Morgunblaðið - 21.05.2005, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 21.05.2005, Blaðsíða 64
64 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Leikhúsgestir munið glæsilegan matseðil S: 568 0878 Geirmundur Valtýsson og hljómsveit í kvöld Stóra svið Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Lau 28/5 kl 20 - Síðasta sýning HÉRI HÉRASON snýr aftur - Fyndið - ferskt - fjörugt - farsakennt BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA - gildir ekki á barnasýningar! Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Einleikur Eddu Björgvinsdóttur Su 22/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20 - UPPSELT, Fö 27/5 kl 20, Lau 28/5 kl 20, Su 29/5 kl 20, Fi 2/6 kl 20, Fö 3/6 kl 20 HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar eftir vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar Su 22/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20 - Síðustu sýningar DRAUMLEIKUR eftir Strindberg Samstarf: Leiklistardeild LHÍ Fö 27/5 kl 20 Síðasta sýning KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren Í samstarfi við Á þakinu Su 22/5 kl 14 - UPPSELT, Lau 4/6 kl 14 - UPPSELT, Su 5/6 kl 14 - UPPSELT, Su 12/6 kl 14, Su 12/6 kl 17, Lau 18/6 kl 14, Su 19/6 kl 14, Su 26/6 kl 14 THE SUBFRAU ACTS – GESTALEIKSÝNING The paper Mache og Stay with me Fi 26/5 kl 20, Fö 27/5 kl 20 99% UNKNOWN - Sirkussýning CIRKUS CIRKÖR FRÁ SVÍÞJÓÐ Þri 14/6 kl 20, Mi 15/6 kl 20, Fi 16/6 kl 20, Fö 17/6 kl 20 Aðeins þessar sýningar 25 tímar Dansleikhús/samkeppni LR og Íd í samstarfi við SPRON Fi 9/6 kl 20 - kr. 2.500 Einstakur viðburður EDITH PIAF Á AUSTURLANDI 1. OG 2. JÚNÍ! Stóra sviðið kl. 20:00 DÍNAMÍT – Birgir Sigurðsson 7. sýn. í kvöld lau. 21/5, 8. sýn. fim. 26/5 örfá sæti laus, 9. sýn. fös. 3/6, 10. sýn. lau. 11/6, 11. sýn. sun. 12/6. KLAUFAR OG KÓNGSDÆTUR – H.C Andersen Sun. 22/5 kl. 14:00 örfá sæti laus, lau. 28/5 kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 5/6 kl. 14:00. Síðustu sýningar í vor. EDITH PIAF – Sigurður Pálsson Sun. 22/5 uppselt. Síðasta sýning í vor. ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA – Hallgrímur Helgason/leikgerð Baltasar Kormákur Fös. 27/5 nokkur sæti laus, lau. 28/5, lau. 4/6 nokkur sæti laus, fim. 9/6, fös. 10/6. Aðeins örfáar sýningar vegna fjölda áskorana. MÝRARLJÓS – Marina Carr Sun. 29/5. Allra síðasta sýning Litla sviðið kl. 20:00 KODDAMAÐURINN – Martin McDonagh Mið. 25/5 nokkur sæti laus, fim. 26/5 örfá sæti laus. Síðustu sýningar í vor. Ekki er hægt að hleypa inn í salinn eftir að sýning er hafin. Smíðaverkstæðið kl. 20:00 RAMBÓ 7 – Jón Atli Jónasson Sun. 22/5 örfá sæti laus, fös. 27/5, lau. 28/5 Valaskjálf Egilsstöðum: EDITH PIAF Á AUSTURLANDI – söngdagskrá Mið. 1/6 kl. 20:00, fim. 2/6 kl. 20:00. Miðasala á Bókasafni Héraðsbúa. Opið alla virka daga frá kl. 14-19. Sími 471 1546 . . sýnir ENGINN MEÐ STEINDÓRI - fjölskyldusplatter í Möguleikhúsinu Sunnud. 22. maí kl. 20.00. Föstud. 27. maí kl. 20.00. Laugard. 