Morgunblaðið - 21.05.2005, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.00 á veg-
um Átthagafélags Sléttuhrepps, Jón Borg-
arson prédikar, Margrét Svavarsdóttir
djákni les ritningarorð, félagar úr kór Ás-
kirkju syngja, organisti Kári Þormar, prest-
ur sr. Þórhildur Ólafs. Kaffi í efri safn-
aðarsal eftir guðsþjónustu á vegum
Átthagafélags Sléttuhrepps.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11.00. Organisti Guðmundur Sigurðsson.
Molasopi eftir messu. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.00. Sr.
Hjálmar Jónsson prédikar. Dómkórinn
syngur en einnig syngur norskur gospelkór
í messunni og fyrir messu. Marteinn Frið-
riksson leikur á orgel. Vortónleikar barna-
kórs Dómkirkjunnar kl. 17.00. Stjórnandi
Kristín Valsdóttir. Undirleikari er Marteinn
Friðriksson. Æðruleysismessa kl. 20.00.
Sr. Karl Matthíasson leiðir, sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir prédikar, en sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson leiðir okkur í bæn. Bræðra-
bandið sér um tónlist.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti
Árni Arinbjarnarson. Samskot til Hjálp-
arstarfs kirkjunnar. Ólafur Jóhannsson.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili:
Guðsþjónusta kl. 14.00. Organisti
Kjartan Ólafsson. Sr. Hjálmar Jónsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Uppskeruhátíð
barna- og unglingastarfsins, – safn-
aðardagur. Messa og barnastarf kl.
11.00. Í messunni syngja Drengjakór
Reykjavíkur í Hallgrímskirkju og Unglinga-
kór Hallgrímskirkju svo og hópur úr Mót-
ettukórnum undir stjórn Friðriks S. Krist-
inssonar og Harðar Áskelssonar,
organista. „Kirkjutrúður“ kemur í heim-
sókn. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar
og þjónar fyrir altari ásamt sr. Halldóri
R.Á. Reynissyni, fræðslustjóra þjóðkirkj-
unnar. Eftir messuna fá börnin ís og full-
orðnir kaffi.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Org-
anisti Douglas A. Brotchie. Sr. Tómas
Sveinsson.
LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS:
Landakot: Guðsþjónusta kl. 11.30. Rósa
Kristjánsdóttir, djákni. Organisti Birgir Ás
Guðmundsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa kl. 11. Þórunn Vala Valdi-
marsdóttir syngur einsöng. Prestur sr.
Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stef-
ánsson. Kaffisopi eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
13.00 með altarisgöngu í sal Sjálfs-
bjargar á höfuðborgarsvæðinu að Hátúni
12. Bjarni Karlsson sóknarprestur þjónar
ásamt Guðrúnu K. Þórsdóttur djákna,
Gunnari Gunnarssyni organista og hópi
sjálfboðaliða. Trúfræðsla kl. 19.00.
Lesnir eru prédikunartextar dagsins. Hild-
ur Eir Bolladóttir, sunnudagaskólastjóri
og prédikari kvöldsins, greinir frá helstu
áherslum sínum og leiðir umræður. Regn-
bogamessa og barnasamvera kl. 20.00.
Prestar Langholts-, Ás- og Laugarnes-
kirkju þjóna í sameiginlegri messu safn-
aðanna, þar sem fjölbreytileika lífsins er
fagnað og samkynhneigðum og ástvinum
þeirra er sérstaklega boðið til messu.
Gunnar Gunnarsson leikur á orgelið, Kór
Laugarneskirkju syngur og messukaffi
Sigríðar kirkjuvarðar bíður svo allra að
messu lokinni. Börn taka þátt í upphafi
messunnar eins og venjulega og svo er
boðið upp á samveru við þeirra hæfi í
safnaðarheimilinu eða farið út í leiki ef
veður leyfir.
NESKIRKJA: Messa og barnastarf kl. 11.
Barnakórinn syngur. Kór Neskirkju leiðir
safnaðarsöng.
Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr.
Örn Bárður Jónsson, prédikar og þjónar
fyrir altari. Börnin byrja í messunni en
síðan verður lagt af stað í árlega vorferð
starfsins. Farið verður á Stokkseyri og er
áætluð heimkoma um kl. 15.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11.
Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiðir
sálmasöng. Olga Lilja Ólafsdóttir og Þór-
unn Bogadóttir, leiðtogar í barnastarfi
kirkjunnar, lesa ritningarlestra. Organisti
Pavel Manasek. Veitingar verða seldar eft-
ir messuna og tekið verður á móti frjálsu
framlagi til styrktar rannsóknum í Banda-
ríkjunum á veikindum Pálínu Magnúsdóttir
leiðtoga við kirkjuna. Einnig er bent á
styrktarreikning 0512-14-110000. Sr.
Sigurður Grétar Sigurðsson og sr. Arna
Grétarsdóttir. Verið öll hjartanlega velkom-
in.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Djassmessa kl.
11.00.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Messa kl. 11.
Fermdar verða Alma Mjöll Ólafsdóttir og
Helga Dögg Ólafsdóttir. Barn verður borið
til skírnar. Carl Möller, Anna Sigga og Frí-
kirkjukórinnsjá um tónlistina. Allir vel-
komnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl. 11. Pró-
fessor Leonard Sweet frá Bandaríkjunum
prédikar. Prestur sr. Gísli Jónasson. Org-
anisti Keith Reed. Aðalsafnaðarfundur
Breiðholtssafnaðar að messu lokinni.
Guðsþjónusta kl. 14 í umsjá Fáskrúðsfirð-
ingafélagsins. Prestur sr. Jóna Kristín Þor-
valdsdóttir. Kaffisala félagins eftir guðs-
þjónustu.
ÁRBÆJARKIRKJA: Messuferð í Skálholt
og Slakka. Brottför frá Árbæjarkirkju kl.
9.30. Komið heim kl.15.00. Prestarnir
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur
sr. Magnús Björn Björnsson. Organisti
Kjartan Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju.
Fermd verða: Daði Rafn Jónsson, Engja-
seli 81, 109 Reykjavík; Haukur Magnús
Einarsson, Fellasmára 2a, 201 Kópavogi;
Ívar Örn Hákonarson, Lindasmára 35, 201
Kópavogi. Léttur málsverður í safnaðarsal
eftir messu (www.digraneskirkja.is).
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson
þjónar. Kór Fella- og Hólakirkju leiðir söng
undir stjórn Lenku Mátéovu organista.
Boðið verður upp á súpu og brauð að
guðsþjónustu lokinni.
GRAFARVOGSKIRKJA: Siglufjarðarguð-
sþjónusta kl. 11. Séra Vigfús Þór Árnason
prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra
Sigurði Ægissyni og séra Braga Ingibergs-
syni. Kirkjukórar Grafarvogskirkju og Siglu-
fjarðar syngja. Organistar eru Hörður
Bragason og Renata Ivan. Kaffisamsæti
Siglufjarðarfélagsins er eftir messu.
HJALLAKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Sigfús
Kristjánsson þjónar. Guðlaugur Gunn-
arsson kristniboði prédikar. Félagar úr kór
kirkjunnar leiða safnaðarsöng.Organisti
Jón Ólafur Sigurðsson. Við minnum á
bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18
(sjá einnig á www.hjallakirkja.is).
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.
Þorgils Hlynur Þorbergsson guðfræðingur
predikar og séra Ægir Fr. Sigurgeirsson
þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syng-
ur og leiðir safnaðarsöng, kórstjóri og org-
anisti Sigrún Steingrímsdóttir. Boðið verð-
ur upp á kaffi að lokinni guðsþjónustu.
LINDASÓKN í Kópavogi: Fjölskyldu-
Guðspjall dagsins:
Kristur og Nikódemus.
(Jóh. 3.)
Morgunblaðið/Einar Falur
Kirkjan í Garði í Kelduhverfi, fornu höfuðbóli.
Siglufjarðarmessa
í Grafarvogskirkju
NÆSTKOMANDI sunnudag 22.
maí verður haldinn Siglufjarð-
armessa í Grafarvogskirkju. Mess-
an hefst kl. 13:30, ath. breyttan
messutíma.
Prestar er hafa og þjóna Siglu-
firði messa, þeir eru núverandi
sóknarprestur séra Sigurður Æg-
isson, séra Bragi Ingibergsson, og
séra Vigfús Þór Árnason sem mun
prédika. Kórar Siglufjarðar og
Grafarvogskirkju munu syngja
undir, stjórnendur eru Renata Ivan
organisti Siglufjarðarkirkju og
Hörður Bragason organisti Graf-
arvogskirkju. Kvartett mun syngja í
kaffisamsæti Siglufjarðarfélagsins
eftir messu.
