Morgunblaðið - 27.05.2005, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BÚIÐ er að semja við sterkan er-
lendan skákmeistara um að heyja
einvígi við Bobby Fischer hér á
landi fyrir árslok en nafn hans hef-
ur ekki enn verið gefið upp. Form-
legt tilboð um þátttöku í einvíginu
var lagt fyrir Fischer á fundi í gær
en hann féllst ekki á að skrifa undir
þar sem hann var ekki tilbúinn til
að fallast á þann mótherja sem
hafði verið valinn.
Alex Títomírov, auðkýfingurinn
sem hyggst leggja fram verð-
launafé, sagði að engir samningar
væru komnir á um einvígi á Íslandi.
Allt væri mögulegt í þessum efnum.
„Ég verð að koma aftur eftir tvær
vikur eða svo, og þá sjáum við til,“
sagði hann. Títomírov sagðist mjög
mikill áhugamaður um skák, með
einvíginu væri hægt að vekja at-
hygli á framförum í skákinni og
sérstaklega á slembiskák Fischers.
Slíkt einvígi hefði gildi fyrir alla
heimsbyggðina.
Einar S. Einarsson, formaður
stuðningsmannahóps Fischers,
sagði að skákmeistarinn væri í hópi
sterkustu skákmanna heims en
hann gæti ekki greint frá nafni
hans, með því væri hann að rjúfa
trúnað. Þá væri fleiri en eitt nafn
uppi á borðinu.
Líkt og fyrr var Boris Spasskí
ekki tilbúinn til að ræða fyrirhugað
einvígi milli Fischers og hins ónafn-
greinda skákmeistara en sagði að-
spurður að aldrei hefði komið til
tals að hann myndi heyja einvígið
við Fischer. Spasskí sagðist mjög
ánægður með að hafa fengið tæki-
færi til að hitta sinn gamla vin og
keppinaut. Þeir hefðu hist síðast í
Búdapest árið 1994 en ekki í Svart-
fjallalandi árið 1992 eins og kom
fram í Morgunblaðinu í gær.
Aðspurður sagðist Spasskí afar
ánægður með ákvörðun íslenskra
stjórnvalda að veita Fischer rík-
isborgararétt. „Þetta er kraftaverki
líkast því nú nýtur hann verndar.
Hann var í slæmri stöðu og ég hafði
miklar áhyggjur af honum þegar
hann var handtekinn. Grundvöllur-
inn fyrir handtökunni var mjög
skrítinn. Og það versta var að skák-
heimurinn gat alls ekki haldið
verndarhendi yfir honum,“ sagði
hann. Fáir hefðu barist fyrir hönd
Bobbys, sjálfur hefði hann reynt að
leggja sitt af mörkum með skrifum
í skáktímarit sitt. „Margir eru mjög
ánægðir með að Ísland hjálpaði
honum, því annars hefði hann ekki
haft neina möguleika á að sleppa úr
þessari gildru,“ sagði Spasskí.
Hann vonaðist til að koma fljótlega
aftur til Íslands og þá með eig-
inkonu sinni. Hann kynni vel við
loftslagið á Íslandi og hrósaði sér-
staklega íslenskum rækjusamlokum
sem hann sagði á háu gæðastigi og
hló við.
Aðspurður sagðist Spasskí ekki
búast við að koma aftur til einvíg-
isviðræðna við Fischer. Hann hefði
nóg að gera, einkum vegna starfa
sinna sem ritstjóri skáktímarits
sem gefið er út í Moskvu og dreift
til áskrifenda í öllum fyrrum lýð-
veldum Sovétríkjanna. Þó að upp-
lagið væri ekki mikið, 18.000 eintök,
væri tímaritið mikilvægt í að við-
halda skákþekkingu meðal ungra
skákmanna. Spasskí sagðist ánægð-
ur með tímaritið, hann græddi ekk-
ert á því en með því gæti hann lagt
sitt af mörkum til skákarinnar.
Snýst um andstæðinginn
Einar S. Einarsson, formaður
stuðningsmannahóps Fischers,
sagði að þó að ekki hefði verið
skrifað undir viljayfirlýsingu um
einvígi væri jákvætt að tekist hefði
að koma á fundi Fischers og Títom-
írov. „Bobby Fischer hefur staðfest
með þessum fundi að hann er að
íhuga það sterklega að koma að
skákborðinu á nýjan leik og tefla
sína nýju útgáfu af slembiskák
Fischers. En málið snýst þá meira
um hver verður andstæðingur
hans,“ sagði hann. Hvorki væri
hægt að greina frá nafni andstæð-
ings hans né mögulegri verðlauna-
fjárhæð. „Þetta er í hálfgerðum vé-
fréttastíl í augnablikinu og það er
ekki hægt að greina nákvæmlega
frá því en það er frétt út af fyrir sig
að Bobby gæti hugsanlega hugsað
sér að hefja taflmennsku á nýjan
leik,“ sagði hann. Ef til einvígis
kæmi yrði það haldið á Íslandi fyrir
árslok. Einar sagði að mögulega
gæti Fischer valið milli tveggja
andstæðinga og í hvaða röð hann
myndi tefla við þá.
