Morgunblaðið - 17.04.2005, Síða 50
50 SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
HUGVEKJA
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054 897 4236
Bíldudalur Gísli Snær Smárason 456 2207 456 2158
Blönduós Björn Svanur Þórisson 452 4019 864 4820
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík Marenia Kristín Hrafnkelsd. 475 6662 8606849
Búðardalur Aron Snær Melsteð 434 1449
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Helgi Týr Tumason 478 8161 864 9207
Egilsstaðir Þurý Bára Birgisdóttir 471 2128 8620543
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna S. Eiríksdóttir 475 1260 475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Erla Ösp Ísaksdóttir 848 5361
Grenivík Hörður Hermannsson 463 3222 848 3397
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 4386858/8549758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur/Rif Aron Jóhannes Leví Kristjánss. 4366925
Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Elísabet Sigurðardóttir 894 0387 464 1987
Hvammstangi Harpa Vilbertsdóttir 451 2455 892 0644
Hveragerði Sveinn og Erna 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 4878172/8931711/853 1711
Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Hjörtur Freyr Snæland 486 8874
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 477 1124
Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2650 866 7958
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305 899 6904
Patreksfjörður Sigríður Valdís Karlsdóttir 456 1119 456 1349
Raufarhöfn Örvar Sigþórsson 456 1287
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488 892 0488
Reykholt Bisk. Oddur Bjarni Bjarnason 486 8900
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð v/Mýv. Þórunn Snæbjörnsdóttir 464 4464
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 854 7488
Selfoss Sigdór Vilhjálmsson 846 4338
Seyðisfjörður GB Bjartsýn ehf, Birna 472 1700 897 0909
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Kristín Björk Leifsdóttir 452 2703 849 5620
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 430 1414
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Anna Elísa Karsldóttir 456 4945
Tálknafjörður María Berg Hannesdóttir 456 2655
Vestmannaeyjar Guðrún Kristín Sigurgeirsd. 481 3293 699 3293
Vík í Mýrdal Æsa Gísladóttir 867 2389
Vogar Una Jóna Óafsdóttir 421 6910 663 0167
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 820 3463
Þingeyri Hildur Sólmundsdóttir 456 8439 867 9438
Þorlákshöfn Íris Valgeirsdóttir 483 3214 8486214
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249 468 1515
DREIFING MORGUNBLAÐSINS
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
Staður Nafn Símanúmer Staður Nafn Símanúmer
Það virðist nú vera komiðsvo, að frelsið í trúmál-unum hafi leitt til hinsmesta glundroða ogþað hafi dregið úr
áhuga manna á þessum efnum.
Ég vil ákveðið benda á það, að
þótt einhverjar eða margar kenn-
ingar kirkjunnar standist ekki
dóm nútímamanns, þá mega
menn ekki dæma allt starf kirkj-
unnar lítils virði – og því síður láta
kristindóminn – kenningar Krists
– gjalda þess, með tómlæti – eða
beinlínis andstöðu. Trúarbrögðin
– og þá ekki sízt kristindómurinn
– eru leit mannsandans að upp-
hafi sínu – og takmarki – þau eru
leitin að hinum leyndardómsfulla
veruleika – Guði – leit – að hinni
sameiginlegu uppsprettu alls,
sem lifir og hrærist.
Kristindómurinn á að örfa and-
lega framsókn manna til dýpri
skilnings á hinum hinztu rökum
og eilífðareðli mannsins. Þessi
framsókn á ekki að vera bundin
vafasömum kennisetningum.
Þessi leit á að vera frjáls og
óþvinguð – því að „bókstafurinn
deyðir, en andinn lífgar“…
Það er skylda kennara og
presta að gæta þess fyrst og
fremst að glæða trúarþelið, eða
opna sálir barnanna fyrir anda
Krists, en gera ekki of mikið af
því að halda fast að unglingunum
mörgum kennisetningum, þar
nægir kjarninn úr kenningu
Krists.
