Morgunblaðið - 21.05.2005, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 21.05.2005, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Helga Sveins-dóttir fæddist í Vík í Mýrdal 10. mars 1916. Hún lést á dval- arheimilinu Hjalla- túni í Vík að morgni 11. maí síðastliðins. Foreldrar Helgu voru hjónin Eyrún Guðmundsdóttir hús- freyja, f. í Skurðbæ í Meðallandi 5. mars 1876, d. 25. apríl 1964 og Sveinn Þorláksson, skósmiður og sím- stöðvarstjóri í Vík, f. í Þykkvabæ í Landbroti 9. ágúst 1872, d. 22. desember 1963. Helga var eitt tólf barna þeirra hjóna Sveins og Eyrúnar sem komust upp, en þau eignuðust 15 börn. Af þeim systkinum eru á lífi þau Páll, f. 31. janúar 1908, Kjartan f. 22 júlí 1912, Guðný, f. 28. júlí 1920 og Þorbjörg, f. 30 október 1923. Lát- in eru Þorlákur, f. 2. okt. 1899, d. 13. júní 1983, Ólafur Jón, f. 2. ágúst 1904, d. 21. mars 1991, Anna, f. 9. des. 1905, d. 9. febr. 1991, Guðmundur, f. 6. janúar 1907, d. 12. maí 2001, Sigurður, f. 15. janúar 1909, d. 14. okt. 1995, Ingiberg- ur, f. 28. ágúst 1910, d. 1935 og Sigríður, f. 20. júní 1914, d. 8. sept. 1995. Helga giftist Guðna Loftssyni frá Bakka í Austur- Landeyjum, f. 4. maí 1913, 24. maí 1941. Guðni lést 14. októ- ber það sama ár. Dóttir þeirra, Guðný, fæddist 5. ágúst 1941. Foreldrar Guðna voru hjónin Kristín Sigurðardóttir ljós- móðir og húsfreyja, f. 16. júní 1874, d. 7. maí 1957 og Loftur Þórðarson bóndi á Bakka í Aust- ur-Landeyjum, f. 14. júlí 1867, d. 26. nóvember 1953. Helga var talsímavörður í Vík frá árinu 1941. Árið 1956 var hún skipuð símstöðvarstjóri í Vík og gegndi því starfi til ársins 1980. Útför Helga verður gerð frá Víkurkirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 14. Helga móðursystir mín fæddist og ólst upp í Vík í Mýrdal. Hún fór snemma í sveit og dvaldi víða, m.a. á Eyjahólum í Mýrdal þar sem hún undi sér hvað best. Hún var um skeið ráðskona í vegavinnu, en tók til starfa sem talsímavörður í Vík 1941. Árið 1956 var hún skipuð símstöðv- arstjóri í Vík og gegndi því starfi til ársins 1980. Á þeim árum sem Helga var að alast upp fór Vík að taka á sig mynd sem mikilvæg miðstöð mannlífs og verslunar í Mýrdalshreppi. Gamla símstöðin, þar sem faðir hennar Sveinn hafði sett upp skósmíðaverk- stæði árið 1906 og tekið að sér rekst- ur talsímans árið 1914, gegndi mik- ilvægu hlutverki á staðnum. Þegar Helga fæddist árið 1916 var barna- hópur Sveins og Eyrúnar orðinn stór og elstu drengirnir fluttir til ætt- ingja til að létta undir. Til að metta marga munna þurftu þau Sveinn og Eyrún að grípa öll tækifæri til að afla lífsviðurværis og sýna bæði ráð- deild og reglusemi. Þessa eiginleika tileinkaði Helga sér og varð snemma forsjál og sífellt umhugað um að búa vel í haginn fyrir sig og sína. En í þessu samfélagi var hjálpsemin hornsteinn velferðar og þá eiginleika tileinkaði Helga sér. Á símstöðinni var afar gestkvæmt og fjölmennur frændgarður úr Landbroti, Síðu og Meðallandi dvaldi þar títt nætur- langt á ferðum sínum til að versla í Vík. Símstöðin var lifandi heimili og þangað bárust tíðindi með gestum og símtölum löngu áður en ríkisút- varpið tók til starfa. Þar var lagður grunnur að lífsviðhorfum Helgu sem einkenndust af frændrækni, ráð- deild og þjónustulund. Hreinskilnin var engu minni en þjónustulundin og eflaust hefur hún á stundum kallað á vandræði. Guðni