Morgunblaðið - 21.05.2005, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
GENGIÐ hefur verið frá samningi
um kaup Actavis Group á banda-
ríska samheitalyfjafyrirtækinu
Amide, sem sagt var frá í Morg-
unblaðinu í gær að væri í bígerð.
Amide er óskráð fjölskyldufyrirtæki
með aðsetur í New Jersey. Kaup-
verðið nemur allt að 500 milljónum
Bandaríkjadala, að meðtöldum 40
milljónum dala í sjóðsstöðu, eða allt
að 33 milljörðum íslenskra króna.
Að auki verða greiddar allt að 100
milljónir Bandaríkjadala til seljenda
sem eru skilyrtar af rekstrarniður-
stöðu Amide á þessu ári og því
næsta.
Í kjölfar yfirlýsingar frá Actavis
um kaupin á Amide í gær tilkynnti
Kauphöll Íslands að Actavis hefði
verið fært af athugunarlista Kaup-
hallarinnar. Félagið var fært á at-
hugunarlista síðastliðinn föstudag
vegna viðræðna þess við þriðja aðila
um kaup á fyrirtæki, sem þá var
greint frá.
Sigurður Óli Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækjaþróunar
Actavis, segir að með kaupunum á
Amide sameinist tvö samheitalyfja-
fyrirtæki sem séu með sterka mark-
aðsstöðu í Evrópu og Bandaríkjun-
um. Sameinað félag muni búa yfir
einu mesta lyfjaúrvali á sínu sviði,
með yfir 500 samheitalyf á markaði
og lágmarksskörun milli lyfjaúrvals
fyrirtækjanna. Þá séu Actavis og
Amide með 136 lyf í skráningu og
þróun.
Halldór Kristmannsson, forstöðu-
maður innri og ytri samskipta
Actavis, segir að Amide sé ekki
stórt fyrirtæki ef litið sé á veltuna,
en hagnaður fyrirtækisins hafi hins
vegar verið mjög góður og með því
mesta sem gerist hjá stærstu sam-
heitalyfjafyrirtækjunum í heiminum
í dag. Þá hafi vöxtur þess einnig
verið mikill, en Amide var stofnað
árið 1983. Segir Halldór að gert sé
ráð fyrir að með tilkomu Amide
muni hagnaður Actavis aukast um
45–50% á árinu 2006.
„Það er mikið tekið eftir þessum
kaupum í Bandaríkjunum, en þetta
eru bestu fyrirtækjakaup á sam-
heitalyfjamarkaðnum í Bandaríkj-
unum síðustu 7 ár sé litið til helstu
kennitalna,“ segir Halldór
Fótfesta í Bandaríkjunum
Í tilkynningu frá Actavis segir að
með kaupunum á Amide nái félagið
fótfestu á markaði í Bandaríkjunum
og verði kleift að markaðssetja lyf
sín á stærsta lyfjamarkaði heims í
gegnum sölustarfsemi Amide. Þann-
ig fáist tækifæri til að auka tekjur
félagsins, auka framlegð og styrkja
stöðu Actavis-samstæðunnar. Þá
gefist tækifæri til að markaðssetja
lyf Amide á núverandi mörkuðum
Actavis í Evrópu.
Sigurður Óli segir að Actavis hafi
unnið að því í 6–9 mánuði að finna
rétta fyrirtækið til að kaupa í
Bandaríkjunum. „Sú niðurstaða sem
nú er komin er mjög ánægjuleg,
sérstaklega vegna þess hve vöru-
framboð fyrirtækjanna tveggja
skarast lítið. Þá hefur það mjög
mikið að segja að Actavis fær að-
gang að lyfjaþróun Amide og
reynslu félagsins af skráningu
nýrra lyfja á Bandaríkjamarkað,“
segir Sigurður Óli.
Lykilstjórnendur starfa áfram
Við kaupin á Amide mun fram-
leiðslugeta Actavis aukast um einn
og hálfan milljarð taflna og hylkja á
ári en með tilkomu nýrrar verk-
smiðju, sem er í byggingu, getur
framleiðslugeta Amide aukist um
aðra 6–8 milljarða taflna og hylkja á
ári.