Það er talað um það, að hjá
þeirri kynslóð, er nú lifir, sé
mannadýrkun mikil – og því mið-
ur er ekki tignað það bezta í
manneðlinu. Menn hugsa mest
um formsatriðin, hin yfirborðs-
kenndu verðmæti lífsins, en
skeyta minna um hinn dýpsta
veruleika og að hinar fögru hug-
sjónir verði að veruleika dagsins.
– Þeir eru alltof fáir, sem hægt er
að segja um að séu leitandi sálir,
sem þrái að fá svör við dýpstu
vandamálum lífsins. Þeir eru of
fáir, sem hugsa um tilveru Guðs,
um það hvort sálin sé eilíf og hver
styrkur sé að því að eiga kristi-
lega lífsskoðun. Sá, sem leitar,
hann finnur – en hinn tómláti og
skeytingarlausi fer alls á mis í
þessum efnum. Leitin til hins
allra helgasta í sálarlífi sjálfs sín
borgar sig áreiðanlega. Það er
leiðin að hinum æðsta sannleika
og hinni sönnu hamingju. Það er
leitin að „Guði í alheimsgeimi og
Guði í sjálfum þér“…
Vér verðum að játa, að vega-
nesti það, sem vér veitum börnum
og unglingum út í lífsbaráttuna,
er eigi nógu gott. – Það veitir alls
ekki þá kjölfestu, sem þarf í
hringiðu nútímans.
Það hefir verið sagt, að höndin,
sem ruggi vöggunni, stjórni heim-
inum. Þetta er mun meiri sann-
leikur en margur hyggur. Það er
alkunna, að maðurinn býr lengi að
þeim áhrifum, sem hann verður
fyrir í bernsku. En ég álít, að
mæðurnar gæti þess eigi nú, að
þær eru – eða eiga að vera beztu
kennarar barnanna. Það er mín
skoðun, að alltof margir foreldrar
vanræki að leiða börnin sín til
Guðs, til hinnar einu og eilífu upp-
sprettu hamingju – og hnýta þar
þau bönd, er aldrei slitni, hvað
sem á gengur.
Mjög er það áberandi, hve tíð-
arandinn er frábitinn og fráhverf-
ur trúmálum. Þetta kemur fram í
svo mörgu. Ég spyr: Hvað heyra
börnin á heimilunum, t.d. hjá for-
eldrunum um kristindóm, kirkju-
mál og presta? Þessi áhrif eru í
mörgum tilfellum síður en svo örf-
andi fyrir trúarlíf unglingsins.
En, eru menn vissir um, að þeir
séu að þjóna sannleikanum og
stuðla að hamingju unga fólksins
með þessari neikvæðu og stund-
um óvingjarnlegu afstöðu sinni til
trúarbragðanna og kirkjunnar?
Það er þetta tómlæti almennings
og í sumum tilfellum kaldhæðni,
sem er eyðileggjandi fyrir trúar-
lífið yfirleitt.
Ef menn hafa nokkra trú á því,
að áhrif kristindómsins séu holl
eldri sem yngri – þá verða heim-
ilin á þessu landi að breyta af-
stöðu sinni – breyta þeim anda,
sem ríkir í garð kirkjunnar og
trúarlífsins. Menn verða þá að
eiga þá sannfæringu, að trúin sé
ekki hégómi, og menn verða að
eiga sjálfir þann helgidóm trúar-
lífsins, sem þeir geta leitt börn og
unglinga inn í.
Mér finnst það vart hugsanlegt,
að menn séu yfirleitt ánægðir með
ástandið eins og það er. Það er
alls ekki nóg að æskja eftir eða
heimta öðruvísi trúarlærdóma og
helgisiði og betri presta. – Menn
verða að líta nær sér – það verður
– ég vil segja, fyrst og fremst að
fara fram breyting á mörgum
heimilum – hugsun og hegðun eða
mati á starfi kirkjunnar, og gildi
kristindómsins.
