Morgunblaðið - 21.05.2005, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 21.05.2005, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Valgerður Finn-bogadóttir fædd- ist í Bolungarvík 10. nóvember 1918. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ísa- firði 11. maí síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Kristján Finnbogi Bernód- usson, f. 26.7. 1892, d. 9.11. 1980, og Sess- elja G. N. Sturludótt- ir, f. 14.9. 1893, d. 21.1. 1963. Þau bjuggu alla tíð í Bol- ungarvík. Systkini Valgerðar, þau sem komust á full- orðinsár, eru: Sigríður, f. 9.8. 1914, d. 4.4. 1997; Ásdís, f. 18.12. 1915; Bernódus Örn, f. 21.2. 1922, d. 17.4. 1995; Þórunn Benný, f.27.5. 1923; Þórlaug, f. 22.2. 1925, d.8.1. 2001; Ingibjörg, f. 13.6. 1926; Guðrún Helga, f. 25.6. 1929; og Stella, f.6.8. 1934. Auk þessara barna áttu Finnbogi og Sesselja þrjú börn sem dóu í bernsku. Valgerður giftist 16. desember 1939 Jakobi S.K. Þorlákssyni skip- stjóra í Bolungavík, f.11.1. 1916, d. 19.3. 1970. Foreldrar hans voru Sigríður Jóns- dóttir, f. 14.9. 1879, d. 15.4. 1922, og Þor- lákur J. Ingimundar- son, f. 11.5. 1878, d. 10.7. 1955. Börn Val- gerðar og Jakobs eru: 1) Sigríður Þor- laug, f. 29.10. 1939, maki Ragnar Ingi Hálfdánsson, f. 9.4. 1937, og eiga þau þrjú börn. 2) Finnbogi Sesar, f. 1.2. 1941, maki Erna Hávarðardóttir, f. 13.7. 1943, þau eiga þrjá syni. 3) Álfdís, f. 20.5. 1944, maki Dag- bjartur M. Þorbergsson, f. 27.10. 1941. Þau eiga þrjá syni. 4) Flosi Valgeir, f. 4.1. 1953, maki Jónína Brynja Ásgeirsdóttir, f. 9.8. 1953. Þau eiga þrjá syni. Valgerður verður jarðsungin frá Hólskirkju í Bolungarvík í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Þá á ég bara eina ömmu eftir, var svar Finnboga Ernis frumburðar míns þegar ég sagði honum að Vala langamma hans væri farin til Guðs. Já, það er alltaf erfitt að kveðja sína nánustu. Að heimsækja Völu ömmu var alltaf gaman og hún tók svo innilega á móti okkur þegar við sótt- um æskuslóðirnar heim. Stutt var í glettni og gaman og mikið var skraf- að og um margt rætt. Heimili ömmu minnar mátti líkja við samkomuhús barna hennar, ættingja og vina þar sem allir komu saman yfir kaffibolla og heimalöguðu bakkelsi sem sam- anstóð af heilhveitikökum, rúg- brauði, pönnukökum og flatkökum sem enginn gat staðist. Aldrei held ég að ömmu minni hafi gefist tími til að láta sér leiðast og í hvert skipti sem ég kom í heimsókn var yfirleitt eitt af börnum hennar eða barna- börnum hjá henni í góðu yfirlæti að spjalla um daginn og veginn. Það var alltaf gaman þegar við barna- börnin fengum að gista hjá Völu ömmu. Þá var mikið fjör. Ég minn- ist þess sérstaklega þegar foreldrar okkar fóru á þorrablótin sem voru eingöngu ætluð fullorðnum og við gistum hjá ömmu á meðan. Þá gerði hún sér lítið fyrir og sló upp þorra- blóti bara fyrir okkur, svo við misst- um nú ekki af neinu, og svo skemmtum við okkur konunglega við að borða kjamma, harðfisk og annað vestfirskt góðgæti. Já, alltaf var hún amma jafn góð og umhyggjusöm gagnvart okkur barnabörnunum sem og barna- barnabörnunum, já, allt fram á síð- asta dag. Öllum afmælisdögum var haldið skikkanlega til haga og alltaf kom póstkort eða bréf frá lang- ömmu Völu til barnanna minna, Finnboga Ernis og Emilíu Karenar, með einhverjum glaðningi og er þess skemmst að minnast þegar ég fór vestur til Bolungarvíkur um páskana síðustu og fór í heimsókn til Völu ömmu, þá rétti hún mér kort stílað á dóttur mína sem varð sjö ára hinn 16. apríl og bað mig að færa henni frá langömmu með ham- ingjuóskum. Jólin voru einstaklega hátíðleg með Völu