Ferð eldri borgara
í Grensáskirkju
NÆSTKOMANDI miðvikudag, 25.
maí, lýkur starfi eldri borgara í
Grensáskirkju með stuttri vorferð.
Lagt verður af stað frá kirkjunni kl.
13 og ekið austur fyrir fjall. Kaffi
og meðlæti hefur verið pantað í Ing-
ólfsskála. Áætluð heimkoma er kl.
17.
Ferðin kostar hvern þátttakanda
kr. 1.500,- og er kaffið innifalið í því
verði en ferðin er niðurgreidd af
söfnuðinum.
Skráningu lýkur á mánudaginn í
síma Grensáskirkju 5 800 800.
Regnbogamessa í
Laugarneskirkju
REGNBOGAMESSA verður haldin í
Laugarneskirkju sunnudaginn 22.
maí kl. 20:00. Þar sameinast söfn-
uðirnir þrír umhverfis Laugardal-
inn, Langholts-, Ás- og Laugarnes-
söfnuður, í almennri kvöldmessu og
kalla samkynhneigða og fjölskyldur
þeirra sérstaklega til þessa sam-
félags. ÁST (Áhugahópur samkyn-
hneigðra um trúarlíf) stendur einn-
ig að messunni.
Regnboginn táknar sáttmálann
milli Guðs og manneskjunnar, hann
brúar bilið á milli manna sem hafa
fjarlægst vegna fordóma og
hræðslu hver við annan, hann felur
í sér fyrirheit fjölbreytileikans og
hann er tákn réttindabaráttu sam-
kynhneigðra.
Regnbogamessan er tilboð um
opið og öruggt samfélag í kirkju
sem boðar skilyrðislausa gæsku
Guðs. Í henni viljum við biðja saman
og hvíla í samfélaginu við Guð sem
hefur skapað okkur öll og elskar
okkur öll.
Allir eru velkomnir í regnboga-
messuna, enda er þjóðkirkjan öllum
opin og kallar alla til samfélags, lof-
söngs og bænagjörðar.
Æðruleysismessa
í Dómkirkjunni
ÆÐRULEYSISMESSA verður í
Dómkirkjunni, sunnudaginn, 22.
maí kl. 20.
Einhver mun segja þar af reynslu
sinni úr baráttunni við áfengissýk-
ina. Anna Sigga, Hörður og Birgir
Bragasynir og Hjörleifur Valsson
sjá um tónlistina. Sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir flytur hugleiðingu og sr.
Karl V Matthíasson leiðir samkom-
una.
Þetta er síðasta reglulega sam-
koma vetrarins. 26. júní verða sr.
Jóna Lísa Þorsteinsdóttir og Ak-
ureyringar með æðruleysismessu í
Dómkirkjunni á Kirkjudögum.
Uppskeruhátíð barna-
og unglingastarfsins –
safnaðardagur
MESSA og barnastarf í Hallgríms-
kirkju 22. maí kl. 11.00. Í messunni
syngja Drengjakór Reykjavíkur í
Hallgrímskirkju og Unglingakór
Hallgrímskirkju svo og hópur úr
Mótettukórnum undir stjórn Frið-
riks S. Kristinssonar og Harðar Ás-
kelssonar sem einnig verður org-
anisti.. Sérstakt efni verður fyrir
börnin, „kirkjutrúður“ kemur í
heimsókn. Sr. Jón Dalbú Hróbjarts-
son prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt sr. Halldóri R. Á. Reynissyni
fræðslustjóra þjóðkirkjunnar.
Eftir messuna fá börnin ís og full-
orðnir kaffi.
Fjölskyldusamkoma
í Selfosskirkju
Á MORGUN, sunnudaginn 22. maí,
verður barna- og fjölskyldu-
samkoma í Selfosskirkju klukkan
11.00.
Stopp-leikhópurinn flytur brúðu-
leikinn „Kamilla og þjófurinn“, eft-
ir hinni vinsælu sögu Kari Vinje,
sem út kom í íslenskri þýðingu síra
Guðmundar Óskars Ólafssonar hjá
bókaútgáfunni SALT í Reykjavík
1979. Leikendur eru Margrét og
Eggert Kaaber, en þau hafa áður
glatt kirkjugesti á Selfossi með
snjöllum flutningi sínum.
Þá verður mikill og fjörugur al-
mennur söngur.
