Morgunblaðið - 27.05.2005, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 27.05.2005, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 141. TBL. 93. ÁRG. FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Fá›u koss frá afmælisbarninu ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N /S IA .I S N A T 24 84 1 0 9/ 20 04 . Viðtökur eins og vítamín Hljómsveitin Á móti sól gefur út Hin 12 topplögin | Fólk Bílar og Íþróttir í dag Bílar | Alþjóðleg þolakstursveisla Nýr Suzuki Swift  End- ursmíðaði Willis 46  Streita á rauðu ljósi Íþróttir | Keflavík lagði KR  Liverpool fær ekki að vera með  Andri hetja ÍA París. AFP, AP. | Jacques Chirac, forseti Frakklands, skoraði á Frakka að samþykkja stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins (ESB) í lokaákalli til landsmanna í beinni sjónvarpsútsendingu í gær, þremur dögum fyrir þjóðarat- kvæðagreiðslu um sáttmálann. „Á sunnudag- inn kemur verður framtíð Frakk- lands að nokkru leyti undir ykkur öllum komin,“ sagði Chirac í tíu mínútna ávarpi. Hann lagði áherslu á að áhrif Frakka innan ESB myndu minnka ef þeir felldu stjórnarskrársáttmálann. Birtar voru tvær skoðanakannanir sem benda til þess að andstaðan við sáttmálann hafi aukist um tvö prósentustig frá því um helgina. 54–55% þeirra sem tóku afstöðu sögðust ætla að greiða atkvæði með sáttmálanum en 45–46% á móti. Um 20% hafa ekki gert upp hug sinn. „Gert að fríverslunarsvæði“ Forsetinn varaði við því að ef Frakkar felldu stjórnarskrársáttmálann tæki við „tímabil klofnings, efasemda og óvissu“ í Evrópusambandinu. „Ef Frakkland veikist, ef fransk-þýska parið veikist, ef Evrópa klofnar, þá verða það öfga-frjálshyggju- mennirnir sem ráða ferðinni í Evrópu … Evrópusambandið verður gert að einskæru fríverslunarsvæði.“ Hafni Frakkar stjórnarskrársáttmálanum verður Chirac fyrsti franski forsetinn sem bíður ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslu frá árinu 1969. Chirac hefur sagt að hann hygg- ist ekki fara að dæmi Charles de Gaulle sem sagði af sér sem forseti eftir ósigurinn 1969. Talið er hins vegar að stokkað verði upp í stjórninni og Jean-Pierre Raffarin láti af embætti forsætisráðherra felli Frakkar stjórnarskrársáttmálann. Chirac skoraði á Frakka að nota ekki þjóðaratkvæðagreiðsl- una til að refsa stjórninni. „Þetta er ekki spurning um stuðning eða andstöðu við stjórnina,“ sagði hann. „Það sem er í veði er framtíð ykkar sjálfra, barnanna ykkar, fram- tíð Frakklands og Evrópusambandsins.“ Öll aðildarríkin 25 þurfa að samþykkja sáttmálann til að hann geti tekið gildi. Varar við klofningi Jacques Chirac ávarp- ar frönsku þjóðina. Jacques Chirac skorar á Frakka að samþykkja stjórnar- skrársáttmálann NORSK-ÍSLENSKA síldin er byrjuð að veiðast innan íslensku fiskveiðilögsögunnar. Gullbergið kom í gærdag inn til Neskaupstaðar með 230 tonn af mjög vænni síld sem fékkst um 160 mílur austur af Dalatanga. Sjómenn segja að síldin virðist vera á vestur- eða suðvest- urleið og hafi að líkindum ekki áður verið innan íslensku fiskveiðilögsög- unnar í jafnmiklu magni og nú frá því að hún fór að ganga á Íslands- mið á nýjan leik í lok síðasta áratug- ar eftir þrjátíu ára hlé. Síldarskipin voru í gær að veiðum rétt innan landhelgislínunnar milli Íslands og Færeyja. Nótaskip hafa fengið afla síðustu daga en fram að því hafði síldin aðeins fengist í troll. „Það er fremur rólegt yfir þessu en við höfum þó aðeins orðið varir. Nótabátarnir hafa flestir fengið eitthvað en trollskipin eru þó að gera betur. Á meðan einn og einn nótabátur er að