Morgunblaðið - 21.05.2005, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF | FERÐALÖG
Vanuatu er rosalega vanþró-uð eyja og því algjörtmenningarsjokk að veraþar. Þetta er sjálfstætt
ríki og var seinasta landið til að
hætta að borða menn, það eru
ennþá til mannaofnar þarna, fólk
býr inni í skóginum í litlum þorpum
og lifir sjálfsþurftarbúskap. Þetta
er ekki klassískur ferðamanna-
staður en áströlsk pör fara svolítið
þangað í brúðkaupsferðir.
Sjötíu og tvær eyjar tilheyra
Vanuatu-eyjaklasanum og við
dvöldum í litlum bæ á einni þeirra.
Á þessum eyjum er gríðarlegt
karlaveldi, þegar fólk giftist fá karl-
arnir svínabein um handlegginn en
konurnar eru merktar með því að
brjóta úr þeim framtönn, það er
gert til að þær haldi ekki framhjá.“
Ójólaleg jól
Þær stöllur héldu út í byrjun
desember og komu heim í lok febr-
úar. Yfir jólin dvöldu þær í litlum
bæ, Byron Bay, í austurhluta Ástr-
alíu. „Jólin voru eins ójólaleg og
þau gátu orðið, við eyddum þeim á
ströndinni og í að skemmta okkur.“
Það er mikið gert fyrir bakpoka-
ferðalanga í Ástralíu enda er sá
ferðaiðnaður mjög fyrirferðarmikill
þar.
Guðrún segir að þær hafi að-
allega haldið sig á austurströndinni,
sem er algengasta leiðin hjá bak-
pokaferðalöngum, því þar er mest
að gerast og mikið af stöðum að
skoða. „Við heimsóttum ekki alla
þessa venjulegu ferðamannastaði,
enda fórum við út til að upplifa
hluti og kynnast fólki.“
Einn af eftirminnilegustu stöð-
unum sem þær heimsóttu var
fjallaþorpið Nimbin. „Um 1973
söfnuðust nokkrir hippar saman í
grænum dal uppi í fjallinu og héldu
þar svona hátíð svipaða Woodstock
til að fagna frelsinu og friðnum.
Eftir hátíðina fóru ekki allir heim
aftur heldur byggðu sér hús þarna
út um allan dal og nefndu staðinn
Nimbin. Þorpið er nú reyndar ekki
stærra en ein gata og fólkið er
þarna útúrreykt og virðist ekki lifa
á neinu.“
Vinir í öllum heimsálfum
Guðrún er að verða 21 árs og var
þetta hennar fyrsta ferð til Ástr-
alíu. Hún hefur áður farið í inter-
rail-lestarferð um Evrópu, ferðast
um Ítalíu og búið í Noregi. „Stefn-
an er að heimsækja öll löndin í
heiminum áður en ég verð gömul
og dey,“ segir Guðrún og hlær.
Í Ástralíu hitti Guðrún í fyrsta
skipti ástralskan pennavin sinn sem
hún hefur skrifast á við í tíu ár.
„Við höfum verið bestu vinir í
gegnum bréfaskriftir og því var það
svolítið furðulegt að hitta hann í
eigin persónu.
Maður kynnist alveg ótrúlega
mörgu fólki á svona ferðalagi og
það stendur upp úr eftir þessa ferð.
Við eigum núna vini úr öllum
heimsálfum.“
Melbourne stóð líka upp úr í
ferðinni hjá Guðrúnu. „Ég varð ást-
fangin af þeirri borg, þetta er stór-
borg en manni líður eins og í smá-
þorpi. Andrúmloftið er svo gott. Ég
var þar í tíu daga að slæpast, fór til
dæmis á reggítónleika, í bókabúðir,
garða og á kaffihús.“
Guðrún segir að Ástralir séu
mjög frjálslegir, „þeir eru miklu af-
slappaðri en Íslendingar og leyfa
sér meira að slaka á“.
„Ég held ég hafi fundið sjálfa
mig þarna úti. Það var gott að taka
sér frí frá námi og komast að því
hvað maður vill gera. Í haust stefni
ég svo á bókmenntafræðinám við
Háskóla Íslands.“
ÁSTRALÍA | Með bakpokan á heimaslóðum andfætlinga
Ætlar að stíga fæti á öll lönd heimsins
Guðrún og Aldís með frumbyggjum á Vanuatu.
