Morgunblaðið - 21.05.2005, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 31
DAGLEGT LÍF
MARÍA Markovic, nemandi í Iðn-
skólanum í Hafnarfirði, hefur hann-
að sýningarskáp fyrir úra- og skart-
gripaverslunina Gull-úrið við
Álfabakka.
Axel Eiríksson, úrsmíðameistari
og eigandi verslunarinnar, segist
lengi hafa verið í vandræðum með
hæfilega stóra sýningarskápa fyrir
Festina-úr í versluninni og ákveðið
að snúa sér til hönnunardeildar Iðn-
skólans í Hafnarfirði og bjóða nem-
endum að spreyta sig á verkefninu.
„Ég ákvað að ef vel tækist til myndi
ég senda tillöguna til fyrirtækisins
úti og jafnframt veita nemandanum
viðurkenningu ef eitthvað væri lagt í
verkefnið,“ segir hann. „Útkoman
var nokkuð misjöfn en sumt var bet-
ur útfært en annað og meðal annars
skilaði ein stúlka, María Markovic,
mjög skemmtilegum standi úr
hrauni.“
Hliðarnar eru úr hrauni sem sagað
er slétt og ofan á er náttúruleg
hraunhella með mosa.
María segist hafa viljað vinna með
íslenskt efni eins og til dæmis hraun.
„Hraunið er ómeðhöndlað að hluta
og í því er hreyfing sem mér fannst
spennandi að draga fram,“ segir hún.
Verk nemendanna eru til sýnis hjá
Marel hf. við Austurhraun 9 í Garða-
bæ og stendur fram til 22. maí.
HÖNNUN | María Markovic hlýtur viðurkenningu fyrir sýningarskáp sinn
Hreyfing í náttúrulegu efni
Morgunblaðið/Eyþór
María Markovic og Axel Eiríksson úrsmíðameistari virða úrin fyrir sér í skápnum sérsmíðaða.
erfitt með að segja nei og vilja skila
fullkomnu verki, stjórnunarstíll er
orðinn erfiðari með alþjóðavæðingu,
ójafnrétti ríkir á heimilunum og
þær eiga erfitt með að skipta um
vinnu.
Lausnin á vandamálinu liggur
bæði hjá einstaklingunum og sam-
félaginu, að mati vísindamannanna.
Í fyrsta lagi ætti enginn að vinna
meira en 50 tíma í viku heldur
reyna að koma sér upp afslappaðra
viðhorfi. „Í öðru lagi þarf maður að
læra að gefa ekki bara, heldur líka
þiggja,“ segir Sandmark sem einnig
leggur áherslu á áframhaldandi
jafnréttisbaráttu. „Það er ekki
hægt að vera bæði heimavinnandi
og í krefjandi útivinnu. Sú jafna
gengur ekki upp.“
Æ ALGENGARA
verður að vel mennt-
aðar konur í vel
launuðum störfum á
framabraut þurfi að
hætta að vinna
vegna veikinda.
Dugnaðareinkennið
er skýringin kölluð,
þ.e. að konurnar eru
svo duglegar bæði
heima og í vinnunni
að þær kikna undan
álaginu, að því er
sænsk rannsókn
leiðir í ljós.
Í Göteborgs Post-
en og Svenska
Dagbladet er greint frá rannsókn-
inni sem byggist á ítarlegum við-
tölum við sextán sænskar konur í
veikindaleyfi vegna álagseinkenna.
Konurnar eru á aldrinum 30–55
ára. Á grundvelli viðtalanna var
útbúinn spurningalisti sem lagður
var fyrir 600 konur.
Algengt var að konurnar ynnu
yfir 50 tíma á viku og sumar 60–80
tíma í viku, að sögn Monicu Ren-
stig, eins af vísindamönnunum sem
standa að rannsókninni. Þær sem
eiga á hættu að verða veikar eru
þær sem eiga erfitt með að segja
nei í vinnunni og taka einnig aðal-
ábyrgð á heimilisstörfunum.
Renstig og Helene Sandmark
benda á fimm orsakir fyrir álaginu:
Konurnar vinna of mikið, þær eiga
Ef álag bæði heima fyrir og í vinnu er of mikið get-
ur það leitt til veikinda.
Dugnaður kvenna
leiðir til veikinda
HEILSA
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
smáauglýsingar
mbl.is