Morgunblaðið - 27.05.2005, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AKUREYRI
Fossvogur | Það er svo sannarlega
ekki hægt að segja að lífið sé rólegt
þessa dagana í Ræktunarstöð
Reykjavíkur, sem staðsett er á
svæði gömlu skógræktarinnar í
Fossvogi. Þar hamast nú hópur
starfsmanna undir stjórn Rögnu
Sigursteinsdóttur að gera klárar
sumarplöntur fyrir beð og skraut-
svæði borgarinnar, kál og krydd fyr-
ir skólagarðana, trjáplöntur fyrir ný
framkvæmdasvæði og blómaker
sem fara víða um bæinn.
Mikið og fjölbreytt starf er unnið í
Ræktunarstöðinni.
Alls útbýr Ræktunarstöðin
200.000 blómplöntur og 40.000 tré
og runna fyrir borgina á ári hverju.
Í stöðinni vinna sjö garðyrkjufræð-
ingar í föstu starfi, en á sumrin bæt-
ast við um 20–30 sumarstarfsmenn
úr hópi námsmanna. „Það kemur
þeim mjög á óvart hvað þetta er lík-
amlega krefjandi starf og þau eru
oft algerlega uppgefin eftir fyrsta
daginn,“ segir Ragna og bætir við að
engu að síður sé starfið gríðarlega
fjölbreytt. „Það má segja að við
vinnum hvert verk einu sinni á ári,
en það eru þúsund verk sem þarf að
vinna á hverju ári, svo eftir tólf ár
ertu bara búinn að gera sama verkið
tólf sinnum. Þetta er mjög fjölbreytt
og skemmtilegt starf og nóg að gera
árið um kring. Þetta er mikil þol-
inmæðisvinna og í raun umönn-
unarvinna, því við erum að hlúa að
plöntunum á mismunandi stigum.“
Þrestir skemmtilegir grannar
Sumarblómin eru ræktuð í pott-
um inni í gróðurhúsum og síðan sett
út til að herða þau áður en þau fara
út í garða Reykjavíkur. Þá rækta
Ragna og samstarfsfólk hennar upp
græðlinga af alaskavíði og sá furu,
reynitrjám og fleiri tegundum í
potta og hlúa að þeim til að hægt sé
að planta þeim víða um borg. Starfs-
menn Reykjavíkurborgar voru í óða
önn að sækja plöntur til að prýða
borgina þegar blaðamaður heimsótti
stöðina.
Við hlið Ræktunarstöðvarinnar er
stærsta starrabækistöð á landinu og
eru starrarnir að sögn Rögnu afar
skemmtilegir nágrannar. „Þeir fara
á fætur við sólarupprás og hafa
mjög hátt á meðan þeir eru að hópa
sig saman og svo fljúga þeir út í
svörtum skýjum út í Vesturbæ,
Laugardal og út um alla Reykjavík.
Síðan þegar sólin sest koma þeir aft-
ur í gríðarstórum svörtum hópum og
fara að spjalla saman í skóginum,“
segir Ragna og bætir við að þó séu
skógarþrestirnir mun meiri grannar
starfsfólksins, því þeir trítli um við
fætur þeirra þegar verið er að
gramsa og grafa í moldinni. „Þeir
eru ótrúlega gæfir og bíða alltaf eft-
ir að við mokum upp og borða þá
skordýrin. Þeir eru stundum alveg
við lappirnar á okkur og við erum
farin að gefa þeim nöfn í gríni.“
Ætíð næg verkefni hjá Ræktunarstöð Reykjavíkur
Morgunblaðið/Golli
Margarítur Ragna vökvar í gróðurhúsunum gular margarítur sem án efa munu prýða marga fagra garða.
Sumarplönturnar á leiðinni út
Reykjavík | Skipulagsráð samþykkti
á fundi sínum sl. miðvikudag tillögu
Dags B. Eggertssonar, formanns
skipulags- og byggingarnefndar, að
stofna stýrihóp um gerð ramma-
skipulags vesturhluta Ártúnshöfða.
Hópurinn mun hafa það hlutverk að
undirbúa skipulagsvinnu, gera áætl-
un um samráð við íbúa og hagsmuna-
aðila og hafa yfirumsjón með fram-
gangi verkefnisins með það fyrir
augum að framlengja bryggjuhverf-
ið inn í Elliðavog og jafnvel eru hug-
myndir um að bryggjuhverfi rísi hin-
um megin við Geirsnefið.