Sólbrún og sælleg í Ástralíu.
„Við vorum mestallan tímann í Ástralíu en fórum í tíu daga til eyjunnar Vanuatu í Suður-Kyrrahafi, sem
margir Íslendingar ættu að kannast við úr Survivor-þáttunum,“ segir Guðrún Hulda Pálsdóttir sem fór
ásamt vinkonu sinni Aldísi Gyðu Davíðsdóttur í tæplega þriggja mánaða bakpokaferðalag um Ástralíu.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
NETIÐ | Misvísandi nöfn á hótelum og gististöðum
Gæta þarf að staðsetningunni
ÞEGAR Carmen Jones pantaði sér
herbergi á Crown Plaza Beverly
Hills-hótelinu gerði hún ráð fyrir
að hótelið væri, eins og nafnið
bendir til, í Beverly Hills. Raun-
veruleikinn reyndist hins vegar
annar og staðsetning hótelsins,
rúmir tveir kílómetrar frá Beverly
Hills, gerði gönguferðina í hátísku-
verslanirnar við Rodeo Drive öllu
lengri en Jones hafði gert ráð fyrir.
Eigendur hótela um víða veröld
hafa lengi vel margir hverjir farið
nokkuð frjálslega með staðsetn-
ingar gistihúsanna og að sögn
bandaríska dagblaðsins New York
Times hafa þessar ýkjur færst um-
talsvert í aukana. Ástæða þessa er,
að mati blaðsins, jafnt takmarkað
byggingarrými í miðbæ stórborga
sem og sívaxandi netnotkun við
ferðabókanir þar sem leitarvélar á
borð við Yahoo og Google, sem og
sérhæfðar ferðaleitarvélar líkt og
Orbitz, Travelocity og Expedia eru
gjarnan notaðar til að finna gist-
ingu.
„Stjórnendur vilja að nafn þeirra
hótels komi þar fyrst upp á skján-
um. Þannig að þeir eru að verða
mun ágengari í nafnavali,“ hefur
New York Times eftir Scott Smith,
sem sér um gistirými fyrir PKF
Consulting í Atlanta. „Að nafnið sé
ekki það rétta getur reynst slæmt
fyrir starfsemina.“
New York Times segir þetta ekki
hvað síst eiga við um ný hótel.
Byggingarými sé orðið takmarkað
innan miðborgarmarka, en fæstir
vilji beina athygli að því að hótelið
sé í raun og veru í úthverfi.
Í tilfelli Crown Plaza Beverly
Hills er hótelið í göngufjarlægð frá
Beverly Hills, en sú er ekki alltaf
raunin. Engar lögbundnar reglur
eru til um nafngiftir hótela þó sú
óskráða regla virðist gilda að hótel
geti notað nafn borgar sé fjar-
lægðin frá borgarmörkunum ekki
meiri en 16 km, þó finna megi dæmi
um annað. Þannig er Yosemite
Gateway Plaza til að mynda í rúm-
lega 75 km fjarlægð frá Yosemite-
þjóðgarðinum sem það dregur nafn
sitt af.
Eina leiðin til að vera alveg viss
um að staðsetning gististaðarins sé
í lagi er því líklega að draga fram
kortið og skoða aðstæður vandlega
og fullvissa sig um að staðsetning
sé sú sem nafnið gefur til kynna. En
slíkt má auðveldlega gera á flestum
ferðaleitarvefjum sem gjarnan
geyma kort þar sem skoða má ná-
kvæma staðsetningu hótelsins.
www.orbitz.com
www.expedia.com
www.travelocity.com
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.975 vikan
Bílaleigubílar
Sumarhús í
DANMÖRKU
www.fylkir.is sími 456-3745
Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgreiðslugjöld á flugvöllum.)
Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna
og minibus, 9 manna og rútur með/
án bílstjóra.
Sumarhús
Útvegum sumarhús í Danmörku af
öllum stærðum, frá 2ja manna og
upp í 30 manna hallir. Valið beint af
heimasíðu minni eða fáið lista.
Sendum sumarhúsaverðlista;
Dancenter sumarhús
Lalandia orlofshverfi
Danskfolkeferie orlofshverfi
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk gsm-símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á
heimasíðu; www.fylkir.is