Morgunblaðið - 21.05.2005, Síða 2

Morgunblaðið - 21.05.2005, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR edda.is „Blóðug, fyndin og töff“ „Bók í anda Tarantinos, hæfilega blóðug og hæfilega fyndin. En umfram allt töff.“ Úlfhildur Dagsdóttir, bókmenntir.is „Það er kraftur í bókinni.“ Björn Þór Vilhjálmsson, Mbl. „Skyldulesning ... Fantavel skrifuð.“ Páll Baldvin Baldvinsson, Ísland í dag. „Mjög vel skrifuð bók.“ Jón Yngvi Jóhannsson, Kastljós Nú í kilju BJÖRGUÐUST Í GÚMMÍBÁT Mannbjörg varð í gær þegar Hild- ur ÞH sökk 7 mílur austur af Rauf- arhöfn. Tveir skipverjar voru um borð og tókst þeim að forða sér í gúmmíbát þegar Hildur ÞH lagðist á hliðina og sökk. Harðari öryggisreglur Fulltrúar á þingi Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnunarinnar samþykktu í gær að innleiða harðari öryggisreglur á heimsvísu vegna bráðdrepandi far- sóttar. Það þýðir að vöktunar- og við- bragðskerfi vegna farsótta á borð við fuglaflensu verður eflt til muna. Spenna um formannskjör Spenna ríkir á landsfundi Samfylk- ingarinnar, sem hófst í gær, um hvort Ingibjörg Sólrún Gísladóttir eða Öss- ur Skarphéðinsson verður næsti for- maður flokksins. Milli 1.400 og 1.500 flokksmenn sitja fundinn og verða úr- slit í formannskjöri tilkynnt á hádegi. Sérsniðnar stofnfrumur Vísindamenn í Suður-Kóreu hafa greint frá því að þeim hafi tekist að rækta einstaklingsbundnar stofn- frumur. Árangurinn er sagður glæða vonir um að hægt verði að nýta slíka tækni til lækninga þó langt sé í að hægt verði að fjöldaframleiða slíkar frumur. Stjórnandi rannsóknarinnar sagði að siðferðileg sjónarmið væru höfð að leiðarljósi hjá þeim og því kæmi ekki til greina að fara of geyst í þessum efnum. Myndbirting gagnrýnd Talsmenn Alþjóða Rauða krossins gagnrýna harðlega breska götublaðið Sun fyrir að hafa birt ljósmyndir af Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, á nærbuxunum einum fata. Telja þeir myndbirtinguna brot gegn Genfarsáttmálanum um meðferð stríðsfanga. Haft var eftir lögfræð- ingi Saddams að hann hygðist höfða mál gegn blaðinu vegna þessa. Yf ir l i t Í dag Fréttaskýring 8 Bréf 38 Úr verinu 14 Umræðan 38/45 Viðskipti 15 Messur 46/47 Erlent 18/19 Minningar 48/55 Akureyri 26 Skák 59 Árborg 28 Dagbók 60 Suðurnes 26 Víkverji 60 Landið 24 Staður og stund 62 Listir 30 Menning 63/69 Daglegt líf 31/33 Ljósvakamiðlar 70 Ferðalög 34/35 Veður 71 Forystugrein 36 Staksteinar 71 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is EKKERT tilfelli af heilahimnu- bólgu af völdum bakteríunnar men- ingokokkar C hefur greinst hér á landi í nærfellt eitt og hálft ár. 10–15 tilfelli greindust árlega fyr- ir fáum árum, en veturinn 2002– 2003 voru allir 18 ára og yngri bólu- settir við sjúkdómnum sem leggst einkum á börn og unglinga. Síðan þá hefur tilfellum farið jafnt og þétt fækkandi. Síðustu tilfellin greindust í janúarmánuði 2004. Það voru þrír óbólusettir einstaklingar. Ekkert tilfelli hefur greinst síðan þá af völdum meningokokka C, en sjúk- dómurinn er lífshættulegur og leiðir til dauða í tæplega einu tilviki af hverjum tíu. Nokkrar bakteríur auk meningo- kokka C geta valdið heilahimnu- bólgu. Þar er um að ræða, fyrst og fremst, meningokokka af B-gerð og haemofilus influenzae. Ekkert nægi- lega gott bóluefni er til við men- ingokokkum af B-gerð og því er ekki bólusett við þeim. Sex tilfelli heilahimnubólgu vegna meningo- kokka B greindust í fyrra og fimm tilvik árið 2003, en á undanförnum árum hafa tilvikin verið allt frá einu á ári og upp í 12 árið 1999. Ekkert tilfelli frá 1989 Hins vegar var farið að bólusetja öll ungbörn gegn haemofilus influ- enzae árið 1989, eða fyrir rúmum einum og hálfum áratug, með þeim árangri að ekkert tilfelli hefur greinst af sjúkdómnum síðan þá. Fyrir þann tíma veiktust um 10 ung börn á ári af sjúkdómnum. Bólusetningarherferð af völdum meningokokka C Ekkert tilfelli hefur greinst í 15 mánuði Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is TILKYNNT var