Morgunblaðið - 21.05.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 29
MINNSTAÐUR
Hvammstangi | Karl Ásgeir Sigurgeirsson hef-
ur verið í eldlínunni sem forstöðumaður stórra
fyrirtækja í atvinnulífinu á Hvammstanga og
Húnaþingi vestra nánast óslitið í fjörutíu ár eða
frá því að honum var rúmlega tvítugum falið
starf framkvæmdastjóra Verslunar Sigurðar
Pálmasonar hf. Síðustu árin hefur hann verið að
byggja upp nýtt fyrirtæki, Forsvar ehf. Nú er
brotið í blað. Þótt Karl sé aðeins rúmlega sex-
tugur að aldri og með fulla starfsorku hefur
hann ákveðið að fara úr eldlínunni til að ráða
tíma sínum meira sjálfur, einmitt þegar ná-
kvæmlega 40 ár eru liðin frá því hann var settur
í fylkingarbrjóstið.
„Mér finnst að Forsvar sé komið á það stig að
rétt sé að fá nýjan stjórnanda. Ég hef í sam-
vinnu við starfsfólk mitt byggt fyrirtækið upp á
rúmum fimm árum, frá því að vera með tvö
stöðugildi og upp í tíu. Forsvar er í vaxandi
mæli að hasla sér völl á sviði sem ég hef ekki
þekkingu á, hugbúnaðargerð og skyldum
rekstri. Ég á stærstan eignarhlut einstaklinga í
fyrirtækinu og fannst að nú væri rétti tíminn til
breytinga. Það kann einnig að hafa ýtt við mér
þegar ég áttaði mig á því að 1. júlí næstkomandi
hef ég verið í eldlínunni í fyrirtækjarekstri hér á
staðnum í 40 ár.
Ég er orðinn rúmlega sextugur og langar að
ráða tíma mínum meira sjálfur og njóta sam-
vista við fjölskylduna,“ segir Karl þegar hann er
spurður um ástæður þess að hann sagði upp
störfum framkvæmdastjóra. Nýr fram-
kvæmdastjóri, Gunnar Halldór Gunnarsson
sem nú starfar sem upplýsingafulltrúi hjá Orku-
veitu Reykjavíkur, tekur við 1. júní næstkom-
andi en Karl starfar áfram við afmörkuð verk-
efni á skrifstofunni í hlutastarfi.
Karl var aðeins 22 ára gamall þegar Sigurður
Pálmason kaupmaður réð hann sem fram-
kvæmdastjóra fyrirtækis síns, Verslunar Sig-
urðar Pálmasonar hf. (VSP), sem var með um-
fangsmikinn rekstur á Hvammstanga. Fyrstu
árin starfaði hann í skjóli eigandans sem orðinn
var aldraður. Karl var tengdur Sigurði því hann
kvæntist sonardóttur hans, Anne Mary Pálma-
dóttur, og þau hófu búskap í hinu gamla virðu-
lega verslunarhúsi fyrirtækisins á Hvamms-
tanga.
Karl stýrði VSP í 23 ár eða þar til fyrirtækið
varð gjaldþrota á árinu 1988, á miklum um-
brotatímum í efnahagslífinu. „Við hjónin fórum
illa út úr gjaldþrotinu. Streðuðum of lengi við að
halda rekstrinum gangandi og ég var kominn í
persónulegar ábyrgðir. Við urðum að stokka
upp fjármál okkar, urðum bæði atvinnulaus og
seldum íbúðarhúsið til að kaupa minna. Nýlega
höfum við greitt síðustu afborgunina af þeim
skuldbindingum sem við tókum á okkur við
gjaldþrotið. Það er þáttur í því að ég taldi mögu-
legt að stíga til hliðar nú á þessum tímamótum
og draga úr vinnuálaginu.“
Gjaldþrot þessa merka fyrirtækis var mikið
áfall fyrir héraðið. Margir misstu vinnuna og
aðrir töpuðu kröfum. „Þetta var erfiður tími fyr-
ir okkur og sárt að sjá hvað margir fóru illa út
úr þessu, sérstaklega starfsfólkið.“
Byggt upp að nýju
Eftir gjaldþrotið vann Karl í tæpt ár að verk-
efnum fyrir Hjálparsveit skáta í Reykjavík en
þau hjónin áttu áfram heimili á Hvammstanga.