Í tilkynningu Actavis kemur fram
að samkomulag hafi náðst við alla
lykilstjórnendur Amide um að halda
áfram störfum hjá félaginu en for-
stjóri félagsins, Divya C. Patel,
tekur sæti í framkvæmdastjórn
Actavis, og hefur gert ráðningar-
samning við Actavis til að minnsta
kosti þriggja ár. Starfsmenn Amide
eru um 200 talsins.
Kaupin eru háð samþykki banda-
rískra samkeppnisyfirvalda en búist
er við að þau verði frágengin
snemma á þriðja ársfjórðungi 2005.
Actavis mun fjármagna kaupin
með eigin hlutabréfum (6,63% af
eigin hlutafé), með útgáfu nýrra
hluta að markaðsvirði 250 milljónir
evra og með 5 ára sambankaláni að
upphæð 500 milljónir evra, en það
verður jafnframt notað til að endur-
fjármagna eldri skuldir félagsins.
Hagnaður Actavis á árinu 2004
var 4,9 milljarðar króna. Gengi
hlutabréfa í félaginu hækkaði um
3,94% í gær.
Yfir 500 samheitalyf á markaði
Lykilstarfsmenn áfram Divya Patel, forstjóri Amide, og Róbert Wessman,
forstjóri Actavis. Patel hefur gert ráðningarsamning við Actavis til að
minnsta kosti þriggja ára en lykilstarfsmenn Amide munu starfa áfram hjá
fyrirtækinu.
Actavis hefur keypt
bandarískt sam-
heitalyfjafyrirtæki
fyrir 33 milljarða
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
● VERÐ hlutabréfa í Actavis hækk-
aði um 3,94% í Kauphöllinni í gær og
var það mesta hækkun dagsins.
Hampiðjan hækkaði í verði um
3,08% og Burðarás rétti sig af um
1,05%. Mest verðlækkun varð á
hlutabréfum í Kögun (–2,2%) og
Atorku (–1,6).
Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,3%
og fór í 4.089,23 stig en velta með
hlutabréf nam 1.766 milljónum
króna, þar af voru 800 milljóna við-
skipti með bréf í Actavis.
Mest viðskipti
með Actavis
STERLING-flug-
félagið, í eigu Pálma
Haraldssonar og Jó-
hannesar Kristins-
sonar, hyggst bjóða
Dönum flug til Flór-
ída í Bandaríkjunum
fyrir 998 krónur
danskar aðra leið, að
meðtöldum sköttum
og gjöldum, eða rúm-
ar 11 þúsund íslensk-
ar krónur. Áformað
er að fljúga daglega
til Miami og Orlando,
en Fort Lauderdale kemur einnig
til greina. Þá er einnig hugsanlegt
að Sterling fljúgi síðar til New
York.
Danska dagblaðið Berlingske
Tidende skýrir frá þessu í gær og
hefur eftir Almari Hilmarssyni,
forstjóra Sterling, að málið sé
nánast í höfn og útreikningar
flugfélagsins sýni að hægt sé að
hagnast á svo lágum fargjöldum
til Flórída. „Norðurlöndin eru
mikilvægasta markaðssvæði okk-
ar, en þar eru ekki óendanlegir
vaxtarmöguleikar og þess vegna
er mikilvægt að huga að nýjum
leiðum,“ segir Almar. „Margir
Danir, aðrir Norðurlandabúar og
Evrópubúar vilja fara í frí til Flór-
ída og við erum sannfærðir um að
við getum stækkað markaðinn.“
Áætlanir Sterling gera ráð fyrir
daglegu flugi til Flórída og er tal-
ið að nýlegt samkomulag flug-
félagsins við ferðaskrifstofuna
Krone Rejser sé mikilvægur
hlekkur í áætlunum um sókn á
Bandaríkjamarkaði. Lang-
tímaáætlanir Sterling gera einnig
ráð fyrir flugi til New York.