28. maí kl. 20.00. Síðustu sýningar! Miðasala í s. 551 2525 og á www.hugleikur.is Sýningin hentar ekki börnum. Leikfélag Húsavíkur sýnir SAMBÝLINGA eftir Tom Griffin í Bæjarleikhúsinu MOSFELLSBÆ Föstudaginn 27. maí kl. 20 Laugardaginn 28. maí kl. 14 Laugardaginn 28. maí kl. 18 Aðeins þessar þrjár sýningar Miðapantanir í síma 464 1129 HÉR leiða saman hesta sína tveir þeir leikhúsmenn íslenskir sem hvað mestar vonir eru bundnar við nú um stundir, höfundurinn, Jón Atli Jón- asson, og leikstjórinn, Egill Heiðar Anton Pálsson. Jón Atli vakti veru- lega athygli í íslensku leiklistarlífi í fyrra en þá voru frumsýnd eftir hann þrjú leikrit: Brim með Vest- urportshópnum og Draugalest sem Leikfélag Reykjavíkur setti upp, bæði frumsýnd í febrúar, og Krád- plíser sem Hið íslenska listaleikhús sýndi svo í júlí. Verk Jóns Atla eiga það sam- merkt að höfundur leggur meiri áherslu á persónurnar en eiginlega framvindu. Söguþráðurinn er not- aður til að vinda ofan af ytri lögum karaktersins uns komið er að innsta kjarna og áhorfendur fá að fylgjast með viðbrögðum persónanna við óvæntum ytri aðstæðum. Það kemur nokkuð á óvart að af þeim fjórum verkum sem minnst hefur verið á hér eru þau best heppnuð sem hefð- bundnust eru í byggingu og ná um leið að túlka ákveðna menning- arkima í íslenskum veruleika sem þorri áhorfenda fær sjaldnast að kynnast. Uppsetningu Vesturports- ins á Brimi, sem Hafliði Arn- grímsson leikstjóri fór um nær- færnum höndum, hefur verið boðið á þrjár leiklistarhátíðir en leikritið er ágeng nærmynd af lífi um borð í fiskiskipi sem skoðað er vægðarlaust í gegnum aðdráttarlinsu. Rambó 7 er í eðli sínu stofudrama en í stað þess að miðstéttarpersónur ræði sín mál af rökfestu og stillingu og missi svo einstaka sinnum stjórn á sér vaða hér uppi fulltrúar kynslóðar sem hefur mistekist að finna hefð- bundna staðfestu í daglegu lífi held- ur býr stjórnlaus á jaðri samfélags- ins í eilífri baráttu við eigin hvatir. Höfundur nær orðfærinu ótrúlega vel og í því felst styrkur verksins; það fer ekkert á milli mála að hér er á ferðinni nútímafólk sem kærir sig kollótt um reglur og siði í daglegum samskiptum og bókmenntaarfinum er gefið langt nef. Samt er textinn í eðli sínu sæt lítil saga um strák sem hittir stelpu og um hvernig þau byggja upp samband sitt í glímu við örðugar og afar dramatískar að- stæður. Inn í þetta er blandað þema sem Jón Atli kom inn á í Krádplíser, um fólk sem dýrkar ofbeldi rétt eins og það birtist í bandarískum has- armyndum og sem titill verksins vís- ar klárlega í. Leikritið gerist bæði í daglegum hlutveruleika þessa fólks, eins brenglaður og hann nú er, og fyrir hugskotssjónum aðalpersón- unnar, Johnnys, og eins og búast má við er sá hluti mun ýktari en hinn. Agli Heiðari Antoni Pálssyni gefst hér tækifæri til að skila í sömu sýn- ingunni sögu úr daglega lífinu, sem að vísu gerist jafnt í raunveruleika og ímyndun, og afbyggingu textans þar sem reynt er með ýmsum ráðum að ná til áhorfenda og sýna þeim nýja fleti á viðfangsefninu. Kjarni sýningarinnar er frásagan í núinu um samskipti Johnnys, Stjörnu og Pésa. Johnny lætur svo hugann reika, ýmist í vangaveltum