Morgunblaðið - 21.05.2005, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 21.05.2005, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Guðrún MaríaEiríka Egilsdótt- ir (Edda) fæddist í Reykjavík 27. júlí 1934. Hún lést á heimili sínu á Foss- götu 7 á Eskifirði 10. maí síðastliðinn. Edda var dóttir hjónanna Egils Eg- ilssonar, f. 2.9 1910, og Vilhelmínu Guð- mundsdóttur, f. 15.9. 1914, d. 16.7. 1990. Edda var ung að aldri send í fóstur til hjónanna á Sjónar- hóli í Neskaupstað, Eiríks Vigfús- sonar og Guðrúnar Sveinbjörns- dóttur, þau eru bæði látin. Systkini Eddu eru Elín Kristín, f. 23.8. 1935, búsett í Los Angeles í Bandaríkjunum, hálfsystir sam- mæðra Anna Þóra Sigurþórsdótt- ir, f. 1.8. 1943, búsett í Kópavogi, Andrea, f. 21.7. 1982, Páll Þór, f. 19.7. 1985, og Jón Andrés, f. 22.6. 1990, og eitt barnabarn. 3) Jó- hann, f. 22.5. 1958, búsettur í Reykjavík, maki Svanhildur Jóns- dóttir, f. 14.12. 1956, sonur þeirra er Jón Snorri, f. 11.9. 1995, Jó- hann á einnig Erlu Maríu, f. 11.9. 1981, og eitt barnabarn. 4) Jónas Andrés Þór, f. 20.5. 1964, búsettur í Reykjavík, maki Vigdís Sif Hrafnkelsdóttir, f. 12.6. 1967, dóttir þeirra er Sif, f. 30.12. 2004, Jónas á einnig Andrés Má, f. 4.5. 1990. 5) Guðný Þórdís, f. 23.6. 1969, búsett á Eskifirði, maki Gísli M. Auðbergsson, f. 14.10. 1966, börn þeirra eru Auðbergur Dan- íel, f. 12.4. 1993, Katrín Kristín, f. 20.11. 1994, og Guðrún Edda, f. 14.10. 2000. 6) Andrés, f. 5.12. 1970, d. 27.6. 1987. Útför Eddu verður gerð frá Eskifjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin kl. 14. hálfbróðir sammæðra Hilmar Þ. Sigurþórs- son, f. 5.11. 1944, bú- settur í Mosfellsbæ, og hálfbróðir sam- mæðra Steinar Bragi Norðfjörð, f. 14.9. 1953, búsettur í Reykjavík. Edda kynntist árið 1951 Jóni Pétri Andr- éssyni frá Eskifirði, f. 1.2. 1931. Þau gengu í hjónaband 25.12. 1952. Þau eignuðust sex börn. Þau eru: 1) Egill Guðni, f. 16.6. 1952, búsettur í Reykjavík, maki Hulda Þorbjarnardóttir, f. 31.10. 1965, börn Egils eru Arnþór Jón, f. 30.7. 1982, og Elvar Örn, f. 10.11. 1988. 2) Vilhelm, f. 26.8. 1955, búsettur í Reykjavík, maki Bjarney Aðalheiður Pálsdóttir, f. 4.6. 1962, börn þeirra eru Sigrún Elsku mamma, tengdamamma og amma. Sárt munum við sakna þín en við vitum að þér líður vel núna og ert hjá honum Adda okkar. Alltaf gátum við leitað til þín eftir svörum og góðum ráðum. Við mun- um geyma minningar um þig í hjörtum okkar. Innilegar þakkir til starfsfólks Fjórðungssjúkrahúss Norðfjarðar og sérstakar þakkir til Ingibjargar Birgisdóttur hjúkrunarfræðings á Eskifirði. Nú Guð ég vona að gefi af gæsku sinni frið og sársaukann hann sefi af sálu allri ég bið. En þó að sárt sé saknað og sál sé bak við ský þá vonir geta vaknað og vermt okkur á ný. Þó ljósið oss mun leiða með ljúfum minningum og götu okkar greiða með góðum hugsunum. (J.T.) Jóhann, Svanhildur og Jón Snorri. Yndisleg kona er dáin, mamma mín. Það er einkennileg tilhugsun að eiga ekki eftir að heyra í henni í síma eða fara í heimsókn á Eski- fjörð til að hitta hana. Söknuðurinn er