Loftsson frá Bakka í Land- eyjum var maður Helgu. Saman eignuðust þau Guðnýju, sem síðar fetaði í fótspor mömmu sinnar og tók við símstöðvarstjórastarfinu í Vík af henni. Vart er hægt að hugsa sér meiri ógæfu en að missa manninn sinn fjórum mánuðum eftir brúð- kaupið frá tveggja mánaða gamalli dóttur. Sú skelfilega reynsla hefur eflaust fylgt Helgu til hinsta dags þó ekki hafi hún borið harm sinn á torg. Allt frá því að sá sem þetta skrifar náði fimm ára aldri dvaldi hann lang- dvölum í Vík hjá afa, ömmu og Helgu frænku. Helga hafði þann sið að kalla börnin sem henni voru sérlega kær einhverjum gælunöfnum og gekk undirritaður undir nafninu ,,krúsus“. Helga varð mér mikilvægt haldreipi í tilverunni um margra ára skeið og fyrir hennar tilstuðlan varð símstöðin að öðru ástríku heimili mínu. Kærleikur Helgu fylgdi mér inn í fullorðinsárin og þegar börnin komu til sögunnar nutu þau hans einnig rausnarlega. Hún fór yfir haf- ið bæði til vesturs og austurs til að fylgjast með þroska barnanna minna sem hún eflaust með réttu hefur tal- ið sig eiga eitthvað í. Það var mér og fjölskyldu minni mikil gæfa að eiga Helgu að. Helga var náttúrubarn og naut þess að ganga um Víkina og fylgjast með framþróun náttúrunnar. Hana mátti þekkja úr fjarlægð þar sem hún við göngu hafði hendur fyrir aft- an bak með sérstökum hætti. Hún var fundvís með afbrigðum og var oft kölluð til þegar eitthvað glataðist. Hún var einnig nösk á að finna sér- staka og fallega steina sem hún tók oft með sér heim og lét vini og vandamenn njóta. Henni var í blóð borin búmennskan og náði snemma góðum tökum á því að rækta kart- öflur. Þær voru ófáar föturnar og pokarnir með kartöflum sem Helga færði vinum og vandamönnum. Helga var almennt heilsuhraust en veiktist alvarlega rétt kominn á níræðisaldur og náði sér aldrei eftir það. Veikindin voru henni erfið þar sem athafnaþráin var mikil. Hóf hún þá að föndra og ófáar fallegar jóla- kúlur og margskonar krúsir hennar skreyta nú heimili vina og ættingja um jólin. Í veikindunum var það hennar gæfa að eiga Guðnýju dóttur sína að sem stóð óþreytandi við hlið hennar allt fram á síðustu stund. Gamlir vinir hennar í Vík og starfs- fólk dvalarheimilisins Hjallatúns reyndust henni einnig afar vel þegar hallaði undan fæti. Við fráfall Helgu Sveinsdóttur er gengin kona sem setti ríkan svip á samfélagið í Vík á liðinni öld og auðgaði líf ættingja og vina. Blessuð sé minning Helgu Sveinsdóttur. Tryggvi Felixson. Helga var tólfta af fimmtán börn- um Sveins Þorlákssonar og Eyrúnar Guðmundsdóttur í Vík í Mýrdal, fædd 10. mars 1916. Eiginmaður Helgu, Guðni Loftsson smiður frá Bakka í Austur-Landeyjum, lést lið- lega tveimur mánuðum eftir að Guðný dóttir þeirra fæddist í ágúst 1941. Helga varð sama ár talsíma- vörður hjá föður sínum, sem var sím- stöðvarstjóri í Vík. Helga gegndi því starfi til ársins 1956, og tók þá við af föður sínum. 