Ef þú vefengir og rífur niður
margt í trúmálum – í sál barnsins
– og innrætir því lítilsvirðingu á
þessum efnum – þá verður þú að
gefa því eitthvað gott í staðinn.
En ertu þá viss um að þú sért að
þjóna sannleikanum? Og hvað
viltu gefa barninu í stað bæn-
arinnar og trúarþelsins? Ég er
hræddur um, að það yrðu steinar
fyrir brauð. Ég er sannfærður
um, að nútímakynslóðin verður að
breyta afstöðu sinni til trúar og
bænrækni, ef hún vill beina næstu
kynslóð á veg sannleikans og gæf-
unnar. Andrúmsloft tíðarandans
þarf að breytast – og vér þurfum
að gæta þess að stilla strengi
barnssálnanna til hærri og feg-
urri tóna en hins ríkjandi tíð-
aranda, sem sanna, að öruggt
samband er milli Guðs og manns-
ins…
Gleymum því aldrei, að trúin er
oss ómetanlegur skjöldur í hret-
viðrum lífsins. Minnumst orðanna
– að
„sú þjóð, sem í gæfu og gengi vill búa,
á Guð sinn og land sitt skal trúa.“
Tíðarandinn
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Fyrir tæpum 60 ár-
um ritaði prestur
nokkur, Þormóður
Sigurðsson, hugvekju
og var mikið niðri
fyrir. Sigurður
Ægisson ákvað að
birta hana nær alla,
og orðrétta, sem pist-
il dagsins, enda er
engu líkara en að ver-
ið sé að tala inn í íslenskt
þjóðfélag 21. aldar.
GUÐNI Ólafsson og Ásgeir Sölva-
son tryggðu sér Súgfirðingaskálina
með góðum endaspretti. Sneru á for-
manninn og meðspilara hans í loka-
umferðinni.
Fjórða og síðasta lota í tvímenn-
ingsmóti Súgfirðingafélagsins var
spiluð um helgina í sal Stangaveiði-
félags Reykjavíkur. Keppnin var í
fjórum lotum og giltu þrjú beztu
skorin til verðlauna. Alls spiluðu 10
pör í mótinu.
Lokastaðan:
Guðni Ólafsson - Ásgeir Sölvason 377
Björn Guðbj.s. - Gunnar Ármannsson 357
Einar Ólafsson - Sigurður Kristjánsson 353
Valdimar Ólafsson - Karl Bjarnason 336
Arngrímur Þorgr.s.- Leifur Harðarson 334
Meðalskor 324.
Úrslit í fjórðu lotu:
Arngr. Þorgr.s. - Sigurp. Ingibergss. 139
Guðni Ólafsson - Ásgeir Sölvason 138
Björn Guðbj.s. - Gunnar Ármannsson 109
Spilastjóri var Sigurpáll Ingibergs-
son. Keppni um Súgfirðingaskálina
hefst aftur í haust. Formaður Súgfirð-
ingafélagsins er Björn Guðbjörnsson.
Bridsfélag Reykjavíkur
Annað kvöldið í barómeterkeppni
félagsins var spilað þriðjudaginn 12.
apríl. Félagarnir Matthías Þorvalds-
son og Magnús Magnússon hafa
skorað jafnt og þétt í keppninni og
náðu efsta sætinu af Ómari Olgeirs-
syni og Páli Þórssyni sem þó koma í
humátt á eftir. Eftirtalin pör náðu
hæsta skorinu á öðru spilakvöldinu:
Matthías Þorvaldss. – Magnús Magnúss. 111
Ísak Örn Sigurðss. – Guðjón Sigurjónss. 87
Garðar Garðarss. – Kristján Kristjánss. 67
Ómar Olgeirsson – Páll Þórsson 60
Staða efstu para er nú þannig:
Matthías Þorvaldss. – Magnús Magnúss. 190
Ómar Olgeirsson – Páll Þórsson 176
Bernódus Kristins. – Hróðmar Sigurbjss. 132
Gylfi Baldurss. – Sigurður B. Þorsteinss. 129
Guðjón Bragason – Hermann Friðrikss. 85
Guðrún Jörgensen – Guðlaugur Sveinss. 60
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK Gullsmára spil-
aði tvímenning á 15 borðum fimmtu-
daginn 14. apríl. Miðlungur 264.
