Morgunblaðið - 21.05.2005, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 21.05.2005, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 59 ÞÓR HF | Reykjav ík: Ármúla 11 | Sími 568-1500 | Akureyr i : Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor. is GÓÐAR VÉLAR Í GARÐINN OG SUMARBÚSTAÐINN Garðsláttuvélar Enskur eðalgripur Sláttutraktorar 12,5 - 18 hö Verð frá 170.000 Garðsláttuvélar Þýskar gæðasláttuvélar Rafm.sláttuvélar 1000W - 1200W Garðsláttuvélar 3,5 hö - 6 hö Vandaðar vélar og öflugir mótorar Sú vinsælasta á góðu verði Fyrir þá sem gera kröfur um gæði Fyrir þá sem gera kröfur um gæði SKÁKFÉLAG Akureyrar fékk á sínum tíma Jón Þ. Þór, sagn- fræðing og skákmann, að rita sögu skákar á Akureyri í eina öld. Bók- in, Skák í hundrað ár, kom út árið 2001 en þá var öld liðin síðan Taflfélag Akureyrar var stofnað. Því félagi varð ekki auðið margra lífdaga og lagði niður laupana ár- ið 1903. Skáklíf norð- an heiða varð síður en svo útdauða með þessu og árið 1919 var Skákfélag Akureyrar stofnað. Félagið hafði frumkvæði að því að Skáksamband Íslands var stofnað á fundi á Blönduósi árið 1925. Einnig er athyglisvert að um þetta leyti gerðist Stefán Ólafsson, einn sterkasti skákmað- ur landsins, vatnsveitustjóri á Ak- ureyri. Stefán þessi varð m.a. Ís- landsmeistari árin 1919, 1921 og 1922 og lét hann brátt kveða að sér í skáklífi norðanmanna þegar hann varð efstur á Skákþingi Ak- ureyringa árið 1924 ásamt Ara Guðmundssyni og Jóni Sigurðs- syni. Á skákfundi í janúar 1925 tefldi hann eftirfarandi skák við Ara Guðmundsson en hún birtist m.a. það ár í aprílhefti breska skáktímaritsins British Chess Ma- gazine. Hvítt: Stefán Ólafsson Svart: Ari Guðmundsson 1. e4 e5 2. Rc3 Rc6 3. f4 exf4 4. Rf3 g5 5. d4 g4 6. Bc4 gxf3 7. 0-0 d5 8. exd5 Bg7 9. dxc6 Bxd4+ 10. Kh1 fxg2+ 11. Kxg2 Dg5+ 12. Kh1 Bh3 13. De2+ Re7 14. cxb7 Hd8 15. Bxf4 Bxf1 16. Hxf1 Dg6 17. Rd5 Bc5 18. Rxc7+ Kf8 19. Bh6+ Kg8 Hvítur hefur telft snarplega til sigurs sem tryggt hefur honum gjörunnið tafl. Næsti leikur bindur enda á skákina með listilegri hætti en 20. Bxf7+. vegismaður vann mótið nítján sinnum, síðast árið 1975, einu ári áður en hann lést. Í ár lenti A- sveit félagsins í fjórða sæti í 1. deild Íslandsmóts skákfélaga og sigur vannst á sveit Íslandsmeist- ara Hellis í vináttukeppni í hrað- skák. Minningarmót Jóns Björg- vinssonar tókst afar vel upp en Jóhann Hjartarson og Jón Viktor Gunnarsson urðu hlutskarpastir á því. Fyrir skömmu var haldið hraðskákmót til að heiðra minn- ingu Gunnlaugs Guðmundssonar en hann var í forystuliði skák- félagsins um langt árabil. Haldnar voru í vetur reglulega æfingar fyr- ir börn og unglinga ásamt því að KB banka barnamótið fór fram í janúar sl. þar sem nokkrir tugir krakka mættu til leiks. Fyrir tveimur árum komu félagar úr Skákdeild eldri borgara úr Reykjavík í heimsókn til Akureyr- ar og öttu kappi við félaga úr Skákfélagi Akureyrar sem eru 60 ára og eldri. Á síðasta ári fóru svo norðanmenn suður og 29. maí næstkomandi munu þessi tvö lið tefla í vináttukeppni sem fram fer á Akureyri. Fimmtudaginn 26. maí næstkomandi verður farið yfir við- burði vetrarins á