þegar mikill en það er samhengi á milli sorgar og ljúfra minninga. Minninga sem koma í hugann á stundu sem þessari og gera það bærilegra að sætta sig við orðinn hlut sem enginn fær breytt. Mamma var náin öllum sínum börnum, kærleiksrík og einlæg. Alltaf að hugsa um aðra en sjálfa sig. Fjölskyldan var henni algjör- lega allt. Ég á svo margar ljúfar minningar um mömmu í gegnum allt mitt líf. Þær minningar mun ég þakklátur geyma með sjálfum mér og kappkosta að nota sem veganesti í lífinu. Alltaf var hægt að leita til hennar, hvort sem var til að þiggja góð ráð, segja frá litlu leyndarmáli eða fá huggun. Hún var ætíð áhuga- söm um velferð okkar, áætlanir og væntingar. Um leið og ég finn fyrir sárum söknuði vegna andláts henn- ar finn ég samhliða fyrir gleði og stolti. Þakklæti fyrir að vera sonur hennar og hafa átt svo langar sam- vistir við hana sem raun ber vitni. Mamma mín var hlédræg kona. Ekkert var fjær henni en að trana sér fram eða láta á sér bera. Hún var nægjusöm og ekki kunni hún að kvarta eða kveina yfir kjörum sín- um hvort sem varðaði líkamlega heilsu eða efnisleg verðmæti. Eins og svo margir af hennar kynslóð þurftu hún og pabbi að hafa fyrir hlutunum til að framfleyta fjöl- skyldu sinni. Foreldrar mínir voru samhent hjón og unnu hörðum höndum að því að koma þaki yfir höfuð og tryggja fjölskyldunni fjár- hagslegt sjálfstæði. Þau eignuðust sex börn og hlýtur oft að hafa verið erfitt að ná endum saman en ekki minnist ég þess að mikið hafi verið sífrað um slíka hluti á Fossgötunni. Þegar ég hugsa til baka minnist ég þess ekki að hafa liðið skort, hvorki andlegan né veraldlegan. Þar á ég móður minni mikið að þakka. Árið 1970 fæddist yngsta systk- inið mitt, Andrés. Vegna raðar óhappatilviljana er leiddu til súrefn- isskorts í fæðingu var hann ætíð mikið hreyfihamlaður. Í staðinn gaf lífið honum ýmsa einstaka eiginleika eins og góðar gáfur, mikinn and- legan styrk, æðruleysi, kímni og gott skap. Andrés var elskur að fjöl- skyldu sinni og sannkallaður sól- argeisli hennar. Fráfall hans árið 1987, er hann var aðeins tæpra 17 ára gamall, var fjölskyldunni þungt áfall. Mamma var lengi á eftir óhuggandi enda fannst henni sem hluti af henni sjálfri hefði dáið. Tal- aði hún um það æ síðar að ekki ótt- aðist hún dauðann því þá myndi hún hitta Adda sinn. Nú hefur það orðið og víst er að ég trúi því að þau séu nú sameinuð á ný og eigi góðar stundir saman. Andrés bróðir var mestan hluta af lífi sínu heima hjá mömmu og pabba. Þar var hann umvafinn ást þeirra og hlýju er var honum mikil gæfa og hefur létt hin- ar þungu byrðar sem lífið lagði hon- um á herðar. Minning hans er mér ljóslifandi en mikið er ég þakklátur fyrir að hafa fengið að njóta sam- vista við hann, þótt stuttar væru. Í veikindum sínum síðustu mán- uði sýndi mamma úr hverju hún var gerð. Hún bar þjáningar sínar og veikindi með reisn og sýndi í leið- inni sinn mikla andlega styrk og umhyggju fyrir öðrum. Hún hafði fram á síðustu stundir áhyggjur af okkur sem eftir lifum en ekki sjálfri sér. Ást hennar og umhyggja fyrir