Dagur B. Eggertsson og Andri
Snær Magnason voru tilnefndir
fulltrúar Reykjavíkurlista en Guð-
laugur Þór Þórðarson var tilnefndur
fulltrúi Sjálfstæðisflokks. Á fundin-
um bókuðu fulltrúar Sjálfstæðis-
flokks óánægju sína með þær að-
stæður sem íbúum Bryggjuhverfis
hefur verið boðið upp á undanfarin
ár. Sagði þar m.a. „Þremur árum eft-
ir að Reykjavíkurlistinn auglýsti að
búið væri að hreinsa allar strendur
borgarinnar var enn opið skolpræsi
við hverfið og varað er við umgengni
í nálægum fjörum vegna skolpmeng-
unar. Aðkoma að hverfinu er mjög
erfið fyrir íbúa og nábýlið við nálæga
atvinnustarfsemi skapar augljóslega
vanda.“
Ólafur F. Magnússon, áheyrnar-
fulltrúi F-lista tók í sinni bókun und-
ir nauðsyn þess að bæta úr umhverf-
ismálum íbúa Bryggjuhverfisins.
Fulltrúar Reykjavíkurlista sögðu þá
sjálfstæðismönnum ganga illa „að
temja sér hinn nýja og jákvæða tón
sem talsmenn flokksins hafa boðað
undanfarna daga“. Með útvíkkun
Bryggjuhverfis og íbúðabyggð við
Elliðaárvog gæti orðið til eitthvert
skemmtilegasta íbúasvæði borgar-
innar. „Henni er sannarlega ætlað að
leysa á köflum erfiða sambúð grófrar
atvinnustarfsemi og íbúahverfis,“
sagði m.a. í bókun fulltrúa R-listans.
Bryggjuhverfið
framlengt til vesturs
Kópavogur | Biðlaunaákvæði hefur
verið tekið úr starfssamningi bæj-
arstjóra Kópavogs og mun Gunnar
Birgisson, verðandi bæjarstjóri, því
ekki þiggja biðlaun síðasta mánuð
sinn í starfi. Þetta var samþykkt á
bæjarstjórnarfundi þ. 25. maí sl.
Það voru fulltrúar Samfylkingar-
innar sem lögðu til að ákvæði um
mánaðar biðlaun eftir starfslok félli
niður og var sú tillaga samþykkt
með 10 atkvæðum á fundinum.
Eftir fyrirspurn frá Samfylking-
unni upplýsti Gunnar að hann hygð-
ist taka laun sem þingmaður næstu
fjóra mánuði eða til 1. október, en
hann tekur við starfi bæjarstjóra 1.
júní nk. Fulltrúar Samfylkingar
gagnrýndu það fyrirkomulag og
lögðu m.a. fram eftirfarandi bókun:
„Við teljum það óeðlilegt að bæj-
arstjóri sem hefur kr. 768.854 í föst
laun auk fríðinda gegni öðru laun-
uðu fullu starfi næstu fjóra mán-
uði.“ Kom fram í máli Ármanns Kr.
Ólafssonar, bæjarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokks, að Gunnar hygðist
sinna þingmannsstarfinu í frítíma
sínum.
Gunnar Birgisson segir áherslur
samfylkingarmanna á þessi mál
sýna málefnafæð þeirra í bæjar-
stjórn. Hann sé ekki í stjórnmálum
til að græða peninga, enda væri
tímakaupið lágt, ef hann reiknaði
það fyrir vinnu sína, sérstaklega í
bæjarmálum. „Þinglaunin sem ég
þigg eru sumarfrí sem ég hef unnið
mér inn og síðan störf í haust sem
ég var búinn að skuldbinda mig í,
m.a. fundir EFTA-nefndarinnar í
Liecthenstein, þannig að það er
ekki eins og ég sitji auðum höndum
og taki laun fyrir,“ segir Gunnar.
Engin biðlaun
STOFNFUNDUR samtaka um fjöl-
breytta atvinnuuppbyggingu í Eyja-
firði verður haldinn í Deiglunni á
laugardag, 28. maí, kl. 14.
Frummælendur á fundinum eru
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson formað-
ur Samtaka um Náttúruvernd á
Norðurlandi, Bergþóra Aradóttir,
starfsmaður hjá ferðaþjónustuklasa,
Jón Kristófer Arnarson, fram-
kvæmdastóri Skógræktarinnar í
Kjarna, Haraldur Ingi Haraldsson,
frumkvöðull í bláskeljarækt í Eyja-
firði, Ragnheiður Þorláksdóttir frá
Náttúruvaktinni og Ingi Rúnar Eð-
varðsson, prófessor við Háskólann á
Akureyri.
