Morgunblaðið - 21.05.2005, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 45
UMRÆÐAN
Rannsóknir á hitaflæði hafa sýnt
að hiti í jarðskorpu Eyjafjarðar er
afar lágur utan sjálfra jarð-
hitasvæðanna, raunar með því
lægsta sem mælist á landinu. Ekk-
ert í fyrirliggjandi rannsóknum
styður þær kenningar, sem tví-
menningarnir byggja álit sitt á.
Engar athuganir í Eyjafirði styðja
tilvist þeirra sprungulína, sem þeir
félagar setja fram, hvað þá að þetta
séu einhvers konar skörp flekamót.
Þá eru allar samlíkingar við Kröflu-
svæðið út í hött.
Ég verð því miður að hryggja
Eyfirðinga með því að það eru eng-
ar líkur á að í þeirra fagra héraði sé
að finna jarðvarma, sem nýst gæti í
raforkuframleiðslu til stóriðju. Í
þeim efnum verða þeir áfram að
treysta á orkulindir grannhér-
aðanna. Hitt er svo annað að rann-
sóknir Íslenskra orkurannsókna
hafa leitt til þess að fundist hefur
öflugt jarðhitakerfi á Arnarnesi við
Hjalteyri sem hefur stórbætt
orkubúskap hitaveitu Norðurorku
og nokkur von er að fleiri slík finn-
ist. En þau eru ekki á þeim slóðum
sem skurðpunktar lína tvímenning-
anna gefa fyrirheit um og alls ekki
nógu heit til raforkuframleiðslu.
Nýlega kom út Jarðhitabók eftir
dr. Guðmund Pálmason, fyrrum
forstöðumann Jarðhitadeildar
Orkustofnunar, forvera Íslenskra
orkurannsókna, ÍSOR. Hún var
gefin út af Hinu íslenska bók-
menntafélagi í samvinnu við ÍSOR
og Orkustofnun. Í Jarðhitabókinni
er fjallað ítarlega um jarðhitarann-
sóknir og nýtingu jarðhita. Hún er
kjörin fyrir alla sem vilja læra um
jarðhitann á Íslandi, eðli hans og
nýtingu.
Höfundur er jarðeðlisfræðingur
og forstjóri ÍSOR. Hann hefur verið
aðalráðgjafi Norðurorku í
jarðhitamálum síðan 1982.
ÉG VARÐ að láta segja mér það
þrem sinnum, líkt og
Egill forðum, að Val-
gerður Sverrisdóttir
iðnaðarráðherra teldi
litla ástæðu til að
fagna þó að Suð-
urnesjamenn und-
irrituðu viljayfirlýs-
ingu við Norðurál um
álversbyggingu í
Helguvík.
Af skiljanlegum
ástæðum hafa Suð-
urnesjamenn tekið
þessum orðum ráð-
herrans illa og þó hún
sé nú farin að óska
okkur til hamingju er
lítil hamingja í rödd-
inni. Núna segir hún,
„Það getur vart
hvarflað að Suðurnesjamönnum að
hætt verði við álversáform fyrir
norðan þótt viljayfirlýsing hafi ver-
ið undirrituð um álver í Helguvík“.
En afhverju skyldi það ekki hvarfla
að okkur? Það eru aðeins þrjú ár
síðan Valgerður ráðherra fékk
samþykkt að flytja allt nýbygging-
arfjármagn Byggðastofnunar, sem
dreift hafði verið til eignarhalds-
félaganna á landsbyggðinni þar á
meðal Suðurnesja, til að byggja
upp og reka þróunarstofnun á Ak-
ureyri. Af hverju skyldi ekki
hvarfla að Suðurnesjamönnum að
hún horfði einusinni í suður?
Valgerður hefur verið eindreginn
stuðningsmaður virkjana, m.a. við
Kárahnjúka, og hafa margir, þar á
meðal ég, staðið við bakið á henni
við þá umdeildu virkjun til að
skapa Austfirðingum möguleika í
sinni atvinnuuppbyggingu. Sú
ganga hefur ekki verið þrautalaus.
