsilegt eldhús með stórum ísskáp/frysti, veggofni,
keramikhelluborði, innfelldri uppþvottavél, gufugleypi o.fl. Borðstofa og stofa. Parket á gólfum, náttúrusteinn á
forstofu og baði. Einangruð og upphituð geymsla við hlið hússins (áföst). Upphitun hússins er að hluta með
rafmagnsofnum (í herb.) en aðallega með fullkominni lofthitun sem er mjög sparneytin á rafmagn. Möguleiki að fá
kamínu ef áhugi er fyrir því. Möguleiki að hafa þvottavél og þurrkara í geymslunni. Sjónvarpsloftnet og tengingar
frágengið.
Þetta hús er til afhendingar strax, tvö önnur sams konar ný hús eru í boði á öðrum lóðum í nágr. eða í rauninni hvar
sem er, fyrir hvern sem er. Á því byggingarstigi sem fólk vill. Gott verð fyrir mikil gæði og vandaða vinnu hjá
öruggum aðila, sem er Fjölur ehf. Sjá nánar á fjolur.is þar er kort og leiðarlýsing að svæðinu/ húsinu. Allar nánari
upplýsingar veitir Sigbjörn í Gsm 897 7151.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
FURUGERÐI - GLÆSILEG
4ra herb. stórglæsileg íbúð í litlu fjölbýli.
Íbúðin skiptist í hol, baðherbergi, 3 svefn-
herbergi, stofu og eldhús. Íbúðin var öll
standsett fyrir örfáum árum á mjög mynd-
arlegan hátt. Veggir voru færðir til, eldhús
stækkað, skápar endurnýjaðir, gólfefni o.fl.
V. 22,9 m. 4619
FLÉTTURIMI - RÚMGÓÐ
Vorum að fá í sölu mjög fallega 93 fm 3ja
herb. íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýlishúsi við
Flétturima í Grafarvogi. Íbúðin skiptist m.a. í
rúmgóða stofu og tvö herbergi. Þvottahús í
íbúð. Rúmgóðar svalir. V. 17,8 m. 4927
BERGÞÓRUGATA - RÚM-
GÓÐ Vorum að fá í sölu mjög fallega 81
fm 3ja herb. íbúð á 2. hæð í 4-býlishúsi við
Bergþórugötu. Parket á gólfum. Húsið hef-
ur nýlega verið standsett. Mjög snyrtileg
sameign. Baklóð. 4928
SKARPHÉÐINSGATA Vel stað-
sett 37 fm ósamþykkt kjallaraíbúð í Norður-
mýrinni með sérinngangi. Íbúðin skiptist í
hol, eldhúskrók, stofu og baðherbergi með
sturtuaðstöðu. V. 7,8 m. 4915
BERGSTAÐASTRÆTI -
LAUST STRAX Vel staðsett 65 fm
einbýli við Bergstaðastræti í Reykjavík.
Húsið skiptist í tvær íbúðir og er hvor um
sig með sérinngangi. Lóðin er 118 fm eign-
arlóð. Húsið hefur tölvert verið endurnýjað
á síðustu árum, m.a. járn, lagnir og skólp
að hluta. V. 15,9 m. 4901
HÁTEIGSVEGUR Vel staðsett
71,8 fm 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í húsi
sem stendur á stórri hornlóð auk aukaher-
bergis í kjallara. Eignin skiptist í hol, eldhús,
herbergi, stofu, borðstofu og baðherbergi.
Íbúðin sjálf er að mestu leyti í upprunalegu
ástandi. Parket er undir teppum í íbúð.
V. 13,9 m. 4917
EFSTALAND Falleg 2ja herbergja
íbúð á jarðhæð í Fossvoginum sem skiptist
í hol, baðherbergi, eldhús, svefnherbergi og
stofu. Sérgeymsla. V. 11,9 m. 4906
HOLTSGATA Góð 90,3 fm 4ra her-
bergja íbúð á 2. hæð við Holtsgötu í
Reykjavík. Eignin skiptist í gang, stofu,
borðstofu, tvö herbergi, eldhús og baðher-
bergi. Sérgeymsla í kjallara og sameiginlegt
þvottahús. Bílastæði á baklóð. V. 17,9 m.
4914
BYGGÐARENDI - MEÐ AUKAÍBÚÐ
Glæsilegt 363 fm einbýli með tveimur samþykktum íbúðum og innbyggðum bílskúr. Húsið
hefur verið mjög mikið endurnýjað. Á efri hæðinni er forstofa, hol, stórar samliggjandi stof-
ur, sólstofa, arinstofa, eldhús, baðherb. og hjónaherb. Á neðri hæðinni er hol, herbergi,
geymsla og sjónvarpsherbergi, auk 105 fm 3ja herbergja íbúðar, sem skiptist í forstofu,
innra hol, eldhús, tvö herbergi, baðherbergi og stofu. 4833
REYRENGI - GLÆSILEGT
Vorum að fá í sölu glæsilegt 195 fm nýlegt parhús á tveimur hæðum með innbyggðum
bílskúr. Húsið skiptist m.a. í stofu, borðstofu og 4-5 herbergi. Mikil lofthæð er á efri hæð
hússins. Vandaðar innréttingar. Húsið stendur innst í botnlanga á rólegum stað. Stór
timburverönd með skjólvegg. Glæsilegt útsýni er úr húsinu. V. 41,8 m. 4926
DIGRANESVEGUR - MJÖG FALLEGT
Vorum að fá í sölu mjög fallegt 226 fm parhús á tveimur hæðum. Húsið er byggt árið
1955 en hefur verið mikið standsett. Húsið skiptist m.a. í tvær stofur og fimm herbergi.