Að stofnun samtakanna stendur
hópur fólks sem vill stuðla að fjöl-
breytni í atvinnumálum með áherslu
á nýsköpun, þekkingariðnað og há-
tækniiðnað á svipuðum nótum og
kemur fram í vaxtarsamningi Eyja-
fjarðar. Þar er lögð áhersla á mat-
vælaiðnað, ferðaþjónustu, heilbrigð-
isklasa og menntun og rannsóknir.
Hópurinn telur að álver geri það ekki,
heldur geti kippt stoðunum undan
þeirri starfsemi sem þegar er til stað-
ar, t.d. með því að skaða ímynd Eyja-
fjarðarsvæðisins sem matvælafram-
leiðsluhéraðs og ferðamannastaðar.
Samtök um fjölbreytta
atvinnuuppbyggingu
Vilja ekki
álver
Myndlist | Sýningu Gunnars Kr.
Jónassonar myndlistarmanns í
gömlu kartöflugeymslunni í Gilinu á
Akureyri lýkur á laugardag. Sýn-
ingin er opin virka daga kl. 16–18 og
20–22 og á laugardag kl. 14–18.
LEIKFÉLAG Akureyrar hefur
verið sýknað af kröfum fyrrver-
andi leikara sem krafðist rúmrar
milljónar í bætur af félaginu fyrir
uppsögn. Deilt var um gildi upp-
sagnarbréfs frá í febrúar 2003
sem leikhússtjóri ritaði leikaran-
um.
Leikarinn baðst undan því að
fara með hlutverk í leikritinu
„Uppistand um jafnréttismál“ en
hann greindi frá því að fljótlega
eftir að æfingar á leikverkinu hóf-
ust hefðu runnið á hann tvær
grímur og hann haft efasemdir um
að rétt væri að gantast með efni
sem þetta, ekki síst vegna þess að
leikfélagið átti í málaferlum vegna
jafnréttismála.
Kvaðst hann hafa látið þessa
skoðun sína í ljós en þrátt fyrir
það afráðið að reyna að æfa verk-
ið. Á æfingunum hefði hann hins
vegar margoft lýst viðhorfum sín-
um og jafnframt látið í ljós efa-
semdir um að hann treysti sér til
að taka frekari þátt.
Að lokum hefði hann gert upp
hug sinn um að hann gæti ekki
haldið áfram æfingum og í fram-
haldi af því greint leikhússtjór-
anum frá þeirri ákvörðun sinni, að
hann gæti ekki sinnt verkefninu
samvisku sinnar vegna.
Kvaðst hann hafa haft orð á því
við leikhússtjórann að hann yrði
eftir atvikum að reka hann úr
starfi vegna þessa, en að hann
yrði að finna einhverja aðra
ástæðu fyrir brottvikningunni, þar
eð hann ætti rétt á því sem at-
vinnuleikari að segja sig frá til-
teknum verkefnum, stríddu þau
gegn samvisku hans.
Héraðsdómi Norðurlands eystra
þótti ósannað að leikarinn hefði
haft uppi athugasemdir um gildi
eða réttaráhrif ráðningarslitanna.
Óumdeilt var að hann tók ekki
frekari þátt í leikverkum á vegum
félagsins á leikárinu en þáði
starfslaun í 6 mánuði eftir ráðn-
ingarslitin. Þótti dómnum að leik-
arinn hefði sýnt af sér verulegt
tómlæti um þann rétt sem hann
taldi sig eiga. Var það því nið-
urstaða dómsins að hann hefði í
verki virt ráðningarslit leikhús-
stjórans sem leikhúsráð staðfesti
síðar með gildum hætti.
LA var sýknað af kröfum leikara
ÞRÁTT fyrir kalt vor á Akureyri
hefur hrafninn sem verpir árlega
í Glerárgili ungað út eggjum sín-
um.
Hreiðrið er í næsta nágrenni
við Glerárskóla og hafa nem-
endur farið með kennara sínum
til að skoða það en þó er það að-
eins hægt frá bakkanum á móti.
Staðsetningin er jafnframt rétt
við nýtt stöðvarhús Glerárvirkj-
unnar, sem risið hefur á bakka
árinnar.
Vegna kuldanna er varp fugla
fremur seint á ferðinni í ár.
Hrafninn
ungar út
eggjum
Morgunblaðið/Kristján