Gangi þessar áætlanir eftir geta
ferðalangar sem skipta við Sterl-
ing reiknað með 40–50% lægri
fargjöldum til Bandaríkjanna en
nú eru í boði. Ódýrustu ferðir sem
nú er boðið upp á til Bandaríkj-
anna, að sögn Berlingske Tid-
ende, eru miðar fram og til baka
til New York með SAS á 3.400
danskar krónur, eða tæpar 38
þúsund krónur. SAS mun hins
vegar ekki hafa nein áform um að
fljúga til Flórída, þrátt fyrir áætl-
anir Sterling. „Það er ekki skyn-
samlegt að fara að fljúga til Flór-
ída, bara af því að Sterling gerir
það. Við metum sífellt hvaða flug-
leiðir eru ákjósanlegar og núna
höfum við engar áætlanir um að
fljúga til Flórída,“ segir Mikkel
Nielsen, talsmaður SAS, í samtali
við Berlingske Tidende.
Ætli Sterling sér að fljúga til
Bandaríkjanna þarf flugfélagið
stærri flugvélar en það hefur nú
yfir að ráða og taka aðeins 189
farþega. Flugfélagið er því að
skoða stærri vélar, sem taka um
300 farþega, til dæmis Boeing
767.
Ljósmynd/Scanpix
Sterling ætlar að
bjóða lág fargjöld
til Flórída
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
!
"#
$%!
# $
%
#
!
&
%
'
'%
#
(
)* #+
,-!
#
$
$
.$
$ %
/
0
/%
1
2
%
%%3$*!
!4/##
)% 0* *
!" #$
5647
$) !
889:;
<9;;
=89=;
>89?;
?9;=
>89@?
>=9A?
?=89;;
<A9=;
><9?;
?<9;;
89>@
>A9>;
>>9:;
:;9?;
3
:9>?
<9@;
3
3
>A9=;
89B@
3
3
3
=9B;
3
3
3
3
3
>A8A9;;
!/
/
!
>9@;
3;9>;
;9>;
;9>?
;9;=
;9;?
;9;?
3>9;;
3>98;
3
3;9?;
3;9;=
3
;9;?
;9?;
3
;9;?
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
C=9BDE
C3>9<DE
C;9=DE
C>9;DE
C;9<DE
C;9=DE
C;98DE
C3;9ADE
C3A9ADE
3
C3;9BDE
C3;9@DE
3
C;98DE
C;9<DE
3
C;9<DE
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
'!
0 )
$
@BB;;<
>:A?<
?8=B:
A=;@:<
:?A
A;@<
AAA>??
=AB8>
8<<=>
>::?8@
:=B
@=>;
?>>@
A8=B@
AAA8
3
><=
@=B
3
3
:<>
>A::?<
3
3
3
@:
3
3
3
3
3
B=>?;
889:;
<9;;
=89;;
>898?
?9;;
>89<?
>=9A?
?=A9;;
<A9>;
><98;
?<9;;
89>@
>A9>;
>>9@?
@B9?;
?98?
:9;?
<9@;
A>9;;
>9;;
>A9=;
89B@
>9A;
>>9;;
A>9;;
=9B;
=9<;
?>9;;
3
B9=;
;9:=
3
8?9>;
<9;?
=89=;
>89??
?9;:
>89@?
>=9=;
?=89;;
<A9:;
><9<;
?<98;
89>B
>A9A?
>>9:?
:;9?;
3
:9>;
@9;;
A>9>;
A9;;
>A9<;
89B:
>9B?
>>9>?
A>9@;
89>?
=9:?
?A9:;
;9<?
B9:;
3
3
1
)G
0'H
#
>>?
@
>?
A?
=
<
A?
AB
:
AA
=
=
>A
:
8
3
>
A
3
3
A
@
3
3
3
A
3
3
3
3
3
>
0'3>I%
% #
0'3A$ / !#
%/
!
0'3=1!/
%#
% . 0'38 ! G!! 0'3?1!**
%
BÍLALEIGAN ALP,
sem einnig rekur Budg-
et-bílaleiguna, hefur
keypt bílaleiguna AVIS
á Íslandi. Seljandi er fyrirtækið Auto
Reykjavík en einungis bílaleigu-
reksturinn Avis á Íslandi var seldur
út úr félaginu. Nýir eigendur taka
við rekstrinum í dag en kaupverðið
fæst ekki gefið upp.
Þórunn Reynisdóttir, fráfarandi
forstjóri AVIS og annar eigenda,
segir að sl. rúmt ár hafi ítrekað verið
óskað eftir að kaupa reksturinn.
„Svo kom álitlegt tilboð sem við
gengum að,“ segir Þórunn.