1980 tók Guðný dóttir hennar svo við embættinu. Helga og Guðný bjuggu lengst af saman á sím- stöðinni, fyrst með foreldrum Helgu. Síðustu árin dvaldi Helga á hjúkr- unarheimilinu Hjallatúni í Vík þar sem hún naut góðrar umönnunar. Heimili Helgu og foreldra hennar var jafnframt vinnustaður þeirra. Það mun að vísu hafa haft eitthvert ónæði í för með sér, en aldrei minnist ég þess að haft hafi verið orð á því. Helga tók ekki aðeins við starfi föður síns á símstöðinni og húsmóðurstörf- um móður sinnar. Þegar fram liðu stundir hélt hún foreldrum sínum heimili með öllu sem því fylgdi. Ey- rún móðir hennar hefði sjálfsagt ver- ið komin á sjúkrahús eða elliheimili síðustu misserin sem hún lifði, en Helga tók að sér hjúkrunarhlutverk- ið. Hún var hagsýn húsmóðir, rækt- aði kartöflur, saltaði fýl í tunnu og sultaði og saftaði á meðan heilsan leyfði. Búrkofinn við símstöðina var spennandi heimur, þar sem fjala- kötturinn var í aðalhlutverki. Hann endaði á byggðasafninu á Skógum. Gaman var að fylgjast með Helgu við skiptiborðið. Hún svaraði snöggt og ákveðið og gaf samband með hraði gegnum þetta undraverða tæki sem talsímaborðið var. Helga talaði sjaldan lengi í einu í símann og átti það ekki síst við um persónuleg sam- töl. Hún hafði djúpan málróm og tal- aði hratt og minnist ég þess að ég bar óttablandna virðingu fyrir henni sem barn. Síðar kynntist ég hlýrri og hugsandi konu bak við þetta hrjúfa yfirbragð. Helga fylgdist vel með okkur systkinabörnunum og sendi jafnan jólagjafir í tugatali. Þá sem stóðu höllum fæti sökum veikinda eða af öðrum ástæðum, studdi hún sérstaklega. Ég átti því láni að fagna að vera í sveit í Mýrdalnum sumrin 1959– 1965. Stöku sinnum fékk ég að fara til Víkur að heimsækja afa og ömmu meðan þau lifðu og Helgu og Guð- nýju á símstöðinni. Eins og hendi væri veifað hafði Helga lagt á borð mjólkurglas og sínar klassísku randalínur og spurði frétta úr sveit- inni á meðan hún sinnti störfum í eldhúsi, borðstofu og símstöð. Ára- tugum síðar þegar ég leit inn til Helgu á leið minni í og úr veiði í Landbrotinu, var hún jafnan fljót að laga kaffi eða bjóða í mat og spyrja frétta að sunnan. Eitt sumar var ég samferða félaga mínum austur til Víkur, en sá hafði fengið sumarpláss á bæ í næstu sveit. Þegar til átti að taka gat fólkið ekki tekið við honum. Nú voru góð ráð dýr. Helga var eld- fljót að bjarga hlutunum. Hún hringdi eitt símtal út í sveit og útveg- aði drengnum nýja vist. Þetta var ekki einsdæmi. Þannig var Helga raungóð. Helga Sveins var ekki með skrúpl- ur yfir hlutunum og sagði skoðun sína umbúðalaust á hverju málefni. Hún var litríkur persónuleiki sem ævinlega var gaman að hitta. Henn- ar verður minnst með þakklæti og virðingu og við munum sakna henn- ar þegar niðjar Sveins og Eyrúnar hittast í Vík nú í sumar. Magnús Guðmundsson. Helga hefur haldið heim, höfðingi er horfin á braut. Ég var unglingur þegar ég kom fyrst til Víkur með einum af uppáhaldsfrændum Helgu, sjálfum Krúsusnum hennar. Um há- vetur, í kulda og myrkri, komum við á Símstöðina en móttökurnar voru fullar hlýju og umhyggju. Fyrsta verkið, sem mér var falið, var að setja upp kartöflur. Á meðan hún og frændinn, sem mér var svo hjart- fólginn að ég hætti mér með honum á þessu stigi sambandsins í heim- sókn til frænkna úti á landi, gengu suður að sjó, skrúbbaði ég og skrúbbaði kartöflurnar. Mér var allsendis ókunnugt um áhuga Helgu á kartöflum þá, en mörgum árum og fleiri börnum síðar, sagði hún mér að ég hefði þarna í fyrstu heimsókninni unnið mér ákveðinn sess í huga hennar vegna þessarar meðferðar á kartöflunum. Lýsandi fyrir viðhorf Helgu. Manni ber að huga vel að öllu, jafnt smáu sem stóru, rækta sinn jurtagarð af kostgæfni. Hug- sjón sem hún fylgdi eftir í gjörðum sínum. Eftir að við Tryggvi giftumst og eignuðumst