um afdrif bróður síns eða í afturliti til bernsku þeirra bræðra. Utan um þennan kjarna er t.d. kvikmynd sem fjallar um ímynd Júlla bróður í huga rukk- aranna, hljóðupptaka af samskiptum rukkaranna og aðalpersónanna þriggja auk ýmissa annarra leiða sem leikstjórinn nýtir sér til að auka áhrif þessarar einföldu sögu með því að vísa út fyrir hina þröngu sviðsetn- ingu í stofunni og út til áhorfandans. Fjölmörg atriði koma áhorfendum á óvart, skyndilegur hávaði af ýmsum toga, ljósabreytingar, notkun mynd- upptöku, auk þess sem þeir vita aldr- ei hverju þeir mega eiga von á enda er spuninn veigamikill hluti af hverf- ikrafti sýningarinnar og virðist oft sem þeir sem bíða spenntastir eftir hvað gerist næst séu leikararnir. Áreiti þeirra við áhorfendur er að mörgu leyti vel heppnað en mætti vera grimmilegra til að endurspegla betur það sem fram fer á sviðinu. Ólafur Egill Egilsson leikur Jo- hnny af miklu næmi og skilar frá- bærlega til áhorfenda tilfinning- unum sem ólga innra með honum. Áhyggjunum af bróðurnum, vin- arþelinu til Pésa, áhuganum á Stjörnu og svo í bland viðkvæmninni undir niðri og hörkunni, jafnvel grimmd, á yfirborðinu er öllu skilað að því er virðist jafn áreynslulaust og blátt áfram. Pési er mun firrtari persóna og Ólafur Darri Ólafsson lýsir honum hér af áfergju sem við- kunnanlegum nautnasegg, gungu er á reynir en fauta ef hann kemst upp með það. Allt dýpra reynist fals og þar skilur á milli hans og Johnnys, sem leyfir sér að sýna sannar tilfinn- ingar ef færi gefst. Stjarna er vel heppnuð týpa frá hendi höfundar, stúlka sem hefur lært að best sé að fljóta með straumnum og er snill- ingur að bregðast rétt við í hverri raun. Nína Dögg Filippusdóttir ger- ir sér mikinn mat úr einföldu hráefni og gæðir persónuna þvílíkri þrívídd að áhorfandinn fær á tilfinninguna að það sé mun meira í Stjörnu spunnið en gefið er upp í textanum. Gísli Örn Garðarsson leikur hlutverk Júlla bróður, Rambó-aðdáandans sem hefur haldið í víking á ófrið- arsvæði heimsins. Gísli bregður upp snaggaralegri mynd af manni sem hefur flúið sjálfan sig inn í tilbúinn heim spennu- og ofbeldismynda, auðþekktri týpu, en kemur samt á óvart í óvæntum umskiptum í lokin. Gísli Galdur Þorgeirsson og Viðar Hákon Gíslason sjá um afar fjöl- breytta og skemmtilega tónlist auk þess að gegna hlutverki statista. Búningar Þórunnar E. Sveinsdóttur ná að draga upp örlítið ýkta mynd af persónunum án þess að vera nokk- urn tíma ótrúlegir í samhenginu. Hörður Ágústsson hefur ratað á óvenjulegar lausnir í lýsingu en full- komlega í anda við annað í sýning- unni. Leikmynd Ólafs Jónssonar er gríðarfallegt og stílhreint verk sem er í beinni andstöðu við ruslið sem ægir saman á sviðinu. Hvað áhorf- endapallana áhrærir hefur greini- lega verið ákveðið að heildarútlit rýmisins ætti að vera í fyrirrúmi og að áhorfendur ættu að upplifa þá eldraun sem persónurnar ganga í gegnum í sýningunni á eigin stoð- kerfi. Það mætti í raun vara við- kvæmar sálir meðal væntanlegra áhorfenda við orðbragðinu. Und- irritaður bíður aftur á móti spenntur