Hún segir að komið sé að tíma-
mótum. „Ég er búin að
vera í þessum rekstri í
15 ár og nú er góður
tími til að hætta. Kom-
inn tími til að gera nýja hluti og fara í
útrás,“ segir hún og hlær við en fæst
ekki til að útlista útrásaráformin
nánar, segir einungis tækifærin vera
mörg í útrásinni. Þórunn hóf bíla-
leiguferil sinn hjá Flugleiðum fyrir
15 árum. Fyrstu níu árin byggði hún
upp bílaleigu Flugleiða, Hertz á Ís-
landi, en hefur um sex ára skeið
byggt upp AVIS-bílaleiguna, sem
hún á í félagi við Bandaríkjamann.
Forsvarsmenn ALP fengust ekki
til að tjá sig um kaupin á AVIS.
Bílaleigan ALP
kaupir AVIS
● KÖGUN hf. hagnaðist um rúmar
105 milljónir króna á fyrsta árs-
fjórðungi og er það nokkuð undir
væntingum greiningardeildar
Lands-
banka og
KB banka.
Haft er
eftir Gunn-
laugi M. Sigmundssyni, forstjóra
Kögunar, í tilkynningu að rekstur
fyrirtækisins hafi gengið vel og
heildarafkoman hafi verið lítillega
umfram áætlun. Þá hafi reksturinn
á tímabilinu verið sérstaklega
áhugaverður í því ljósi að um er
að ræða fyrsta ársfjórðunginn í
rekstri samstæðunnar eftir kaupin
á Opnum Kerfum Group hf.
Velta samstæðunnar nam 4,1
milljarði á fjórðungnum og er það
rúmlega fjórföldun miðað við fyrra
ár en veltan var samt einnig undir
væntingum. Hins vegar var hagn-
aður fyrir afskriftir og fjármagns-
liði, EBITDA, sem hlutfall af veltu
hærri en búist var við, eða 8,2%.
Á fyrsta ársfjórðungi vann Kögun
að því að mynda tvær sterkar
stoðir undir reksturinn sem er ann-
ars vegar hugbúnaðargerð og hins
vegar sala á vélbúnaði og þjón-
ustu. Til Kögunarsamstæðunnar
heyra fyrirtækin VKS, Ax, Hugur,
Landsteinar Strengur, Skýrr, Teymi,
Opin kerfi Group og Aston Baltic.
Kögun hagnast
um 105 milljónir
● ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR hefur tekið til-
boðum frá Íslandsbanka og Lands-
banka Íslands í íbúðabréf að nafnvirði
10 milljarðar króna. Í kjölfar útboðs-
ins hefur sjóðurinn ákveðið að útláns-
vextir sjóðsins verði óbreyttir, 4,15%.
Vegin heildarávöxtunarkrafa tilboð-
anna án þóknunar er 3,55%, en
3,57% með þóknun. Vaxtaálag vegna
rekstrar sjóðsins, varasjóðs og upp-
greiðsluáhættu er sem fyrr 0,6% og
útlánsvextir því 4,15%.
Í frétt frá Íbúðalánasjóði kemur
fram að útboðinu nú hafi verið lokað.
Sjóðurinn muni eftir sem áður leitast
við að selja skuldabréf sín í opnum út-
boðum, en í ljósi markaðsaðstæðna
hafi verið ákveðið að fara í lokað út-
boð að þessu sinni.
Greining Íslandsbanka segir að það
veki athygli að Íbúðalánasjóður skyldi
velja þá leið að fara í lokað útboð að
þessu sinni. „Sé litið til þróunar á
markaði og stærðar útboðsins er erf-
itt að sjá að sjóðurinn hefði fengið
verri kjör í opnu útboði,“ segir í Morg-
unkorni deildarinnar.
Með þessu útboði Íbúðalánasjóðs
hefur sjóðurinn boðið út 10 milljarða
króna af þeim 14 milljörðum sem út-
gáfuáætlun hans í þessum ársfjórð-
ungi kveður á um. Á fyrsta ársfjórð-
ungi var seldur einn milljarður umfram
áætlun.
Óbreyttir útlánsvextir
Íbúðalánasjóðs
, $KL?;;
D
D
0$4
M
D
D
668;
" N
D
D
N
, !
D
D
564N>?
MO(!
D
D