börn og fjölskyldan dvaldi áralangt erlendis við nám og störf vestan hafs og austan, lét Helga sig ekki muna um að heim- sækja okkur. Sérstaklega eru mér hugleikin árin sem við bjuggum í Kaupmannahöfn. Árlega nutum við heimsókna þeirra, hennar og Guð- nýjar tengdamóður minnar. Þá var prjónað, gengið, lesið, bakað, hlegið, spilað, sópað og leikið með bolta. Börnum tamin virðing fyrir fullorðn- um, þeim kennt að taka eftir um- hverfi sínu og síðast en ekki síst að umgangast matinn vel og að hreinsa af diskunum sínum. Þau eru einnig ógleymanleg ferða- lögin í stóra bílnum okkar, suður um Evrópu, upp um Svíþjóð, út og suður um Danaveldi. Hvort sem var um menningarslóðir eða náttúrulindir. Alltaf lögðum við á ráðin saman en á leiðinni var hún athugul og eftirtekt- arsöm, ætíð hressandi og kát. Undir lok dags, eftir langt ferðalag, gat fullorðna fólkið reitt sig á hressingu svo sem smávegis magamixtúru. Ofarlega í minningunni eru líka samverustundir sem fjölskyldan átti í lundinum okkar kæra. Í skógrækt- inni, sem Helga og dóttir hennar Guðný vildu deila með okkur, þar sem sumarbústaðurinn Helgulundur reis að hennar frumkvæði. Þar gafst tækifæri til ræktunar, í þetta sinn aðallega trjáa en ekki kartaflna. Helga var enn sem fyrr óþreytandi við að hlúa að, reyta frá og klippa kringum óteljandi skógarplöntur. Og eins og jafnan um ungviði gladd- ist hún yfir vexti og þroska. En að- eins einu sinni reyndum við að rækta kartöflur í Fellsmörkinni. Við bjugg- um til garð, settum niður og fylgd- umst náið með grösunum. Þau litu vel út. En þegar að því kom að taka skyldi upp fyrstu kartöflurnar í soðið var Helga síður en svo ánægð. Ekki beint út af stærð kartaflnanna, held- ur eiginlega útlitinu. Henni fannst það heldur óaðlaðandi. Kartöflur úr blautri jörð, þaktar rakri mold. En hún hló og útskýrði fyrir mér að Vík- urbúar tækju kartöflurnar sínar upp úr hlýjum sandgörðum, hristu af þeim örfá korn og þar með væru þær tilbúnar í pottinn til neyslu eða pok- ann til geymslu. Húmor, hlátur og vinnugleði var ekki síður ríkjandi í Reynihvammi í sláturtíðinni. Þegar fjölskyldan flutti heim til Íslands eftir margra ára dvöl í útlöndum varð sláturgerð fast- ur liður í fjölskylduhaldinu. Helga blandaði og stjórnaði, Guðný tengdamanna sneið vambirnar og ég snerist í kringum þær og saumaði. Eftir fyrsta alvarlega áfallið, sem Helga varð fyrir, höfðum við það á orði að endurhæfingin hefði miðað leynt og ljóst að því að Helga vildi vera tilbúin til að taka með okkur slátur um haustið. Með glæsibrag og ekki í síðasta sinn, en því miður fór skiptunum með þátttöku hennar í sláturgerðinni fækkandi. Við ferðalok stendur mér fyrir hugskotssjónum sterk kona, stór- huga, skemmtileg, athugul og full umhyggju. Hún heldur á nýjar slóð- ir, horfandi fram á veginn með hend- ur fyrir aftan bak. Hvort hún lítur heim og á Höttu til að spá um ferða- veður er óvíst. Um leið og ég þakka samfylgdina við mig og fjölskyldu mína og bið ég Guð að geyma Helgu Sveins. Sigrún Kristín Magnúsdóttir. Heimsmynd ungs drengs er ekki endilega stór. Samt getur hún verið ótrúlega merkileg. Heimsmynd mín í æsku var mörkuð af húsi mömmu og pabba, hótelinu þar sem Gunna og Brandur réðu ríkjum og svo sím- stöðinni. Yfirleitt gekk lífið þann veg fyrir sig að Sveinn Þorláksson, sím- stöðvarstóri, kom með Morgunblað- ið heim og