uppskeruhátíð og eru allir velunnarar félagsins hvattir til að mæta. Nánari upplýs- ingar um hana og aðra starfsemi félagsins er að finna á vefsíðunni www.skakfelag.is. Ponomarjov óvænt efstur í Búlgaríu Mikið líf og fjör hefur verið í skákum keppenda á ofurskákmóti Mobiltel sem fram fer þessa dag- ana í Sofíu í Búlgaríu. Yngsti og stigalægsti keppandinn, Ruslan Ponomarjov (2695), hefur unnið tvær skákir í röð og þar með skot- ist úr neðsta sætinu í það efsta. Í fimmtu umferð hafði hann hvítt gegn heimamanninum Veselin Topalov (2778) sem fórnaði drottn- ingu sinni snemma tafls. Úkraínu- maðurinn kaus að gefa drottningu sína til baka en varð við það skiptamun yfir. Þegar 23 leikjum var lokið kom eftirfarandi staða upp: 24. Rh6+! Glæsilega mannsfórn sem bygg- ist á því að biskup svarts verður leppur það sem eftir er skákarinn- ar og að hvítum tekst að hafa báða hróka sína á áttundu reitaröð. 24. ...gxh6 25. Bxh6 Hf7 26. Hd8 Re7 27. Hc7! Hvítur hótar nú 28. Hxe7. 27. ...Rg6 28. Hcc8 e5 29. f4 Bd7 30. Ha8 Bh3 31. Kf2 b5 32. Hdb8 exf4 33. gxf4 Bd7 34. h4! Bc6 35. h5 Bxa8 36. hxg6 hxg6 37. Hxa8 f5 38. Kg3 a6 39. Kh4 Hg7 40. Kg5 og svartur gafst upp því að fyrr eða síðar lendir hann í leikþröng og þá verður hann manni undir. Að loknum sex um- ferðum var staða mótsins þessi: 1. Ruslan Ponomarjov 3½ v. 2.–5. Vladimir Kramnik (2.753), Mich- ael Adams (2.737), Judit Polgar (2.732) og Veselin Topalov (2.778) 3 v. 6. Viswanathan Anand (2.785) 2½ v. Hægt er að fylgjast með gangi mála í beinni útsendingu á Netinu, annars vegar á skákþjón- inum ICC og hinsvegar á heima- síðu mótsins, www.mtelmasters- .com. Skáklíf á Akureyri fyrr og nú SKÁK Skákfélag Akureyrar Skák í hundrað ár Ljósmynd/Hrönn Einarsdóttir Gylfi Þórhallsson, formaður SA, teflir hér við Stefán Bergsson. HELGI ÁSS GRÉTARSSON daggi@internet.is 20. Dg4! Ekki má þiggja drottninguna þar sem svartur yrði mát eftir 20. ...Dxg4 21. Bxf7#. 20. ...Rf5 21. Bxf7+! Kxf7 22. Hxf5+ og svartur gafst upp. Illu heilli gat Skákfélagið ekki notið krafta Stefáns lengi þar eð hann veiktist af berklum og lést árið 1928. Starf félagsins hélt þó að sjálfsögðu áfram og er sögu þess gerð góð skil í fyrr- nefndri bók. Af bók- inni að dæma hefur slagkrafturinn í starf- seminni verið mis- mikill í áranna rás en þó hefur félagið alltaf verið miðstöð skáklífs norðan heiða. Fyrir tilstilli þess hafa verið haldin sterk alþjóðleg skákmót og einnig hefur það verið upp- eldisstöð margra sterkra skákmanna. Þorri þessara skák- manna hefur haldið tryggð við fé- lagið þó að þeir hafi flust búferl- um. Þannig hefur félagið getað notað krafta þeirra í keppnum á borð við Íslandsmót skákfélaga en á síðasta Íslandsmóti hafði félagið tvö lið í efstu deild. Barna- og ung- lingastarf hefur alltaf skipað veg- legan sess í starfi félagsins og fyr- ir 15 árum tókst samstarf milli félagsins og Kiwanisklúbbsins Kaldbaks. Á hverju ári hafa verið haldin fjölmenn mót fyrir krakka þar sem Kiwanisklúbburinn hefur gefið verðlaun og viðurkenningar en skákfélagið séð um skákstjórn. Eitt árið tóku 144 krakkar þátt og er það met sem erfitt verður að slá. Núverandi formaður