Þeir Boris Spasskí og Títomírov
héldu af landi brott síðdegis í gær
en áður hafði Joel Lautier, forseti
Alþjóðasambands skákmanna, flog-
ið til baka til Parísar. Morgunblaðið
lagði mikla áhersla á að fá að taka
mynd af þeim Spasskí og Fischer
saman og féllst Spasskí á það án
nokkurra málalenginga og sagðist
ætla að koma slíkri ósk á framfæri
við Fischer. Fischer var á hinn bóg-
inn ófáanlegur til vera með á slíkri
ljósmynd.
Ekki tókst að fá Bobby Fischer til að skrifa undir tilboð um skákeinvígi
Fischer ekki tilbúinn til
að samþykkja mótherjann
Einvígið yrði
haldið hér á
landi fyrir árslok
Morgunblaðið/Sverrir
Áður en Spasskí (t.v.) hélt af landi brott skrifaði hann nafn sitt á veggspjöld með skopteikningu Halldórs Péturs-
sonar af „Einvígi aldarinnar“. Einar S. Einarsson sýnir hér Alex Títomírov skopmyndirnar.
Bobby Fischer var ekki tilbúinn til
að skrifa undir tilboð um einvígi.
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
SLEMBISKÁK Fischers eða „Fisch-
erandom Chess“ er eitt af mörgum
afbrigðum við hefðbundna skák sem
komið hafa fram í gegnum tíðina.
Talsvert er um upplýsingar um
þetta afbrigði Fischers á netinu en
þó virðist sem menn séu ekki á eitt
sáttir um þær reglur sem gilda.
Slembiskák Fischers er einnig köll-
uð skák 960 þar sem reiknað hefur
verið út að mögulegar upphafs-
stöður eru 960.
„Skák er gengin sér til húðar sem
keppnisíþrótt,“ sagði Fischer í við-
tali við Morgunblaðið fyrir skömmu.
„Það er ágætt fyrir fólk að kaupa
sér skáktölvu til þess að þjálfa hug-
ann og sem áhugamál er skák ágæt
en sem keppnisíþrótt er hún al-
gjörlega ónýt.“ Aðalatriðið við
slembiskákina er að skákmenn geta
ekki og þurfa ekki að læra hverja
einustu byrjun utanbókar.
Peðin á sama stað
Fischer hefur birt reglurnar á
heimasíðu sinni og má nálgast tengil
á hana á Fréttavef Morgunblaðsins,
mbl.is/ítarefni.
Reglur um manngang eru þær
sömu og í venjulegri skák, peðunum
er stillt upp á sama hátt og fyrr og
svartur og hvítur byrja með sömu
stöðu. Í upphafi er taflmönnunum
fyrir aftan peðin einnig raðað upp á
hefðbundinn hátt en síðan er röðinni
breytt með hjálp tölvuforrits, þó
ekki á algjörlega tilviljanakenndan
hátt. Þannig verða hrókar að vera
hvor sínum megin við kónginn og
annar biskupinn verður að vera á
svörtum reit en hinn á hvítum. Sem
fyrr má ekki hrókera eftir að kóng-
ur eða sá hrókur sem á að nota við
hrókeringuna hefur verið hreyfður
eða ef það er „skák“ á einhverja reiti
á milli hróks og kóngs. Reglur um
hrókeringu í slembiskák Fischers
eru nokkuð aðrar en í venjulegri
skák en í sem stystu máli eru þær
eftirfarandi, samkvæmt www.ches-
svariant.com:
Ef hvítur hrókerar kóngnum til
vinstri fara kóngurinn og hrókurinn
á sömu reiti og þeir hefðu gert í
venjulegri skák. Hið sama á við ef
hrókerað er til hægri. Staðan verður
sem hér segir:
Hvítur hrókerar kóng til vinstri:
Kc1, Hd1
Hvítur hrókerar kóng til hægri:
Kg1, Hf1
Svartur hrókerar til vinstri: Kc8,
Hd8
Svartur hrókerar til hægri: Kg8,
Hf8.
Nánari skýringar má nálgast á
heimasíðu Fischers.
Hægt að kasta upp
á byrjunarstöðu
Fyrir þá sem ekki búa svo vel að
eiga tölvuforrit fyrir slembiskák
Fischers hafa ýmsir stungið upp á
möguleikum til að raða taflmönn-
unum í upphafsstöðu með því að
kasta teningi.
Hans L. Bodlaender hefur stungið
upp á þessari aðferð til að stilla upp
mönnum hvíts. Athugið að upphafs-
staða svarts er spegilmynd af upp-
hafsstöðu hvíts.