Beztum árangri náðu í NS:
Dóra Friðleifsdóttir – Jón Stefánsson 339
Kristinn Guðmss. – Guðm. Magnússon 328
Sigurður Herlufsen – Stígur Herlufsen 307
Guðm. Guðveigsson – Guðjón Ottósson 293
AV
Sigtr. Ellertss. – Þorsteinn Laufdal 354
Tómas Sigurðsson – Ernst Backmann 351
Oddur Jónsson – Haukur Guðmundsson 301
Unnur Jónsson – Jónas Jónsson 273
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Glæsibæ, mánudaginn 11.4.
Spilað var á ellefu borðum. Meðal-
skor 216 stig.
Árangur N–S:
Helgi Hallgrímsson – Jón Hallgrímss. 261
Jón Karlsson – Sigurður Karlsson 239
Oddur Halldórsson – Viggó Nordqvist 234
Árangur A–V:
Örn Sigfússon – Halla Ólafsdóttir 280
Bragi Björnsson – Albert Þorsteinss. 267
Magnús Oddsson – Magnús Halldórss. 248
Bridsfélag Kópavogs
Þegar einu kvöldi af fjórum er
ólokið í Butler-tvímenningi félagsins
er ljóst að ekki hafa allir sagt sitt síð-
asta orð og baráttan verður hörð á
lokakvöldinu um sigurinn.
Staða efstu para:
Hermann Friðrikss. – Ómar Olgeirss. 118
Guðm. Baldurss. – Steinberg Ríkharðss. 105
Ragnar Björnss. – Sigurður Sigurjónss. 88
Loftur Péturss. – Sigurjón Karlss. 86
Hæsta skor síðasta spilakvöld:
Helgi Bogason – Vignir Hauksson 67
Jón St. Ingólfsson – Þorsteinn Berg 60
Eggert Bergsson – Unnar A. Guðmss. 51
Hermann Friðriksson – Ómar Olgeirsson 48
Bridgefélag Selfoss
og nágrennis
Íslandsbankabarómeterinn, sem
er 2 kvölda tvímenningur, hófst sl.
fimmtudag 14. apríl. Til leiks mættu
10 pör, og eru spiluð 6 spil á milli
para. Þessi pör skoruðu flest stig:
Brynj. Gestsson – Guðm. Theodórsson 46
Guðjón Einarsson – Ólafur Steinason 14
Garðar Garðarsson – Gunnar Þórðarson 13
Höskuldur Gunnarss. – Jón S. Péturss. 5
Björn Snorras. – Kristján M. Gunnarss. 1
Birgir Pálsson – Vilhj. Þór Pálsson 1
Nánar má finna um gang mála á
heimasíðu félagsins www.bridge.is/
fel/selfoss.
Ekkert verður spilað hjá félaginu á
sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn
21. apríl. Mótinu lýkur 28. apríl, sem
verður jafnframt spilakvöld vetrarins.
Þeir skipuðu þrjú efstu sætin í keppninni um Súgfirðingaskálina. Talið frá vinstri: Gunnar Ármannsson, Ásgeir
Sölvason, Björn Guðbjörnsson, Guðni Ólafsson, Einar Ólafsson, Sigurður Kristjánsson.
Guðni Ólafsson og Ásgeir
Sölvason unnu Súgfirðingaskálina
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson