Morgunblaðið - 27.05.2005, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 27.05.2005, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR OPIÐ Á LAUGARDAG OFANLEITI 2, 103 REYKJAVÍK • HÖFÐABAKKA 9, 110 REYKJAVÍK SÍMI: 599 6200 www.ru.is Umsóknarfrestur framlengdur yfir helgina á www.ru.is Vegna mikillar aðsóknar verður afgreiðsla Háskólans í Reykjavík að Ofanleiti 2 opin á morgun, laugardag, milli kl. 10.00 og 14.00. F A B R IK A N HÁTT í tvö hundruð konur taka þátt í tengsl- anetsráðstefnu á Bifröst í dag þar sem 36 fyr- irlesarar flytja erindi. Dr. Herdís Þorgeirsdóttir, prófessor við Háskólann á Bifröst, er frum- kvöðull ráðstefnunnar en þetta er í annað sinn sem hún stendur fyrir ráðstefnu þar sem konur úr ólíkum stéttum koma saman til að efla tengsl- anet sitt. Herdís sagði stemmninguna í gær hafa verið mjög góða en þá voru um 150 konur mættar til setningarathafnar ráðstefnunnar. Konurnar gengu á Grábrók og hlýddu m.a. á erindi frá Guð- rúnu Ásmundsdóttur leikkonu og sr. Auði Eir. Guðrún fjallaði um Katrínu Einarsdóttur en hún var móðir Einars Benediktssonar, skálds. Katrín var fráskilin með mörg börn og að sögn Herdísar var barátta hennar einstök á þessum tíma. Þetta rímar vel við eitt af þemum ráðstefnunnar sem er fjölskyldan og atvinnulífið en Herdís bendir á að enn mæði mikið á konum í þeim efnum. Herdís vonast til þess að ráðstefnan verði að árlegum viðburði og segir einstakt að svona margar konur skuli leggja leið sína út fyrir borgarmörkin til að taka þátt. „Þessi ráðstefna eflir konur, ekki bara samtakamátt þeirra heldur bara hverja fyrir sig. Þetta laðar að konur úr ólíku umhverfi og þær efla hver aðra og vinna saman,“ segir Herdís. Ljósmynd/Þorgerður Gunnarsdóttir Guðrún Ásmundsdóttir leikkona flutti erindi um Katrínu Einarsdóttur fyrir 130 konur við setningu ráðstefnunnar um tengslanet í gær. Ráðstefnugestir gengu á Grábrók TOLLSTJÓRINN í Reykjavík mátti ekki afla sér upplýsinga úr málaskrá lögreglu um konu sem sótti um starf þjónusturfulltrúa í lögfræðideild á innheimtusviði embættisins. Þetta kemur fram í úrskurði Persónuvernd- ar en konan lagði fram kvörtun eftir að henni var tjáð að hún fengi ekki starfið, m.a. vegna þess að nafn henn- ar kom upp í málaskrá. Konan hafði starfað hjá tollstjóra- embættinu í sex ár en sótti um aðra stöðu. Í atvinnuviðtali var hún beðin að undirrita yfirlýsingu sem heimilaði tollstjóra að afla upplýsinga úr mála- skrá lögreglu og tollstjóra. Konan segist hafa haldið að hún væri að heimila könnun á sakaskrá en ekki á málaskrá. Í sakaskrá eru mál sem lýkur með dómi, lögreglustjórasátt eða með frestun ákæru. Í málaskrá lögreglu eru aftur á móti mun víðtækari upp- lýsingar um manneskjuna og í úr- skurði Persónuverndar er bent á að þær geti verið óáreiðanlegar og jafn- vel villandi. Í rökstuðningi tollstjóra fyrir þess- um kröfum kemur fram að starfa embættisins vegna sé mjög mikilvægt að starfsmenn tengist ekki ólöglegri starfsemi, sérstaklega ekki fíkniefna- heiminum. T.a.m. hafi starfsmenn að- gang að innri vef sem inniheldur nöfn allra tollstjóra en þeir eru annars auð- kenndir með númerum til að koma í veg fyrir að þeir verði fyrir aðkasti eða hótunum eins og áður hefur gerst. Í þessu starfi hefði konan auk þess fengið aðgang að viðkvæmum per- sónulegum upplýsingum um einstak- linga og fyrirtæki en í sumum tilfell- um er hægt að breyta upplýsingunum og skrá inn athugasemdir. Saklaus uns sekt er sönnuð Tollstjóri hafnar því að konan hafi ekki skilið hvað fólst í því að undirrita samþykki um að leita mætti gagna í málaskrá og byggir kröfu sína eink- um á sjónarmiðum um vammleysi rík- isstarfsmanna. Mikilvægt sé að þjón- ustufulltrúar séu ekki grunaðir, ákærðir eða í nánum tengslum við einhvern sem er á málaskrá vegna auðgunarbrota, brota á tolla- og fíkni- efnalöggjöf eða hegningarlöggjöf. Persónuvernd bendir hins vegar á að í auglýsingu um starfið hafi ekki verið tekið fram að tollstjóri færi hugsanlega fram á þessar upplýsing- ar þótt það gæti talist eðlilegt að fara fram á sakavottorð. Bent er á að samkvæmt stjórnar- skrá sé sá sem borinn er sökum sak- laus uns sekt er sönnuð. „Hún bindur ekki eingöngu dómstóla, heldur einn- ig aðra handhafa ríkisvaldsins, og fel- ur í sér að stjórnvöldum er óheimilt að byggja réttindi og skyldur manns á því að hann hafi gerst sekur um refsi- verða háttsemi ef háttsemin er ekki sönnuð með dómi.“ Óheimilt að leita í málaskrá Eftir Höllu Gunnarsdóttur hallag@mbl.is UM 96% aðspurðra telja rétt að gera almenningi kleift að gera til- boð í Símann og um 76% eru sam- mála því að hópur almennings sé myndaður um þátttöku í kauptil- boði á Símanum. Þetta kemur fram í skoðana- könnun sem Gallup gerði fyrir Al- menning ehf. Spurt var: Hversu sammála eða ósammála ert þú hópnum, sem er undir forystu Agnesar Bragadótt- ur og Orra Vigfússonar, um að rétt sé að mynda hóp almennings til að taka þátt í tilboði um kaup á Sím- anum frá upphafi? Einnig: Telur þú rétt eða rangt að gera slíkum hópi almennings kleift að taka þátt? Fyrri spurningunni svöruðu 44,3% á þann veg að þau væru mjög sammála og 31,7% voru frek- ar sammála. 12,9% svöruðu hvorki né, en 6,5% voru ósammála og 4,6% voru mjög ósammála. 96% svöruðu síðari spurningunni á þann veg að þeir teldu rétt að gera slíkum hópi almennings kleift að taka þátt, en 4% töldu það rangt. Könnun Gallups var gerð með símtölum 25. apríl til 5. maí síðast- liðinn. Úrtakið var 1.150 manns á öllu landinu á aldrinum 16–75 ára. Endanlegt úrtak var 1.064 einstak- lingar. Þar af neituðu 298 að svara og ekki náðist í 161. Svarhlutfallið var þannig 56,9%. 96% telja rétt að al- menningur taki þátt Tilboð í Símann HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær mann um þrítugt í 18 mánaða fang- elsi fyrir fíkniefnabrot. Ákært var fyrir smygl á 300 gr af amfetamíni til landsins frá Dan- mörku í desember 2003. Að mati Hæstaréttar tókst ákæruvaldinu ekki að sanna innflutning á efn- unum. Hins vegar var ákærði sak- felldur fyrir að hafa haft efnið í vörslum sínum og ætlað að selja það hér á landi. Frá refsivist ákærða var 16 daga gæsluvarðhald, sem hann sætti árið 2003, dregið frá. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Markús Sigurbjörnsson, Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen, Hrafn Bragason og Jón Steinar Gunnlaugsson. Verjandi var Hilmar Ingimundarson hrl og sækj- andi Sigríður J. Friðjónsdóttir frá ríkissaksóknara. 18 mánuðir fyrir fíkni- efnabrot ♦♦♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.