Síðan réð hann sig í atvinnuþróunarverkefni
heima í Vestur-Húnvatnssýslu og var við þau í
nokkur ár. Þá stofnaði hann eigið fyrirtæki,
Döggva sf. – viðskiptaþjónustu, sem rann að
hluta til inn í Forsvar ehf. þegar það var stofnað
í ársbyrjum 2000 upp úr bókhaldsskrifstofu sem
starfað hafði á Hvammstanga í fimmtán ár. Til-
gangurinn með stofnun Forsvars var meðal
annars að taka þátt í fjarvinnsluævintýrinu sem
þá var í algeymingi. Vestur-Húnvetningar
ákváðu að hoppa ekki á vagn Íslenskrar miðl-
unar sem fór hratt um landið heldur vinna að
þessum málum sjálfir og fólu Karli að fylgja
málinu eftir. Auk þeirra verkefna sem fylgdu
bókhaldsskrifstofunni var unnið að skráningu
fyrir Alþingi og Þjóðminjasafnið. Síðar var farið
út í hugbúnaðargerð, símaþjónustu og umboðs-
þjónustu þannig að verkefnin eru nokkuð fjöl-
breytt.
Karl byrjaði í Forsvari við þriðja mann en nú
eru starfsmenn tíu. „Fyrirtækið hefur byggst
ört upp og stendur að mínu mati vel. Ég tel mig
geta skilið við það sáttur,“ segir Karl. Hann seg-
ist sannfærður um að það eigi góða framtíð-
armöguleika þótt vissulega sé ekki hægt að
ræða um trygga verkefnastöðu langt fram í tím-
ann hjá þjónustufyrirtæki sem þessu.
Karl segist ekki vera harður
húsbóndi, þegar hann er spurður
um stjórnunarstíl. Segist alla tíð
hafa verið heppinn með samstarfs-
fólk og lagt mikið upp úr vinnu-
gleðinni. „Mér finnst það satt að
segja meira virði að hafa góðan
starfsanda á vinnustaðnum en að
ætla að keyra fólk áfram, jafnvel
þótt það kunni að bitna á afköst-
unum til skamms tíma litið.“
Ævilangt ánetjaður Gretti
„Þú mátt alveg eins kalla það
leti. Ég vil ekki keyra mig of lengi
á þessum hraða og vil nú ráða
verkefnum mínum meira sjálfur.
Það er svo margt fleira en vinnan
sem gefur lífinu gildi,“ segir Karl
þegar hann er aftur inntur eftir
starfslokunum. Hann segir að
vissulega komi fleira til en hann
hefur þegar nefnt. Segir að báðir synir þeirra
hjóna séu að setjast að á Hvammstanga með
fjölskyldur sínar. Geir, sá eldri, er kominn heim
frá framhaldsnámi í Noregi og hefur ráðið sig
sem heilsugæslulækni. Sá yngri, Valur, er vél-
stjóri. Hann er kominn í land eftir að hafa verið
á sjónum í yfir tuttugu ár og er að kaupa iðnfyr-
irtæki. Segist Karl hlakka til að geta notið fleiri
samverustunda með barnabörnunum.
Karl er fæddur og uppalinn á Bjargi í Mið-
firði, fæðingarstað Grettis Ásmundssonar, og
segist ævilangt ánetjaður Gretti sterka. Hann
hefur nú tekið að sér að starf framkvæmda-
stjóra Grettistaks í hlutastarfi en það félag
vinnur að því að koma upp Grettissetri á Laug-
arbakka í Miðfirði og skipuleggja Grettishátíð í
ágúst. Hlakkar hann til að geta unnið að því að
halda nafni Grettis vinar síns á lofti enda hafi
saga hans mikið gildi fyrir héraðið.
Hann er með leiðsöguréttindi fyrir Norður-
land vestra og hefur áhuga á því starfi. „Ég finn
að ég get frætt fólk um margt það sem héraðs-
sagan geymir, forna og nýrri atburði og eins
farið með það í heimsóknir til að sjá lítt þekktar
náttúruperlur sem víða leynast,“ segir Karl.
Karl Á. Sigurgeirsson fer úr eldlínunni eftir fjörutíu ár í fylkingarbrjósti atvinnulífs á Hvammstanga
Vil ráða tíma
mínum meira sjálfur
Sambýli Mörg fyrirtæki og stofnanir eru í góðu sambýli á
Höfðabraut 6 á Hvammstanga. Karl átti þátt í að byggja
húsið og hefur unnið þar að mestu í 25 ár.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
LANDIÐ