Morgunblaðið - 21.05.2005, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 21.05.2005, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÉG LEGG BARA FYRR AF STAÐ! Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grunda ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 2 79 47 05 /2 00 5 DREGIÐ hefur úr fréttum af hamförunum í SA-Asíu víða í heim- inum en Nevin Rae, tíu ára grunn- skólanemi í Solesbury í Pennsylvan- íu í Bandaríkjunum, hefur engu gleymt. Hann safnaði 17.000 dölum í fram- lögum frá sveitungum sínum til styrktar fórn- arlömbum hamfar- anna. Milljónir Banda- ríkjamanna hafa gert slíkt hið sama og sýnt umhyggju sína í verki með því að leggja fram rúma 1,2 milljarða dala. George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði: „Bandaríkin skuldbinda sig til að að- stoða þá sem eiga um sárt að binda, nú og um ókomna tíð.“ Bandaríkin vinna með alþjóð- legum samstarfsaðilum á sviði þró- unarmála, Þróunarbanka Asíu, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF), Alþjóðabankanum, Rauða krossinum og Rauða hálfmán- anum og frjálsum félagasamtökum um heim allan, að því að endurreisa stjórnskipulag, koma efnahagnum á skrið, bæta lífsskilyrði og vekja von hjá þolendum náttúruhamfaranna. Mörgu hefur þegar verið hleypt af stokkunum og meira er í vændum. Stjórnvöld landanna tólf sem urðu fyrir skakkaföllum, þ.á m. Indónesía, Sri Lanka, Taíland og Maldíveyjar, hafa auðvitað sjálf yfirumsjón með uppbyggingunni. En þar sem neyðin er stærst geta þau reitt sig á gegn- sæjan og sanngjarnan stuðning Bandaríkjanna og bandamanna þeirra. Að beiðni Bush Bandaríkjaforseta samþykkti Bandaríkja- þing 857 milljóna dala fjárveitingu til hjálp- arstarfs og uppbygg- ingar á hamfarasvæð- inu við Indlandshaf. Rúmur þriðjungur þeirra upphæðar fer í að byggja upp efna- hagskipulag landanna og 120 milljónir dala verða notaðar til að skapa tækifæri til öfl- unar lífsviðurværis, endurbyggja heimili og koma á fót bráðabirgðaskólum og heilsugæslu- stöðvum svo fórnarlömb flóðanna geti snúið aftur til heimkynna sinna. Við munum einnig nota fjármagnið til að koma upp vistum fyrir hamfar- ir sem gætu átt sér stað í framtíðinni og til að bæta eftirlit með viðvör- unarmerkjum um flóðbylgjur svo hægt sé að vara íbúa svæðisins við yfirvofandi hamförum. Margir þeirra styrkja sem banda- rísk stjórnvöld veittu samstarfs- aðilum og frjálsum félagasamtökum náðu í byrjun til þriggja til sex mán- aða. Kapp var lagt á að skapa bráða- birgðastörf og hlúa að örfyrirtækjum til að skapa atvinnu fyrir þá sem urðu illa úti. Styrkir upp á rúmar 6,3 milljónir dala hafa farið í að skapa bráðabirgðastörf. Í Indónesíu hafa t.d. rúm 35.000 manns fengið bráða- birgðavinnu og 2,9 milljónir dala hafa runnið beint til verkamannanna. Enn umfangsmeiri en framlag bandaríska stjórnvalda eru þó fram- lög bandarískra fyrirtækja, trú- félaga og menntastofnana, sem brugðust skjótt við og lögðu fram fjármuni og mannafla á hamfara- svæðunum. Meira en 130 bandarísk fyrirtæki styrktu hjálparsamtök um a.m.k. eina milljón dala hvert með fjármunum, vörum og þjónustu, þ.á m. vatnshreinsikerfum, flutn- ingum, matvælum, vatni og húsa- skjóli. Framlag bandarískra einstaklinga og félagasamtaka er ekki síður til- komumikið. Samtökin „Heimkynni fyrir mannkynið“ sendu t.d. hópa af sérfræðingum í byggingavinnu sem munu aðstoða 30–35.000 fjölskyldur við að endurbyggja heimili sín. „Flóðbylgjuhjálparsjóður barna“ í New York er að safna peningum til að endurreisa skóla í Pottuvil á Sri Lanka og heilsugæslustöð í Kirindi, sem er þar skammt frá. Indónesískt skáld frá Aceh-héraði, sem var illa útleikið eftir flóðbylgj- una, skrifaði þetta skömmu eftir hamfarirnar: „Aldrei spyrja hvar Meuloboh er. Aldrei spyrja hvar Bireuen er. Kortin af þeim molnuðu. Kortin af þeim skoluðust burt.