Möguleiki er á aukaíbúð í kjallara. Rúmgóður bílskúr á tveimur hæðum. Á neðri hæð bíl-
skúrs er herbergi og geymsla. Glæsilegt útsýni. Fallegur garður til suðurs. Göngufæri í
þjónustu. Sjá myndir á heimasíðu Eignamiðlunar. Nánari upplýsingar veitir Magnea fast-
eignasali í síma 861 8511. V. 35,8 m. 4699
STUNDUM er talað um Ak-
ureyri sem hið bjarta norður.
Slagorð bæjarins er Öll lífsins
gæði. Bæjarfélagið hefur blásið til
sóknar í því skyni að
fjölga bæjarbúum.
Rætt er um þörf þess
að fá menntað og gott
fólk til starfa. For-
ráðamenn Akureyrar
leita logandi ljósi að
nýjum atvinnutæki-
færum til að svo megi
verða.
Á Akureyri er gefið
út blað sem kallast
Vikudagur og kemur
út einu sinni í viku.
Þetta er eini ritmiðill
hins bjarta norðurs
sem gefur reglulega út fréttatengt
efni. Á forsíðu Vikudags fimmtu-
daginn 14. apríl síðastliðinn gaf að
líta „forsíðufrétt“ undir fyrirsögn-
inni: „Íbúðarheildsalar frá Reykja-
vík teygja arma sína til Akureyr-
ar“. Áður en undirritaður las
lengra spurði hann í huga sér:
Hvað með það? Er ekki landið allt
eitt atvinnusvæði? Hver er frétt-
in?
En áfram var lesið og skautað
yfir setningar þar sem lókal bygg-
ingamaður viðurkennir að „við-
ræður væru í gangi við slíkan að-
ila“. Og hvað með það? Enn spurði
ég sjálfan mig þeirrar spurningar
en fann alvöru málsins í loka-
orðum fréttarinnar: „Það er slæmt
til þess að vita að gróðabraskarar
úr Reykjavík ætli að fara að
sprengja upp íbúðaverð hér í okk-
ar fallega bæ og gera þá t.d. ungu
fólki erfitt með að eignast eigin
íbúð, nóg er samt. Það eru tilmæli
Vikudags til væntanlegra íbúðar-
kaupenda að þeir eigi
ekki viðskipti við
gróðabraskara að
sunnan sem vænt-
anlega hækka íbúða-
verðið um milljónir
króna.“
Hvað getur maður
sagt að loknum slík-
um lestri? Ekki er
hægt að kenna um
viðvaningshætti af-
leysingamanns því
fréttamaðurinn sem
skrifar undir fréttina
með stöfunum HH er
jafnframt ritstjóri blaðsins! Hvað
kann hann fyrir sér í fjölmiðlun?
Hver er sýn hans á samfélagið?
Hver er ábyrgð hans gagnvart les-
endum? Fyrir hverja er hið bjarta
norður? Hverjir mega njóta allra
lífsins gæða?
Ritstjórinn alhæfir um „gróða-
braskara úr Reykjavík“ eins og að
allt fólk þaðan hljóti að vera boð-
berar hins illa. Að sunnanmenn
séu óvelkomnir í „okkar fallega
bæ“. Svo eru það tilmælin sem
koma fram í fréttinni. Að Viku-
dagur skori á lesendur að hunsa
viðskipti við sunnanmenn. Hefur
blaðið leyfi til þess í frétt? Þurfa
lesendur blaðsins að sætta sig við
að fréttirnar séu fyrst og fremst
málpípa mannsins sem ritar þær?
Öllum er frjálst að hafa skoð-
anir og hefur sá sem hér ritar
hvatt til skarplegra skoðanaskipta
og opinnar umræðu á sem flestum
sviðum. Skoðun Hjörleifs kemur
hér sannarlega fram en vettvang-
urinn er varla boðlegur. Að dulbúa
ótta og vanmáttarkennd ritstjór-
ans gagnvart íbúum höfuðborg-
arsvæðisins í fréttaskötuselslíki er
dálítið skuggalegt. Ólíklegra er
einnig að þeir sem búa utan Ak-
ureyrar hafi áhuga á að koma inn
í samfélag þar sem staðarfjölmið-
illinn nánast staðhæfir í forsíðu-
frétt (án þess að hafa það eftir
nokkrum öðrum en sjálfum sér) að
allt sé illt sem komi að sunnan.
Ritstjórinn má skrifa greinar og
leiðara um eigin þröngsýni en hlíf-
um fréttunum við slíku. Ég sem
íbúi á Akureyri skammast mín
fyrir að eini fréttaprentmiðill Ak-
ureyrar skuli ekki standa sig fag-
legar en raun ber vitni.
Hið bjarta norður
– fyrir hvern?
Björn Þorláksson fjallar
um fréttaflutning Vikudags
á Akureyri ’Að dulbúa ótta og van-máttarkennd ritstjórans
gagnvart íbúum höfuð-
borgarsvæðisins í
fréttaskötuselslíki er
dálítið skuggalegt.‘
Björn Þorláksson
Höfundur er rithöfundur
og fréttamaður.