Morgunblaðið - 21.05.2005, Page 33
HRINGSNÚRUR
Hringsnúrurnar vinsælu eru komnar aftur.
Mikið úrval
ARIZONABÚINN Fred Witt er
mikill golfáhugamaður, og sem
áhugaleikmaður um fimmtugt með
smá varadekk um sig miðjan var
forgjöf upp á 20 vel eins og við
mátti búast. Allt þar til Witt skráði
sig á ForeMax-námskeið hjá West-
in Kierland-heilsubúðunum í Scots-
dale og umbreytti sjálfum sér og
golfleik sínum á aðeins sex vikum.
Það reyndist allt annað en auð-
velt.
„Í fyrstu þá fann ég til alls stað-
ar,“ hafði New York Times eftir
Witt, sem starfar sem skatta-
sérfræðingur. „Ég meina, mér var
meira að segja illt í eyrunum og
hélt ég væri hreinlega að deyja. Og
golfsveiflan – mér leið eins og ég
væri að sveifla kylfunni í stein-
steypu.“
Æfingar með þjálfara þrisvar
sinnum í viku þar sem ekki var eytt
minni tíma í almenna líkamsrækt,
á borð við þrek- og styrktaræf-
ingar, en golfkennslu skiluðu Witt
hins vegar umtalsverðum árangri.
Hraði og kraftur sveiflunnar juk-
ust verulega um leið og varadekkið
minnkaði.
Að sögn New York Times njóta
golfbúðir, líkt og þessar, þar sem
athyglinni er jafnt beint að al-
mennu líkamsástandi leikmann-
anna og golfleiknum, nú sívaxandi
vinsælda meðal Bandaríkjamanna.
Að mati blaðsins er þessi þróun
ekki hvað síst að þakka vöðvastælt-
um leikmönnum á borð við Tiger
Woods og Vijay Singh, sem hafa
gjörbreytt ímynd golfleikarans.
„Okkar týpíski viðskiptavinur er
með um 15 í forgjöf og örlítið of
þungur,“ segir Mike LaBauve, sem
átti sinn þátt í því að hanna Fore-
Max-kerfið. „Hann vill grenna sig
og verða liðugri, en langar ekkert
að hamast fleiri tíma á hlaupa-
bretti. Við segjum við hann: „Þú
átt eftir að tapa 7,5 kílóum og ná
15 metrum lengra inn á brautina“
og við erum búnir að sannfæra
hann.“
Að mati Witt skila námskeið á
borð við þetta hinum venjulega
áhugaleikmanni miklu. „Ef maður
vill bæta leik sinn, þá verður mað-
ur að bæta líkamlegt ástand sitt,“
segir hann alsæll með framfar-
irnar
Námskeið eins og ForeMax, sem
tekur um sex vikur, eru hins vegar
ekki á færi hvers og eins, enda get-
ur kostnaðurinn numið um hálfri
milljón króna – án gistingar og
uppihalds.
Heilsubúðir fyrir golfarann
HEILSA
Reuters
Tiger Woods er talinn eiga þátt í að
breyta ímynd golfleikarans.
Nánari upplýsingar um golf-
heilsubúðir:
Canyon Ranch Golf Boot Camp
Vefsíða: www.canyonranch.com
ForeMax
Vefsíða: www.kierlandresort.com
David Leadbetter Performance
Center
Vefsíða: www.davidleadbetter.com
hún með mig í litla tebúð til Kín-
verja þar sem ég fékk að lykta af
mismunandi tegundum. Ég valdi
eina, Tit Koon Yum, sem að vísu var
í dýrari kantinum en ég lét mig hafa
það. Þetta var mjög gott grænt kín-
verskt te, sem kláraðist einn, tveir,
þrír þegar heim var komið.“
Morgunblaðið/Eyþór
Peter Holbrok, prófessor í tannlækningum við Háskóla Íslands, hefur
kynnst mörgum sjaldgæfum tetegundum.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 33
DAGLEGT LÍF
Fylla ketilinn af köldu vatni.
Þegar vatnið nálgast suðumark
er örlitlu af heita vatninu hellt
út í teketilinn og látið leika um
botninn. Ketillinn tæmdur.
Setjið teskeið af te fyrir hvern
bolla út í ketilinn.
Hellið vatninu yfir teið um leið
og suðan er komin upp – nema
þegar hellt er upp á grænt te.
Þegar hellt er upp á grænt te má
vatnið ekki fara yfir 80–90°C.
Best er að vatnið kólni aðeins
eftir að suðan kemur upp.
Teið er látið standa og trekkja
jafn lengi og leiðbeiningar segja
til um, allt frá 3–15 mín. Ef teið
er í tesíu er hún tekin upp en ef
ekki er gott að umhella yfir í
annan teketil án þess að telaufin
fylgi. Einnig má notast við tesíu
þegar hellt er í bollann en þá er
hætt við að teið sem eftir er
verði rammt.
ATH! Te er hægt að geyma upp
undir tvö ár í málmdósum eða
dökkum glerílátum án þess að
skemmast.
ATH.! Te er viðkvæmt fyrir ilmi
og ætti ekki að geyma nálægt
kryddi.
Góður tebolli