Kastið teningnum og setjið hvítan
biskup á svartan reit samkvæmt
þeirri tölu sem kemur upp á ten-
ingnum, þ.e.a.s. ef 1 kemur upp á
teningnum er biskupinn settur á
fyrsta svarta reitinn frá vinstri. Ef 5
eða 6 koma upp á teningnum verður
að kasta aftur.
Kastið teningnum og setjið hvítan
biskup á svartan reit samkvæmt
þeirri tölu sem kemur upp á ten-
ingnum. Ef 5 eða 6 koma upp á ten-
ingnum verður að kasta aftur.
Kastið teningnum og setjið
drottninguna á fyrsta auða reitinn
frá vinstri sem kemur upp. Ef
drottningin lendir á reit sem biskup
stendur þegar á kastið þá aftur. Með
þessu móti lendir drottningin á
fyrsta auða reitnum ef 1 kemur upp
en á þeim auða reit sem er lengst til
hægri ef 6 kemur upp.
Setjið riddara á fyrsta auða reit-
inn sem kemur upp á teningnum. Ef
6 kemur upp verður að kasta aftur.
Setjið hinn riddarann á þann reit
sem kemur upp með teningakasti. Ef
5 eða 6 kemur upp kastið þáaftur.
Setjið hrók á fyrsta auða reitinn
(alltaf er talið frá vinstri), hvíta
kónginn á annan auða reitinn og
þann hrók sem eftir er á þriðja auða
reitinn.
Reglurnar í slembiskák Fischers
Möguleg staða í slembiskák.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík-
ur dæmdi í gær þrjá karlmenn í
1–3 ára fangelsi fyrir að smygla
tæpum 2,8 kg af amfetamíni og
nærri 600 gr af kókaíni til lands-
ins Dettifossi í fyrra.
Þyngsta dóma hlutu Jón Arn-
ar Reynisson, 3ja ára fangelsi,
og Hinrik Jóhannsson, 2ja ára
fangelsi.
Málið komst upp þegar skip-
stjórinn á Dettifossi hringdi í
lögreglu og lét vita af því að
skipverji sem var við störf í
skipinu hefði komið auga á að
átt hafði verið við innsigli á
gámi. Við nánari athugun fann
skipverjinn pakkningar í gámn-
um, sem innihéldu fíkniefnin.
Amfetamín í sorppoka
Þeir Jón Arnar og Hinrik
voru einnig ákærðir ásamt
fjórða manninum fyrir að reyna
að flytja hingað til lands að
minnsta kosti 400 grömm af am-
fetamíni með Dettifossi frá Dan-
mörku. Var amfetamíninu kom-
ið fyrir í sorppoka í lest skipsins.
Hinrik játaði að hafa keypt efnið
en Jón Arnar sagðist hafa hætt
við flytja það til landsins og
féllst dómurinn á það og gerði
honum ekki refsingu fyrir það.
Fjórði maðurinn neitaði hins
vegar alfarið sök og taldi dóm-
urinn ósannað að hann hefði
gerst sekur um það brot.
Guðjón St. Marteinsson hér-
aðsdómari dæmdi málið. Verj-
endur voru Brynjar Níelsson
hrl. fyrir Hinrik, Björn Þorri
Viktorsson hrl. fyrir Jón Arnar
og Guðrún Sesselja Arnardóttir
fyrir meðákærða. Sækjandi var
Daði Kristjánsson.
Hlutu allt
að 3 ára
fangelsi
fyrir fíkni-
efnasmygl
HEIMILDALAUS birting á
nafni og mynd af sjúklingi sem
liggur á Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi (LSH) í DV í gær er
gróft virðingarleysi við þennan
einstakling og fjölskyldu hans,
segir Magnús Pétursson, for-
stjóri LSH, í grein sem birtist á
vef LSH í gær.
Tilefni greinarinnar er frétt í
DV um mann sem smitaðist af
hermannaveiki, þar sem hann er
nafngreindur og mynd birt af
manninum. Í grein Magnúsar
segir að fjölmiðlar hafi fjallað ít-
arlega um þetta tilfelli af her-
mannaveiki sem hefur greinst
hér á landi, og hafi þessi umfjöll-
un verið fagleg og yfirveguð, að
umfjöllun DV undanskilinni.
„Það er almenn sátt í sam-
félagi okkar að virða friðhelgi
einkalífs hjá fólki sem þarf að
dvelja á spítala vegna veikinda
sinna. Heimildarlaus birting á
nafni sjúklings í blaðinu, svo
ekki sé minnst á að birta líka
mynd af honum án leyfis, er
gróft virðingarleysi við þennan
einstakling og fjölskyldu hans.
Starfsmenn spítalans leggja sig
fram um að virða sjúklinga og
réttindi þeirra. Spítalinn gerir
um leið kröfur til þess að fjöl-
miðlar sýni sjúklingum nær-
gætni og virðingu, DV eins og
aðrir,“ segir Magnús í grein
sinni.
Forstjóri LSH
um umfjöllun DV
Gróft virð-
ingarleysi
við sjúk-
linginn