eftir að komast aftur í Smíðaverk- stæðið um leið og hann treystir sér til þess líkamlega. Það er ekki annað hægt að segja en að Egill Heiðar Anton Pálsson leiti hér allra leiða til að sýna sem flesta mögulega fleti þessa leikverks Jóns Atla Jónassonar. Þó að sýn- ingin kunni að þykja full losaraleg á köflum og spennufall verði einstaka sinnum er afar gaman að fylgjast með hvernig aðstandendur hennar nýta sér frelsið sem þessi nálgunar- aðferð veitir þeim. Dramað er leyst úr viðjum stofunnar og við taka möguleikar endalausrar víðáttu. „Þó að sýningin kunni að þykja full losaraleg á köflum og spennufall verði einstaka sinnum þá er afar gaman að fylgjast með hvernig aðstandendur hennar nýta sér frelsið sem þessi nálgunaraðferð veitir þeim.“ Stofudramað leyst úr viðjum LEIKLIST Þjóðleikhúsið Höfundur: Jón Atli Jónasson. Leikstjóri: Egill Heiðar Anton Pálsson. Leikmynd: Ólafur Jónsson. Búningar: Þórunn E. Sveinsdóttir. Ljós: Hörður Ágústsson. Vídeó: Árni Sveinsson. Tónlist: Gísli Gald- ur Þorgeirsson og Viðar Hákon Gíslason. Hljóð: Halldór Bjarnason. Leikarar í hljóð- upptöku: Egill Heiðar Anton Pálsson, Jón Atli Jónasson og Rúnar Freyr Gíslason. Leikarar: Gísli Örn Garðarsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Ólafur Egill Egilsson og Ólafur Darri Ólafsson. Fimmtudagur 19. maí. Rambó 7 Sveinn Haraldsson HJÁ MÁLI og menningu er komin út ljósmyndabókin Andlit norðurs- ins með myndum Ragnars Axels- sonar ljósmyndara á ensku, frönsku og þýsku. Einnig var að koma 3. prentun af íslenskri útgáfu bók- arinnar. Sigurður Svavarsson út- gáfustjóri segir að forlagið hafi orðið vart við mikinn áhuga á bókinni er- lendis frá og allar líkur eru til að bókin muni koma út á fleiri tungu- málum í nánustu framtíð. Ragnar Axelsson hefur um árabil verið í framvarðasveit íslenskra fréttaljósmyndara. Hann hefur starfað við Morgunblaðið frá 1976 og farið víða um heim í störfum sínum. Mesta áherslu hefur Ragnar lagt á að skrá mannlífið í Norður- Atlantshafi eins og Andlit norðurs- ins ber með sér, en myndirnar í bók- inni eru teknar víðsvegar um Ísland, Færeyjar og á Grænlandi. Á ferðum sínum um þessar eyjar við Norður- Atlantshafið hefur Ragnar kynnst lífi og ólíkum lífsháttum fólksins sem byggir þær. Myndirnar í bókinni eru túlkun hans á upplifunum í þessum þremur löndum og „með þeim tekur hann lesendur á vit ævintýranna og leyfir þeim að upplifa veröld sem breytist hratt og er í sumum til- vikum alveg að hverfa,“ eins og segir í kynningu útgefanda. Ljósmyndir og myndafrásagnir Ragnars hafa verið birtar í heims- þekktum blöðum og tímaritum, t.d. LIFE, National Geographic, Le Figaro, Stern og TIME. Ragnar hlaut heiðursviðurkenningu The Oscar Barnack Award árið 2001, og Grand Prix á Festival Photo de Mare, árið 2002. Þá hefur hann hlot- ið á þriðja tug viðurkenninga á ár- legum sýningum íslenskra blaða- ljósmyndara. Ljósmyndir | Bókin Andlit norðursins Morgunblaðið/Kristinn Sigurður Svavarsson og Ragnar Axelsson fletta bókinni. Mikill áhugi erlendis
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.