félagsins, Gylfi Þórhallsson, hefur í gegnum tíðina unnið afar ötullega fyrir fé- lagið. Á árunum 1982–1988 gegndi hann formennsku í félaginu sem og frá 1999–2002. Nýbakaður Skákmeistari Norðlendinga, Þór Valtýsson, hefur einnig unnið mik- ið starf fyrir félagið en þeir tveir voru helstu hvatamenn þess að hin fróðlega bók Jóns Þ. Þórs væri rit- uð. Þessir tveir reynsluboltar hafa ásamt nokkrum öðrum mönnum haldið úti skákstarfi félagsins í vetur en um þessar mundir fer það fram í KEA salnum Sunnuhlíð. Gylfi varð hlutskarpastur á Skák- þingi Akureyrar sem lauk rétt fyr- ir páska þegar hann hlaut sex vinninga af sjö mögulegum en næstir komu Unnar Þór Bach- mann, Tómas Veigar Sigurðsson og Stefán Bergsson með 4½ vinn- ing. Þetta var í ellefta skipti sem Gylfi verður skákmeistari Akur- eyrar en þrátt fyrir það hefur hann ekki tærnar þar sem Júlíus Bogason hefur hælana, en sá önd- Þór Valtýsson Áskorun á stuðningsfólk og nýja stjórn Samfylkingar Í TILEFNI af landsfundi Samfylk- ingarinnar sem haldinn verður í Reykjavík um helgina skora Höfuð- borgarsamtökin á stuðningsfólk og nýja stjórn flokksins að móta „sann- gjarna og ábyrga stefnu í skipulags- málum Reykjavíkur og annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð- inu,“ eins og segir í áskoruninni. Höfuðborgarsamtökin hvetja Samfylkinguna til að beita sér fyrir því að innanlandsflug verði flutt úr Vatnsmýri eins fljótt og það er tæknilega framkvæmanlegt, t.d. á nýjan flugvöll í jaðri höfuðborg- arsvæðisins. Höfuðborgarsamtökin hvetja Samfylkinguna til að beita sér fyrir því að sveitarfélögum á höfuðborg- arsvæðinu og annars staðar, þar sem það á við, verði gert kleift að taka yfir stofnbrautir innan sveitar- félagamarka sinna, t.d. með sam- bærilegum hætti og þegar sveit- arfélög tóku yfir rekstur grunn- skólastigsins og málefni fatlaðra, með faglegri og fjárhagslegri ábyrgð og tilheyrandi tekjustofnum. Tryggð verði þjónusta við fötl- uð börn FORELDRA- og styrktarfélag Öskjuhlíðarskóla skorar í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi fé- lagsins á borgarstjóra að starfsemi frístundaheimilis ÍTR fyrir nem- endur 5. til 10. bekkjar Öskjuhlíð- arskóla næsta skólaár verði tryggð. Einnig er skorað á félagsmálaráð- herra að hann beiti sér fyrir því að skóladagvist verði tryggð fyrir öll fötluð grunnskólabörn á Íslandi. Í ályktuninni um Öskjuhlíð- arskóla er einnig skorað á borg- arstjóra að frístundaheimili verði í boði fyrir öll fötluð börn í borginni. „Frístundaheimilin sinna afar mik- ilvægu hlutverki í því að koma til móts við félagslegar þarfir fatlaðra nemenda í grunnskólum borgar- innar og eru ein forsenda þess að skólastefna Reykjavíkurborgar, skóli án aðgreiningar, geti orðið að veruleika,“ segir þar m.a. Kaffidagur Sigl- firðingafélagsins HINN árlegi kaffidagur Siglfirð- ingafélagsins verður haldinn í Grafarvogskirkju á morgun, sunnu- daginn 22. maí. Messa verður í kirkjunni klukkan 13.30 og kaffið hefst klukkan 15. Félagsmenn sem vilja koma með kökur og annað meðlæti eru beðnir að koma með það í kirkjuna kl. 13. Barnagæsla verður á staðnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.