Morgunblaðið - 21.05.2005, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.05.2005, Blaðsíða 22
                    Reykjavík | Löndunarmenn og sjómenn æfa stundum jafnvægislistina þegar þeir hlaða upp fiskikerum við löndun úr fiskiskipum. Á dögunum var verið að skipa upp úr Helgu RE í Reykjavík- urhöfn og fékk þessi stæða traustan stuðning og fylgd alla leið. Morgunblaðið/Eyþór Æfa jafnvægislistina Löndun Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Erfitt er að skilja hvers vegna nánast allir þungaflutningar á sjó meðfram ströndum landsins eru aflagðir og komn- ir í staðinn á hringveginn. Þetta getur varla verið hagkvæmt fyrir þjóðarbúið að öðru leyti en því að vörur eru fljótari á áfangastað en fyrr. Ljóst er að vegakerf- ið er illa í stakk búið að taka við þessu af ýmsum ástæðum. Hringvegurinn er víð- ast hvar tvær akreinar, ein í hvora átt og þröngir vegir sem skapa mikla hættu við mætingu. Þá er aksturshraði stórra flutningabíla með eftirvagna oft með þeim hætti að venjulegum ökumönnum stendur ógn af. Þungatakmarkanir á vissum árstímum hljóta líka að draga úr hagkvæmni við þessa flutninga.    Þar sem hringvegurinn liggur gegnum byggðina á Hellu er 50 kílómetra há- markshraði. Ritari þessa pistils sem hef- ur vinnustað skammt frá veginum verður oft vitni að hraðakstri gegnum kauptúnið af alls konar ökutækjum, en mest áber- andi og ógnvekjandi er hraðakstur þess- ara stóru flutningabíla sem maður hefur á tilfinningunni að þurfi margfalda heml- unarvegalengd á við önnur ökutæki ef eitthvað ber út af.    Mikil starfsemi er jafnan á golfvellinum að Strönd á Rangárvöllum úr því að maí- mánuður gengur í garð. Völlurinn virðist oft tilbúinn til notkunar á undan ýmsum öðrum golfvöllum á landinu vegna send- ins jarðvegar sem þornar fljótt eftir að frost fer úr jörðu. Þekkt eru 1. maí golf- mótin á Strandarvelli sem eru jafnan vel sótt. Á morgun fer fram eitt af þeim mótum sem hafa áunnið sér fastan sess undanfarin ár. Það er svokallað Lions- mót í golfi sem Lionsklúbburinn Skyggn- ir í Rangárvallasýslu heldur fyrir alla lionsmenn, fjölskyldur þeirra og gesti, hvaðan sem er af landinu. Vonast Skyggnisfélagar til að mótið takist vel að þessu sinni eins og oftast áður en gott veðurútlit um helgina gefur góðar vonir um það. Úr bæjarlífinu HELLA EFTIR ÓLA MÁ ARONSSON FRÉTTARITARA í kirkjukórinn.“ Hann segist ungur hafa byrjað að yrkja og þá fyrir sjálf- an sig. Hann hefur aldrei viljað láta mikið bera á kveðskap sínum. Seinni árin hafi gefist betri tími til að sinna áhugamálinu og hann samið nokkuð fyrir kirkjukórinn. Á efnisskrá tónleikakórs Stykk-ishólmskirkju á morgun verða eingöngu lög við ljóð eins kórfélag- ans, Einars Steinþórs- sonar. Með tónleikunum, Vorið með Einari Stein, vill kórinn þakka Einari samfylgdina í meira en fimmtíu ár en hann verð- ur áttræður á þessu ári. Einar Steinþórsson hef- ur sungið í kirkjukórnum frá haustinu 1954, er hann flutti til Stykk- ishólms. Hann er ekta Breiðfirðingur, fæddur í Flatey á Breiðafirði, en ólst upp í Bjarneyjum. „Þangað flutti ég sex ára gamall og bjó þar í 12–13 ár við gott atlæti,“ segir Einar. „Fyrsta haustið mitt í Hólminum grípur Víkingur Jóhannsson organisti mig og fær mig „Ef ég verð hrifinn af lögum og þau grípa mig glóðvolgan, þá kemur eitthvað yfir mig og ég fæ mikla þörf fyrir að semja við þau texta,“ segir Ein- ar. Nokkrir textar Einars hafa orðið landsþekktir eins og til dæmis Jörð og Þú fagra blómið blóma. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Dagskráin Einar Steinþórsson og Jóhann Guðmunds- dóttir kórstjóri að yfirfara dagskrá tónleikanna. Hefur sungið í kirkju- kórnum í fimmtíu ár R únar Kristjánsson á Skagaströnd heyrði af þing- lokum: Blessað þingið fór í frí, fannst þar ærin þörfin. Hafði ei lengur orku í yfirsetustörfin! Það vakti þjóðarathygli haustið 1974 þegar Vil- hjálmur Hjálmarsson, þáverandi mennta- málaráðherra, tók þá ákvörðun að vín yrði ekki veitt á vegum menntamálaráðuneyt- isins. Andrés í Síðumúla sendi honum vísu: Valdaferill verði þinn vorri þjóð til nytja. En veislur þínar, Villi minn, vildi ég ekki sitja. Þegar Helga Halldórs- dóttir frá Dagverðará heyrði þetta sendi hún Vilhjálmi hið snarast aðra stöku: Enginn maður óragur óttast hleypidóma. Veislur þínar Vilhjálmur verða þjóð til sóma. Þingið í frí pebl@mbl.is Selfoss | Þrír sérfræðingar í heimilislækn- ingum hafa verið ráðnir til að bæta þjón- ustu Heilsugæslustöðvarinnar á Selfossi. Þau eru Arnar Guðmundsson, Jórunn Við- ar Valgarðsdóttir og Björg Þ. Magnúsdótt- ir. Auk þeirra mun læknakandidat hefja störf 1. júní og vera í starfsþjálfun á heilsu- gæslustöðinni. Læknarnir munu koma til starfa í ágúst og september en fram að því verður starf- semin með óbreyttu sniði nema hvað að í sumar verða nokkrir afleysingalæknar við vinnu. Með þessum ráðningum fjölgar stöðugildum heimilislækna við stöðina og er gert ráð fyrir því að auðveldara verði fyrir fólk að nálgast lækna í haust og fá tíma hjá heimilislækni Með þessum nýju ráðningum í haust mun starfsstöð Óskars Reykdalssonar lækningaforstjóra breytast þannig að hann verður með læknamóttöku í Hveragerði. Þrír nýir heimilislækn- ar til starfa Keflavík | Hand- verkssýning sem Menningar-, íþrótta- og tóm- stundasvið Reykjanesbæjar stendur fyrir í samvinnu við handverksfólk á Suðurnesjum verður í Íþrótta- húsinu við Sunnubraut í Keflavík um helgina. Auk sýningar og sölu á munum verður sýnt hvernig gera skal hlutina, meðal annars að skera út, móta leir og mála silki. Fjöldi sýnenda er svipaður og verið hef- ur undanfarin ár og koma þeir bæði af Suð- urnesjum og landinu öllu. Sýningin verður opnuð klukkan 12 í dag og stendur frá tólf til sex síðdegis báða dagana. Margs konar skemmtiatriði verða á sviðinu á meðan á sýningunni stendur og einnig verður opið kaffihús. Þá kemur fram í fréttatilkynningu að ýmis tómstundafélög í Reykjanesbæ muni kynna starfsemi sína á staðnum. Sýnt hvernig hlutirnir verða til ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.