Ég benti á það í grein í Morg-
unblaðinu fyrir 6 árum að Íslend-
ingar gætu að mestu komist hjá
umhverfisspjöllum vegna raf-
orkuframleiðslu sinnar með því að
nýta jarðgufuna til raforkufram-
leiðslu. Síðan ég ritaði þessa grein
hefur mikið gerst í þessum geira og
orkan frá einni gufuholu hefur tí-
faldast vegna djúpborunartækni
sem tæknimenn Hitaveitu Suð-
urnesja og fleiri hafa
þróað. Orkubúskapur
Hitaveitu Suðurnesja
hefur verið til mikillar
fyrirmyndar og þar er
frekar rekinn orku-
garður með fjölþættri
nýtingu orkunnar en
einhliða virkjun. Má
benda á Bláa lónið í því
sambandi og heilsu-
uppbygginguna sem
þar er að þróast sam-
hliða. Orkan úr iðrum
Reykjanessins er nýtt
til hins ýtrasta.
Nú er komið að ál-
veri á Suðurnesjum.
Sú uppbygging verður
gerð í sátt við um-
hverfið og fólkið á
svæðinu. Þess vegna átt þú, Val-
gerður, að vinna með Suður-
nesjamönnum að uppbyggingu ál-
vers í Helguvík.
Þess vegna, Valgerður
Kristján Pálsson gerir
athugasemdir við ummæli
iðnaðar- og viðskiptaráðherra
um álver á Suðurnesjum
Kristján Pálsson
’Nú er komiðað álveri á Suð-
urnesjum.‘
Höfundur er fv. alþingismaður.
SAMFYLKINGARMENN hafa
löngum verið rómaðir fyrir fagra
nýyrðasmíð. Eitt það nýjasta í
þessum efnum er að
vinstri menn saka
stjórnarflokkana um
að stunda „stað-
festustjórnmál“ en
ekki „umræðustjórn-
mál“, eins og þeir
sjálfir boða. Stað-
festustjórnmál eiga
svo að lýsa sér í því
að hinn staðfasti neit-
ar að viðurkenna
nokkur mistök og
þrætir fyrir allt sem
hann hefur sagt og
gert, jafnvel þótt mis-
tök hans blasi við öll-
um.
Í ljósi þessa hefur verið athygl-
isvert að fylgjast með viðbrögðum
samfylkingarmanna og „Evrópu-
sérfræðinga“ þeirra við upplýs-
ingum um að Ísland innleiði 6,5%
af regluverki ESB í gegnum EES-
samninginn en ekki 80–90% eins
og linnulaust hefur verið haldið
fram. Já, því hefur nefnilega verið
stanslaust haldið fram af Samfylk-
ingarmönnum, til dæmis Ágústi
Ólafi Ágústssyni, Eiríki Bergmann
Einarssyni, Björgvini
G. Sigurðssyni og
Svanfríði Jónasdóttur
að Íslendingar séu
hvort sem er að inn-
leiða nær allt reglu-
verk Evrópusam-
bandsins og því alveg
eins gott að ganga í
sambandið og hafa
meiri áhrif á efni
reglnanna.
Og hvað gerist þeg-
ar þetta er leiðrétt?
Taka „umræðu-
pólitíkusarnir“ ábend-
ingunni vel, þakka
fyrir veittar upplýsingar og biðj-
ast velvirðingar á rangfærslunum?
Látum okkur ekki dreyma um
slíkt! Nei, það eru „staðfestu-
stjórnmálin“ sem eftir allt saman
ráða ríkjum í Samfylkingunni.
Farið er út í alger aukaatriði um
að eitthvað sé vantalið og í raun
hafi þetta alltaf legið fyrir, sam-
anber kostulegt svar Þórunnar
Sveinbjargardóttur á Alþingi þar
sem hún sagðist ekki fá betur séð
en að umrædd 6,5% gerða ESB
séu af heildarfjöldanum en legið
hafi fyrir í 10 ár að EES-
samningurinn næði ekki til allrar
starfsemi Evrópusambandsins! En
um það snerist auðvitað alltaf
áróðurinn, að með EES-samn-
ingnum værum við hvort eð er að
innleiða nær allan ESB-réttinn.
Nei, nei, nú á bara að þræta fyrir
það.
Þótt eitthvað væri vantalið og
þótt hlutfallið væri þrisvar sinnum
hærra en 6,5% er alveg ljóst að
málflutningur Evrópusambands-
sinna að því er varðar þetta atriði
hefur verið algerlega úti á þekju.
Og þá er ekkert annað en að við-
urkenna það bara, eða hvað?
„Staðfestustjórnmál“
Samfylkingarinnar
Hafsteinn Þór Hauksson
fjallar um stjórnmál
’… það eru „stað-festustjórnmálin“ sem
eftir allt saman ráða
ríkjum í Samfylking-
unni.‘
Hafsteinn Þór
Hauksson
Höfundur er lögfræðingur
og formaður SUS.