Morgunblaðið - 17.04.2005, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 61
ÞAÐ hefur verið skrafað og skegg-
rætt um Isis í harðkjarnaheimum
lengi vel og þó að tónlist Isis sé lítt
hröð og ofsafengin – meira þung,
dulúðleg, hægstreym og dramatísk –
hefur hún notið mikillar virðingar
hjá þeim hópi. Plata sveitarinnar frá
því í fyrra, Panopticon, varð svo til að
opna tónlistaráhugamenn úr öðrum
geirum fyrir einstökum hljóm sveit-
arinnar, sem dregur áhrif frá God-
flesh og fellur undir sama hatt og
Cult of Luna, Anathema (nýju plöt-
urnar), Neurosis og Jesu, sem ein-
mitt er ný sveit Justin Broadrick,
fyrrum höfuðpaurs Godflesh.
Isis þykir mögnuð tónleikasveit en
hún mun leika í Hellinum núna á
mánudaginn en tilefnið er sex ára af-
mæli Dordinguls (www.dording-
ull.com), vefmiðstöðvar íslensku
rokk- og harðkjarnasenunnar.
Tónlistin fyrst
Blaðamaður hringdi í Aaron og
var hann þá staddur á heimili sínu í
Boston, önnum kafinn við umslags-
hönnun fyrir útgáfufyrirtæki sitt
Hydra Head Records, sem líkt og Is-
is hefur vaxið vel og dafnað hin síð-
ustu ár.
Isis til Íslands. Af hverju?
„Valli hafði samband við okkur og
spurði hvort við gætum gert þetta.
Við sáum að það var hægt að tengja
þetta við Evróputúr sem við erum að
fara í. Þegar við byrjuðum með þetta
band hefði okkur aldrei dreymt um
að það ætti eftir að koma okkur til
staða eins og Japans eða Íslands.
Þannig að þegar okkur býðst færi á
slíku stökkvum við þegar á það. Við
erum mjög spenntir fyrir því að
koma og ætlum okkur að nýta heim-
sóknina vel.“
Síðasta plata ykkar náði að vekja
athygli utan þess hóps sem þið hafið
verið að höfða til. Kanntu einhverjar
skýringar á því?
„Ja … við byrjuðum innan þunga-
rokks- og harðkjarnasenunnar en jú,
vissulega höfum við þróast í aðrar
áttir, ætli þetta sé ekki einhvers kon-
ar síðrokk. Mogwai og Godspeed
You Black Emperor! eru nöfn sem
mér dettur í hug. Áheyrendahóp-
urinn er a.m.k. alltaf að verða fjöl-
breyttari og það finnst okkur vera já-
kvæð þróun.“
Það mætti kannski segja að tónlist
ykkar væri blanda af Sigur Rós og
Motorhead?
„(Hlær) jú, því ekki!“
Það leikur þokukennd ára um Isis,
þið sjáist t.d. ekki á myndum og um-
slagshönnunin er stílhrein og dul-
arfull. Hvers vegna?
„Okkur langar til að leggja áherslu
á tónlistina fyrst og fremst. Meðlimir
koma víða að og það er tónlistin sem
slík sem bindur okkur saman. Þess
vegna erum við ekkert að flíka and-
litunum okkar. Persónulega hef ég
alltaf verið hrifinn af sveitum sem
eru dálítið dularfullar, eins og God-
flesh t.d. Ljósmyndir af þeim voru
alltaf það óskýrar að þú gast aldrei
greint andlitin á meðlimum. Mér
finnst Tool líka gera þetta ágætlega
– að beina fólki að tónlistinni frekar
en einhverju öðru.“
En hvernig gengur svo að reka
Hydra Head?
„Ég hafði rekið útgáfuna í tvö ár
áður en ég stofnaði Isis og þá var það
svona dæmigert rassvasafyrirtæki.
Þetta er enn þá lítið fyrirtæki en það
er full vinna að reka það í dag. Ég hef
náð að sameina þetta tvennt og ég
get tekið fyrirtækið með mér, þökk
sé undrum kjöltutölvunnar. Síðustu
sex, sjö ár hef ég fengið til liðs við
mig aðstoðarfólk, þar á meðal minn
helsta samstarfsmann, Mark
Thompson, sem sér um daglegan
rekstur og er eins konar stýrimaður.
Ég er oft á tónleikaferðalögum og
mitt aðalstarf núna felst í því að finna
hljómsveitir auk þess sem ég sé um
alla listræna hönnun.“
Nafnið
En þetta nafn, Isis? Ertu á kafi í
egypskri guðafræði?
„Nei, við völdum þetta nafn bara
af því að okkur fannst það flott. Þetta
var reyndar eina nafnið sem við gát-
um sætt okkur við! Við vorum búnir
að sitja sveittir yfir hugsanlegum
nöfnum og þegar þetta nafn kom upp
urðu allir strax mjög hrifnir. Seinna
samdi ég svo reyndar texta sem
tengdust lauslega við goðsögnina um
Isis. En þetta hefur engan veginn
legið bandinu til grundvallar. Eins
og ég segi, það er aðallega þetta orð
sem okkur finnst flott.“
Ég og félagar mínir berum þetta
fram sem „Is is“ en ekki „Æsis“ …
„Já, ég hef heyrt þann framburð
áður. Það var úti í Frakklandi! Mér
finnst það bara hið besta mál.“
Tónlistin ykkar er nú þessleg að
þið verðið eiginlega að skoða landið
úr því að þið eruð að koma hingað.
Náttúran hérna á það til að vera
dramatísk …
„Já, við verðum hérna í þrjá daga
og ég veit að Valli (umsjónarmaður
Dordinguls og tónleikahaldari) ætlar
að sýna okkur hitt og þetta. Vonandi
náum við að kíkja eitthvað út fyrir
borgina.“
Tónlist | Isis spilar í Hellinum á morgun
Þetta stóra …
Bostonsveitin Isis hefur á undanförnum árum
aflað sér fylgis úr ólíklegustu áttum, en tónlist-
inni hefur m.a. verið lýst sem blöndu af Sigur
Rós og Ham. Arnar Eggert Thoroddsen
spjallaði við leiðtoga sveitarinnar, gítarleik-
arann og söngvarann Aaron Turner.
Isis. Aaron Turner er þarna einhvers staðar. Líklega.
Tónleikarnir fara fram í Hellinum,
sem er í Tónlistarþróunarmiðstöð-
inni (TÞM), Hólmaslóð 2 á Granda.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20.00
og munu hljómsveitirnar Kimono
og Drep hita upp. Aðgangseyrir er
2.000 krónur en aldurstakmark er
ekkert.