ömmu og man ég vart þau æskujól þar sem amma var ekki með okkur. Þó kom það fyrir og þá var eins og eitthvað vantaði til að fullkomna jólin. Elsku amma mín, þín er sárt saknað og sú tilhugsun að koma í Víkina og eiga þar enga ömmu til að heimsækja er tómleg tilhugsun en ég er þakklátur fyrir að eiga góðar minningar um yndislega ömmu og mun ég varðveita þær vel. Elsku pabbi minn, Sigga, Álfdís, og Flosi, Guð veri með ykkur og okkur öllum. Mig langar að kveðja með þessum línum sem eru mér hugleiknar: Hóf þitt og dugur. Heill var þinn hugur. Veittir mér svo oft af þínum viskubrunni. Kenndir mér og hvattir æ til dáða og mín kaun græddir þá þurfti við. Alltaf mátti leita hjá þér ráða. Og ég eigna þér svo ótal margt í mínu lífi. (Stefán Hilmarsson.) Ægir Finnbogason. Nú við vertíðarlok verður elsku- leg Vala amma okkar borin til hinstu hvílu í Bolungarvík. Þó að það sé erfitt að sjá á bak henni þá bærist djúpt í undirmeðvitundinni vottur af létti og jafnvel gleðitilfinn- ingu yfir því að hún sé nú loksins búin að hitta manninn sinn elskuleg- an, hann Kobba afa sem lést um ald- ur fram fyrir þrjátíu og fimm árum. Fráfall afa setti mikið mark á líf ömmu og okkar allra sem næst henni stóðum. En með æðruleysi ásamt trausti á Guð tókst hún á við lífið, jafnan í mikilli nálægð við börn sín og barnabörn og seinna meir barnabarnabörn. Með þessari ná- lægð náði amma ætíð að vera í góðu sambandi við hópinn sinn og fylgd- ist náið með sigrum og sorgum hvers og eins. Sem dæmi um þessa nálægð má nefna hversu vel hún mundi eftir afmælisdögum barna- barna og langömmubarna sinna. Umhyggjusemi, kærleikur og manngæska eru fyrstu orðin sem koma upp í hugann þegar við minn- umst þín, elskulega Vala amma. All- ir sem þig þekktu vita að þessi lífs- gildi hafðir þú ætíð að leiðarljósi. Af einstöku sambandi þínu og barnanna þinna fjögurra mátti sjá að þessi sömu lífsgildi hafa þau til- einkað sér og vonandi náum við sem á eftir komum að gera hið sama. Í heimsóknum okkar í Víkina var það ávallt eitt af okkar fyrstu verkum að heilsa upp á þig og eiga við þig spjall. Þessar stundir voru okkar dýrmætar og munu ætíð lifa með okkur. Æskuminningarnar um þig, amma, eru margar og góðar en þeirra sterkust er þó minningin um það þegar þú straukst hlýrri og mjúkri hönd um kinn og sagðir: Himneskur, af svo mikilli einlægni og elsku að það yljar enn um hjarta- rætur núna áratugum síðar. Hvíl þú í friði, himnesk Vala amma, og Guð geymi þig. Jakob, Katrín, Alexía og Finnbogi. Elsku Vala amma. Loksins fékkstu að fara frá okkur. Ég mun sakna þín mikið, en þakka fyrir að þú hefur nú komist frá öllum þeim sársauka sem þú hefur glímt við undanfarið. Þú varst alla tíð svo góð við mig. Mínar fyrstu minningar eru frá því þú bjóst í kjallaranum í Völusteins- strætinu hjá okkur. Þegar þú varst að passa mig og gafst mér kex í gegnum eldhúsgluggann. Fleiri og enn betri minningar á ég eftir að þú fluttir í Lambhagann, þar sem ég fékk svo oft að koma og gista hjá þér. Í Lambhaganum áttum við okk- ar bestu stundir. Þar kenndir þú mér margt, eins og að spila, og pass- aðir þig á því að láta mig alltaf vinna. Fyrir háttinn fórum við með bænirnar og þegar þú vaktir mig á morgnana leyfðirðu mér að kúra í nokkrar mínútur áður en ég þurfti að klæða mig og fara í skólann. Allt- af var svo gott að koma til þín og tókstu manni fagnandi í hvert sinn með þínu hlýja og fallega brosi, al- veg undir það síðasta, jafnvel þótt þér liði ekki vel. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Takk fyrir að elska mig og leggja mér lífsreglurnar, takk fyrir að kenna mér svo margt, takk, elsku Vala amma, fyrir allt. Brynjólfur. Vertu dyggur, trúr og tryggur, er upphafið að einni heilræðavísu Hall- gríms Péturssonar sem var eitt af uppáhaldsskáldunum þínum. Þessa tilvitnun fékk ég oft að heyra frá þér, það var eins og hún væri aldrei of oft sögð. Og öll haustin sem við hlustuðum saman á sálmana hans lesna í útvarpinu fyrir svefninn, það var góður tími sem ég gleymi aldrei. Elsku amma, þú misstir svo mikið þegar afi dó svona ungur frá þér en þú áttir góð börn sem gerðu þér lífið léttbærara. Ég er mjög heppin að hafa fengið að vera svona mikið hjá þér eftir að afi dó. Að koma til Bol- ungarvíkur verður ekki eins, engin Vala amma að fara til, hlæja með og gantast við. Alltaf hringdir þú í mig ef ég var ekki nógu fljót að koma til þín. VALGERÐUR FINNBOGADÓTTIR Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns og besta vinar, föður okkar, tengdaföður, sonar, tengdasonar og afa HELGA HERMANNSSONAR stýrimanns, Heiðarbraut 1c, Keflavík. Sérstakar þakkir færum við heimahjúkrun og starfsfólki Heilbrigðisstofn- unar Suðurnesja. Guð blessi ykkur öll. Valdís Þórarinsdóttir, Hermann Helgason, Steinunn Ýr Þorsteinsdóttir, Jóhann Þór Helgason, Særún Rósa Ástþórsdóttir, Pétur Örn Helgason, Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Jón Halldór, Soffía Axelsdóttir, Áslaug Ólafsdóttir, Hermann Helgason, Jóhanna Valtýsdóttir, Þórarinn Brynjar Þórðarson og barnabörn. Okkar elskulega móðir, tengdamóðir, amma, systir og fyrrum eiginkona, EDDA SÓLRÚN EINARSDÓTTIR, lést af slysförum laugardaginn 14. maí. Útför fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 24. maí kl. 14.00. Davíð Viðarsson, Helga María Harðardóttir, Þórir Viðarsson, Dís Gylfadóttir, Ágúst Davíðsson, systkini og Viðar Oddgeirsson. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, STEINUNN MARGRÉT NORÐFJÖRÐ, Ljósvallagötu 20, Reykjavík, lést á heimili sínu fimmtudaginn 12. maí. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu mánu- daginn 23. maí kl. 15:00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeir, sem vilja minnast hinnar látnu, láti líknar- félög njóta þess. Fyrir hönd aðstandenda, Stella María Guðmundsdóttir, Hilmar Þór Guðmundsson. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HELGU FRIÐRIKSDÓTTUR frá Krithóli. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks deildar fimm á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks. Guðríður Björnsdóttir, Jónas Kristjánsson, Kjartan Björnsson, Birna Guðmundsdóttir, Bára Björnsdóttir, Ólafur Björnsson, Anna Ragnarsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. Við þökkum af hlýhug öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hluttekningu við fráfall og útför JÓNS B. KVARAN loftskeytamanns. Hrafnhildur E.K. Egilsson, Gunnar Ó. Kvaran, Sigríður Þ. Kvaran, Elísabet M. Kvaran, Þorvaldur Garðar Kristjánsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku- legs eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, JÓNS B. KRISTINSSONAR húsasmíðameistara, Nónvörðu 2, Keflavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Víðhlíðar í Grindavík. Halldóra Kristín Björnsdóttir, Loftur Hlöðver Jónsson, Kristján Már Jónsson, Ragnhildur Jónsdóttir, Kristmundur Árnason, Ásta Margrét Jónsdóttir, Sigurður H. Jónsson, Dóra Birna Jónsdóttir, Hermann Waldorff, barnabörn og barnabarnabörn. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skilafrestur Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áð- ur en skilafrestur rennur út. Minningar- greinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.