fékk Tímann í staðinn. Í einstaka tilfellum var hann seinn á sér, þannig að ég fór á símstöðina með Tímann. En þetta voru ekki einu tengslin við umheiminn þar sem útvarpið heima var beintengt við heimili Sveins Þorlákssonar. Símstöðin var undraveröld. Yfir- leitt sat Helga Sveinsdóttir við stjórnborðið og tróð hinum fjöl- mörgu tökkum í rétt göt þannig að eðlileg tjáskipti áttu sér stað manna á milli. Það er til marks um það traust sem hún naut sem fagmaður í sínu starfi, að þegar faðir hennar lét af störfum var hún umsvifalaust ráð- in símstöðvarstjóri. Mér er nær að halda að sú ráðning hafi verið eins- dæmi og undanfari þess sem síðar hefur þróast í réttindabaráttu kvenna. Og ekki aðeins það, heldur tók Guðný dóttir hennar og æsku- vinkona mín við starfinu af móður sinni. Helga Sveinsdóttir varð fyrir því áfalli að missa eiginmann sinn skömmu eftir fæðingu Guðnýjar dóttur sinnar. Helga stóð sig með mikilli prýði í uppeldisstarfinu, enda naut hún góðs stuðnings allra sinna vandamanna. Helga var mikill kven- skörungur. Traust og staðfesta ein- kenndu öll hennar störf. Ég minnist hennar með þökk fyrir ástúð, vin- semd og hlýju. Guðnýju votta ég innilega samúð. Baldur Óskarsson. Ég sé hana ganga í burtu frá okk- ur, í úlpunni sinni, svolítið álúta og með hendur fyrir aftan bak. Hún lít- ur ekki til baka og hverfur smám saman úr augsýn. Við trúum því naumast að hún sé farin, hún sem var hluti af Víkinni. Ekkert verður eins og fyrr og Víkin verður aldrei söm án hennar, það vantar eitthvað. Helga var eins og einn af Dröngun- um. Hún var kletturinn á heimilinu þegar hún bjó úti á símstöð með for- eldrum sínum og Guðnýju. Hún var sú sem tók á móti ættingjum og vin- um hvenær sem var, bauð þeim húsaskjól og veitti þeim beina, a.m.k. eftir að afi og amma voru komin á efri ár. Og eftir að þær mæðgur fluttu á nýju símstöðina var heimili þeirra oft eins og hótel. Alltaf voru allir velkomnir. Helga fylgdist ótrú- lega vel með öllum ættingjum sínum, a.m.k. úr Sveinsættinni, og ég held hún hafi verið með flest nöfn afkom- endanna á hreinu allt í fjórða lið meðan hún hélt fullri heilsu. Helga var mikil barnakerling. Hún var samt aldrei mikið fyrir kossa og kjass en hún hafði sinn hátt á að nálgast krakkana. Hún talaði við þá eins og fullorðna eða við fullorðna eins og börn og sagði gjarnan: „Hvað segir þú, væni minn? „Hvernig hafið þið það? „Langar ykkur ekki í eitt- hvað? Hún var alltaf að bjóða fólki eitthvað, alltaf að gefa eitthvað, ef ekki mat eða hlut þá eitthvað af sjálfri sér. Hún var líka ótrúlega næm fyrir líðan fólks og hafði sér- staklega góða nærveru. Hún var allt- af hrein og bein og kom til dyranna eins og hún var klædd. Við söknum hennar mjög og erum líka mjög þakklát fyrir að fá að vera hennar og með henni. Víst er að hún á góða heimkomu og að vel verður tekið á móti henni hinum megin landamær- anna. Elsku Guðný, margir hlýir straumar verða sendir austur til ykkar. Sveinn Kjartansson. HELGA SVEINSDÓTTIR Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum). Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr- ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn- ur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvadd- ur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minn- ingargreinunum. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.