um eld í risíbúð við Rauðarárstíg 20 í Reykjavík um klukk- an 17 í gær. Eldur logaði upp úr þaki þegar slökkvilið kom á staðinn. Eng- inn slasaðist en húsráðendur voru ekki heima þegar eldurinn kom upp. Tveir voru í íbúðinni fyrir neðan. Talsvert tjón varð í íbúðinni þar sem eld- urinn logaði auk þess sem reykskemmdir urðu í nærliggjandi íbúðum. Slökkvistarf tók um klukkustund, auk þess sem hreinsa þurfti út vatn sem lak niður á neðri hæð. Í gærkvöld blossaði eldur upp á ný en hann náði ekki að breiðast út. Eldsupptök eru ókunn og málið er í rannsókn. Morgunblaðið/Júlíus Eldur í risíbúð VINNUHÓPUR á vegum nor- rænna menningarmálaráðherra hefur síðan í nóvember sl. unnið að tillögum að skipulagsbreytingum á norrænu samstarfi á sviði menn- ingar- og menntamála. Formaður vinnu- hópsins var hér á ferð nýlega að kynna hags- munaaðilum drög að tillögum, sem stendur til að skila til ráð- herranna í júní nk. Áformað er að hrinda tillögunum í framkvæmd frá og með árinu 2007. Á vef Blaðamannafélags Íslands, press.is, er greint frá málinu, þar sem m.a. kemur fram að leggja eigi norræna blaðamannaháskólann í Árósum, NJC, niður. Í staðinn eru hugmyndir um að verkefni skólans verði falin tengslaneti norrænna fjölmiðla- og blaðamannaháskóla. Innan Blaðamannafélagsins eru áhyggjur af þessum áformum og haft er eftir Þór Jónssyni, sem sit- ur í stjórn NJC, að skipulagsbreyt- ing af þessu tagi geti bitnað á ís- lenskum blaða- og fréttamönnum. Tillögur ræddar í júní Á press.is kemur einnig fram að til greina komi að breyta eða leggja niður ýmsar stofnanir innan vébanda Norrænu ráðherranefnd- arinnar, þó ekki Norræna húsið í Reykjavík. Að sögn Steingríms Sigurgeirssonar, aðstoðarmanns menntamálaráðherra, er vinnuhóp- urinn að ljúka störfum og verða til- lögur hans ræddar á ráðherrafundi í næsta mánuði. ,,Í þeim hugmyndum er verða lagðar fram felst ný nálgun er byggir á því að stuðningi er ekki skipt niður eftir greinum heldur verður leitast við í auknum mæli að styðja við tímabundin verkefni. Þetta hefur í för með sér að nokkr- ar stofnanir og nefndir verða lagð- ar niður, verði tillögurnar sam- þykktar af norrænu menningar- málaráðherrunum,“ segir Stein- grímur. Áform um breytt skipulag menn- ingarstofnana Steingrímur Sigurgeirsson Bauðst til að aðstoða lögregluna SAUTJÁN ára piltur, Gísli Már Magnússon, segist hafa boðist til að aðstoða lögreglumanninn sem lenti í átökum við drukkinn ökumann á Eskifirði á miðvikudagskvöld en að- stoðin hafi verið afþökkuð. Lög- reglumaðurinn segist ekki hafa orðið var við boð piltsins um aðstoð en hugsanlega hafi það farið fram hjá honum í hamaganginum. Hann segir ánægjulegt að pilturinn hafi viljað bjóða aðstoð sína fram. Gísli Már sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði átt leið framhjá á bíl sín- um þegar hann sá lögregluna í átök- um við ökumanninn. Hann hefði stöðvað bíl sinn, stigið út og boðið fram aðstoð en hún verið afþökkuð. Aðspurður sagðist hann ekki hafa séð aðra bjóða sig fram. Gísli Már kvað engu skipta að hann væri að- eins 17 ára, hann hefði verið tilbúinn til aðstoðar ef átökin hefðu harðnað. Lögreglumaðurinn væri aðeins fjór- um árum eldri en hann sjálfur. Stúlkurnar fimmtán til sautján ára gamlar RANNSÓKN lögreglunnar á Kefla- víkurflugvelli hefur leitt í ljós að stúlkurnar sem framvísuðu vega- bréfum frá Singapúr þegar þær voru stöðvaðar fyrr í vikunni eru 15, 16 og 17 ára gamlar. Með þeim var tvítug- ur piltur og meintur fylgdarmaður sem talinn er hafa átt að aðstoða við flutning þeirra vestur um haf. Barnaverndaryfirvöldum hefur ver- ið tilkynnt um málið. Að sögn Jó- hanns R. Benediktssonar, sýslu- manns á Keflavíkurflugvelli, tók málið nýja stefnu þegar ljóst varð að stúlkurnar væru jafnungar og raun bar vitni. Hann vill þó ekki tjá sig frekar um rannsóknina, segir hana á viðkvæmu stigi. Hann vildi ekki svara því hvort grunur léki á mansali í þessu tilviki.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.