reka í síld er þetta í lagi. En það sem er ánægjulegast við þetta er að síldin heldur sig núna réttum megin við strikið. Hún er núna rétt innan landhelginnar en virðist vera að fikra sig í suðvest- urátt, sem er mjög góðs viti. Von- andi heldur hún sínu striki áfram og lengra inn í landhelgina,“ sagði Kristinn Hauksson, stýrimaður á Súlunni EA. Eyjólfur Guðjónsson, skipstjóri á Gullberginu VE, sagði að síldin sem þeir lönduðu á Neskaupstað í gær væri mjög góð. Hún væri öll yfir 300 grömm og þær stærstu eitthvað vel á fimmta hundrað grömm, en svo stór síld var kölluð demantssíld hér í eina tíð. „Það kemur glampi í aug- un á gömlu körlunum hérna sem upplifðu síldarárin,“ sagði Eyjólfur. Hann sagði að aflinn hefði fengist að mestu í einu kasti. Erfitt væri að segja til um hve mikil síld hefði ver- ið á svæðinu, en eitthvað væri um hana á svolitlu svæði. Fleiri skip hefðu verið þarna að veiðum, en þeim hefði gengið misjafnlega, enda væri síldin stygg. Hann sagðist telja að síldin væri að koma í miklu meira magni inn í íslensku lögsöguna en í nokkuð mörg ár. Gríðarlega mikilvægt Björgólfur Jóhannsson, formað- ur Landssambands íslenskra út- vegsmanna, segir það skipta gríð- armiklu að síldin veiðist innan lögsögunnar. „Það er mjög mikil- vægt fyrir samningsstöðu okkar í viðræðum um skiptingu kvóta úr stofninum, sérstaklega gagnvart Norðmönnum. Staða okkar er orðin mun sterkari og þetta sýnir að þeir hafa farið villir vegar.“ Norsk-íslenska síldin veiðist innan íslenskrar lögsögu Eftir Helga Mar Árnason og Hjálmar Jónsson Washington. AFP. | George W. Bush Bandaríkjaforseti ræddi við Mahm- oud Abbas í Hvíta húsinu í gær og var það fyrsti fundur hans með leið- toga Palestínumanna í rúm fjögur ár, eða frá því að Yasser Arafat fór til Washington í janúar 2001. Á fundinum í gær lofaði Bush pal- estínsku heimastjórninni fjárhags- aðstoð að andvirði 50 milljóna doll- ara, sem samsvarar 3,2 milljörðum króna, til uppbyggingar á Gaza- svæðinu, meðal annars til úrbóta í húsnæðismálum. Abbas hafði varað við því að friðarumleitanirnar í Mið- Austurlöndum gætu farið út um þúf- ur fengi ekki palestínska stjórnin meiri stuðning. Bush áréttaði einnig þá stefnu sína að stofnað yrði lífvænlegt Pal- estínuríki. Hann sagði að Ísraelar þyrftu að stöðva stækkun byggða ísraelskra landtökumanna á Vestur- bakkanum og forðast hvers konar aðgerðir sem gætu stefnt friðarum- leitunum í hættu. Bush lofar Abbas aðstoð AP Bush og Mahmoud Abbas á blaða- mannafundi í Washington í gær. Liverpool. AFP. | Hundruð þúsunda manna söfn- uðust saman á götum Liverpoolborgar í gær til að taka á móti nýkrýndum Evrópumeisturum. Leikmenn Liverpool héldu á Evrópubikarn- um á þaki strætisvagns sem ekið var um götur borgarinnar. Að sögn fréttavefjar BBC í gær- kvöldi var alls rúm milljón manna á götunum til að fagna liðinu eftir sigur þess á ítalska félaginu AC Milan í spennandi úrslitaleik Meistaradeild- ar Evrópu í fyrrakvöld. Fimmtungur allra launþega í Liverpool til- kynnti forföll vegna veikinda eða af öðrum ástæðum í gær eftir sigurinn. Talsmaður at- vinnurekenda sagði að um 20% launþeganna hefðu skrópað eða tilkynnt forföll af ýmsum ástæðum, en sú tala næði ekki til þeirra sem tóku sér frí fyrirfram. „Augljóslega mættu margir stuðningsmenn Liverpool ekki í vinn- una vegna timburmanna en talsvert var líka um að stuðningsmenn Everton tækju sér frí til að forðast sigurhlakkandi starfsfélaga.“ | D1 | 16 Reuters Rúm milljón manna hyllti lið Liverpool
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.