Foreldrar, en ekki síður afar og
ömmur, eru hvött til þess að sækja
kirkju á Selfossi á sunnudaginn
kemur.
Djassmessa í Óháða
söfnuðinum
DJASSMESSA verður í Óháða
söfnuðinum sunnudaginn 22 mai kl.
11:00.
Mun djasstríóið Guitar Islandico
– þeir Björn Thoroddsen, Gunnar
Þórðarson og Jón Rafnsson – leika
kirkjutónlistina, þar sem organist-
inn okkar Peter Mate er austur í
Ungverjalandi. Verður léttara
form á messunni og sveiflan
ríkjandi.
Eftir guðsþjónustuna verður
reiddur fram léttur hádegisverður í
safnaðarheimilinu.
Sr. Gunnar Björnsson.
Þemamessa um hjóna-
band og sambúð í
Hafnarfjarðarkirkju
NÚ er lokið í bili öllum hjóna-
námskeiðum á vegum Hafnarfjarð-
arkirkju. Námskeiðin fara fram á
tímabilinu september–maí á hverjum
vetri og hafa verið haldin óslitið frá
árinu 1996. Undanfarin ár hefur einn
sunnudagur að vori eftir að nám-
skeiðunum lýkur verið helgaður
hjónabandi og sambúð í Hafnarfjarð-
arkirkju og næstkomandi sunnudag,
22.maí, verður haldin þemamessa um
hjónaband og sambúð í kirkjunni.
Þar gefst hjónum og sambúðarfólki
tækifæri til þess að styrkja samband
sitt með því að taka þátt í helgihald-
inu, ganga til altaris saman, kveikja
á bænakertum og íhuga gildi sam-
búðar sinnar. Flutt verður hugleið-
ing um hjónaband og sambúð.
Þemamessan er opin öllum, bæði
þeim sem hafa tekið þátt í nám-
skeiðum kirkjunnar sem öðrum. Pör
sem huga á giftingu í sumar eru
þannig sérstaklega hvött til þess að
mæta.
Að messu lokinni verður afhentur
bæklingurinn „Tíu leiðir til að lifa
lífinu lifandi“ sem hjón og sambúð-
arfólk geta notað sem handbók í
sumar í sinni hjónavinnu. Þema-
messan hefst kl.11.00. Prestur er sr.
Þórhallur Heimisson en organisti
Antonia Hevesi. Kór kirkjunnar leið-
ir söng.
Vorferð barnastarfs
Neskirkju
VETRARSTARFI sunnudagaskól-
ans lýkur 22. maí með vorferð. Farið
verður í nýja húsdýragarðinn á
Stokkseyri og þaðan í Hveragerði,
en þar verður grillað. Við byrjum,
eins og venjulega, í messu í kirkj-
unni klukkan 11. Lagt verður síðan
af stað klukkan 11:15. Áætluð heim-
koma er um klukkan 15. Allir eru
boðnir velkomnir.
Í sumar verður, eins og und-
anfarin ár, leikjanámskeið á vegum
Neskirkju. Þau er fjölþætt og lögð
er áhersla á útiveru. Upplýsingar
um námskeiðin er hægt að nálgast á
heimasíðu kirkjunnar www.nes-
kirkja.is
Samkomur í
KFUM og KFUK
DR. Leonard Sweet, prófessor í
bandrískri menningarsögu við Drew
háskólann í Bandaríkjunum verður
ræðumaður á samkomum dagana
22. – 24. maí, kl. 20:00 í húsi KFUM
og KFUK við Holtaveg.
Hann er sérfræðingur í banda-
rískri nútímamenningu og hefur rit-
að hundruð greina og tugi bóka um
hana og framtíð hennar. Staða kirkj-
unnar í samtímanum og sóknarfæri
hennar á komandi árum er honum
sérstaklega hugleikið viðfangsefni,
enda hefur hann einnig verið titl-
aður framtíðarfræðingur. Hann
þykir hafa mjög spámannlegan boð-
skap og er eftirsóttur ræðumaður
og fyrirlesari víða um heim og er af
þeim sökum á sífelldum ferðalögum
heimshorna á milli.
Mikill söngur og lofgjörð verður á
samkomunum undir forystu Keiths
Reed og lofgjörðarhóps KFUM og
KFUK. Einnig verður boðið upp á
öflugan boðskap og fyrirbæn. Allir
velkomnir.
Morgunblaðið/Ingó
Grafarvogskirkja
KIRKJUSTARF