Morgunblaðið - 21.05.2005, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 21.05.2005, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 15% afsláttur af öllum kjólum Síðasti tilboðsdagur RALPH LAUREN Polo bolur yfir 40 mismunandi litir SMÁRALIND - SÍMI 561 1690 iðunn tískuverslun Úrval af kvartbuxum frá MAC, Gardeur, Polo Jeans og Ralph Lauren Kringlunni, sími 588 1680 Eddufelli 2, Bæjarlind 6, sími 557 1730 sími 554 7030 Nýir bolir Opið mán.-fös. frá kl. 10-18, lau. frá kl. 10-16. Str. 36-56 Stuttkápur Sportjakkar Leðurjakkar Rúskinnsjakkar Mörkinni 6, sími 588 5518. Opið virka daga frá kl. 10-18 Opið laugardaga frá kl. 10-16 Bankastræti 9, sími 511 1135 www.paulshark.is - paulshark.it Ný sending Flottar vörur Litríkir Sumarbolir og peysur 15% afsláttur í dag laugardag SOS-barnaþorpin á Íslandi taka þátt í að fjármagna hluta af nýju SOS-barnaþorpi fyrir munaðarlaus börn í Úkraínu. Verður nýja þorpið í Brovary rétt utan við Kænugarð og það fyrsta af þessari gerð í land- inu, segir í frétt frá SOS-barna- þorpum á Íslandi. Samtökin vilja vekja athygli á því um leið og augu manna beinast að söngvakeppni evrópskra sjónvarps- stöðva í Kiev að Úkraína sé eitt fá- tækasta land Evrópu, atvinnuleysi mikið og hlutfall menntunar lágt. Selma Björnsdóttir, sem keppir fyr- ir Ísland í söngvakeppninni, var út- nefnd sendiherra fyrir SOS- barnaþorpin á Íslandi og sér- staklega fyrir nýja þorpið sem reist verður í Úkraínu. Reisa á fjórtán fjölskylduhús í þorpinu, húsnæði fyrir forstöðumann, „frænkur“, gesti og skrifstofu. Gert er ráð fyrir leiksvæðum og verður þorpið girt af. SOS-barnaþorpin eru alþjóðleg sjálfstæð samtök sem hafa það að markmiði að veita munaðarlausum eða yfirgefnum börnum heimili, fjölskyldu og menntun Fjármagna SOS-barnaþorp í Úkraínu Á NÝAFSTÖÐNUM leiðtogafundi Evrópuráðsins í Varsjá skrifaði Davíð Oddsson utanríkisráðherra fyrir hönd Íslands undir samning Evrópuráðsins gegn mansali. Ís- landsdeild Amnesty International fagnar undirskrift Íslands og hvet- ur Alþingi til að staðfesta samning- inn strax á haustþingi. Í fréttatilkynningu frá Íslands- deildinni segir m.a.: „Samningurinn er mikilvægt framfaraskref til verndar réttindum fólks sem sætir mansali. Hann er fyrsti alþjóðlegi samningurinn sem saminn er til að tryggja slíka mannréttindavernd. Evrópuráðið hefur með gerð samn- ingsins viðurkennt nauðsyn þess að ríkisstjórnir veiti fólki sem selt er mansali vernd og stuðning. Samningurinn leggur áherslu á að mansal sé brot á mannréttindum og árás á mannlega reisn. Samning- urinn felur í sér að ríki sem gerast aðilar að honum geri ýmsar ráð- stafanir í eigin landi og í samvinnu við önnur lönd. Þessar ráðstafanir leitast við að koma í veg fyrir man- sal, sækja þá til saka sem bera ábyrgð á mansali og vernda og virða réttindi þeirra sem sæta man- sali.“ Íslandsdeild Amnesty fagnar samningi gegn mansali Vopnafjörður | Samræmdum prófum lauk í vikunni með náttúrfræðiprófi og þá er það hefð í Vopnafjarðarskóla að krakkarnir fari í utanlandsferð strax að loknum prófum. Að þessu sinni fóru krakkar úr 10. bekk í skólaferðalag til Danmerkur og verða þar næstu dagana. Þau hafa safnað fyrir ferðinni sjálf með ýmsu móti, m.a. með því að safna áheitum og fara gangandi frá Vopnafirði í Möðrudal á Fjöllum, en það er um 75 kílómetra leið. Þeir voru hressir Örn, Helgi Már, Símon og Smári þegar verið var að leggja af stað til Danmerkur að loknum samræmdum prófum. Tíundubekkingar á Vopnafirði til Danmerkur Morgunblaðið/Jón Sigurðarson ÁLFTANESSKÓLI bættist í gær í hóp þeirra skóla sem hlotið hafa Grænfánann, umhverfismerki sem Landvernd veitir sem tákn um góða fræðslu um umhverfismál og vel heppnaða umhverfisstefnu í skólum og leikskólum. Dagurinn í Álftanesskóla var þó ekki einungis tileinkaður Grænfán- anum, heldur var hann einnig til- einkaður margæsinni, sem mikið ef af á Álftanesi þessa dagana. Þrír Ír- ar sem komu hingað á vegum nátt- úrusamtakanna The Wildfowl og Westlands Trust og grunnskóla á Írlandi tóku þátt í deginum, en grunnskólinn á Írlandi er sam- starfsskóli Álftanesskóla um mar- gæsina. Eftir að Tryggvi Felixson, fram- kvæmdastjóri Landverndar, afhenti nemendum Grænfánann var gengið fylktu liði út og fáninn dreginn að húni, ásamt nýjum skólafána og sérstökum margæsarfána. Að því loknu var unnið að verkefnum tengdum margæsinni og hlýtt á fræðslu um fuglinn frá fulltrúa Náttúrufræðistofnunnar og einum írsku gestanna. Krakkarnir í Álftanesskóla drógu upp Grænfánann í gær, auk nýs fána skólans og sérstaks margæsafána í tilefni af margæsadögum. Margæsir og grænn fáni Úrslitin úr spænska boltanum beint í símann þinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.