fjölskyldunni kom þarna svo skýrt í ljós. Gleði hennar að hitta börnin sín og barnabörn var fölskvalaus og nærði hana meira en nokkuð annað. Mamma var trúuð kona og sann- færð um að eitthvað annað biði en bara líkamlegur dauði. Dauðann ótt- aðist hún alls ekki, heldur leit á hann sem upphafið á nýrri vegferð. Fyrir hönd pabba og okkar systk- inanna vil ég færa starfsfólki sjúkrahússins í Neskaupstað og heilsugæslunnar á Eskifirði og þeim öðrum sem komu að umönnun hennar innilegar þakkir fyrir ómet- anlega hjálp og samhug á erfiðum tímum. Mamma fékk eins góða að- hlynningu og mögulegt var að veita á þeim tíma sem hún dvaldist á sjúkrahúsinu og eftir að hún kom heim til að deyja. Eins vill fjölskyld- an sérstaklega þakka Ingibjörgu Birgisdóttur, hjúkrunarkonu á Eskifirði, ómetanlegan þátt í umönnun mömmu á Fossgötunni. Ingibjörg er yndisleg manneskja en erfitt er að lýsa þakklæti okkar og virðingu í hennar garð og fjöl- skyldu. Engin orð í mínum fórum fá lýst þakklæti mínu og virðingu fyrir mömmu minni og væntumþykju. Með þessum orðum kveð ég mömmu mína að sinni um leið og ég þakka henni allt og allt og óska henni góðrar ferðar á nýjum vegi. Þinn sonur, Jónas Andrés Þór Jónsson. Í dag kveð ég elskulega tengda- móður mína. Erfið tíðindi spyrja ekki um árstíma, ekki heldur á þessum fallega tíma þegar daginn lengir og nóttin hörfar. Nú hefur myrkrið hellt sér yfir þá sem Eddu elskuðu. Dauðinn skilur eftir skörð hvar sem hann fer og þessi skörð er oft erfitt að fylla. En eins og Edda hefði viljað kemur birtan aftur og við minnumst hennar með hlýju og lærum að lifa án hennar, með minn- ingu í hjarta um einstæða konu. Ég kynntist Eddu fyrir 15 árum og allt- af var jafn gott að sækja hana og Nonna heim á Fossgötuna, þú hafð- ir alltaf tíma fyrir alla og sást til þess að engan vanhagaði um neitt. Þú hugsaðir alltaf fyrst um aðra, síðan þig sjálfa, en þannig varst þú bara. Það var hægt að ræða um alla hluti við þig, þú hafðir þínar skoð- anir og lést þær í ljós en varst ætíð sanngjörn, sama hver átti í hlut. Það verður tómlegt að koma austur í paradísina þína, fjöllin og sveitin var þín paradís. Þinn draumur var að byggja lítið hús uppi í fjalli, þar hefðir þú vaknað við fuglasönginn, en söngurinn heldur áfram, og munu þeir syngja þér til heiðurs því yndi hafðir þú af tónlist. Edda var ekki alltaf heilsugóð, en ekki kvart- aði hún, ég hef alltaf dáðst að styrknum sem hún bjó yfir. Hún var svo létt í lund og hræddist ekki hvað tæki við eftir þetta líf, eflaust hefur áhugi hennar á andlegum málefnum, sérstaklega í seinni tíð, styrkt hana í trúnni. Í yndislegu veðri síðasta sumar sameinaðist fjölskyldan fyrir austan og hélt henni veislu í tilefni 70 ára afmælisins. Henni fannst það alveg óþarfi en þrátt fyrir það naut hún þess og var mjög þakklát fyrir. Ekki grunaði okkur þá að það yrði í síðasta skipti sem við myndum öll koma saman til að gleðjast, en ég er þakklát fyrir að af því varð. Nú hefur þú þurft Edda mín að lúta í lægra haldi fyrir þeim illvíga sjúkdómi sem þú barðist svo hetju- lega