“ Nú aðstoða sjálfboðaliðar frá AFSC, hjálparsamtökum bandarískra kvekara, við að teikna upp kortin af Meuloboh og Bireuen á nýjan leik, ef svo má að orði komast. Þær rúmu fjórar milljónir dala sem samtökin hafa fengið í framlögum fara í heil- brigðisaðstoð og í enduruppbygg- ingu þjóðfélagsins. Þetta eru bara nokkur dæmi um hvernig Bandaríkjamenn hafa sýnt samstöðu með hjálparþurfi vinum sínum. Stjórnvöld og almenningur í Bandaríkjunum heita því að halda áfram að vinna náið með Sameinuðu þjóðunum og alþjóðasamfélaginu, þ.á m. Íslandi, að því að tryggja gegnsætt og sjálfbært uppbygging- arferli, fyrst og fremst til að tryggja að þeir sem eiga um sárt að binda vegna flóðbylgjunnar í Indlandshafi gleymist ekki. Staðbundinn harmleikur – alþjóðleg lausn James I. Gadsden fjallar um fréttir frá SA-Asíu ’Þær rúmu fjórar millj-ónir dala sem samtökin hafa fengið í framlögum fara í heilbrigðisaðstoð og í enduruppbyggingu þjóðfélagsins.‘ James I. Gadsden Höfundur er sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. Í DAG er merkisdagur. Ekki ein- asta hófst í gær þriðji landsfundur Samfylkingarinnar, hvers tilurð og uppgangur eru ein merkustu tíðindi stjórnmálasögu seinni ára. Í dag verða líka kunngjörð úrslit í mestu lýðræðisaðgerð sem íslenzkur stjórn- málaflokkur hefur staðið fyrir, beinu kjöri formanns Sam- fylkingarinnar. Rúm- lega tuttugu þúsund manns áttu þess kost að ákveða hver yrði formaður flokksins og þar með hugsanlega næsti forsætisráð- herra. Ekki þúsund, ekki sex hundruð eða þrjú hundruð á lands- fundi, eins og hjá öðr- um flokkum. Tuttugu þúsund manns. Það eru meiri völd en nokkur stjórn- málaflokkur hefur áður þorað að fela fólki. Það er merkilegt lýðræði í praxís. Taugaveiklunin Lýðræði er óþægilegt stjórn- arfar, bæði í augum þeirra sem ráða og hinna sem vilja fá að ráða, vegna þess að það er svo ófyrir- sjáanlegt og erfitt að stýra því. Það er því viðráðanlegra sem færri kjósendur er við að fást. Í þessu til- viki færri flokksmenn. Þess vegna var viðbúið að fyrir þessar stór- kosningar heyrðust hefðbundnar raddir þeirra sem óttast um sitt og sína, um alls lags vandræði með lýðræðið. Ég stikla bara á nokkrum atriðum. Víst tók kosningin sjálf of langan tíma og hann þarf að stytta. Það er sérkennilegt í byrjun 21. aldar að ætla fólki 30 daga til að koma bréfi í póst – bréfi sem fer á einum sólarhring á ákvörðunarstað. Vika til tíu dagar er ríflegur tími og um það ættu flestir að geta sam- einazt. En var kosningabaráttan of löng eins og margir kvarta um? Veldur hver á heldur, en svarið við þessu er engan veginn sjálfgefið. Hún var til dæmis ekki lengri en svo, að þeir sem skipulögðu hana gáfu sér ekki tíma til fundahalda frambjóðendanna út um allt land, eins og þó var gert í formanns- kjöri vorið 2000, og er sjálfsögð kurteisi við þá sem komast ekki á samkomur í Ármúl- anum. Hér er nokkur vís- bending: Það kvartaði enginn yfir of langri kosningabaráttu fyrir fimm árum og tók hún þó ekki færri vikur en þessi. Af hverju? Hví þótti fólki kosningabar- áttan of löng nú, en ekki þá? Svarið virðist liggja í augum uppi: Af því að þá voru úrslitin löngu ráðin. Það var engin spenna. Engin tauga- veiklun. Taugaveiklun sem byggðist á óvissu. Vegna henn- ar þótti okkur baráttan of löng núna. Ómögulegt fólk Þessi veiklun lýsti sér á fleiri vegu. Í kosningabaráttu þar sem um engin málefni er að tefla – með fullri virðingu fyrir tilraunum fram- bjóðenda okkar nú til þess – fá stuðningsmenn frambjóðenda litla útrás fyrir tilfinningar sínar, orku og spennu í öðru en tali um, hversu ómögulegur hinn frambjóðandinn sé, og svona aukreitis að alls kyns ómögulegt fólk sé nú að ganga í flokkinn til að taka þátt í kjörinu. Annars frábært flokksfólk, sem átti kost á tveimur af öflugustu stjórnmálamönnum landsins til for- ystu, hefur skrifað grein eftir grein til að níða skóinn af öðrum fram- bjóðandanum í von um að hjálpa hinum. Það er ótrúlega smá hugsun og smáflokkaleg. Aðrir býsnast yfir því að fyrrum framsóknarkjósendur vilji ganga í flokkinn til að kjósa Össur og fyrr- Strákur eða stelpa? Karl Th. Birgisson fjallar um landsfund Samfylkingarinnar Karl Th. Birgisson ’Hví þótti okk-ur kosningabar- áttan of löng nú, en ekki fyrir fimm árum?‘ Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.