við í stuttan en erfiðan tíma, þú tókst þessu með svo miklu æðru- leysi að aðdáunarvert var hvað þinn innri styrkur var mikill. Allan tím- ann vonuðum við að kallið kæmi ekki svona fljótt, en því fengum við ekki ráðið. En minningin um góða konu mun lifa með okkur sem eftir erum. Elsku Edda mín ég þakka þér fyrir allt og ég er þakklát fyrir að hafa kynnst þér og fengið að vera þér samferða þennan stutta spöl, mér finnst ég ríkari fyrir vikið því margt mátti af þér læra. Við sitjum eftir með sár en vitum að lífið heldur áfram. Ég bið samt guð að styrkja okkur öll á þessum erfiðu tímum. Minning þín er ljós í lífi okkar. Ég veit að tekið hefur GUÐRÚN MARÍA EIRÍKA EGILSDÓTTIR Útför mannsins míns, TORFA ÁSGEIRSSONAR, Dalbraut 14, verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánu- daginn 23. maí kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið. Guðmunda Guðmundsdóttir. Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og vinsemd og veittu ómetanlega hjálp vegna andláts og útfarar móður okkar, tendamóður og ömmu, HELGU FRIÐRIKU STÍGSDÓTTUR, Hlíf 1, Ísafirði. Guð blessi ykkur öll. Rannveig Ragúelsdóttir, Amed Hajo, Hallfríður Ragúelsdóttir, Stefán Hagalín Ragúelsson, Berglind Árnadóttir, Jóna R. Ragúelsdóttir, Ciwan Haco og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HRÖNN JÓNSDÓTTIR, Krummahólum 29, Reykjavík, andaðist á Landspítala Landakoti miðviku- daginn 18. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fylkir Þórisson, Bärbel Valtýsdóttir, Helga Þórisdóttir, Jens Þórisson, Hrafnhildur Óskarsdóttir, Konráð Þórisson, Margrét Auðunsdóttir, Jón Þórisson, Ragnheiður Steindórsdóttir, Vörður Þórisson, Þorbjörg Þórisdóttir, Ólafur Pálsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, ástkær móðir okkar, uppeldismóðir, tengdamóðir, amma og lang- amma. ERLA KRISTJÁNSDÓTTIR, til heimilis á Bakkastöðum 5a, áður Hjallalandi 22, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópa- vogi á hvítasunnudag, 15. maí sl., verður jarð- sungin frá Grafarvogskirkju föstudaginn 27. maí kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á stuðning við eitthvað af eftirfarandi verkefnum Húman- istarhreyfingarinnar: 1) Vinir Afríku, reikningsnúmer: 313-26-67003, kt. 670599-2059. 2) Vinir Indlands, reikningsnúmer: 582-26-6030, kt. 440900-2750. 3) Lestrarátak á Haiti, reikningsnúmer: 1195-05-403072, kt. 480980-0349. Hafsteinn Erlendsson, Eyrún Björg Hafsteinsdóttir, Neil Clark, Þórður Hafsteinsson, Jón Grétar Hafsteinsson, Dóróthea Siglaugsdóttir, Sigrún Hafsteinsdóttir, Úlfar Finnbjörnsson, Ásta Einarsdóttir, ömmubörn og langömmubarn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, sonur, bróðir og afi, HJÁLMAR RÚNAR HJÁLMARSSON vélstjóri, Lóulandi 2, Garði, lést á heimili sínu fimmtudaginn 19. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Guðrún Eyvindsdóttir, Helga Hjálmarsdóttir, Óliver Keller, Herborg Hjálmarsdóttir, Sveinn Ólafur Jónasson, Dóra Sigrún Hjálmarsdóttir, Sigrún Oddsdóttir, systkini og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.